Morgunblaðið - 02.04.1997, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
BYLTINGIMEÐ-
FERÐ SJÚKDÓMA
UNDANFARIÐ hefur orðið bylting í greiningu og með-
ferð ýmissa sjúkdóma á hátæknisjúkrahúsum, einkum
í skurðlækningum. Sú tæknibylting, sem hér um ræðir, hef-
ur valdið því að legutími sjúklinga hefur stytzt verulega,
bæði erlendis og hérlendis. I Bandaríkjunum, þar sem þessi
þróun hefur verið örust, hefur smærri sjúkrahúsum - og
sjúkrarúmum á hinum stærri - fækkað umtalsvert. Þessarar
þróunar gætir og hér á landi. Á Landspítala hefur meðallegu-
tími á legudeildum stytzt úr tæpum 22 dögum árið 1985 í
12,8 daga árið 1995 og á vefrænum bráðadeildum spítalans
úr 11 dögum í 7. Á sama tíma fækkaði skráðum rúmum á
legudeildum spítalans úr 1050 í um 900.
Hátækniþjónusta fer einkum fram á stórum sjúkrastofnun-
um, sem m.a. búa yfir flókinni en fullkominni tækni til sjúk-
dómsgreininga, vel búnum rannsóknarstofum, tölvusneið-
myndatækjum, segulómun o.s.frv. Á slíkum stofnunum er
og aðgerðafjöldi það mikill að mjög sérhæft starfslið, lækn-
ar og hjúkrunarfólk, getur haldið færni sinni við.
Fámenn þjóð getur á hinn bóginn ekki rekið mörg há-
skóla- og hátæknisjúkrahús. Til þess er hvorki fjárhagsleg
geta né sérhæft starfslið. Raunar hafa verið færð fram hag-
kvæmni- og sparnaðarrök fyrir því að sameina eða samhæfa
betur starfsemi stóru sjúkrahúsanna tveggja í Reykjavík.
En mest er um vert að tryggja að hér verði ætíð tiltækur
hátæknibúnaður og sérhæft starfslið, sem stenzt samanburð
við það sem bezt þekkist annars staðar í veröldinni. Með
því móti getum við haldið áfram að stytta meðallegu sjúkl-
inga, sem þurfa á sjúkrahússmeðferð að halda, sem og fjar-
vistir þeirra frá vinnu. Það er í senn þeirra hagur og samfé-
lagsins.
ÓMARKVISS HREINSUN
HREINSUNARSTARFIÐ á strandstað flutningaskipsins
Víkartinds virðist hafa verið fremur ómarkvisst. Nú,
þegar hartnær mánuður er liðinn frá strandi skipsins, er
hreinsun strandstaðarins enn ekki lokið. Það er því ekki að
undra að þolinmæði heimamanna sé á þrotum.
Þetta mál er þeim mun alvariegra, sem sýnt er að strand
skipsins hefur þegar valdið umhverfinu skaða og að sá skaði
getur orðið enn stærri. Um borð í Víkartindi er enn svartol-
ía og á meðal varnings í skipinu eru eiturefni og lyf, sem
geta verið almenningi hættuleg. Þá er auðvitað mengun að
hvers kyns braki úr skipinu, sem dreifist víðar eftir því sem
lengur er beðið með að hreinsa það.
Víkartindsmálið ætti að verða stjórnvöldum tilefni til að
endurskoða og skýra reglur um viðbrögð við slysum af þessu
tagi. Nauðsynlegt er að það liggi ljóst fyrir hver ber ábyrgð
á hreinsun eftir skipsstrand, hver framgangsmátinn á að
vera strax eftir strandið og hvaða tímamörk ber að virða.
Þá þarf að vera skýrt hver sé réttur og ábyrgð landeigenda
í slíkum málum, þannig að hægt sé að forðast deilur af því
tagi, sem hafa komið upp undanfarna daga.
í málum af þessu tagi hljóta menn að hafa hagsmuni
umhverfisins og almennings í fyrirrúmi.
BYGGING ÁLVERS HAFIN
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við byggingu álvers Norður-
áls hf. á Grundartanga, en umhverfisráðherra gaf út
starfsleyfi fyrir verksmiðjuna kvöldið fyrir skírdag. Bygging-
arleyfi hafði áður verið gefið út, en hins vegar á Alþingi
eftir að samþykkja frumvarp um álverið, svo og á móðurfyr-
irtækið, Columbia Ventures, eftir að ganga endanlega frá
fjármögnun, en það verður væntanlega í maímánuði.
Bygging álversins á Grundartanga eru mikil tíðindi í ís-
lenzku efnahagslífi, því stöðnun hefur ríkt í stóriðjuuppbygg-
ingu hér á landi í nær þrjá áratugi, eða þar til stækkun ál-
versins í Straumsvík hófst á liðnu ári. Uppbygging orkufreks
iðnaðar hefur víðtæk áhrif á atvinnu- og efnahagslíf lands-
manna. Allt að 350 manns munu fá störf á byggingartíma
nýja álversins og um 150 fá þar vel launuð störf til framtíð-
ar. Þá er miðað við full afköst 60 þúsund tonna álvers, en
heimild er til að stækka það í 180 þúsund tonn. Mörg hundr-
uð manns munu og fá vinnu við virkjunarframkvæmdir.
Athyglisvert er, hversu undirbúningur hefur gengið hratt
fyrir sig. Það var í ágústlok 1995 sem Columbia spurðist
fyrst fyrir um, hvort íslendingar treystu sér til að selja raf-
orku til 30 þúsund tonna álvers. Nú er gert ráð fyrir því,
að álverið á Grundartanga geti hafið starfsemi sumarið 1998.
Everest faramir eru komnir í 4.930 meti
VIÐ erum komnir langt inn í
Himalaya fjöllin og fjalla-
fegurðin er með þvílíkum
ólíkindum að því fá engin
orð lýst,“ segja Everest fararnir Björn
Ólafsson, Einar K. Stefánsson og
Hallgrímur Magnússon, sem í gær
gengu á Everest í fyrsta skiptið ásamt
aðstoðarmönnum sínum Herði Magn-
ússyni og Jóni Þór Víglundssyni. Leið-
angurinn hefur gengið vel fram að
þessu nema hvað Jón og Hallgrímur
hafa átt við smávægileg veikindi að
stríða.
Everest fararnir eru núna staddir
í litlu þorpi sem heitir Lobuche og er
í um 4.930 metra hæð. í gær gengu
þeir að Khumbu skriðjöklinum, sem
er erfiður farartálmi fyrir þá sem vilja
komast á tindinn. Þegar þeir sneru
við niður í Lobuche höfðu þeir náð
hæð sem er um 100 metrum hærri
en Mt. Blanc, hæsta fjall Evrópu.
Þeir hafa lagt áherslu á að aðlaga sig
hæðarmuninum og þunna loftinu.
Þetta gera þeir með því að ganga upp
í vissa hæð og fara svo niður aftur.
Leiðangursmenn koma I aðalbæki-
stöðvar sínar eftir tvo daga, en þær
eru í 5.300 metra hæð. Nokkur töf
varð á því að stærstur hluti farangurs
þeirra fengist leystur úr tolli, en hann
var sendur af stað nokkrum vikum
áður en þeir lögðu frá íslandi. Eftir
nokkurt umstang tókst að losa far-
angurinn úr tolli og hann er nú á leið
til þeirra. Björn sagði í samtali við
Morgunblaðið að ekki væri útilokað
að þetta tefði þá eitthvað þegar þeir
kæmu í aðalbækistöðvarnar.
Breytt mataræði fór heldur illa í
Hallgrím, sem hefur verið með niður-
gang. Hann leitaði til læknis um helg-
ina og fékk hjá honum fúkkalyf og
ráðleggingar um mataræði. Hann er
því allur að hressast. Jón Þór, kvik-
myndatökumaður Ríkissjónvarpsins,
hefur hins vegar verið með svolitla
flensu. Hann gekk með félögum sínum
upp að Khumbu jökli í gær þrátt fyr-
ir veikindin.
ÞETTA er sú fjallasýn sem blasir við í góðu veðri í Himalayafjall-
garðinum. Fyrir miðju er Everest og lengst til vinstri er Khumba
skriðjökulinn, sem skríður fram um einn metra á dag.
Fögur
fjallasýn í
Himalaya
Leiðangur þriggja íslendinga á tind Everest
gengur samkvæmt áætlun, en smávægileg
Síðustu daga hefur verið þokuslæð-
ingur og snjókoma, en inn á milli
hefur birt til. Hörður sagði_ að þetta
væri sæmilegt veður að áliti íslending-
anna, en sumir Bretarnir í leiðangrin-
um töluðu um að þetta væri hræðilegt
veður. Hann sagði að mjög kalt væri
hins vegar á nóttunni.
Sérstæð menning
Leiðangursmenn senda dagbókar-
pistla á heimasíðu sína á alnetinu, en
hana er að finna á slóðinni
http://www.mbl.is/everest. í pistli
sem þeir sendu á skírdag fjalla þeir
um sérstaka menningu fólksins sem
býr við rætur Everest.
„Namche Bazaar er skemmtilegur
staður. Hér er höfuðborg sherpanna
og miðpunktur Khumbu héraðsins.
Sherparnir sjálfir kalla þorpið Nauc-
he. Namche á sér aldalanga sögu.
Hér var í árhundruð miðpunktur versl-
unar milli Tíbet í norðri og Nepals
og Indlands í suðri. Tíbetar seldu salt
og jakuxaull suður yfir Himalaya fjöll-
in í skiptum fyrir kornvöru, hrísgijón
og sót til blekgerðar. Stór hluti þess
sem fór norður yfír var smjör til að
brenna í smjörkertum í ótölulegum
fjölda Lama klaustra í Tíbet. Sherp-
arnir voru milligöngumenn um öll
þessi viðskipti og sáu að mestu um
flutningana yfir hið 5.300 m háa Lang
Pa La skarð, vestan Cho Oyu, sem
eru okkur kunnuglegar slóðir. Namc-
he Bazaar hefur því alltaf verið ríkt
þorp. Þessi verslun hrundi alveg upp
úr 1950, þegar Kínverjar hernámu
Tíbet og lokuðu fjallaskörðunum.
Þjónusta við ljallaleiðangra og ferða-
menn varð afkomu sherpanna til
bjargar. Gönguleiðin upp Khumbu
dalinn er sú vinsælasta í Nepal og
tugir þúsunda ferðamanna leggja það
á sig að ganga upp til Namche á
hverju ári.
Þorpið er í skálarlaga sillu í brattri
fjallshlíð. íbúar eru um 500 talsins.
Hér er allt bratt og það er um 100 m
hæðarmunur á milli efsta og neðsta
hluta þorpsins. Húsin eru ein til þtjár
hæðir, allt frá óhijálegum hjöllum
með tré- og stráþökum sem þyngd
eru niður með steinum, að ágætlega
hlöðnum steinhúsum með bárujárns-
þökum. Gluggarnir eru stórir og flest-
ir málaðir í skærum Ijósbláum lit, sem
gefur bænum skemmtilegan svip.
veikindi hafa þó hrjáð hluta leiðangursmanna.
í gær gengu þeir í fyrsta skiptið á Everest-
fjall og á morgun koma þeir í aðalbækistöðv-
ar, en þaðan munu þeir gera atlögu að tindin-
——- f
um um miðjan maímánuð. Egill Olafsson
ræddi við félagana í síma í gær.
FJALLGÖNGUMENNIRNIR sem ganga á Everest eru Hallgrímur
Magnússon, Björn Ólafsson og Einar K. Stefánsson.