Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 31
MEIMIMTUIM
Rosalind Hutchinson, kennari
hjá Alþjóðasamtökum leiðsögumanna
Island framarlega
í leiðsögukennslu
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
HLUTVERK leiðsögumanna er meðal annars að vekja athygli
ferðalanga á því sem þeir koma ekki auga á nema undir leiðsögn.
Á VEGUM Alþjóðasamtaka leið-
sögumanna (World Federation of
Tourist Guide Association) er unnið
að því að koma á alþjóðlegum, stöðl-
uðum reglum um nám og störf leið-
sögumanna, sem fram til þessa hefur
verið mismunandi eftir löndum.
Markmiðið er að þeim sem njóta leið-
sagnar fagmanna séu tryggð ákveðin
lágmarksgæði, að sögn Bretans
Rosalind Hutchinson, sem hefur
meðal annars það starf fyrir alþjóða-
samtökin að kenna leiðsögukennur-
um.
Hutchinson var stödd á íslandi
fyrir skömmu í boði Leiðsöguskólans
til að fræða íslenska starfandi leið-
sögumenn og nemendur um tækni
og aðferðir til að ná árangri í starfi.
Hún hefur verið leiðsögumaður og
leiðsögukennari í áraraðir, var for-
maður bresku Leiðsögusamtakanna
þar til nýlega að hún varð náms-
stjóri fyrir alla leiðsögukennslu í
Bretlandi. Sem virðingarvott fyrir
starf sitt í þágu ferðamála var hún
í byijun marsmánaðar sæmd orðu
breska heimsveldisins.
Tæknin skiptir máli
Á daglöngu námskeiði ræddi
Hutchinson meðal annars um sam-
skipti, nauðsyn þess fyrir leiðsögu-
mann að vera vel undirbúnir, hvernig
umgangast eigi erfiða
einstaklinga í hóp,
hvernig halda eigi at-
hygli hóps og á hvað
eigi að leggja áherslu,
svo dæmi séu nefnd.
„Nái leiðsögumaður eyr-
um fólks í upphafi hlust-
ar það á hann sem eftir
er,“ segir hún, en bendir
jafnframt á að það sé
ekki í verkahring leið-
sögumannsins að taia
allan tímann.
Hutchinson segir að
ýmsar leiðir séu til að
hjálpa fólki til að muna
það sem fyrir augu beri,
eins og að tengja gam-
ansemi eða skrýtlu at-
burðinum. Með því sitji
18-20% meira eftir í
minni fólks. Oft séu það einnig smá-
atriðin sem hjálpi til að tengja at-
burði eða muna eftir byggingum.
„Segðu mér og ég mun gleyma,
sýndu mér og ég gæti munað, gerðu
mig að þátttakanda og ég mun skilja.
Þetta eru kínversk spakmæli sem
hafa mikið til síns máls,“ segir hún
og bætir við að algengt sé að fólk
muni 20% af því sem það heyri og
30% af því sem það sér á venjulegum
degi undir leiðsögn.
Hlutverk leiðsögunianns
Hún nefnir einnig að góður leið-
sögumaður þurfi að vera stoltur af
landi sínu, en hann verði eigi að síð-
ur að geta sýnt þjóð sína í réttu ljósi,
þ.e. ekki aðeins að draga fram góðu
hliðar þjóðlífsins heldur útskýra einn-
ig þær dekkri. Hlutverk
leiðsögumanna sé að
opna augu ferðalanga
fyrir því sem þeir veiti
ekki athygli án leið-
sagnar.
Hutchinson hafði
dvalið flóra daga á ís-
landi þegar viðtalið átti
sér stað. „Ég get ekki
beðið eftir að komast
aftur hingað og líkar
loftslagið vel. Ég ferð-
ast oftast utan anna-
tíma því þá finnst mér
ég kynnast Jandi og
þjóð betur. ísland er
hins vegar mjög sér-
stakt og þið verðið að
gæta þess að vernda
það gegn of miklum
ágangi. Ef þið þjálfið
upp góða leiðsögumenn passa þeir
sjálfkrafa upp á það.“
Að lokum útskýrir hún muninn á
leiðsögumönnum og fararstjórum og
bendir á að fararstjórar ættu alltaf
að hafa leiðsögumenn sér til aðstoð-
ar. Leiðsögumaður sé heimamaður
sem hafi þekkingu á öllu því sem til
þurfi, fararstjóri sé sá sem haldi utan
um hópinn, sjái til þess að allur að-
búnaður sé í lagi og öll dagskrá haldi
áætlun, svo dæmi séu tekin.
Aðspurð hvort Félag íslenskra
leiðsögumanna ætti að fara fram á
að erlendir ferðahópar verði að hafa
íslenskan leiðsögumann í hópnum,
svarar hún að það sé ekki spurning
um þjóðerni heldur ákveðna þekk-
ingu og fagleg vinnubrögð. „Islensk-
ir leiðsögumenn þekkja heimaslóðir
sínar betur en aðrir, þeir hafa fengið
góða þjálfun í Leipsöguskólanum og
staðist þar próf. Ég tel nauðsynlegt
að þeir útlendingar sem stunda leið-
sögustörf á íslandi hafi staðist sömu
próf.“
Hún kveðst hafa kynnt sér starf-
semi Leiðsöguskólans og lýsir yfir
ánægju sinni með að menntamála-
ráðherra skuli hafa sett fram ákveðn-
ar námskröfur í námskrá fyrir leið-
sögunám. „Það sýnir skilning hans
málinu," segir hún.
Þjálfaðir leiðsögumenn efla
ferðaþjónustu
Hún segir undir íslenskum leið-
sögumönnum komið að fá viðurkenn-
ingu frá íslenskum ferðaþjónustuað-
ilum og ferðamálayfirvöldum á því
að besta þjónustan og augiýsingin
fáist með sérþjálfuðu fólki á þessu
sviði. „Það hefur sýnt sig um allan
heim að þjálfaðir leiðsögumenn hafa
eflt ferðaþjónustuna. Þó getur oft
verið erfitt að byggja upp nýja hluti
og koma nýjum sjónarmiðum á fram-
færi, en þið eigið góða leiðsögumenn
svo vonandi notfærir íslenska ferða-
þjónustan sér þekkingu þeirra og
færni til að efla hana,“ segir Rosa-
lind Hutchinson.
Morgunblaðið/Golli
Rosalind
Hutchinson
dæstu
námskeið
Næstu námskeið
um næstu helgi
ERÐU
LÉTTA
DANSSVEIFLU
Á TVEIM
DÖGUMI
Áhugahópur um almenní dánsþátttöku | íslandi
557 7700
hringdu núna
Fundantaður og tími:
Hótel Selþoai þimmtudaginn 3. apríl kl. 10.00-12.00 drdesió.
Framiögumenn:
Jón GunnarJónaon. (ramleiðiluitjóri, Sláturtélagi Suðurlandi ivf.
Finnur Ingóltjucn, iðnaðarráðherra
Haraldur SumarUðaicn, hormaður Samtaka iðnaðarim
Dagskrá tundarim
Á fundinum verður tjarið yfir breytingar d itariukilyrðum og
í rekótri iðntiyrirtœkja undanharin ár og núverandi itaða
metin. Leitait verður við að svara spumingum um það hvemig
stjómvöíd og hagsmunaaðilar geta tekið höndum saman til
að tryggja vöxt iðnaðar og að sóknartcekitjœrin nýtist til
aukinnar verðmœtasköpunar.
Á tjundinn er boðið télagsmönnum Samtaka iðnaðarins,
sveitastjómarmönnum og alþingismönnum en auk þess er
tjundurinn opinn öllum áhugamönnum um atvinnumál.
(ðf SAMTÖK
mmm IÐNAÐARINS
- kjarni málsins!