Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Amór
NÝBAKAÐIR íslandsmeistarar í brids. Frá vinstri eru Jónas P. Erlingsson, Pétur Guðjónsson, Anton
Haraldsson, Magnús Magnússon, Sigurbjörn Haraldsson og Steinar Jónsson.
Sviptingar á lokadegi íslandsmótsins í sveitakeppni
Anton vann Lands-
bréf í úrslitaleik
BRIDS
Br idshöIli n
LANDSBANKAMÓTIÐ
Landsbankamótið í sveitakeppni
var haldið 26.-29. mars í húsnæði
Bridssambands Islands í Þöngla-
bakka 1, Reykjavík.
Sveit Antons Haraldssonar frá
Akureyri stóð uppi sem íslands-
meistari í sveitakeppni eftir hreinan
úrslitaleik við sveit Landsbréfa í síð-
ustu umferð mótsins.
Með Antoni spiluðu Sigurbjörn
Haraldsson, Magnús Magnússon,
Pétur Guðjónsson, Jónas P. Erlings-
son og Steinar Jónsson. Steinar er
sá eini sem hefur unnið Islands-
meistaratitil í sveitakeppni áður en
Magnús hefur tvívegis unnið ís-
landsmót í einmenningi.
Sveit Landsbréfa byijaði mótið
best og hafði forystu fyrstu sjö
umferðirnar. Sveit Antons fylgdi þó
fast á eftir lengst af, þar til í 6.
umferð þegar hún tapaði fyrir sveit
Samvinnuferða, 9-21, meðan
Landsbréf unnu sinn Ieik gegn Máln-
ingu, 22-8. Fyrir síðustu tvær um-
ferðirnar var staða efstu sveita þessi:
Landsbréf 146
Anton 128
S amvinnuferðir 115
VÍB 114
Eurocard 113
Umskipti
Þótt Landsbréf og Anton ættu að
mætast í síðustu umferðinni virtist
forskot Landsbréfa vera of mikið til
að Akureyringarnir ættu möguleika.
En í næstsiðustu umferð guldu
Landsbréf óvænt afhroð fyrir sveit
Búlka, 4-25, en Anton og félagar
hans unnu Hjólbarðahöllina 24-6
og höfðu skyndilega náð tveggja
stiga forustu.
Anton og Landsbréf háðu því
hreinan úrslitaleik um titilinn í síð-
ustu umferðinni. í hálfleik hafði
Anton 6 imp-stiga forustu og tókst
í síðari hálfleiknum að hrinda atlög-
um Landsbréfamanna. Leikurinn
endaði með naumum sigri Antons,
16-14, og Islandsmeistaratitillinn
var tryggður.
Þetta var lokastaðan:
Anton Haraldsson 168
Landsbréf 164
VÍB 152
Samvinnuferðir 152
Eurocard 149,5
Búlki 137
Hjólbarðahöllin 132
Sparisjóður Mýrasýslu 92
Símon Símonarson 86,5
í sveit Landsbréfa spiluðu Jón
Baldursson, Björn Eysteinsspn,
Sævar Þorbjörnsson, Sverrir Ár-
mannsson og Ragnar Hermannsson.
Mótið var einnig reiknað út í tví-
menningi og þar voru efstir Einar
Jónsson og Eiríkur Hjaltason í sveit
Hjólbarðahallarinnar með 17,41
vinningsstig að jafnaði. Næstir komu
Jón Baldursson og Sævar Þorbjörns-
son í sveit Landsbréfa með 17,22
stig og í þriðja sæti voru Magnús
og Pétur í sveit Antons með 17,18
stig.
Góð aðstaða var fyrir áhorfendur
og var hægt að fylgjast jafnóðum
með stöðunni í öllum leikjum.
Keppnisstjórar voru Sveinn R. Ei-
ríksson og Jakob Kristinsson.
Innsvíning
íslandsmeistararnir sýndu oft
góða tækni eins og sést á þessu
spili úr leik Antons og Samvinnu-
ferða:
Austur gefur, enginn á hættu
Vestur Norður ♦ D854 VÁ842 ♦ Á863 ♦ 9 Austur
♦ 102 ♦ KG7
▼ - VKG3
♦ 10754 ♦ KD92
♦ DG108763 ♦ 542
Suður ♦ Á963
V D109765
♦ G
♦ ÁK
Við flest borð í salnum fórnaði
vestur í 5 lauf yfir 4 hjörtum og gaf
út 300. Það gerðist einnig þar sem
bræðurnir Anton og Sigurbjörn sátu
NS og Þorlákur Jónsson og Guð-
mundur Sv. Hermannsson AV en
Sigurbjörn vildi meira:
Vestur Norður Austur Suður
1 grand 2 lauf
pass 2 tíglar pass 3 hjörtu
5 lauf 5 hjörtu//
Grandið sýndi 13-15 punkta, 2
lauf hálitina og 2 tíglar var bið-
sögn. Þegar Anton sýndi geim-
áhuga og lengri hjartalit með 3
Fundur um Evrópusamstarf í idnadar- og efnistækni Fundur á Iðntæknistofnun, Keldnaholti, föstudaginn 4. apríl kl. 09:00 -11:00. Nick Hartley sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn ESB segir frá Iðn- aðar- og efnistækniáætluninni (BRITE-EURAM) og kynnir styrkveit- ingar til samstarfsverkefna.
KEX i
KYNNINGARMIÐSTÖÐ EVRÓPURANNSÓKNA
Ingólfur Þorbjömsson forstöðumaður efnistæknideildar Iðntækni- stofnunar gerir grein fyrir þátctöku íslendinga í áætluninni.
Sigmar Guðbjörnsson framkvæmdastjóri Stjörnu Odda segir frá reynslu sinni af umsóknum í áætlunina.
II Fundurinn er sérstaklega ætlaður stjórnendum fyrirtækja og þeim sem stunda rannsóknir og þróunarstarf.
Iðntæknistofnun Vinsamlegast tilkynniS þátttöku i síma 587 7000.
Það lang-
skemmtilegasta
SIGURBJÖRN Haraldsson er ný-
orðinn 18 ára og yngsti íslands-
meistari í sveitakeppni frá upp-
hafi en fyrst var keppt um þennan
titil árið 1948.
„Það er vel þess virði að eyða
frístundunum í að spila brids því
það er það langskemmtilegasta
sem ég geri,“ segir Sigurbjörn.
Hann hefur spilað brids frá 13
ára aldri en þá tók Anton bróðir
hans hann með sér á spilakvöld
hjá Bridsfélagi Akureyrar.
Skömmu síðar vann Sigurbjörn
opið tvímenningsmót á Akureyri
og hefur siðan unnið fjölda titia,
þar á meðal Islandsmeistaratitla
í flokki 25 ára og yngri.
Það munaði raunar ekki miklu
að Anton og félagar hans hrepptu
Islandsmeistaratitilinn á síðasta
ári en þá enduðu þeir í öðru sæti
eftir að hafa haft forystu lengi
vel. Þeir ætluðu ekki að láta það
sama henda sig nú.
„Við vorum vel undirbúnir og
ég var bjartsýnn fyrir mótið,“
segir Sigurbjörn. Hann.viður-
kennir þó að síðasti leikurinn nú,
úrslitaleikurinn gegn Landsbréf-
um, hafi verið erfiður. Þeir Anton
spiluðu ekki síðasta hálfieikinn
og fóru úr húsinu því þeir höfðu
ekki taugar til að horfa á sveitar-
félaga sína spila í sýningarsaln-
um.
Sigurbjörn stundar nám í
Menntaskólanum á Akureyri og
lætur lítið uppi um framtíðaráætl-
anir sínar. „Eg ætla að sjá til
hvað gerist en það er að minnsta
kosti ljóst að ég held áfram að
spila brids,“ segir hann.
Sigurbjörn tók sl. sumar þátt í
Evrópumóti ungmenna í brids og
keppir í sumar á Norðurlanda-
móti ungmenna ásamt sveitarfé-
lögum sinum, Magnúsi og Stein-
ari, sem báðir verða 25 ára á
þessu ári.
Morgunblaðið/Arnór
GUÐMUNDUR Páll Arnarson varaforseti Bridssambandsins
afhendir Sigurbirni verðlaunagrip í mótslok.
hjörtum fór Sigurbjörn í 5 hjörtu
yfir fórn Þorláks.
Þorlákur spilaði út tígli og Anton
stakk upp ás og tók hjartaás og
spilaði meira hjarta. Austur fékk á
hjartakóng og nú mátti Anton aðeins
gefa einn slag á spaða.
Eftir opnun austurs var hann
merktur með spaðakóng og gosa.
Hugsanlega voru þeir stakir og þá
var hægt að taka spaðaás og spila
litlum spaða. En eftir hindrunarsögn
vesturs var líklegra að austur ætti
lengri spaða en vestur og Anton
ákvað því að spiia upp á nákvæm-
lega þessa legu og beita svonefndri
innsvíningu.
Hann spilaði litlum spaða að heim-
an og lét áttuna duga í blindum.
Austur fékk á gosa og spilaði laufi,
en Anton tók á laufás, trompaði
laufakónginn í blindum og spilaði
spaðadrottningu. Austur lagði kóng-
inn á og þegar tían féll undir frá
vestri var spilið unnið.
Stigaveltumet
Eitthvert mesta veltuspil í nærri
hálfrar aldar sögu íslandsmótanna
í sveitakeppni kom fyrir í 7. umferð
og var umsetningin í því alls 93
imp-stig!
Norður gefur, NS á hættu
Norður
♦ G87643
¥-
♦ KG62
♦ G65
Vestur Austur
♦ 9 ♦-
V ÁK10852 ¥ DG94
♦ Á ♦ 10873
♦ D9872 +ÁK1043
Suður
♦ ÁKD1052
V 763
♦ D954
♦ -
Eins og sést standa 6 spaðar í
NS og 7 lauf eða 7 hjörtu í AV finni
vörnin ekki stungu í fyrsta slag. Það
gafst því vel að fylgja reglunni um
að segja einum meira en andstæð-
ingurinn í sagnbaráttu.
í þremur leikjum voru spilaðar
slemmur í báðar áttir, oftast doblað-
ar, og afraksturinn var 21 imp-stig
til sveita Sparisjóðs Mýrasýslu,
Málningar og Eurocard. 1 einum leik
voru spiluð 6 hjörtu dobluð við ann-
að borðið og 5 spaðar doblaðir við
hitt og sveit Samvinnuferða uppskar
þar 20 impa. í fimmta leiknum var
einnig sveifla en af öðru tagi. Þetta
var í leik Búlka og Símonar Símonar-
sonar og við annað borðið sátu Ljós-
brá Baldursdóttir og Sigurður Vil-
hjálmsson NS og Símon Símonarson
og Páll Bergsson AV:
Vestur Norður Austur Suður
pass 1 tígxill 1 spaði
2 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu 5 spaðar
6 hjörtu pass pass dobl//
Sagnir á borð við þessar voru
ekki óalgengar í salnum og niður-
staðan varð allstaðar sú sama: 6
hjörtu unnin með yfirslag og 1310
til AV.
Við hitt borðið sátu Guðmundur
Pétursson og Kjartan Ásbjörnsson
NS og Bragi Hauksson og Sigtrygg-
ur Sigurðsson AV:
Vestur Norður Austur Suður
SS GP BH KÁ
— pass pass 1 spaði
2 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu 5 spaðar
6 hjörtu 6 spaðar pass pass
7 hjörtu pass pass dobl//
Sigtryggur þekkti tóninn í sögn-
unum af áratuga langri reynslu við
græna borðið og fór því alla leið í
alslemmu þótt Bragi hefði passað í
upphafi. Og þegar norður fann ekki
laufútspilið gat Sigtryggur skrifað
1770 í sinn dálk og 10 imp-stig.
Guðm. Sv. Hermannsson