Morgunblaðið - 02.04.1997, Page 72
'HYUNDAI
HÁTÆKNl TIL FRAMFARA
m Tæknival
SKEIFUNNI 17
SlMI 550-4000 ■ FAX 550-4001
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(S>CENTRUM.IS / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI 1
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1937
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Rannsóknir á lúpínu sem lækningajurt
Benda til örvandi
áhrifa á ónæmiskerfið
RANNSÓKNIR á lækningamætti
ýmissa jurta hafa um skeið staðið
yfir á raunvísindadeild Háskólans
undir stjórn Sigmundar Guð-
bjarnasonar prófessors og hefur
Steinþór Sigurðsson lífefnafræð-
ingur einkum unnið að þeim.
Meðal jurta sem verið er að rann-
saka eru lúpína og hvönn.
Tvenns konar rannsóknir
standa nú yfir. Annars vegar á
líffræðilega virkum efnum úr
jurtaseyði sem gætu stöðvað
frumuvöxt og hugsanlega hindrað
vöxt á æxlum. Virknin er prófuð
á ákveðinni lirfutegund sem er í
örum vexti en rannsóknirnar hafa
beint athyglinni að líffræðilega
virkum efnum í baldursbrá, vall-
humli og hvönn. Verið er að
hreinsa virk efni og hafa sum
verið einangruð. Þau verða könn-
uð með tilliti til áhrifa á krabba-
meinsfrumur.
Ekki sést í öðrum jurtum
Hins vegar er verið að rannsaka
ónæmisvirkni fjölsykra sem eru í
lúpínurót. Fjölsykrur þessar valda
marktækri ónæmissvörun og örva
ónæmiskerfið. „Við höfum ekki
rekist á þessa virkni í öðrum sýn-
um af íslenskum lækningajurt-
um,“ segir Steinþór.
Rannsóknir voru einnig gerðar
á heilbrigðu fólki. Sýndu niður-
stöðurnar að jurtaseyði Ævars
Jóhannessonar, sem gert er úr
lúpínurót, hvannafræjum og fieiri
jurtum, örvuðu beinmerginn.
Rækjuveiðar á Flæmska hattinum
Guðbjörgin nýtir
heimildir Pólveija
SAMHERJI hf. á Akureyri hefur
gert samkomulag við pólskt fyrir-
tæki og þarlend stjórnvöld um að
skip Samheija, Guðbjörg ÍS, nýti sér
heimildir Pólveija til rækjuveiða á
Flæmska hattinum. Um er að ræða
veiðar í 100 daga, sem er sú sókn
sem Pólveijum hefur verið úthlutað,
en stjórnendur Samheija vonast til
að Guðbjörgin nái að veiða um 700
tonn á þessu tímabili.
Fiskveiðinefnd Norðvestur-Atl-
antshafsins sér um að úthluta sókn-
ardögum á Flæmska hattinum sam-
kvæmt samkomulagi, sem apildar-
þjóðirnar hafa gert með sér. Islend-
ingar standa utan þess samkomu-
lags og hafa gefið sér sjálfdæmi til
veiða á 6.800 tonnum á þessu ári,
en í fyrra var afli okkar þar yfir
20.000 tonn. Guðbjörgin var þar við
veiðar í 8 mánuði í fyrra og aflaði
um 1.750 tonna af rækju. Heimildir
hennar innan íslenzka kvótans nú
eru aðeins 340 tonn og alls á Sam-
heiji rétt á að veiða um 400 tonn
úr íslenzka kvótanum. í fyrra veiddu
skip fyrirtækisins um 2.400 tonn á
Flæmska hattinum.
Guðbjörgin heldur til veiðanna í
dag og verður við þær á vegum
Pólveija til dæmis hvað varðar eftir-
lit með veiðunum. Reiknað er með
að hundrað dagar dugi til þriggja
fullra veiðiferða og afli á úthaldsdag
geti orðið 7 til 8 tonn, enda dregur
Guðbjörgin tvö rækjutroll í einu.
Verðmæti um 700 tonna upp úr sjó
gæti verið nálægt 140 milljónum
króna.
Þorsteinn Már Baidvinsson, einn
eigenda og framkvæmdastjóri Sam-
heija, segir að eins konar þríhliða
samkomulag hafi verið gert milli
Samheija, pólska fyrirtækisins og
pólskra stjórnvalda.
Hann vill ekki gefa upp hvert hið
pólska fyrirtæki er og segist ekki
vilja svara því hvort einhver borgun
eða annað komi í stað veiðiheimild-
anna.
Morgunblaðið/Júlíus
Viðræður banka og
bankamanna
Aukin
bjartsýni
SAMNINGAFUNDI í kjaradeilu
bankamanna og banka og sparisjóða
var í gærkvöldi frestað til klukkan
10.30 í dag eftir að hafa staðið í
rúman sólarhring. Friðbert Trausta-
son, formaður Sambands íslenskra
bankamanna, sagði í gærkvöldi að
menn væru orðnir heldur bjartsýnni
en áður um að mögulegt væri að
ganga frá samningum áður en til
verkfalls kæmi.
Verkfall bankamanna hefst á mið-
nætti fimmtudags ef ekki semst
áður. Það sem einkum hefur borið
á milli er samningstíminn, þar sem
bankarnir vilja semja fram á árið
2000 en bankamenn til tveggja ára.
Þá hefur einnig verið ágreiningur
um launalið.
Friðbert sagði að samningsaðilar
væru aðeins að byija að mætast,
fyrst og fremst hvað varðaði samn-
ingstímann. „Nú er verið að tala um
u.þ.b. tveggja og hálfs árs samnings-
tíma og prósenturnar eru í heildina
svipaðar og í þeim samningum sem
þegar hafa verið gerðir."
Ungur maður tældi ólográða stúlku í gegnum alnetið
Um tvöfalt
brot að ræða
Gömlu tæk-
in aftur í
notkun
HALDIÐ er áfram hreinsun Háfs-
fjöru eftir strand Víkartinds og
ýmsum aðferðum beitt. I gær sást
að gömlu rakstrarvélarnar geta
enn komið að góðum notum þótt
með breyttum hætti sé. Verktak-
inn hreinsar 2,5 km svæði upp í
land og fjöruna milli Hólsár og
Þjórsár. Verði stillt veður á
strandstað næstu daga verður lok-
ið við að ná olíu úr skipinu fyrir
helgi. Þá styttist einnig í að hægt
verði að nota krana þess til að
hífa gáma frá borði. Landeigandi
girti af svæðið við strandstað en
það segist hann gera til að verja
viðkvæman gróður gegn frekari
skemmdum.
■ Olíudælingu/6
UPPLÝST hefur verið um misnotkun
á alnetinu, í tengslum við leit að 15
ára gamalli reykvískri stúlku sem lýst
var eftir um páskana. Stúlkan var
gestkomandi á Isafirði en hvarf þaðan
á laugardaginn seinasta og hófst víð-
tæk eftirgrennslan á páskadag.
Sú eftirgrennslan leiddi í ljós að
stúlkan hafði verið í sambandi við
aðila á alnetinu og bendir ýmislegt
til að þau samskipti hafi verið ný af
nálinni, samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu. Hafði sá aðili meðal annars
sent stúlkunni margvísleg skilaboð,
þar á meðal klámfengin, meðan á
tölvusamskiptum þeirra stóð.
Hafði honum síðan tekist að telja
hana á að heimsækja sig til Reykja-
víkur. Flaug hún samdægurs þangað
án vitundar forráðamanna eða gest-
gjafa og sótti hann hana út á Reykja-
víkurflugvöll.
Þegar átti að hafa upp á þeim
aðila, uppgötvaðist að hann hafði
tengst alnetinu með ólögmætum
hætti og á fölskum forsendum, og
hafði sá sem eignuð var tengingin
ekki neinn grun um að nafn sitt
væri misnotað með þessum hætti. I
kjölfarið var haft samband við eitt
þeirra fyrirtækja sem bjóða upp á
nettengingu, þó svo að viðkomandi
aðili væri í viðskiptum við annað
fyrirtæki í sama geira.
Voru forráðamenn fyrirtækisins
fúsir til að veita aðstoð til að hægt
væri að hafa uppi á viðkomandi að-
ila og við nánari rannsókn tókst að
rekja slóð mannsins í tiltekið hús í
borginni.
Þar er 22 ára gamall maður búsett-
ur, en hann hafði haft stúlkuna hjá
sér í sólarhring eftir að samskiptum
þeirra á alnetinu lauk á laugardag.
Aðstandendum stúlkunnar tókst að
teija hana á að snúa heim til sín.
Einstakt mál um margt
Mál þetta mun sæta frekari rann-
sókn hjá RLR. Faðir stúlkunnar fékk
afhent gögn um hvað þeim fór'á
milli á alnetinu og er, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, þess að
vænta að hann leggi fram kæru
á hendur þeim sem um ræðir.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er ósk um rannsókn meðal
annars byggð á grunsemdum um að
maðurinn hafi haft samræði við
stúlku undir lögaldri og að vímuefni
hafi verið höfð um hönd. Ekki er
vitað til þess að hann hafi komið
áður við sögu lögreglu eða reynt að
tæla aðrar stúlkur með sama hætti.
„Mál þetta er um margt einstakt
og á það bæði við um hvernig mann-
inum tókst að tæla stúlkuna til sín,
og hvernig við höfðum upp á honum.
Þegar við komumst á sporið gekk
ótrúlega vel að nýta tæknina til að
hafa uppi á þeim manni sem um
ræðir. Það hefur ekki verið rannsak-
að sérstaklega enn hvort hann hafi
reynt sama leik í fleiri tilfellum,"
segir Geir Jón Þórisson, aðalvarð-
stjóri hjá lögreglunni í Reykjavík.