Morgunblaðið - 06.04.1997, Side 26

Morgunblaðið - 06.04.1997, Side 26
26 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR KVIKMYNDIR/STJÖRNUBÍÓ, Sambíóin og Laugarásbíó hafa tekið til sýninga glænýja spennumynd úr smiðju leikstjórans Alan J. Pakula. Hún heitir The Devil’s Own og í aðalhlutverkum eru stórstjörnurnar Harrison Ford og Brad Pitt. Stór- stjarna IRAkemur til Ameríku LÍKURNAR á því að Tom O’Meara (Harrison Ford) og Frankie McGu- ire (Brad Pitt) ættu eftir að kynn- ast voru ekki miklar. Sá fyrrnefndi er lögreglumaður í New York en sá síðarnefndi ungur, írskur hryðju- verkamaður, uppalinn í óöldinni í Belfast. Þeir eiga ekkert sameigin- legt annað en írskt ætternið. En þegar Frankie kemur til Bandaríkjanna til þess að útvega flugskeyti til að nota í hinni heilögu baráttu sinni fyrir IRA fær hann sér hið fullkomna dulargervi. Hann kallar sig Rory Devaney og segist vera á flótta undan ofbeldinu og óöldinni heima á Norður-írlandi. O’Meara er bijóstgóður maður og samþykkir, án þess að vita hið sanna um bakgrunn Frankie/Rory, að bjóða þessum unga, nauðstadda manni húsaskjól á heimili fjölskyldu sinnar. Á heimili O’Meara Qölskyldunnar tengjast mennimir tveir sterkum böndum. Rory kemst að því að Tom er sterkur og þolinmóður maður, ekki ólíkur föður hans sem var myrtur að fjölskyldunni ásjáandi þegar Rory var ungur. Nú sitja þeir hlið við hlið við matarborðið á heimili Toms, eiginkonu hans Sheilu (Margaret Colin) og dætra þeirra og andrúmsloftið einkennist af ró- semi, gleði og kærleika. En þótt Rory slaki á varnarhátt- unum sem hann hefur þróað með sér alla ævi og leyfi sér að verða hluti af fjölskyldu Toms veit hann að málstaður hryðjuverkasamtak- anna kallar á hann. Óvænt atvik verður svo til þess að Tom fer að gruna að ekki sé allt sem sýnist í lífi Rorys og hann grefur upp sannleikann um hann. Þá tekst írskættaði lögreglumað- urinn á hendur hættulegt verkefni; hann ætlar sér bæði að handtaka glæpamann sem hefur sloppið und- an réttvísinni og forða vini sínum frá því að verða drepinn. Myndin The Devil’s Own er gerð af leikstjóranum Alan J. Pakula. Hann hefur tvisvar verið tilnefndur til óskarsverðlauna; sem leikstjóri fyrir All the President’s Men og sem handritshöfundur fyrir Sophie’s Choice en þeirri mynd leikstýrði hann einnig. Þrátt fyrir að óskars- verðlaunamyndirnar hans beri ekki vott um það er Pakula helst anná- laður fyrir spennumyndir sínar; myndir á borð við The Pelican Brief og Presumed Innocent, en þá vann hann slðast með Harrison Ford. Önnur nýleg mynd frá Pakula er Consenting Adults. The Devil’s Own er gerð eftir handriti manns að nafni Kevin Jarre, sem hefur m.a. skrifað hand- rit að annarri Rambo-myndinni og vestranum Tombstone, en framleið- andi er Lawrence Gordon sem á að baki myndir á borð við 48 Hrs., Die Hard, Predator og Field of Dreams. Aðalleikendur myndarinnar eru tvær af skærustu stjörnum Holly- wood. Harrison Ford var valinn stjarna aldarinnar af eigendum kvikmyndahúsa í Bandaríkjunum eftir að hafa slegið í gegn í Indiana Jones myndunum, Star Wars mynd- unum, Vitninu og fleirum. Brad Pitt er ein heitasta unga stjarnan í Hollywood um þessar mundir. Meðal helstu leikenda í aukahlut- verkum eru Margaret Collins, sem hefur verið meðal leikenda í sjón- varpsþættinum Chicago Hope, Rud- en Blades, salsasöngvarinn vinsæli sem jafnframt er lögfræðingur með gráðu frá Harvard háskóla, og Tre- at Williams, sem lék síðast í Things to do in Denver... og Mulholland Falls en margir minnast t.d. úr Hárinu og einnig er þarna Natascha McElhone sem lék á móti Anthony Hopkins í Surviving Picasso. The Devil’s Own var frumsýnd í Bandaríkjunum skömmu fyrir páska og síðustu daga hefur hún einnig verið frumsýnd í nokkrum Evrópulöndum. Eins og við er að búast af spennumynd með tveimur af þekktutu kvikmyndastjömum nútímans hafa áhorfendur flykkst í bíó að beija myndina augum. HARRISON Ford leikur Tom O’Meara, lögreglumann í New York og Brad Pitt leikur Frankie McGuire, írskan hryðjuverkamann sem fer huldu höfði í New York. ÁRIÐ 1994 völdu bandarískir kvikmyndahúsaeigendur Harri- son Ford kvikmyndastjörnu ald- arinnar. Enginn leikari hefur fært kvikmyndahúsunum aðrar eins tekjur og maðurinn sem lék aðalhlutverkið í Indiana Jones myndunum, Star Wars myndun- um og mörgum stærstu spennu- myndum seinni ára. Harrison Ford hefur reynt fyrir sér utan spennumyndanna en veit þó sem er að hann er fyrst og fremst á heimavelli í spennumyndum í hlutverki réttláta, sanngjarna mannsins sem lendir að ósekju í miklum háska og lætur ekkert stöðva sig í leit að réttlæti. Harrison Ford var tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni Witness og var tilnefndur til Golden Globe verðlauna fyrir leik í Sabrina og í The Fugitive. Að öðru leyti hafa verðlaunaveitendur í kvik- myndaheiminum ekki sýntþess- um stórleikara sóma sem er samboðinn vinsældum hans meðal kvikmyndahúsagesta. Harrison Ford er hæglátur maður eins og mennirnir sem hann leikur á hvíta tjaldinu. Hann býr ásamt konu og börn- um á búgarði í Idaho-fylki, sinnir þar hrossum og smíðum en kemur helst ekki til Holly- wood ótilneyddur. Ford er fæddur í Chicago og gekk í háskóla i Wisconsin áður en hann fluttist til Los Angeles til að gerast leikari. Þetta var snemma á sjöunda áratugnum og árið 1966 komst Harrison Ford fyrst á hvíta tjaldið þegar hann fékk hlutverk í myndinni Dead Heat on the Merry Go BRAD Pitt er 33 ára gamall, fæddur í Okla- homa, en uppalinn í Missouri. Hann lærði blaðamennsku í Missouri- háskóla, en fluttist til Los Angeles til að ljúka þar námi í auglýsingafræði og grafískri hönnun. Þar sneri hann sér að leiklist- inni. Eftir að hafa leikið smáhlutverk í nokkrum sjónvarpsþáttum og kvik- myndum sló Brad Pitt I gegn þegar hann fékk hlutverk elskhuga Geenu Davis í mynd Scotts Thelma and Louise árið 1991. Hann varð að heimsþekktu kyntákni og einum heitasta unga manninum í Hollywood á skammri stundu. Myndir á borð við A River Runs Through It (1992), Kalifomia (1993) Interview with a Vampire (1994) og Legends of the Fall (1994) gerðu svo full- burða kvikmyndastjömu úr Brad Pitt. Fyrir Leg- ends of the Fall hlaut hann tilnefiningu til Gold- en Globe verðlauna. Brad Pitt átti ríkan þátt í velgengni myndanna Seven og 12 monkeys en fyrir leik sinn í þeirri síð- arnefndu var hann til- nefndur til óskarsverð- launa og til Golden Globe verðlauna. Sfðast lék hann á móti Dustin Hoffman og Robert De Niro í mynd- inni Sleepers eftir Barry Levinson. Næstu myndir Brad Pitt eftir The Devil’s Own eru Seven Years in Tibet eftir leikstjórann Jean- Jeaques Annaud og síðan Meet Joe Black í leiksjtóm Matrin Brest. Brad Pitt býr nú með ástkonu sinni, leikkonunni Gwyneth Paltrow, og þremur hundum í Los Angeles. Þau skötuhjúin kynntust við tökur á Se- ven þar sem þau léku sam- an. Bóndi í Idaho Round. Skömmu síðar fékk hann rullu í mynd sem hét Gett- ing Straight en annars gekk honum litið að koma sér áfram svo Harrison Ford ákvað að láta budduna ráða, gerðist smiður og hafnaði statistarull- um. Þannig gengu hlutirnir fyrir sig í þijú ár eða þar til leiksljór- inn Georg Lucas ákvað árið 1973 að ráða Ford til að leika í myndinni American Graffiti. Næsta ár hreppti leikarinn gott aukahlutverk í mynd Coppolas, The Conversation, en tók svo aftur til við smíðarnar fram til ársins 1977 þegar George Lucas fékk hann enn á skjáinn og nú til að takast á við hlutverk Han Solo í Star Wars myndinni, sem sló öll aðsóknarmet og bjó til kvikmyndastjörnu úr Harrison Ford. Han Solo sneri aftur í næstu Star Wars mynd, The Empire Strikes Back (1980) og svo í Return of the Jedi (1984) en áður var Ford búinn að búa til aðra þekkta kvikmyndapersónu í samvinnu við George Lucas og Steven Spielberg. Sú heitir Indi- ana Jones og um hana hafa ver- ið gerðar þijár vinsælar myndir. Önnur hlutverk Harrisons Ford eru m.a. í Blade Runner, Frantic, Working Girl og Regarding Henry að ógleymdri enn einni seríunni, þeirri um Jack Ryan aðalhetjuna í myndunum Clear and Present Danger og Patriot Games. Þá hefur Harrison Ford einu sinni áður unnið með Alan J. Pakula, leik- stjóra The Dev- il’s Own. Það ir í mynd- inni Pres- umed Innocent.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.