Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Fæðingarheimili
Reykjavíkur
ÁRNI Sigfússon,
núverandi borgarfull-
trúi og fyrrverandi
formaður Sjúkrastofn-
ana Reykjavíkur, ritar
grein i Morgunblaðið
sl. fimmtudag þar sem
hann sakar Reykjavík-
urlistann og undirrit-
aðan, þó sérstaklega,
um að eiga sök á því
að Fæðingaheimili
Reykjavíkur var lokað.
Þar með væntanlega
þeim valkosti fyrir
fæðandi konur, sem
heimilið bauð upp á.
En er það nú alveg
rétt mál hjá Árna Sigfússyni, eða
vantar hann nú bara eitthvað til
að skrifa um. Staðreynd er að:
Ámi Sigfússon, sem formaður
Sjúkrastofnana Reykjavíkur tók þá
ákvörðun að hætta rekstri Fæðing-
arheimilisins 1992, en hafði þá
nokkru áður leigt um helming hús-
næðisins undir einkarekna skurð-
stofu. Árni Sigfússon borgarstjóri
undirritaði leigusamning um hús-
næði Fæðingarheimilisins þann 22.
mars 1994. Þar með slepptu
Sjúkrastofnanir Reykjavíkur í raun
endanlega hendi af Fæðingarheim-
ilinu.
Of mikill kostnaður
Af hveiju gerði maðurinn þetta?
geta menn spurt. Svarið er einfalt.
Pétur Jónsson
Kostnaðurinn við
rekstur Sjúkrastofn-
ana Reykjavíkur á
Fæðingarheimilinu
var orðinn það hár að
með auknu aðhaldi á
Ijárveitingum til heil-
brigðisþjónustu al-
mennt var reksturinn
ekki talinn veijandi.
Stjórn Sjúkrastofnan-
anna, undir for-
mennsku Árna Sigfús-
sonar, treysti sér
greinilega ekki til að
verða við kröfu um
sparnað. Seinasta árið
sem Sjúkrastofnanirn-
ar önnuðust rekstur Fæðingar-
heimilisins, nam kostaðurinn um
60 m.kr. Það var árið 1991. Ákveð-
ið var að Ríkisspítalarnir yfirtækju
reksturinn árið 1992. Á fjárlögum
fengust um 20 milljónir króna til
rekstursins þa ð ár. Allir sjá að
þetta gat alls ekki gengið upp.
Ríkisspítalarnir yfirtóku samt
reksturinn 1. apríl 1992, en þá
fylgdi með reikningur frá Sjúkra-
stofnununum upp á um 13 m.kr.
Það var fyrir að annast rekstur
Fæðingarheimilisins fyrstu 3 mán-
uði ársins (þ.e. l.jan.-31. mars).
Ríkisspítalarnir greiddu að vísu
ekki reikninginn en ráku Fæðingar-
heimilið meðan fjármunir entust
eða áfram fram á haustið, en þá
var því lokað. Fæðingum á kvenna-
Rekstri Fæðingarheim-
ilisins var hætt árið
1992. Pétur Jónsson
segir að Árni Sigfússon
hafi tekið þá ákvörðun.
deild Landspítalans fjölgaði hlut-
fallslega í kjölfarið, bæði þá og á
næstu árum sem Fæðingarheimilið
var lítið sem ekkert opið. Kostn-
aður kvennadeildar jókst auðvitað
og nam aukningin nánast því sem
fékkst árlega.
Bjartsýni í fyrstu
Ríkisspítala bjartsýnir um fram-
haldið. Þegar fyrst kom til tals að
Ríkisspítölunum yrði gert að yfir-
taka rekstur Fæðingarheimilisins
ríkti nokkur bjartsýni þar á bæ um
að takast mætti að nýta starfsfólk
og rekstrarþætti Landspítalans til
að ná fram miklum sparnaði. Sér-
stakt minnsblað frá mér ber vitni
um það. En það var frá fundi með
þáverandi formanni Sjúkrastofn-
anna Reykjavíkur, Árna Sigfús-
syni, og forstjóra Borgarspítalans
en hann var haldinn þann 13. febr-
úar 1992. Þar var einnig óskað
eftir áfamhaldandi viðræðum um
Fæðingarheimilið. Einmitt í það
minnisblað vitnar Árni Sigfússon í
grein sinni og lætur eins og það
sé samningur milli spítalanna.
Minnisblaðið var auðvitað eins kon-
ar skýrsla um gang viðræðnanna
á þeim tíma.
En ekki reyndist unnt að taka
fé frá rekstri kvennadeildar Land-
spítalans, svo nokkru næmi, til að
halda uppi rekstri Fæðingarheimil-
isins, en um þann möguleika er
rætt í umræddu minnisblaði. Nokk-
ur sparnaður náðist þó, en hvergi
nærri nógur til að brúa bilið. Síðar
fengust þó fjármunir til að lag-
færa, eða nánast endurbyggja
hluta húsnæðisins. Því eftir að
Sjúkrastofnanir Reykjavíkur hættu
að reka Fæðingarheimilið dæmdist
húsnæðið ekki hæft til að þar væri
forsvaranlegt að reka sjúkrastofn-
un. En það er önnur saga.
Seinast var gerð alvarleg tilraun
til að opna Fæðingarheimiiið 1995,
en vegna almenns aðhalds á fjár-
munum til reksturs sjúkrahúsa var
því lokað aftur síðar á því ári.
Raunverulegur vilji?
Árni Sigfússon ritar um að allir
heilbrigðisráðherrar frá árinu 1991
séu flokksmenn í þeim stjórnmála-
flokkum sem nú standa að Reykja-
víkurlistanum. Þetta er auðvitað
rétt. En sami forsætisráðherra og
sami ijármálaráðherra hafa setið
allt þetta tímabil í sömu embættum
og eru jieir samflokksmenn Árna.
Ef nú Árna Sigfússyni hefði verið
svo annt um Fæðingarheimilið, sem
hann nú vill nú vera láta hefði
hann auðvitað getað haft, eða
minnsta kosti reynt að hafa, áhrif
á félaga sína til að veita sérstak-
lega fé til reksturs Fæðingarheimil-
isins.
Ekki er vitað til að hann hafi
gert það.
Enn er valkostur
Aðalatriðið er samt ekki hvort
hús er selt eða ekki selt. Hvort ein-
hver þjónusta er boðin í þessu húsi
eða hinu. Aðalatriðið er nefnilega
það að valkostur, sem Fæðingar-
heimilið bauð fæðandi konum er,
þrátt fyrir allt, ekki úr sögunni.
Sérstök deild var opnuð á
kvennadeild Landspítalans árið
1994 sem býður konum svipaðan
valkost. Það er svokölluð MFS deild
(meðganga-fæðing-sængurlega). Á
þeirri deild fæða konur börn sín
við allt aðrar aðstæður en á „há-
tæknideildunum". Þó er öryggið
alltaf í fyrirrúmi, m.a. vegna ná-
lægðarinnar. Þar vinna nú nokkrir
fyrrverandi starfsmenn Fæðingar-
heimilis Reykjavíkur.
Konurnar og fjölskyldur þeirra
fá sérstaka fræðslu og aðstoð ljós-
mæðra, bæði fyrir og eftir barns-
burð. Þær fara fljótt heim með
börn sín og fá skipulagða heima-
þjónustu ljósmæðra. Um 170 konur
nýttu sér þessa þjónustu árið 1996
og fyrstu tvo rnánuði þessa árs eru
þær um 35. Á þessu ári er áætlað
að þær verði yfir 200.
Um MFS má skrifa langt mál,
en aðrir eru betur færir um það
en ég. Einnig má sjálfsagt rökræða
um það hvort hér sé um nákvæm-
lega sams konar þjónustu að ræða
og var á Fæðingarheimili Reykja-
víkur. En það er fyrst og fremst
stjórnendum og starfsfólki kvenna-
deildar Landspítalans að þakka að
fæðandi konum býðst enn valkost-
ur, raunar fleiri en einn.
Árni Sigfússon borgafulltrúi er
því bara að reyna að þyrla upp
moldviðri.
Höfundur er borgarfulltrúi í
Reykjavík.
Óskalisti
brúðhjónanna
Gjafaþjónusta fyrir
brúökaupið
&) SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12» Sími 568 9066
- Þar fœrðu gjöfina -
Kork*oPlast
KORK-gólfflísar
með vinyl-plast áferð
KorkoPlast
/ 20 gerðum
Kork O Floor
er ekkert annad en
hið viðurkennda
Kork O Plast, límt á
þéttpressaðar
viðartrefjaplötur,
kantar með nót og gróp.
UNDIRLAGSKORK IÞREMUR ÞYKKTUM.
VEGGTÖFLUKORKPLÖTURIÞREMUR ÞYKKTUM.
KORK-PARKETT, VENJULEGT í TVEIMUR ÞYKKTUM.
PP
&CO
ÞORGRÍMSSON & CO
ARMULA 29 • PÓS7HÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SiMI 553 8640 568 €100
Helgafell upp af Hafnarfirði
HELGAFELL ofan Hafnarfjarðar.
ÖRNEFNI sem byija á Helga-
eru allmörg víða um land. Með
rökum málfræðinnar er ekki alltaf
létt að skera úr hvort sá liður þýði
„heilagur" eða sé dreginn af nafn-
inu Helgi.
Helgafell, austur af Hafnarfirði,
sem víða blasir við af suðvestur-
horninu, fellur undir þetta. Annað-
hvort þýðir nafn þess Fjallið helga,
eða það er kennt við Helga ein-
hvern. Til hins síðarnefnda bendir
að þar skammt frá er örnefnið
Helgadalur, sem hlýtur að vera
dregið af mannsnafninu.
Hitt er þó annað mál að fyrir
kunnuga er eiginlega ákaflega erf-
itt að trúa öðru en að einhver heil-
agleiki eða átrúnaður hafi fylgt
þessu ljalli frá fyrstu tíð. Þar er
frekar um að ræða tilfinningalegt
en fræðilegt sjónarmið. Fjallið er
ákaflega tignarlegt ásýndum og
dregur að sér augu manna. Þetta
þekkja allir sem eitthvað að ráði
hafa gengið um Qallið eða ná-
grenni þess.
Þetta á við hvort heldur er að
sumri eða vetri. Að sumarlagi
gnæfir fy'allið hátt yfir
umhverfi sitt, tignarlegt
ásýndum, og þá má
stundum sjá kvöld-
skugga leika tilþrifam-
ikinn leik í skörðum þess
og giljum. Að vetri
skapar snjórinn ótelj-
andi skrautmyndir í
fy'allinu. Ef menn setja
sig í spor forfeðra okkar
er fátt líklegra en að
þeir hafi haft helgi á
fjalli sem þessu. _
Ferðafélag íslands
fer árlega margar ferðir
um Helgafell og nálæg-
ar slóðir. Venjulega er
fjallgangan byijuð við
Kaldársel, en þangað liggur akveg-
ur.
Þaðan er gengið í átt að fjallinu
og heldur til norðurs. Innan
skamms er þá komið að sléttu
hrauni sem líkast er að hafi storkn-
að þar þunnfljótandi í kyrrstöðu.
Meðan gengið er yfir þessa hraun-
sléttu blasa Valahnúkar við á
vinstri hönd. Ef vel er að gáð má
sjá skýringu á nafninu á klettad-
röngum, sem gnæfa þar við himin
og eru engu líkari en
fálkum eða völum sem
hafi sest þar niður. Síð-
an kemur að skarði milli
Valahnúka og Helga-
fells, og þar er hægast
að hefja uppgönguna og
ganga á fjallið til suð-
urs.
Leiðin upp fjallið má
teljast heldur hæg og
auðveld. Hallinn er aflíð-
andi og einungis þarf að
gæta sín á móberginu,
en á því er á stöku stað
lausamöl sem hægt er
að hrasa og renna í.
Leiðin er auðrötuð og
liggur nokkuð til vinstri.
Þegar upp á hæsta tindinn er
komið blasir við fagurt útsýni til
allra átta. Esja, Hengill, Vífilsfell
og Bláfjöllin breiða sig þar út, Keil-
ir er til suðurs og höfuðborgarsvæð-
ið liggur útbreitt eins og landakort
til vesturs, svo fátt sé nefnt. Sjálf-
sagt er að gefa sér góða stund þar
uppi til að litast um. Ekki sakar
þá að vera með gott landabréf í
bakpokanum til að glöggva sig á
ijöllum og ömefnum.
Síðan er rétt að mæla með því
að fólk gangi smáspotta áfram
suður eftir fjallinu. Þar er tvennt
að sjá. Annað er Riddarinn, drang-
ur sem slcagar upp úr fjallinu, sést
Leiðin upp á fjallið
er, að mati Eysteins
Sigurðssonar, hæg
og auðveld.
víða að og var fyrrum notaður sem
mið í landi af fiskislóðum Faxa-
flóa. Hitt er stórt gat sem borast
hefur í klettana sunnan til í fjallinu
og er ekki alveg vandalaust að
komast að, en þó óhætt flestum.
Hvort tveggja þarf að skoða áður
en aftur er haldið niður. Líka er
rétt að horfa ofan í hraunið suður
af fjallinu og litast um eftir Gull-
kistugjá. Hún er allstór og sést vel
þarna að ofan, en á nafni henanr
er mér vitanlega ekki þekkt nein
skýring.
Því fer þó ljarri að þetta sé það
eina skoðunarverða í Helgafelli.
Ef fólk vill ekki fara upp er vel
mælandi með því að ganga kring-
um fjallið niðri á sléttlendi og get-
ur raunar verið góð ganga á góð-
viðrisdegi fyrir fjallamenn einnig.
Fara má hvorum megin sem vill,
athugunarefnin eru þar næg á
báðar síður, en einkum er svæðið
suðvestur af fjallinu áhugavert.
Það er nakið og gróðurlítið, en
býsna fagurt í hrikaleik sínum.
Þá má ekki heldur gleyma Vala-
hnúkunum, en gönguleiðjn kring-
um þá er skemmtileg. í leiðinni
er rétt að koma við í Valabóli,
gróðurvin þar sem hellir, Músar-
hellir, var á sínum tíma gerður að
eins konar útileguskála og enn sér
skýrar menjar um. Þeir sem léttir
eru í spori geta síðan gert sér lítið
fyrir og skroppið á Húsfell, sem
er þarna stutt norður af. Þaðan
er sömuleiðis gott útsýni og margt
að sjá.
Höfundur er íslenskufræðingur
og áhugamaður um útiveru.
Á ferð í
m.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS