Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Óvildin milli gyðinga og araba magnast
Netanyahu íhug-
ar nýja stjórn
Jerúsalem. Reuter.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, sagði í gær að
hann væri að íhuga myndun sam-
steypustjórnar flokks síns, Likud-
bandalagsins, og Verkamanna-
flokksins í því skyni að skapa þjóð-
areiningu um endanlegan friðar-
samning við Palestínumenn.
„Ég er að íhuga [myndun slíkrar
stjórnar] en hef ekki tekið neina
ákvörðun," sagði Netanyahu. Að
sögn hans þyrfti að verða „víðtæk
þjóðareining" í ísrael, en ekki væri
víst hvort stjórn stóru flokkanna
tveggja væri svarið.
Atburðir undanfarinna vikna
hafa síður en svo orðið til þess að
koma á einingu milli gyðinga og
araba í Mið-Austurlöndum. Friðar-
ferlið er nú talið í verulegri hættu
í kjölfar þeirrar ákvörðunar stjórn-
ar Netanyahus að reisa gyðinga-
byggðir í Austur-Jerúsalem.
Utanríkisráðherrar arabaríkja
ákváðu á mánudag að mælast til
þess að látið yrði af viðskiptum við
Israela og menningarlegum og vís-
indalegum samskiptum í því skyni
að einangra þá. Hvöttu þeir til
þess að hætt yrði að reyna að koma
samskiptum við ísraela í eðlilegt
horf og hlé yrði gert á viðræðum
milli Israela og araba um mála-
flokka á borð við ferðaþjónustu,
afvopnun og umhverfismál. Þótt
ályktun ráðherranna sé ekki bind-
andi, þurfi samþykki hvers ríkis
bandalags arabaríkja og nái hvorki
til Egypta né Jórdana, sem hafa
gert sérstaka friðarsamninga við
ísraela, er hún talin hafa táknrænt
gildi að því leyti að þetta er í fyrsta
skipti, sem arabaríki leggja drög
að því að refsa ísraelum fyrir gerð-
ir, sem þau telja stefna friði í Mið-
Austurlöndum í hættu, frá því að
Netanyahu varð forsætisráðherra.
Viðræður milli ísraela og Palest-
ínumanna eru að leysast upp og
Dennis Ross, sérlegur erindreki
Bandaríkjastjórnar, hafði ekki er-
indi sem erfiði þegar hann reyndi
að blása nýju lífi í friðarferlið fyrir
páskahelgina.
„Þetta eru verstu horfurnar í
friðarmálum frá 1977,“ sagði
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, í samtali við ísraelska dag-
blaðið Maariv, en það ár fór Anw-
ar Sadat, þáverandi forseti
Egyptalands, í opinbera heimsókn
til Israels, sem leiddi til friðarsátt-
málans 1979. ;,Ykkur hefur tekist
að hræða heiminn. Þið hafið ýtt
okkur öllum í mjög erfiða stöðu.“
Yfirlýsing Netanyahus á þingi á
mánudag mun tæplega verða til
þess að Palestínumönnum og leið-
togum arabaríkja renni reiðin: „Við
munum ekki hörfa til landamær-
anna frá 1967, við erum andvígir
palestínsku ríki og við erum í verki
andvígir skiptingu Jerúsalem,"
sagði forsætisráðherrann og bætti
við: „Ég legg til að látið verði af
tálvonum. Það sem nú þarf er að
Palestínumenn dragi úr vænting-
um sínum þannig að hægt verði
að brúa bilið, sem eftir verður."
UOCKEY
Einlitar og röndóttar. Útsölustaöir um land allt!
Heildsölubirgðir: Davíð S. Jónsson S Co. hf. sími 552 4333
20 manns farast í tveimur lestarslysum á Spáni
Frakkland
50.000
ganga gegn
Le Pen
Strassbor^. Morgunbladið.
FIMMTIU til sextíu þúsund manns
komu saman í Strassborg í Frakk-
landi á laugardag til að mótmæla
boðskap öfgaflokksins til hægri,
Front National. Flokkur Jean Marie
Le Pen fundaði í borginni um páska-
helgina og leiðtoginn gerði lítið úr
mótmælunum: „Mig varðar engu
þótt einhveijar þúsundir séu með
uppsteyt, kjósendur mínir í héraðinu
eru margfalt fleiri."
Mótmælin um helgina mörkuðu
að því leyti tímamót að aldrei hefur
jafn mikill fjöldi fólks komið saman,
meirihlutinn um langan veg, til að
andæfa stefnu og tilvist stjórnmála-
flokks í Frakklandi.
Farið var með friði um götur
Strassborgar, nokkuð fjarri ráð-
stefnuhöllinni þar sem 2.200 flokks-
menn Front National, þar á meðal
gamlir nasistar auk skoðanabræðra
frá Ítalíu og Belgíu, funduðu. Örygg-
isreglur leyfðu gönguna í eins kíló-
metra fjarlægð frá flokksþinginu og
farið var miklu víðar um borgina.
Fólk hafði fest borða með slagorðum
utan á hús sín, börn og fullorðnir
veifuðu og hrópuðu hvatningarorð
úr gluggum og dyragættum. Borg-
arstjórinn, Catherine Trautmann,
sem er úr röðum sósíalista, ávarpaði
mannfjöldann, þakkaði góða þátt-
töku og frið. Sagði hún að samtök
Le Pens væru „rasistaflokkur með
rætur í fasisma". Sjónvarpsstöðin
Arte líkti henni við Jóhönnu af Örk,
í árangursríkri baráttu gegn FN.
Le Pen var á sunnudag endurkjör-
inn formaður Front National. Á þingi
flokksins var samþykkt stefnuskrá
og er lykilatriði hennar að „Frakkar
hafi forgang". Þar er lagt til að laun
útlendinga verði skattlögð sérstak-
lega og ákveðin störf aðeins auglýst
fyrir Frakka. Samkvæmt skoðana-
könnunum hefur flokkurinn nú um
15% fylgi á landsvísu.
Norðanáhlaup í
MIKIÐ áhlaup gerði í Nýja Eng-
landi í Bandaríkjunum í gær og
náði jafnfallinn snjór víða allt að
90 cm eins og þessi kona í Cam-
bridge, nágrannaborg Boston,
komst að. Er veðrið talið hafa
valdið dauða þriggja manna og
meira en hálf milijón manna var
rafmagnslaus. Víða í Massachu-
setts var snjódýptin 88 cm, 70 i
Reuter
Nýja Englandi
Boston og 81 cm í Catskill í New
York og annars staðar á þessum
slóðum var fannfergið álíka mikið.
Með ströndinni var gífurlegt brim,
allt að 9 metra ölduhæð, og í
Massachusetts var lýst yfir neyð-
arástandi. Olli veðrið miklum sam-
gönguerfiðleikum, jafnt á landi
sem í lofti, og var sumum flugfvöll-
um lokað.
Reuter
Kosningahríð í Bretlandi
BARÁTTAN fyrir kosningarnar í
Bretlandi er nú komin á fullt og
er Tony Blair, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, lagður af stað í
ferð um landið allt. Hér er hann
á tali við dreng í Northampton.
Margaret Thatcher, fyrrverandi
forsætisráðherra Ihaldsflokksins,
réðst í gær hart að hinum „nýja
Verkamannaflokki" Blairs og
kallaði hann „beinlaust viðrini“,
sem væri blekkingin ein. Er þetta
framlag hennar talið munu
styrkja nokkuð stöðu John Majors
forsætisráðherra en flokkur hans
hefur átt á brattann að sækja.
Var 100 km yfir leyfi-
legum hámarkshraða
Malaga. Morgunblaöið.
TUTTUGU manns fórust í
tveimur járnbrautarslysum, sem
urðu með tæplega níu klukku-
stunda millibili á Spáni á mánu-
dagskvöld og aðfaranótt þriðju-
dagsins. í fyrra slysinu, sem varð
skammt frá bænum Pamplona í
Navarra-héraði á Norður-Spáni,
fórust 18 manns og er það mannsk-
æðasta lestarslys í landinu í tæp
20 ár. Mannlegum mistökum er
kennt um harmleikinn.
Slysið við Pamplona varð klukk-
an 17.45 að íslenskum tíma (19.45
að staðartíma) er þrír vagnar hrað-
lestar, sem bar nafn spænska
heimspekingsins Miguel de Unam-
uno, þeyttust út af sporinu nærri
Uharte-Arakil Iestarstöðinni, 35
kílómetra frá Pamplona. Lestin
hafði haldið frá Barcelona klukkan
11 um morguninn að íslenskum
tíma og var endastöðin þorpið
Hendaya við frönsku landamærin.
Um borð í lestinni, sem var full,
voru 248 farþegar, flestir á leið
heim úr páskafríi.
Talsmaður spænska samgöngu-
ráðuneytisins sagði í gær að full-
víst mætti heita að mannleg mistök
hefðu orsakað slysið. Lestin hefði
verið á 130 kílómetra hraða á stað
þar sem hámarkshraðinn væri 30
kílómetrar á klukkustund. Hann
útilokaði að um skemmdarverk
hefði verið að ræða.
„Þetta var hræðilegt. Við heyrð-
um mikinn hvell og vagninn okkar
þeyttist út af með öskrandi farþeg-
ana innanborðs. Síðan sáum við
ekki neitt en heyrðum sársauka-
öskur og ekkasog hinna slösuðu
þar til fólk úr þorpinu kom og tók
að hjálpa okkur úr brakinu," sagði
ung stúlka sem komst lífs af úr
slysinu ásamt vini sínum.
Fjórir vagnar voru tengdir lest-
inni en einungis þrír þeirra þeytt-
ust út af sporinu og engan sakaði
í fremsta vagninum. „Þetta var
kraftaverk. Eg fæ ekki skilið
hvernig okkar vagn slitnaði frá
hinum og slapp óskaddaður,“ sagði
annar farþegi.
Sex alvarlega slasaðir
100 manns voru fluttir í sjúkra-
hús í nágrenninu og voru 49 þeirra
þar enn síðdegis í gær. Af þeim
voru sex sagðir mjög alvarlega
slasaðir. Aðstæður á staðnum voru
að sögn skelfilegar og sum líkin
svo illa útleikin að erfiðlega gekk
að bera kennsl á þau. í fyrstu var
talið að 19 manns hefðu farist og
það var ekki fyrr en um 20 klukku-
stundum eftir að slysið varð að í
ljós kom að líkamsleifar, sem fund-
ist höfðu og ekki hafði tekist að
bera kennsl á, voru af einum og
sama farþeganum.
Mistök á skiptispori?
Um níu stundum eftir slysið við
Pamplona, klukkan 2.30 um nótt-
ina að islenskum tíma, fór önnur
lest út af sporinu nærri bænum
Guadalajara, skammt frá höfuð-
borginni, Madrid. 70 manns voru
í þeirri Iest, sem var á leið frá
Barcelona um Madrid til Malaga
og Sevilla á Suður-Spáni. Tveir
menn létust, starfsmaður lestar-
fyrirtækisins og franskur ferða-
maður, og tveir farþegar voru í
gær alvarlega slasaðir í sjúkra-
húsi. Ekki liggur fyrir hver orsök
þessa slyss var en getum var að
því leitt að eitthvað hefði farið
úrskeiðis á skiptispori. Verið er að
rannsaka „svartan kassa“ lestar-
innar sem skráir allar upplýsingar
um reiðina.
Lestarferðir eru vinsæll ferða-
máti á Spáni enda fremur ódýrt
að ferðast þannig. Alvarleg slys
eru fremur fátíð og tölfræðin sýnir
að mun hættulegra er að ferðast
í bíl um þjóðvegi Spánar en í lest-
um. Þetta sannaðist raunar í lið-
inni páskaviku þegar tæplega 120
manns týndu lífi í umferðinni.