Morgunblaðið - 02.04.1997, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997
MENNTUIM
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
NEMENDURNIR ásamt Sveinbirni Björnssyni háskólarektor, Margréti Björnsdóttur, Valdimar K.
Jónssyni, Ingigjaldi Hannibalssyni og Jóni Ásbergssyni.
0
Endurmenntunarstofnun HI
Fyrstu nemendur í markaðs- og
útflutningsfræðum útskrifast
FYRSTU nemendur úr árs námi
með starfi í markaðs- og út-
flutningsgreinum útskrifuðust
21. mars sl. frá Endurmennt-
unarstofnun Háskóla íslands.
Hæstu einkunn hlaut Þórir
Hrafnsson hjá íslensku auglýs-
ingastofunni.
Alls útskrifuðust nítján nem-
endur að þessu sinni, en tveir
hópar stunda nú nám í grein-
inni og hefur fjórði hópurinn
nám í september nk.
Námið er ætlað fólki sem
vinnur að markaðs- og útflutn-
ingsmálum eða hefur áhuga á
að hasla sér völl á því sviði.
Markmið námsins er að auka
þekkingu á markaðssetningu og
sölutækni fyrir heimamarkað
sem og erlenda markaði. Helstu
námsgreinar eru rekstrarhag-
fræði, stjórnun og stefnumótun,
markaðsfræði og markaðsrann-
sóknir, sölu- og samningatækni,
fjármál milliríkjaviðskipta og
gerð viðskiptasamninga, flutn-
ingafræði, utanríkisverslun,
hagræn landafræði og áhrif
menningar á viðskiptavenjur.
Nemendurnir nítján eru: Arn-
aldur Bjarnason, Arnar G. Páls-
son, Auðbjörg Halldórsdóttir,
Ársæll Ársælsson, Ásta G. Harð-
ardóttir, Hilmar Þ. Hafsteins-
son, Hreiðar Gunnlaugsson,
Hulda Finnbogadóttir, Jóhann
P. Jónsson, Jón R. Björnsson,
Jóna Kristinsdóttir, Jóna Ó.
Guðjónsdóttir, Karólína Júlíus-
dóttir, Pálína Ó. Einarsdóttir,
Ragnheiður Brynjólfsdóttir,
Soffía Arnardóttir, Unnur Svav-
arsdóttir, Þórir Hrafnsson og
Örn Valdimarsson.
Nýtt námsefni
• ÚT ER komið hjá Námsgagna-
stofnun 18 mín. langt myndband
um eldsumbrotin í Vatnajökli, sem
urðu haustið 1996, Þarerei
nema eldur og ís - Eldsumbrot
í Vatnajökli 1996. í myndinni er
leitast við að skýra eðli og ein-
kenni eldvirkni á íslandi og um-
merki hennar í landslaginu. Með
kortum, skýringarmyndum og
texta er leitast við að draga fram
mikilvæg atriði sem leitt geti til
aukins skilnings á orsökum nátt-
úruhamfaranna. Efnið er að mestu
fengið frá Sjónvarpinu.
• Listin að lesa og skrifa er 8
bls. kennsluhefti í lestri þar sem
byggt er eingöngu á hljóðaaðferð.
Höfundar eru Rannveig Löve og
Arnheiður Borg en teikningar
eru eftir Brian Pilkington. Efnið
er einkum ætlað nemendum sem
þarfnast mjög hægrar og kerfis-
bundinnar innlagnar á hljóðum og
bókstöfum og markvissrar
þjálfunar á tengingu hljóða til að
ná valdi á lestr-
artækni. Nú
þegar eru
komnar út tvær
vinnubækur,
þijár lestr-
arbækur og
kennsluleiðbein-
ingar, en efnið
mun saman-
standa af fjórum vinnubókum,
íjórtán litlum lestrarbókum og
kennsluleiðbeiningum. Útgefandi
er Námsgagnastofnun.
Fallegog gtignleg fermingargjöf
Ensk-íslensk orðabók
34.000 ensk uppflettiord
Fæst hjá öllum bóksölum
íslensk-ensk orðabók
35.000 íslensk uppflettiorð
2.200 blaðsíður
Saman í fallegri gjafaöskju
á aðeins kr. 4.600,-
Gagnleg og glæsileg fermingargjöf,
sem nýtist vel í nútíð og framtíð
Orðabókaútgáian
MORGUNBLAÐIÐ
Skólavist nemenda utan lögheimilis-
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Óvissa um greiðslur
milli sveitarfélaga
UMSÓKNARFRESTUR um skóla-
vist fyrir nemendur, sem óska eft-
ir að stunda skóla utan lögheimilis-
sveitarfélaga á næsta skólaári
rann út í gær, 1. apríl. Á síðasta
skólaári stunduðu 260 börn nám í
grunnskólum á höfuðborgarsvæð-
inu utan síns heimahéraðs, sam-
kvæmt könnun sem gerð var á
vegum Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu (SSH). Búast
má við að fjöldinn sé svipaður í ár.
Samkvæmt lögum ber lög-
heimilissveitarfélagi að greiða fyrir
kostnað nemenda við skólagöngu,
nema ef nemandi sækir skóla utan
þess sveitarfélags, þá þarf lög-
heimilissveitarfélagið sérstaklega
að samþykkja að greiða kostnað
til viðtökusveitarfélagsins. Áður
voru þessir fjármunir greiddir af
ríki og skipti þá ekki máli hvar
nemendur stunduðu nám sitt.
Kostnaður
mismunandi
Að sögn Jónasar Egilssonar
framkvæmdastjóra SSH verður
haldinn fundur nú í vikunni með
þátttöku fulltrúa frá öllum sveitar-
félögum þar sem farið verður yfir
stöðuna. „Það er yfirlýst stefna
sveitarfélaganna að nemendur
stundi nám í sínu sveitarfélagi, en
verið er að skoða kostnað við hvern
nemanda, sem er mismunandi eftir
sveitarfélögum.“
Jónas segir ástæðuna fyrir því
að börn séu við nám í öðrum
sveitarfélögum aðallega vera
vegna þess að barnið vilji halda
skólagöngu áfram í sama skóla
þrátt fyrir flutning í annað sveitar-
félag eða að nemendur séu við nám
í einkaskólum. Spurður hvort hann
viti af því að lögheimili barna hafi
verið flutt á milli sveitarfélaga til
ættingja segist hann ekki vita um
neitt slíkt tilfelli.
Seltjarnarnes, Kópavogur
og Reykjavík
Mesta röskunin er milli Seltjarn-
arness og Reykjavíkur, en sam-
kvæmt fyrrgreindri könnun voru
42 böm við nám í Reykjavík bú-
sett á Seltjarnarnesi en 18 börn
með lögheimili í Reykjavík í skóla
á Seltjarnarnesi. Þá stunduðu 25
börn úr Kópavogi nám í Reykjavík
og 16 börn úr Reykjavík voru í
skólum í Kópavogi. Annars staðar
voru tilfærslur nemenda mun
færri, nema á milli Bessastaða-
hrepps og Garðarbæjar, en þar
hafa sveitarstjórnir gert með sér
samkomulag um að að elstu nem-
endur frá Álftanesi sæki skóla í
Garðabæ. Hefur þetta fyrirkomu-
lag verið um árabil.
Ólafur Darri Andrason forstöðu-
maður rekstrarsviðs Fræðslumið-
stöðvar Reykjavíkur á ekki von á
öðru en þessi mál leysist farsællega
milli sveitarfélaga. Hann segir að
fyrst og fremst sé verið að búa til
einfaldan farveg fyrir sveitarfélög
og foreldra.
Morgiinblaðið/Ásdís
VIGGÓ Benediktsson (t.v.) og Björgvin Njáll Ingólfsson kynna
Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra Ritþjálfann.
Nýtt íslenskt kennslutæki, Ritþjálfi
Nemendur þjálfaðir
í tölvunotkun
NÝTT íslenskt kennslutæki, Rit-
þjálfi, sem undanfarin þijú ár hef-
ur verið í þróun hjá Hugfangi hf.,
hefur verið tekið upp í nokkrum
grunnskólum á landinu. Tækinu
er ætlað að þjálfa nemendur í
grunnatriðum tölvunotkunar, t.d.
vélritun, en einnig gefur það mögu-
leika á að þjálfa nemendur í stærð-
fræði, íslensku, tungumálum og
fleiri námsgreinum sé það tengt
sérstökum hugbúnaði.
Forráðamenn fyrirtækisins af-
hentu Birni Bjarnasyni mennta-
málaráðherra eintak af Ritþjálfa
fyrir skömmu sem þakklætisvott
fyrir gott samstarf og jákvæðan
stuðning við verkefnið undanfarin
ár. „Um leið er það hvatning til
þess að láta ekki staðar numið,“
sagði Björgvin N. Ingólfsson,
stjórnarformaður Hugfangs hf.,
við það tækifæri. í máli hans kom
einnig fram að frumkvöðlar að
verkefninu voru Viggó Benedikts-
son og Sighvatur Pálsson. Unnu
þeir að hönnun og þróun á tækinu
í nánu samstarfi við menntamála-
yfirvöld og Skólaskrifstofu Reykja-
víkur.
Björgvin kvað kveikjuna að
verkefninu á sínum tíma hafa ver-
ið þörf skólanna fyrir búnað til
vélritunarkennslu. Tækið er létt
og fyrirferðarlítið þannig að auð-
velt er að nota það í almennum
kennslustofum án röskunar eða að
flytja það milli stofa eftir þörfum.
Nú þegar hafa um 1.000 tæki
verið tekin til notkunar og nýtast
þau nemendum allt niður í 9-11
ára til undirstöðunáms í upplýs-
ingatækni.