Morgunblaðið - 02.04.1997, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 41
AÐSENDAR GREINAR
Sálfræðiþjónusta
við unglinga
HVERT geta for-
eldrar leitað þegar
unglingurinn þeirra
lendir í vanda og held-
ur út á óheillabraut?
Hvert getur ungling-
urinn sjálfur leitað eft-
ir sálfræðiþjónustu?
Vandinn getur verið
af ýmsum toga, t.d.
tengst líðan unglings-
ins, samskiptaerfið-
leikum á heimili, of-
beldi og neyslu fíkni-
efna.
Stefnumörkun til
framtíðar
Aðgerðir stjórn-
valda í málaflokknum þjónusta við
unglinga í vanda hefur til skamms
tíma einkennst af því að vera
ómarkvissar og tilviljanakenndar.
Það er gripið til aðgerða þegar eitt-
hvað hefur farið úr böndunum og
má þar nefna sem dæmi stofnun
meðferðarheimilis að Stóru Gröf,
sem stofnað var í kjölfar þess að
unglingar réðust inn í sumarbústað
við Meðalfellsvatn og gengu þar
berserksgang árið 1993. Annað
dæmið er stofnun Tinda, meðferð-
arstöðvar fyrir unga vímuefnaneyt-
endur, sem stofnuð var 1989 og
lögð niður eftir nokkurra ára starf-
semi, af því stofnunin þótti of dýr
og þörfin sem talin var vera fyrir
stofnunina í upphafi var ekki fyrir
hendi. Það er ljóst að það er knýj-
andi að marka framtíðarstefnu, þar
sem þörfin fyrir þjónustuna er
metin, kostnaðurinn áætlaður
raunhæft og lagt mat á hvaða og
hvernig þjónustu ríki og sveitar-
félög ætla og geta veitt þegnum
sínum í þessum málaflokki.
Það er dýrt fyrir lítið samfélag
að hafa ekki heildstæða framtíðar-
stefnu og vera með tilraunastarf-
semi þar sem að með hverri nýrri
ríkisstjórn verða stefnubreytingar,
þar sem stofnanir eru lagðar niður
öðrum komið á laggirnar og reynslu
og þekkingu kastað á glæ. Breyt-
ingar á þjónustunni eru nauðsyn-
legar samfara breytingum í samfé-
laginu, en þær verða að byggjast
á fagíegum forsendum þar sem
gerð er úttekt á fyrri stofnunum
og þörfin fyrir þjónustuna er met-
in. Með stofnun Barnaverndarstofu
er stigið spor í rétta átt við að
móta heildstæða stefnu í barna-
verndarmálum og meta þörfína fyr-
ir þjónustu við börn og unglinga.
Mikilvægi grunnþjónustu
í grunnþjónustunni er forvarnar-
starfið unnið og er brýnt að hún
sé aðgengileg fyrir foreldra og
böm. Með aðgengileg
er átt við að ekki sé
um að ræða tilvísana-
kerfi eða biðlista held-
ur geti foreldrarnir og
börnin strax haft sam-
band við sálfræðing
eða annan starfsmann
þjónustunnar. Allir
unglingar hafa verið
börn og í flestum til-
vikum er um að ræða
vanda sem á sér ein-
hvern aðdraganda.
Með góðri grunnþjón-
ustu á að vera hægt
að fækka dýrum með-
ferðarvistunum á
stofnunum. En hvar er
grunnþjónustuna að finna, vita for-
eldrar og unglingar það?
Félagsmálastofnanir veita slíka
þjónustu, en oft setja menn sama-
sem-merki á milli félagsmálastofn-
ana og alvarlegra félagslegra
vandamála og finnst þeirra vandi
Nýja reglugerðin um
sálfræðiþjónustu í skól-
um, segir Margrét Ein-
arsdóttir, er afturför.
eða áhyggjuefni ekki heyra undir
þann flokk. Sl. haust var sett á
stofn Pjölskylduráðgjöfin Samvist,
sem er sameiginlegt tilraunaverk-
efni á vegum Reykjavíkurborgar
og Mosfellsbæjar og þjónar bama-
Ijölskyldum með börn á aldrinum
0 til 18 ára og er það fagnaðarefni
að úrræðum fyrir fjölskyldur í
vanda er fjölgað.
Sálfræðiþjónusta í skólum
í nýrri reglugerð um sérfræði-
þjónustu skóla er öllum sveitarfé-
lögum skylt að sjá skólum fyrir
sérfræðiþjónustu. Sérfræðiþjón-
ustunni er ætlað að stuðla að því
að kennslufræðileg og sálfræðiíeg
Vantar þig
VIN
að tala við?
Við erum til staðarl
VINALÍNAN
561 6464 • 800 6464
xSjéSkx
öll kvöld 20 - 23
Margrét
Einarsdóttir
Stáldælur mikið úrval
IP alhliða dælur 40 1/m-42 mvs kr. 6.980 m/vsk.
Jet-stáldælur 90 1/m- 46 mvs kr. 18.551 m/vsk.
Jet-stáldælur fyrir neysluvatn sambyggðar með
þrýstikút 42 1/m- 40 mvs kr. 25.896 m/vsk.
þekking nýtist sem best í skóla-
starfi. Kennurum ,og skólastjórn-
endum skal standa til boða ráðgjöf
og stuðningur sérfræðiþjónustu
vegna skólastarfs. Starfsmenn sér-
fræðiþjónustu skulu vinna að for-
varnarstarfi í samvinnu við starfs-
menn skólans m.a. með kennslu-
fræðilegum og sálfræðilegum at-
hugunum og greiningu á nemend-
um sem eiga í erfiðleikum sem
hafa áhrif á nám þeirra. Með þess-
um nýju lögum um grunnskóla nr.
66/1995, 42. gr. og 43. gr. og
reglugerðinni er réttur foreldra og
barna til sálfræðiþjonustu skólanna
skertur til muna. f fyrri reglugerð
var gert ráð fyrir að hlutverk ráð-
gjafar og sálfræðiþjónustu í skólum
væri einnig fólgið í að sjá um stuðn-
ing og meðferð fyrir nemendur og
foreldra þeirra. í nýju reglugerðinni
er aftur á móti aðaláherslan lögð
á að greina vandann og veita
kennurum ráðgjöf, og foreldrar og
börn eiga ekki lengur beinan að-
gang að sálfræðingi heldur verða
að bera upp mál sín við kennara
og skólastjóra. Á undanförnum
árum hefur eftirspurnin eftir þjón-
ustu skólasálfræðinga alltaf verið
að aukast og eru langir biðlistar
eftir þjónustu sálfræðinganna til
marks um það. Eftirspurnin er ekki
eingöngu eftir greiningarvinnu og
ráðgjöf heldur ekki síður eftir sál-
fræðiaðstoð. Það að geta leitað
beint til sálfræðingsins er ómetan-
legt fyrir þann sem á í vanda og
er að stíga fyrstu skrefin í að leita
sér aðstoðar. Líta má á grunnþjón-
ustuna sem nokkurs konar síu, þar
sem börn sem greinast með alvar-
leg hegðunar- og tilfinningaleg
vandamál eru send til ítarlegri
greiningar og meðferðar á stcfnan-
ir eins og Barnageðdeild, Stuðla,
meðferðarstöðvar ríkisins fyrir
unglinga og eða aðrar meðferðar-
stofnanir. Spurningin er því hver á
að vinna eftir ráðgjöfinni sem sál-
fræðingurinn veitir, í þeim tilvikum
sem ekki er nauðsynlegt að vista
unglinginn á stofnun. Yfirleitt er
til þó nokkur þekking á vandanum
í skólanum og oft er búið að skil-
greina hann í bak og fyrir. Mörg
mál leysast líka farsællega og í
skólakerfinu er að fínna mikla sér-
þekkingu til að ráða fram úr vanda-
málum barna og unglinga. En
stundum er vandamálið mun flókn-
ara en það að hægt sé að leysa
það eingöngu með sérkennslu og
námsráðgjöf. Barnið eða ungling-
urinn er ekki bara til í skólanum
og vandamálin þar eru oft endur-
speglun á því sem er að gerast á
heimilinu. Sálfræðingurinn með
þekkingu sína og siðareglur er best
fallinn til að sinna þjónustu við
unglinga og fjölskyldur þeirra
þ.e.a.s. þjónustu sem fólgin er í
stuðningi og meðferð. Góð sam-
vinna hinna ýmsu starfshópa eins
og sálfræðinga, félagsráðgjafa,
skólahjúkrunarfræðinga, námsráð-
gjafa og sérkennara, svo dæmi séu
nefnd, er einnig forsenda þess að
hægt sé að vinna gott starf í grunn-
þjónustunni.
Nýja reglugerðin um sérfræði-
þjónustu í skólum er afturför í þjón-
ustunni við börn, unglinga og for-
eldra þeirra. Sálfræðiþjónusta í
skólum hefur verið ódýr og er fyrir-
byggjandi til framtíðar. Hins vegar
má spytja sig að því hvort sálfræði-
þjónustan, sem sálfræðideild skóla
veitti áður, eigi heima annarstaðar
en undir Fræslumiðstöð eða skóla-
skrifstofu. Ef til vill er hægt að
reka þjónustuna á hagkvæmari og
skilvirkari hátt, t.d. að sveitarfélög-
in kaupi þjónustuna af einkarekn-
um sálfræðistofum, þegar þau
þurfa á því að halda, að þjónustan
heyri undir aðrar stofnanir, heilsu-
gæslustöðvar eða félagsmálastofn-
anir, svo eitthvað sé nefnt. Þörfin
fyrir þessa þjónustu er fyrir hendi
og mikilvægt er að gera úttekt á
því hvernig hagkvæmast og best
er að mæta henni.
Höfundur er sálfræðingur á
Stuðlum, meðferðarstöð ríkisins
fyrir unglinga.
Orðsending til viðskiptavina banka og sparisjoða og greiðslukortafyrirtækja
Verkfall félagsmanna í Sambandi íslenskra bankamanna hefst á miðnætti aðfararnótt 4. apríl 1997 hafi ekki samist fyrir þann tíma. Verkfall mun valda ýmiss konar röskun fyrir viðskiptavini banka og sparisjóða og greiðslukortafyrirtækja.
Lokun afgreiSslu- staða Afgreiðslur banka og sparisjóða og nokkurra fyrirtækja í eigu þeirra verða lokaðar frá og með föstudeginum 4. apríl og þangað til verkfalli lýkur. Starfsmenn Kreditkorts hf. (EUROCARD á íslandi) eru ekki í verkfalli og verður afgreiðsla þess fyrirtækis því opin.
Opnun afgreiðslu- staða Afgreiðslur banka og sparisjóða verða opnaðar svo fljótt sem verða má eftir að verkfalli lýkur. Það verður auglýst nánar þegar þar að kcmur.
Tékkar Framvísa skal tékka til innlausnar innan þrjátíu daga frá útgáfudegi. Renni þessi frestur út meðan á verkfalli stendur skal tékka framvísað strax að verkfalli loknu.
Víxlar Falli víxill sem afsegja þarf í gjalddaga meðan á verkfalli stendur verður hann afsagður vegna greiðslufalls á öðrum hvorum virkum degi eftir fyrsta afgreiðsludag að verkfalli loknu. Ekki verður unnt að senda skuldurum eða ábyrgðarmönnum víxla tilkynningar meðan á verkfalli stendur.
Skuldabréf inn- beimtttskuldabréf Standa skal skil á afborgunum af skuidabréfum sem falla í gjalddaga meðan á verkfalli stendur strax að verkfalli loknu. Þetta gildir um öll skuldabréf í bönkum og sparisjóðum, einnig skuldabréf sem þeir innheimta fyrir aðra. Ekki verður unnt að scnda skuldurum eða ábyrgðarmönnum skuldabréfa tilkynningar meðan á verkfalli stendur.
Dráttarvextir Falli krafa í eindaga áður en verkfall hefst verða reiknaðir dráttarvextir meðan á verkfalli stendur. Ef gjalddagi kröfu er áður en verkfall hefst og eindagi eftir að það hefst verða reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga ef krafan er ekki greidd áður en verkfall hefst. Ef gjalddagi og eindagi kröfu eru meðan á verkfalli stendur verða reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga ef krafan er ekki greidd strax að verkfalli loknu.
Debetkort Unnt verður að nota Debetkort undir ábyrgðarmörkum innanlands og utan. Tölvuvædd kassakerfi í mörgum verslunum og víða annars staðar geta nánast tekið endalaust við debetkortafærslum þrátt fýrir verkfall. Posar taka hins vegar eingöngu við 250-1.250 færslum og stöðvast þegar hámarkinu er náð. Ekki verður unnt að nota debetkort sem merkt eru „án ábyrgðar“ þ.m.t. unglingakort á meðan verkfalli stendur.
Kreditkort, innan- lands Tölvuvædd kassakerfi og posar taka við kreditkortafærslum með sama hætti og debetkorta- færslum (sjá umfjöllun að ofan). Þá verður unnt að „strauja" kreditkort eins og áður.
Kreditkort, erlendis Tiltölulega lítil röskun verður á krcditkortaviðskiptum erlendis. Starfsmenn Kreditkorta hf. (EUROCARD á íslandi) fara ekki í verkfall og því verður unnt að nota EURO- CARD-kreditkort erlendis með venjulegum hætti. Einnig verður unnt að nota VISA- kreditkort erlendis en úttektarmöguleikar byggjast á annarskonar viðmiðunarmörkum en undir venjulegum kringumstæðum. Þau ráðast af samspili ýmissa þátta, s.s. tegund korts (t.d. gullkort eða almennt kort) og tegund viðskipta (t.d. hótel, flugfélag eða verslun).
Tölvutengingar beitnila ogjyrir- ttekja, hraðbankar, neeturbólf Ekki verður unnt að nota tölvutengingar heimila og fyrirtækja við banka og sparisjóði meðan á verkfalli stendur. Tölvutenginum heimila og fyrirtækja þjónustusíma og hraðbönkum verður lokað kl. 20. fimtudaginn 3. apríl. Unnt verður að koma fjármunum í næturhólf meðan á verkfalli stendur.
Samband íslenskra viðskiptabanka Samband íslenskra sparisjóða