Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 2 7
LISTIR
Upphafin sæla
MYNDOST
Norræna húsid/
Listhús Ófcigs
MÁLVERK
Norræna húsið: Opið kl. 14-19 alla
daga til 6. apríl; aðgangur kr. 200.
Listhús Ófeigs: Opið virka daga kl.
10-18 og laugardaga kl. 11—14 til
6. apríl; aðgangur ókeypis.
NOKKUR dæmi eru um að lista-
menn hafi kosið að sýna á tveimur
stöðum samtímis til að gefa list-
unnendum færi á að sjá ólíkar hlið-
ar á sinni listsköpun, t.d. varðandi
efnistök mismunandi viðfangsefna
eða meðferð svipaðra efna í ólíkum
miðlum. Þannig standa nú yfir
tvær sýningar á verkum Sigurðar
Þóris Sigurðssonar þar sem getur
að líta annars vegar olíumálverk
og hins vegar myndir unnar með
vatnslitum og gouche.
Viðfangsefnin eru mjög í anda
þess sem listamaðurinn hefur verið
að fást við undanfarin ár - fjarræn
manneskjan í upphöfnum sæiureit,
þar sem umhverfið er blanda af
stílfærðum formum og landslags-
minnum. Ólíkir miðlar bjóða hins
vegar upp á blæbrigðamun í efnis-
tökum, og heildarsvipur sýning-
anna hefur þróast nokkuð frá síð-
ustu stóru sýningu Sigurðar, sem
var í Listasafni ASÍ fyrir rúmum
þremur árum.
Norræna húsið
Hér getur að líta tæplega fjöru-
tíu olíumálverk sem flest eru unnin
á síðustu tveimur árum, en nokkur
eldri fljóta með og veita ákveðið
tækifæri til samanburðar. Mynd-
efnið er kunnuglegt eins og fyrr
segir, en þó má greina nokkrar
breytingar sem eru að verða á
þessum myndheimi. Frumformin
(kúla, kubbur o.fl.) eru sem fyrr
áberandi þáttur í myndmálinu, svo
jaðrar við ofhlæði á stundum, eins
og í „Veraldarsýn" (nr. 30). Þó
virðast formin vera víkjandi þáttur
í mörgum nýjustu myndanna, t.d.
í „Horft til hafs“ (nr. 10), og vægi
myndbyggingar, iandslags og
mannvera verður meira fyrir vikið.
Á sama hátt má segja að sterk-
ir og jafnvel skærir litir séu mjög
víða ráðandi, eins og t.d. sést í
málverkinu „I heitu rúmi“ (nr.
27), en engu að síður er þessi iita-
notkun í fullu samræmi við þá
heild, sem mótuð er í hverju verki
fyrir sig. Landslag er oft mikilvæg-
SIGURÐUR Þórir: Hugarburður. 1995.
ur þáttur í myndrýminu, og því
verður sá draumaheimur sem hér
birtist nokkuð raunverulegri en
ella.
Persónugerðin í myndheimi Sig-
urðar hefur lengi verið æði draum-
kennd, þar sem mannverur svífa
um án mikilla tengsla við um-
hverfi sitt. Hér bregður þó fyrir
nokkru persónulegri svip á fólkinu
á stöku stað, eins og í „Nætur-
minning" (nr. 15), sem færir þenn-
an fjarræna heim ögn nær áhorf-
andanum.
Listhús Ófeigs
í salnum við Skólavörðustíginn
er að finna hálfan þriðja tug mál-
verka sem unnin eru með vatnslit-
um og gouche, og þó myndefnin
séu svipuð og áður er allt yfirbragð
verkanna eðlilega mun mildara en
í olíumálverkunum.
Teikning listamannsins nýtur
sín vel í þessum miðli, þar sem
útfærsla verkanna er öllu einfald-
ari í þessum litlu flötum. Fyrir vik-
ið verða mannverurnar í myndun-
um raunverulegri en ella, þannig
að jafnvel örlar á nokkurri munúð
hjá þeim, eins og sést t.d. í „Blás-
in glóð“ (nr. 14) og „Ljúf er sú
stund“ (nr. 22).
Hlutur hins mjúka og gjafmilda
í dýraríkinu verður einnig mikil-
vægari í þessum miðli. Kýr mynda
hina helgu þrenningu (nr. 16), og
við þær eru væntingar manna
bundnar með einum eða öðrum
hætti (nr. 25).
Þessi notkun kúnna á sinn þátt
í því að sælusvipur þessara tveggja
sýninga er nokkru léttari en reynd-
in var um síðustu sýningar hjá
iistamanninum. Blærinn er bjart-
Schumann-hj ónin
í Norræna húsinu
Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Nor-
ræna húsinu í dag, miðvikudag,
munu þær Guðrún Finnbjarnar-
dóttir, mezzósópran, og Brynhildur
Ásgeirsdóttir, píanó, leika og
syngja Liederkreis eftir Robert
Schumann og sönglög eftir Clöru
Schumann. Tónleikarnir eru um
hálftími að lengd og hefjast kl.
12.30.
Guðrún Finnbjarnardóttir stund-
aði nám hjá Rut Magnússon í Tón-
listarskólanum í Reykjavík og Dóru
Reyndal í Söngskólanum í Reykja-
vík og lauk burtfararprófi þaðan
vorið 1993. Hún stundaði fram-
haldsnám í Boston og í Noregi
m.a. hjá Svein Björköy og Oren
Brown. Guðrún hefur komiö víða
fram sem einsöngvari, sungið í kór
íslensku óperunnar, verið félagi í
Mótettukór Hallgrímskirkju frá
stofnun hans og syngur nú með
kammerkórnum Schola Cantorum.
Brynhildur Ásgeirsdóttir stund-
aði nám hjá Úrsúlu Ingólfsson
Brynhildur
Ásgeirsdóttir
Guðrún Finn-
bjarnardóttir
ari, gáskinn er meiri og greinilegt
að hann hefur gaman af því sem
hann er að fást við. Slík ánægja
kemur alltaf fram í verkunum
sjálfum, og skilar sér um leið til
þeirra, sem leitast við að njóta
listaverkanna.
Eiríkur Þorláksson
ÐISENOENŒRAMiCA
ggg
Stórhðfða 17 við GulUnbní, síml 567 4»44
„Öko-System" sparar allt aS 20% sápu
Taumagn: 5 kg
VindingarhraSi: 1000 og 700 snúninga
UKS kerfi: Jafnar tau í tromlu fyrir vindingu
Variomatik vinding: Sérstakt vindingarkerfi
fyrir viSkvæman þvott og ull
Ullarkerfi: Ullarvagga; ullinni vaggaS
„Bio kerfi"
Fuzzy-logig: Sjálfvirk vatnsskömtun
eftir taumagni, notar aldrei meira vatn
en þörf er á
Aukaskolun: Sér hnappur, skolar fjórum
sinnum í staS þrisvar
Fassbind og Jónasi Ingimundarsyni
í Tónlistarskólanum í Reykjavík og
lauk píanókennara- og burtfarar-
prófi þaðan árið 1986. Hún stund-
aði framhaldsnám í Utrecht og
Amsterdam í Hollandi hjá Herman
Uhlhorn og Jan Huising. Brynhild-
ur starfar nú sem tónlistarkennari
í Reykjavík og hefur að auki feng-
ist við undirleik og komið fram í
flutningi kammertónlistar.
Þýskt vörumerki
þýskt hugvit
þýsk tramleiðsla
ÞRIGGJA ÁRA
ÁBYRGÐ A ÖLLUM
...bjóðum við
mest seldu
AEGþvonavélina á íslandi
á sépstöku afmælisvepði
BRÆÐURNIR
ÞVOTTAVÉLUM
533 2800
Umboðsmenn:________________________________________________________
Vesturland: Máiningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúö.Búöardal.
Vestfirðlr: Geirseyrarbúöin.Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvík.Straumur.ísafiröi.Norðurland: Kf.Steingrímsfjaröar.Hólmavik. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf.
Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúö.Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvík. KEA, Siglufiröi Kf. Þingeyinga, Húsavík.Urö,
Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstööum. Kf. Vopnfirðinga, Vopnafiröi.Verslunin Vík, Neskaupstaö. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. KASK,
Höfn. Suöurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossl. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reyk|anes: Stapafell, Keflavík.
Rafborg, Grindavík.