Morgunblaðið - 02.04.1997, Page 50

Morgunblaðið - 02.04.1997, Page 50
50 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Sigvaldi Páll Þorleifsson fæddist i Stóragerði, Óslandshlíð, Skaga- fírði, 8. janúar 1915, en fluttist árið 1916 til Ólafsfjarðar með foreldrum sinum og starfaði þar til ævi- loka. Hann dó 20. mars síðastliðinn á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Foreldrar hans voru Þorleifur Rögn- valdsson, f. að Lambanesi í Fljótum 4. apríl 1874, d. 18. febrúar 1947, og Guðrún Sigurðardóttir, f. 24. júlí 1875 að Karlsá á Upsa- strönd, d. 31. des. 1949. Systkini Sigvalda voru: Jónína, f. 12. febrúar 1902, dáin 27. desem- ber 1988, Rögnvaldur, f. 4. október 1903, d. 11. apríl 1984, Sigrún Anna, f. 23. febrúar 1907, d. 28. janúar 1972, og Unnur, f. 5. mars 1909, d. 27. apríl 1995. Sigvaldi kvæntist Sigríði Gunnlaugsdóttur árið 1938. Böm þeirra eru: Gunnar Þór, f. 15.10. 1938, framkvæmda- Sigvaldi Þorleifsson, móðurbróðir okkar og kær vinur, frá Ólafsfirði er látinn eftir skamma sjúkdóms- legu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Okkur systkinin, böm systur hans, Unnar Þorleifsdóttur, og Jóns Sigurpálssonar, langar til að minnast hans nokkrum orðum og þakka honum af alhug hlýja vin- áttu og fágætar samverustundir á lífsleiðinni. Heimili hans og Sigríðar Gunnlaugsdóttur, konu hans, stóð okkur ætíð opið. Á því fagra heim- ili var vinafagnaður jafnt í önn hversdagsins sem á hátíðarstund- um, þegar við komum í heimsókn og fengum súkkulaði og kökur á aðfangadagskvöld jóla hjá Siggu. Hér fyrr á ámm hittum við þar einn- ig systur Sigvalda, Sigrúnu Þor- leifsdóttur, en hún naut þar fötluð alúðar og umönnunar. Þessar stundir em okkur í minningunni óforgengilegir fjársjóðir sem við fáum aldrei fullþakkað. Milli Sig- valda og föður okkar, Jóns Sigur- pálssonar, tókst frá unga aldri ein- stök samvinna, sem hófst með því að þeir keyptu bát af afa Þorleifí, þegar Sigvaldi var 17 ára og pabbi rúmlega tvítugur. Þeir áttu síðar og gerðu út saman marga báta frá Ólafsfirði. Sigvaldi sá um útgerðina en pabbi var skipstjóri. Þá stofnuðu þeir saman fiskvinnslufyrirtæki fyr- ir réttum fjömtíu ámm, sem starfar enn. Sigvaldi fluttist með foreldmm sínum til Ólafsfjarðar árið 1916 og bjó fyrstu árin í foreldrahúsum með þeim á jörðinni Hombrekku. Árið 1923 fluttust þau í hús sem foreldr- ar Sigvalda, afí og amma, byggðu og nefnt var í daglegu tali Þorleifs- hús (Brekkugata 1). Hann kvæntist Sigríði Gunnlaugsdóttur árið 1938. Þau Sigvaldi hófu búskap í Þorleifs- húsinu þar til þau fluttust í hús sem þau byggðu að Hcmbrekkuvegi 9 árið 1950. Skólaganga Sigvalda var ekki löng, enda stóð hugur hans til þátt- töku í atvinnulífínu frá fyrstu tíð. Hann stundaði nám við alþýðuskól- inn að Laugum, Suður-Þingeyjar- sýslu, skóiaárið 1932 til 33, og sótti vélstjóranámskeið á Akureyri árið 1941. Hann var skarpgreindur og aflaði sér af sjálfsdáðum traustrar þekkingar á viðfangsefnum sínum, mönnum og málefnum, svo að oft þótti okkur sem nutum meiri skóla- göngu gott að fara í smiðju til hans vegna erfiðra úrlausnarefna. Sigvaldi fór ungur á sjóinn og var fyrst háseti á m.b. Ára með föðurbróður sínum, Sæmundi Rögnvaldssyni, einungis fímmtán ára að aldri. Hann fór eins og títt stjóri, kvæntur Báru Finnsdóttur, Egill, f. 14.11.1940, verslunarmaður, kvæntur Sigrúnu Ásgrímsdóttur, og Þorleifur Rúnar, framkvæmdastjóri, f. 25.4.1954, kvænt- ur Aðalheiði Jó- hannsdóttur. Sigvaldi var einn af fremstu útgerð- ar- og athafna- mönnum Ólafsfirð- inga. Hann var fyrst kosinn í bæj- arstjórn Ólafsfjarðar árið 1954 og sat óslitið í bæjarstjórninni til ársins 1970. Hann var í bæjar- ráði frá árinu 1958 til 1970 og var forseti bæjarstjómar frá 1962 til 1970. Hann átti sæti í hafnarnefnd frá 1949 til 1982 og var lengst af formaður henn- ar. Þá var hann í stjórn Spari- sjóðs Ólafsfjarðar frá 1974 til 1990 og þar af var hann formað- ur stjórnar sjóðsins frá 1986 til 1990. Útför Sigvalda fór fram frá Ólafsfjarðarkirkj u laugardag- inn 29. mars. var þá suður á vertíðir, t.d. til Vest- mannaeyja 1936 og Sandgerðis árið 1942, þegar hann var á m.b. Brynj- ari sem fórst þá um veturinn. Árin 1939 og 1940 var hann vélstjóri á m.b. Agli og Sjöstjörnunni 1940-42 með föður okkar Jóni Sigurpáls- syni. Þá var hann vélstjóri við Hrað- frystihús Ólafsfjarðar frá árinu 1942 til 1951, en stundaði verslun- arstörf með Brynjólfi Sveinssyni frá þeim tíma til 1956 og varð þá fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ól- afsfjarðar hf. til ársins 1960. Eftir það rak hann eigið fyrirtæki Sig- valda Þorleifsson hf. Þeir Sigvaldi og pabbi seldu m.b. Egil árið 1940 og keyptu þá ásamt öðrum Sjöstjörnuna, 55 lesta skip, en gerðu hana einungis út í tvö ár vegna þess að hún þótti þá of stór fyrir höfnina í Ólafsfírði. Árið 1942 létu þeir smíða nýjan Egil EA 727 á Akureyri, 27 tonna bát. Þeir gerðu hann út til ársins 1952. Árið 1945 var stofnað í Ólafsfirði útgerðarfé- lagið Sævaldur hf. og var Sigvaldi einn hluthafa og framkvæmdastjóri þess. Félagið lét smíða 52 lesta skip í Svíþjóð, Sævald ÓF 2. Faðir okkar var iengst af skipstjóri á þeim báti, en Sævaldur var seldur 1958. Árið 1957 stofnuðu Sigvaldi og pabbi hlutafélagið Sigvaldi Þor- leifsson hf. og létu smíða 64 lesta bát í Danmörku, Þorleif Rögnvalds- son ÓF 36. Hann var seldur 1967 en þá keypti félagið 115 lesta skip, sem hlaut nafnið Þorleifur ÓF 60. Árið 1960, stofnuðu þeir Sigvaldi, Magnús Gamalíelsson og Sigurður Baldvinsson útgerðarfélagið Þrist hf., sem lét smíða 155 lesta skip í Noregi, m.b. Ólaf bekk og einnig keypti Sigvaldi 8 lesta bát með mági sínum Áma Gunnlaugssyni, m.b. Ugga ÓF 27. Hann var seldur 1967. Þá tók Sigvaldi þátt í stofnun hlutafélags um togarann Norðlend- ing ÓF 4 árið 1955. Fullyrða má að þegar á sjöunda áratugnum hafí Sigvaldi verið kom- inn í hóp athafnamestu útgerðar- manna í Ólafsfírði við hlið þeirra Magnúsar Gamalíelssonar og Sig- urðar Baldvinssonar, en árið 1972 urðu þáttaskil í afskiptum Sigvalda af útgerð í Ólafsfírði. Þá átti hann ríkan þátt í að útgerðarfélagið Sæberg hf. var stofnað. Hluthafar við stofnun þess voru ásamt honum: Gunnar sonur hans, sem varð frarn- kvæmdastjóri félagsins, Ásgeir Ás- geirsson, Jón Þorvaldsson, Guð- mundur L. Þorsteinsson, Sigurður Guðmundsson, Valberg hf. og Sig- valdi Þorleifsson hf. Félagið lét smíða 500 lesta skuttogara í Frakk- landi Sólberg ÓF 12 sem kom til Ólafsfjarðar 12. september 1974. Rekstur félagsins gekk vel og varð fjárhagur þess fljótt traustur. Fé- lagið keypti árið 1986 fyrsta skut- togarann sem smíðaður var fyrir íslendinga, Bjarna Benediktsson. Skipinu var breytt í frystitogara í Noregi og hlaut það nafnið Mána- berg. Seint á árinu 1990 keypti félagið bæði hraðfrystihúsin í Ólafs- firði sem þá höfðu verið sameinuð og skuttogarann Ólaf bekk, sem var í eigu hraðfrystihússins og Ól- afsfjarðarbæjar. Hann hlaut nafnið Múlaberg. Síðast fyrir rúmum tveimur árum, þ.e. árið 1995, eign- aðist félagið fjórða skuttogarann Hvannaberg. Það hefur því rekið öflugustu útgerð sem sögur fara af í Ólafsfirði og verið í fararbroddi þeirrar byltingar sem þar hafa orð- ið ý sjósókn og útgerðarháttum. Ásamt útgerðinni átti Sigvaldi mikinn þátt í uppbyggingu fisk- vinnslu í Ólafsfirði. Nefna má að hann var hvatamaður að stofnun Lifrarbræðslufélags Ólafsíjarðar árið 1944 og síldarsöltunarstöðinni Jökli hf. árið 1947. Hann rak þessi fyrirtæki um langt árabil og var um skeið eins og áður segir fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ól- afsfjarðar hf. Fjölskyldufyrirtæki okkar, Sigvaldi Þorleifsson hf., sem áður getur, hóf verkun saltfisks og skreiðar árið 1960. Sigvaldi stjórn- aði því fyrirtæki frá upphafi en það er enn í rekstri. Viðfangsefni Sigvalda voru þó síður en svo einskorðuð við útgerð og fiskvinnslu. Skömmu eftir að vegur var lagður yfír Lágheiði, árið 1956, stofnaði hann ásamt Jóni Magnússyni, bifreiðarstjóra og Sig- urði Baldvinssyni, útgerðarmanni, félag sem annaðist flutninga milli Ólafsfjarðar og Reykjavíkur. Hann stofnaði Netaverkstæði Ólafsfjarð- ar árið 1945 og var einn af frum- kvöðlum stofnunar verslunarfyrir- tækisins Valbergs hf. árið 1961 ásamt Brynjólfi Sveinssyni, kaup- manni og símstjóra. Félagið tók við verslunarrekstri Brynjólfs og opn- aði verslun í nýju húsi við Aðalgötu 16 í Ólafsfirði sama dag og það var stofnað hinn 7. desember 1961. Hluthafar ásamt Sigvalda og Brynj- ólfí voru Gunnar, sonur hans, sem varð framkvæmdastjóri félagsins, Guðmundur L. Þorsteinsson, Jón Þorvaldsson og Sigurður Guð- mundsson. Mikil og farsæl afskipti af fé- lags- og bæjarmálum urðu einnig hlutskipti Sigvalda á þeim árum sem Ólafsfjarðarkaupstaður var að slíta barnsskónum. Hann var sterk- ur persónuleiki, drengskaparmaður og naut mikils trausts samborgara sinna. Fyrst var hann kosinn í bæj- arstjóm 1954 og átti þar óslitið sæti í 16 ár og var í bæjarráði og forseti bæjarstjómar. í hafnarstjóm var hann þó lengst eða frá árinu 1949 til 1982 og oftast formaður hennar, enda óhætt að segja að á sviði bæjarmála hafí uppbygging hafnarinnar verið hans hjartans mál. Hann gerði sér mæta vel grein fyrir því að líftaug sjávarþorps í firði fyrir opnu hafí er góð höfn fyrir öflugan flota fiskiskipa. Á öðrum sviðum félagsmála lét Sig- valdi einnig mikið að sér kveða. Hann átti sæti í stjóm Sparisjóðs Ólafsfjarðar um árabil og var hann formaður stjómarinnar frá 1986 til 1990. Þá var hann stofnfélagi íþróttafélagsins Leifturs árið 1931 og var í fyrsta knattspyrnuliði þess félags ásamt Þórólfi frænda sínum og fleiri góðum vinum. Árið 1955 gerðist hann stofnfélagi Rótarý- klúbbs Ólafsfjarðar. Það má því með sanni segja að Sigvaldi hafi fengist við flest svið athafna- og félagslífs á þeim árum sem upp- byggingin varð sem mest í Ólafs- firði. Ef við systkinin ættum að lýsa Sigvalda í stuttu máli koma fyrst í hugann skarpar gáfur hans, dugn- aður, kapp og áræði. Þó munum við samt líklega ekki síst minnast hlýju og geislandi glettni hans á notalegum stundum eins og þegar við renndum saman fyrir lax. Sam- starf þeirra pabba og samskipti fjöl- skyldna okkar vora afar náin. Fyrir það eram við af hjarta þakklát og söknum vinar í stað. Pabbi biður fyrir hinstu kveðju og þakkir fyrir órofa vináttu og tryggð. Við send- um Siggu, sonum hans og fjölskyld- um þeirra innilegar samúðarkveðj- ur. Guð blessi okkur öllum minn- ingu Sigvalda Þorleifssonar. Lárus, Guðrún og Þórleifur. Frændi minn Sigvaldi Þorleifsson var til grafar borinn laugardaginn 29. mars. Með honum er enn einn af minni kynslóð í Ólafsfirði horfinn af vettvangi að loknu miklu og góðu dagsverki. Hann kom á fyrsta ári til Ólafs- fjarðar með foreldrum sínum Þor- leifi Rögnvaldssyni og Guðrúnu Sig- urðardóttur og þar hefur hann lifað og starfað til æviloka. Það var eng- in tilviljun að ævistarf hans skyldi tengjast fiskveiðum. Þorleifur var útgerðarmaður og tók Sigvaldi við af föður sínum ásamt mági sínum Jóni Sigurpálssyni. Útgerð og fisk- verkun varð hans aðalævistarf. Hann vann ötullega að framföram og framgangi byggðarlagsins og tók að sér ýmis störf í þágu þess. Það er ekki ætlun mín hér að rekja starfssögu Sigvalda heldur að minnast hans að leiðarlokum eins og hann var og er enn í vitund minni sem annar bróðir. Hann var hógvær og hlýr í viðmóti og gaman var að hitta hann og vera samvistum við hann. Eftir að móðir mín flutti frá Ólafsfirði varð heimili þeirra hjóna, Sigvalda og Sigríðar konu hans, eins konar annað heimili mitt þegar ég heimsótti Ólafsfjörð, gestrisni þeirra og viðmót var slíkt. Mér leið ávallt vel í návist frænda míns og hafði ánægju af að ræða við hann um menn og málefni, eink- anlega á áhugasviði mínu fískveið- unum sem voru sérsvið hans. Þótt Sigvaldi væri ekki langskólageng- inn maður, var hann vel heima á flestum sviðum, skarpgáfaður, vel lesinn og minnugur. Hann fylgdist vel með því sem var að gerast hverju sinni í þjóðfélaginu, sérstaklega á atvinnusviðinu. Sigvalda var ekki mikið um það gefið að trana sér fram eða láta á sér bera. Honum fannst það varla umtalsvert þótt hann gerði ein- hveijum greiða eða aðstoðaði þá sem til hans leituðu. Er ég lít nú til baka yfir lífsferil frænda míns sýnist mér augljóst að hann naut mikils trausts samborgara sinna og reyndist traustsins verður . Við Aðalbjörg kveðjum hann með söknuði og þakklæti. Við vottum eftirlifandi eiginkonu hans Sigríði Gunnlaugsdóttur, afkomendum þeirra öllum og venslafólki, okkar dýpstu samúð. Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson Sigvaldi Þorleifsson útgerðarmað- ur er látinn. Það riflar upp fyrir mér að þegar ég kom fyrst til Ólafs- fjarðar haustið 1961 báru þeir uppi atvinnulífíð, Sigvaldi, Magnús Gam- alíelsson og Sigurður Baldvinsson, miklar kempur allir saman, þraut- seigir og bjartsýnir í sínum athöfn- um. Ólafsíjörður var innilokaður á þeim tíma. Enginn vegur fyrir Múl- ann og engin göng. En atvinnulífið var öflugt og sjósóknin stóð með blóma þrátt fyrir erfið hafnarskil- yrði. Þess vegna var dæmið oft tek- ið af Ólafsfirði þegar menn vildu sýna fram á að vöxtur og viðgangur byggðarlags er fyrst og fremst und- ir þeim einstaklingum kominn sem þar lifa, en ekki ytri skilyrðum. Sigvaldi Þorleifsson var mikill drengskaparmaður; hann var fjöl- skyldumaður og vinur vina sinna. Hann bar hag bæjarfélagsins fyrir bijósti og átti um langt skeið náið samstarf við Ásgrím Hartmanns- son, annar forseti bæjarstjómar, hinn bæjarstjórinn. Hugur Sigvalda beindist fyrst og fremst að útgerð og fiskvinnslu og þess vegna lét hann hafnarmálin mjög til sín taka. En hann var líka ötull á öðram sviðum bæjarlífsins. Það munaði um hann. Hann setti svip á bæinn og er víða sárt saknað. SIGVALDIPALL ÞORLEIFSSON Sigvaldi Þorleifsson fylgdi Sjálf- stæðisflokknum fast að málum. Ég vil að leiðarlokum þakka honum vináttu og góðan stuðning. Konu hans, Sigríði Gunnlaugsdóttur, bömunum og fjölskyldunni bera þessar línur samúðarkveðjur okkar Kristrúnar. Guð blessi minningu Sigvalda Þorleifssonar. Halldór Blöndal. í dag, þegar við kveðjum Sig- valda Þorleifsson, vakna margar minningar. Hann ar einn þeirra sem kemur til starfa í þjóðfélagi sem hafði lítið breyst í aldaraðir, og hans kynslóð tókst á við tíma mik- illa breytinga og byltinga í íslensku atvinnu- og þjóðlífi. Á uppvaxtarár- um hans var hvorki sjálfsagt né mögulegt fyrir ungt og vel gert fólk að leita sér menntunar. Það urðu því örlög hans að ganga ekki menntaveginn, eins og kallað er. Þrátt fyrir það gat hann nýtt sér hæfileika sína og gáfur til uppbygg- ingar og velfarnaðar sínu byggðar- lagi, sem var hans leiðarljós í lífi og starfi alla tíð. Sigvaldi Þorleifsson og aðrir frumheijar raddu braut framfara og nýrra tíma í atvinnulífi Ólafsfirð- inga. Hann var einn þeirra Ólafs- fírðinga sem aldrei misstu trúna, þrátt fyrir margvíslega erfíðleika, á framtíð sinnar heimabyggðar, og hann naut mikils trausts sinna sam- ferðamanna. Sigvaldi sat jengi, eða alls 16 ár, í bæjarstjóm Ólafsfjarð- ar og var forseti hennar mörg ár. Þegar ég kvaddi Sigvalda hinstu kveðju á dánarbeði barst talið að þeim breytingum sem framundan eru í fyrirtæki okkar, og ég sagðist trúa því og treysta að það myndi í framtíðinni efla okkar byggðarlag og styrkja, sagði Sigvaldi: „Ef svo er þá er ég sammála, enda er það aðalatriðið." Þetta svar hans er táknrænt og er líka röðrétt staðfest- ing á lífshlaupi hans og ævistarfi. Hann vildi og gerði allt sem í hans valdi stóð til að efla heimabyggð sína og fyrir það era við Ólafsfirð- ingar þakklátir. Við kveðjum Sig- valda Þorleifsson sem þökk og virð- ingu. Ég sendi úr fjarlægð samúðar- kveðjur mínar til Siggu, Gunna og Bára, og annarra ættingja. Jón Þorvaldsson. Láttu nú ljósið þitt, loga við rúmið mitt, hafðu þar þess og sæti, signaður Jesús mæti. Þessi bæn, ásamt mörgum öðrum sem amma kenndi okkur, kemur í hugann þegar við minnumst þín, elsku afi. Nú hefur þú kvatt þennan heim. En þó svo að þú sért farinn úr þessu lífí munu allar góðu minningarnar um þig lifa í hjörtum okkar. Alltaf þótti okkur jafn vænt um það, eftir að amma varð veik og fór á Hornbrekku, þegar þú komst við hjá okkur á leið heim úr vinnu og borðaðir með okkur kvöldmat. Öll þau skipti sem þú komst eru aðeins lítið brot af þeim góðu minn- ingum sem við eigum um þig. Við söknum þín mikið og það er svo erfitt að kveðja þig. Við hugg- um okkur við það að þú munt ávallt vaka yfir okkur. Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, sál mín lyftist upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur, og ég þótt látinn sé, tek þátt í gieði ykkar yfir lífinu. (Óþekktur höfundur.) Megi sá sem öllu ræður gefa okkur öllum styrk og sérstaklega þér, elsku amma. Blessuð sé minning þín, afi. Sigrún Anna og Craig, Sigvaldi Páll og Sigrún og Eva Björg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.