Morgunblaðið - 02.04.1997, Page 15

Morgunblaðið - 02.04.1997, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 15 FASTEIGNASALA Snjóflóð féll á snjóruðningstæki á Súðavíkurhlíð Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson SIGRÍÐUR Ragnarsdóttir bóndi á Brú með hrútana eft- ir að þeir heimtust á hús í góulokin. Eftirlegu- kindur á góu Vaðbrekku, Jökuldal - Bóndinn á Brú á Jökuldal, Sigríður Ragnars- dóttir, heimti tvær eftirlegukindur nú í góulokin. Voru það tveir vet- urgamlir hrútar er saknað hafði verið frá í haust og nokkuð leitað að fram eftir vetri en sú leit bar ekki árangur. Það voru síðan vatnamælinga- menn frá Orkustofnun er urðu kind- anna varir við Fremri F]allshala í Arnardal inn af Möðrudal á Efra Fjalli. Sögðu þeir til kindanna og fór Vernharður Vilhjálmsson bóndi í Möðrudal ásamt tveim sonum sín- um á „túttujeppa" og sótti kindurn- ar. Reyndust þetta vera tveir vet- urgamlir hrútar frá Brú á Jökuldal og var þeim komið til síns heima. „Snjóflóðið kom eins og byssu- kúla“ Isafirði - Síðdegis á miðvikudag í síðustu viku féll stórt snjóflóð úr svonefndri Skjólhamarsvík á Súðavíkurhlíð og hafnaði á snjór- uðningstæki sem var að moka annað snjóflóð sem fallið hafði á sama stað fyrr um daginn. Litlar skemmdir urðu á snjóruðnings- tækinu og ökumanninum, Jóni Veturliðasyni, varð ekki meint af en þess má geta að þetta var í þriðja skiptið sem Jón lendir í snjóflóði við vinnu sína. Snjóflóð- ið var um fimm metra á hæð og þurfti nærstaddur ökumaður að moka um einn og hálfan metra niður að þaki snjóruðningstækis- ins til að ná Jóni út. „Srgóflóðið féll um kl. 17.30 á miðvikudag í síðustu viku. Ég var sendur til að opna leiðina svo hefill og vörubíll sem er í eigu Vegagerðarinnar kæmust inn á Isafjörð. I upphafi héldu menn að um eitt snjóflóð væri að ræða en þegar til kom reyndust þau vera 15-20. Það eru 23 gil á leið- inni frá Arnarneshamri og til Súðavíkur og ég var kominn í fimmta gilið og búinn að moka fjögur snjóflóð," sagði Jón í sam- tali við blaðið. Jón sagðist hafa verið langt kominn með að moka fyrra flóð- ið er hann var þess áskynja að annað snjóflóð væri að falla úr gilinu. „Þetta gerðist mjög snöggt, fyrst varð ég var við hríðabyl, síðan varð ég var við köggla og síðan kom rúðan í heilu lagi inn og allt fór í kaf. Það Iiggur við að flóðið hafi kom- ið eins og byssukúla. Ég sat bara kyrr og beið þess sem verða vildi. Það var enginn snjór uppi við þakið og ég náði að teygja mig i talstöðina og gat látið vita af mér. Ég vissi af ökumanni fyrir aftan mig og hann kom þegar til Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson SNJÓRUÐNINGSTÆKIÐ mokað upp að morgni skírdags. Það er ökumaðurinn Jón Veturliðason sem stendur á þaki tækisins. hjálpar og mokaði mig út úr tækinu. Það var allavega um einn og hálfur metri niður að þaki, tækið sjálft er um 3,5 metrar á hæð og því hefur flóðið verið um fimm metrar á hæð.“ Jón sagði engan beyg vera í sér þrátt fyrir þessa lífsreynslu og var hann við mokstur á Súða- víkurhlíð þegar blaðið náði sam- bandi við hann á þriðjudag. „Það er langt frá því að þetta haf i verið skemmtileg lífsreynsla, ekki síst vegna þess að ég missti félaga minn við svipaðar aðstæð- ur fyrir nokkrum árum. Þetta er í þriðja skipti sem ég fæ á mig snjóflóð, fyrst lenti ég í snjó- flóði við Grænagarðshrygginn og síðan í Kinninni á Breiðadals- heiði og ég segi að það sé full- reynt í þriðja, a.m.k. vona ég að þurfa ekki að lenda í þessari lífs- reynslu aftur.“ Morgunblaðið/Gunnar Hallsson HUSIÐ við Heiðarbrún 6 í Bolungarvík eyðilagðist í eldi. Feðgin sluppu naumlega úr brennandi húsi Bolungarvík - Feðgin sluppu naumlega úr brennandi húsi að morgni páskadags, húsið sem er einbýlishús og stendur við Heiðar- brún 6 í Bolungarvík, brann til grunna á innan við klukkustund. Vart varð við eldinn rétt fyrir klukkan sex en þá hafði húsráð- anda, Ólafi Benediktssyni, og 17 ára dóttur hans, Mögnu Björk, tek- ist að bijóta sér leið út um glugga, örfáum mínútum síðar varð húsið alelda. Fleiri voru ekki í húsinu þessa nótt þar sem eiginkona Ólafs var á næturvakt á Sjúkrahúsi Bol- ungarvíkur. Olafur sagði í samtali við frétta- ritara að hann hefði vaknað við ein- hvern hávaða og væl í reykskynjar- anum, þá hefði húsið verið orðið fullt af reyk pg hann hefði vakið dóttur sína. Á þeirri stundu var enginn tími til annars en að reyna að komast út. Útgönguleið út um útidyrnar var ekki fær og því hefði hann tekið lítið borð sem var inni í herbergi dótturinnar og notað það til að bijóta glerið i glugga herberg- isins og þau komið sér þar út. Fá- klædd fóru þau í næsta hús og vöktu þar upp til að sækja aðstoð. Slökkvilið Bolungarvíkur var kall- að út klukkan 5.55, um hálftíma seinna kemur svo slökkvilið ísa- fjarðar jafnframt til aðstoðar. Slökkviliðsmenn lögðu í fyrstu höf- uðáherslu á að veija húsin hvort sínu megin við hið brennandi hús, en ekki mátti miklu muna að eldur- inn bærist í þau einnig. Slökkvistarfi var lokið um klukk- an sjö og var þá nánast allt brunn- ið sem brunnið gat. Eldurinn mun upphaflega hafa komið upp í stofunni sem er í norð- urenda hússins, og talið er að kvikn- að hafi í út frá sjónvarpstæki. Einbýlishúsið að Heiðarbrún 6, sem er steinsteypt einingarhús, var byggt 1978. I samtali við fréttaritara vildi Ólaf- ur fyrst og fremst koma á framfæri þakklæti sínu og fjölskyldu sinnar til allra þeirra er sýnt hafa þeim hlýhug í kjölfar þess atburðar, það hefði í raun haldið þeim gangandi eftir þessar hörmungar. Aðstoð ná- grannanna, Benedikts Kristjánsson- ar og hans fjölskyldu, á meðan á atburðinum stóð og eftir væri ómet- anleg, sem og fjölda annarra. Einnig vill Ölafur þakka slökkviliðsmönnum og lögreglu þeirra starf sem var þrekvirki miðað við aðstæður. Opið virka daga 9-18 og laugardaga frá 11-14 sunnudaga kl. 11-13 Svalbarð Nýl. 178 lm einbýli, ásaml 50 fm í kjallara og 25 fm bílskúr. Rólegur og góöur staöur. Miklir mögulelkar. Verö 13,8 millj. Fagrihvammur Nýieg 167 fm “Penthouse” íbúö á tveimur hæöum. 5 stór svefnherbergi, nýlegt eldhús, parket, klæöning í loftum ofl. Sérlega falleg og vönduö eign meö frábæru útsýni. Áhv. húsbr. 7,8 millj. Skipti á minni eign. Verö 10,7 millj. (1032) Asparfell - Rvík - Laus strax. Vorum aö fá í nýviögeröu lyftuhúsi fallega og nýmálaöa ca. 60 fm íbúö á 1. hæÖ. Stutt í alla þjónustu. Gott húsfélag. Verö 4,8 millj. Stekkjarhvammur - Sérhæð Góö 2ja herb. sérhæö í tvíbýli. Suöurlóö. Falleg og björt íbúö. Verö 6,2 millj. (1016) i íf Ingvar Guðmundsson löggiltur fasteignasali, íf JJ Jónas Hólmgeirsson, Kári Halldórsson og Jóna Ann Pétursdóttir. JJJ Svöluhraun - A einni hæð Faiiegt 132 fm ENDARAÐHÚS, ásamt 33 fm bílskúr. Góö staðsetning viö hraunjaðarinn meö suöurlóö I endabotnlanga. Ahv. góö lán. Verö 12,9 millj. Hellisgata - Gott verð Faiieg og talsvert endurnýjuö 104 fm neöri sérhæö í góöu tvíbýli. Nýl. gluggar og gler, rafmagn, járn o.fl. Áhv. góö lán 4,0 millj. Skipti möguleg á bfl. Verð 6,6 millj. (83) Kvíholt - Sérhæð með bílskúr Góö neöri sérhæð í tvíbýli ásamt aukaherbergi og bílskúr á jaröhæö. Sérinngangur, góö staösetning. Verö 9,9 millj. (1116) Skólabraut. Skemmtileg 74 fm miöhæö í þríbýli, í fallegu steinhúsi á frábærum staö. 2 svefnherb. 2 stofur. Áhv. góö lán ca. 3,3 millj. Verö 6,7 millj. Sunnuvegur - Laus strax góö efri sérhæö í góöu tvíbýli. Möguleg 4 svefnherbergi. Rólegt og gott hverfi. Ahv. húsbréf 5,8 millj. Verö 8,3 millj. Fjarðargötu 17 Sími 565 2790 Fax 565 0790 netfang Ingvarg @centrum.is ^ Myndir í gluggum EIGNAMIÐSTÖÐIN-Hátún Suðurlandsbraut 10 Sími: 568 7800 Fax: 568 6747 Brynjar FransSOn löggUtur fasteignasali Lárus H. Lárusson söiustjón Kjartan HaUgeirsson sölumaður Björgvin 0 Oskarsson söiumaður Opið virka daga frá kl. 9-18 Opið laugardaga frá kl. 12-14 Tveggja herb. HVERAFOLD. Til sölu falleg 2ja herb. 56 fm íb. á 1. hæð. Vandaðar innréttingar. Park- et. Áhv. 2,7 m. Bygg.sj. rík. 40 ár. JÖKLAFOLD. Ný glæsileg 56,3 fm íbúð á 2. hæð. Til afhendingar strax. Þriggja herb. HAMRABORG - KÓP. Gullfalleg 86 fm ibúð á 3. hæð. Frábært útsýní í norður og svalir í suður. Parket, fiísar. Gervihnattasjónvarp og þrif á sameign eru inni í húsgjöldum. Bílageymsla. REKAGRANDI. Stórfin 83 fm íbúð á 1. hæð í góðu fjölb. í vesturbænum. íbúðin er öll með parketi og flísum. Tvennar svalir. Góð sameign nýlega viögerð og teppalögð. Góð lán áhvílandi. Laus strax.. VALLARBRAUT - SELTJ. Til sölu mjög fallega og smekklega innréttuð 84 fm íbúð ásamt 24 fm bílskúr, á sunnanverðu Nes- inu. Parket, flísar og suðursv. Áhv. 4,8 m f góðum lánum. Virkilega falleg Ibúð. Fjögurra herb. LANGAHLIÐ - VERÐLAUNAHUS. Falleg og vel staösett 95 fm lítið niðurgraf- in og björt kjallaraíbúð í nýviðgerðu fjöl- býlishúsi. Sérinng. Parket. Góðar innrétt- ingar. BLÖNDUBAKKI. Falleg og skemmtilega hönnuð 100 fm íbúð á 1. hæð ásamt íbúð- arherbergi í kjallara. Þvottah. i ibúð. Suður- svalir. Gott ástand á húsi. Parket. Verð 7,5 m. Áhv. 4,4 m. REKAGRANDI. Vorum að fá í sölu glæsi- lega 5 herb. 116 fm endaibúð á tveimur hæðum. Vandaðar innréttingar. Stæði í bíl- skýli. Laus fljótlega. Hæóir RAUÐAGERÐI. Til sölu mjög góða ca 130 fm efri sérhæð ásamt 24 fm innbyggðum bílskúr. Aukaherb. á jarðh. Góðar suður- svalir. Gott útsýni. Frábær staðsetning. Verð 10,5 m. Laus fljótlega. Hringdu í E.M. Hátún og fáðu nánari upplýsingar. LINDARBRAUT- SELTJ. Til sölu mjög spennandi 129 fm sérhæð. Gamlar en góðar innréttingar. Þetta er skemmtileg íbúð sem býður uppá mikla möguleika. Skipti á minni eign vestan Eiliðaáa möguleg. Tilboð óskast Rað-par og einb. SELJAHVERFI - SKIPTI. Mjög fallegt raðhús á tveimur hæðum um 155 fm með 33 fm tvöf. stæði í bílskýli. Tvær stofur og 3-5 svefnherb. Gott verð 11,9 millj. Skipti athugandi á sérbýli á einni hæð ca. 160 fm HULDUBRAUT - KÓPAV. Vorum að fá í sölu glæsilegt parhús á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr. Fallegar innrétt- ingar. Hringdu í E.M. Hátún og fáðu nánari upplýsingar. / byggmgu BORGARHVERFI - GRAFARV. Aðeins eitt hús eftir af þessum vinsælu “keðjuhús- um”. Húsið er á tveim hæðum, 143 fm ásamt 24 fm bilskúrs, 4 svefnherb. Húsið skilast fullbúið að utan. Fokhelt eða tilb. til innrétt- inga. Teikningar á skrifstofu. Eigum fjölda eigna á söluskrá sem ekki eru auglýstar. Póst- og símsendum söluskrár um land allt. Rað- og parhús Einbýli Hæðir 2ja herb. 4ra til 7 herb.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.