Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 69
M YN DBÖN D/KVIKM YN Dl R/ÚTVARP-S JÓN VARP
BÍÓIM í BORGINNI
Sæbjöm Valdimarsson/AmaJdur Indríðason/Anna Sveinbjamardóttir
BÍÓBORGIN
Kostuleg kvlkindi * *'A
Space Jam * *
Snillingurinn Michael Jordan og
Kalli kanína bjarga leikinni teikni-
mynd frá umtaisverðum leiðindum.
Við hæfi ungbarna og forfallinna
NBA-aðdáenda.
Fjötrar * *'h
Kolsvartur gamantryllir um
gallharðar gellur sem bjóða
drápara mafíunnar byrginn. Vel
leikin og frumleg.
Auðuga eiginkonan *
Heilsutæp samsærismynd sem gefst
upp í lokin.
SAMBÍÓIN, ÁLFA-
BAKKA
„Metro" * *
Eddie Murphy á fornum slóðum
Beverly Hills Cop og bætir engu
nýju við.
Innrásin frá Mars * *'A
Svört vísindaskáldleg gamanmynd
er feiknavel gerð en að þessu sinni
er Burton bitlítill og grínið einhæft.
Space Jam * *
Sjá Bíóborgina.
Þrumugnýr * *'h
Flugvélatryllir með snarbijáluðum
Ray Liotta sem gerir hvað hann
getur til að stúta farþegaflugvél.
Hringjarinn í Notre Dame
***
Vönduð, falleg fjölskyldumynd
byggð á hinni sígildu sögu um til-
vistarkreppu kroppinbaksins í Frú-
arkirkju. Litlaus tónlist og fram-
vinda en snjöll, íslensk talsetning.
Sonur forsetans * *
Lumma um forsetasoninn og vin
hans í lífverðinum sem losar um
hann f einangrun Hvíta hússins.
Sinbad á einn hrós skilið og fellur
vel í kramið hjá smáfólkinu.
Lausnargjaldið ***
Gibson leikur auðkýfmg sem lendir
f því að syni hans er rænt. Snýr
dæminu við og leggur lausnarféð
til höfuðs skálkunum. Gibsonmynd
í góðum gír.
Dagsljós **'h
Góð spennumynd með þögulum
Stallone þrumubrellum.
Jerry Maguire ** *. Sjá
Stjörnubíó.
Djöflaeyjan ***'A Friðrik Þór,
Einar Kárason, óaðfinnanlegur leik-
hópur og leiktjaldasmiður og reynd-
ar allir sem tengjast Djöflaeyjunni
leggjast á eitt að gera hana að einni
bestu mynd ársins. Endursköpun
braggalífsins er í senn fyndin, sorg-
leg og dramatísk.
HÁSKÓLABÍÓ
Stjörnustríð * * *'A
Endurunnið stríð í orðsins fyllstu
merkingu. Lengi getur gott batnað.
Þessi tvítuga vísindafantasía stend-
ur fyrir sínu og viðbótin er fag-
mennskan uppmáluð,
Kolya ***'/i
Töfrandi og hlý mynd sem yljar
bíógestum um hjartarætur.
Fyrstu kynni * * *
Star Trek sagnabálkurinn lifir góðu
lífi undir stjóm nýs skipherra. Geisl-
ið mig í bíó!
Móri og Skuggi („The Ghost
and the Darkness") **
Tveir ævintýramenn tengjast
tryggðaböndum á ljónaveiðum í
Afríku. William Goldman skrifar
handritið sem kemur kunnuglega
fyrir sjónir.
KRINGLUBÍÓ
„Metro" ** Sjá Sambíóin,
Álfabakka.
Innrásin frá Mars * *'h
Svört vísindaskáldleg gamanmynd
er feiknavel gerð en að þessu sinni
er Burton bitlítill og grínið einhæft.
Kvennaklúbburinn * *'h
Þrjár góðar gamanleikkonur,
Hawn, Keaton og Midler, fara á
kostum sem konur sem hefna sín á
fyrrum eiginmönnum.
Space Jam * * Sjá Bfóborgina.
LAUGARÁSBÍÓ
Evita **'h
Madonna og Antonio Banderas eru
glæsileg en það dugir ekki til þess
að fanga athyglina í of langri mynd.
Borg Englanna *'h
Óttalega óspennandi og lítilsiglt,
nátthrafnaævintýri. Mun síðra en
fyrri myndin
Koss dauðans * * *'h
Geena Davis og Samuel L. Jackson
fara á kostum í frábærri hasarmynd
frá Renny Harlin.
REGNBOGINN
Rómeó og Júlía ***
Skemmtilega skrautleg nútímaút-
gáfa á sígildu verki Shakespeares.
Luhrman er leikstjóri sem vert er
að fylgjast með.
Evita * *'h Sjá Laugarásbfó.
Englendingurinn ***'h
Epísk ástarsaga. Meistaralega
framsett og frábærlega leikin mynd
um sanna ást. Óskarstykkið í ár!
STJÖRNUBÍÓ
Jerry Maguire ***
Hrokafullur uppi nær jarðsam-
bandi um stund. Ljúft og laglegt
skemmtiefni
Málaferlin gegn Larry Flynt
* * *'h
Milos Forman er aftur kominn á
fljúgandi skrið með hræsnina að
leiðarljósi og afbragðs leikhóp.
KRAFTGANGA í ÖSKJUHLÍÐ
• Frískt loft eykur ferskleika!
• Útivera eykur þol!
Alhliða líkamsþjálfun jafnt fyrir byrjendur
sem lengra komna.
Leiðbeinandi Ámý Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur
og íþróttaþjálfari.
Skráning og upplýsingar í síma 554-3499 fimmtudaginn
3. apríl og föstudaginn 4. apríl frá kl. 9-12.
<
<
<
Þeir sem hafa verið áður, mæti laugardaginn 5. apríl
kl. 10.00 A-B tími - kl. 11.00 B-C tími.
Hestar og rómantík
KRISTIN Scott Thomas ætlar að
leika á móti Robert Redford í
kvikmynd byggðri á metsölubók-
inni „The Horse Whisperer". Vin-
sældir skáldsögu Nicholas Evans
þykja minna á velgengni róman-
tísku sögunnar „The Bridges of
Madison County" sem var kvik-
mynduð með Clint Eastwood og
Meryl Streep.
„The Horse Whisperer“ segir
frá hestatamningamanninum,
Tom Brooker, sem er ráðinn af
tímaritsritstjóra, Annie Graves,
til þess að endurtemja hest dóttur
hennar. Hesturinn og dóttirinn,
Grace, lentu í alvarlegu slysi og
eru bæði mjög illa farin. Tilraunir
hestamannsins til þess að hjálpa
hestinum tengja hann mæðgun-
um mjög sterkum böndum og
reynir hann að styðja þær eftir
bestu getu.
Robert Redford ætlar bæði að
leika Tom Booker og leikstýra
myndinni. Emma Thompson var
orðuð við hlutverk Annie Graves
en það var Kristin Scott Thomas
sem hreppti hlutverkið að lokum.
Hún nýtur velgengni „The Engl-
ish Patient" í Bandaríkjunum eft-
ir Óskarsverðlaunahrúguna sem
myndin fékk.
„The Horse Whisperer“ er
fyrsta skáldsaga Nicholas Evans
en hann hafði skrifað nokkur
kvikmyndahandrit áður. Hann
seldi kvikmyndaréttinn að bókinni
fyrir 3 milljónir bandaríkjadala
sem er með hæstu upphæðum sem
greiddar hafa verið fyrir fyrstu
skáldsögu höfundar.
KRISTIN Scott Thomas leikur
næst á móti Robert Redford í
„The Horse Whisperer".
Coca-Cola á Skeiðarársandi
UM næstu helgi hefjast tökur
á fyrstu Coca-Cola auglýsingunni
sem tekin er á íslandi fyrir al-
heimsmarkað. Kvikmyndafyrir-
tækið Saga film er meðframleið-
endi auglýsingarinnar. Sam-
kvæmt upplýsingum Hjartar
Grétarssonar framkvæmda-
stjóra, kom erlent tökulið til
landsins í gær og fór rakleiðis á
tökustað á Skeiðarársandi og á
eldsumbrotasvæðið í Vatnajökli,
til að skoða aðstæður.
Breytist jökulklumpur í
kókflösku?
Gígurinn sem varð til við
eldgosið í jöklinum síðastliðið
haust er áætlaður tökustaður
og svo gæti farið að einn
jökulklumpurinn sem þar er á
reiki muni breytast í
kókflösku. Allt er þó opið
ennþá í þeim efnum, því
leiksljóri auglýsingarinnar er
Bruce Dowad, sem þykir búa
yfir miklu hugmyndaflugi.
Hann er forstgóri eins stærsta
auglýsingafyrirtækis í Los
Angeles, Bruce Dowad
Associates, og hefur gert
margar stórar og frægar
auglýsingar. Hann er
sérstaklega þekktur fyrir að
nota tölvur mikið við
eftirvinnslu. í fyrri auglýsingu
hans hafa herskarar
nashyrninga hlaupið um götur
New York, og verður því
spennandi að sjá hvað gerist á
Skeiðarársandi um næstu
helgi.
HÁC
Skrifstofustólar
I.OKSINS
Á ÍSI AMH
Til framtíðar litið
EG Skrifstofúbúnaður
Ármúli 20 Simi 533 5900
chf
Velferð
varðarí okkur öll!
Er það vMkilegá35lið sem
sann
ír um
Hár
lágar