Morgunblaðið - 30.04.1997, Qupperneq 1
80 SIÐUR B/C/D/E
96. TBL. 85. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sækja bráðum um
„veðurfarslegt hæli“
Ósló. Morgunblaðið.
Einn dagur eftir af kosningabaráttunni á Bretlandi
Major segir„orrust-
una“ standa yfir
London. Morgunbladið.
IBUAR í Norður-Noreg’i hafa
orðið að taka á honum stóra sín-
um vegna veðurfarsins, sem
hefur verið með eindæmum í
vetur og vor. Nýtt snjóamet var
sett í gær í Tromso er snjóhæð-
in náði 2,40 metrum og var spáð
áframhaldandi snjókomu í vik-
unni. Yfir 100 manns urðu að
yfirgefa hús sín í gær og fyrra-
dag vegna snjóflóðahættu í
Tromso og Hammerfest. Snjór
í fjöllum í N-Noregi er helmingi
meiri en í meðalári og er búist
við miklum flóðum þegar hann
leysir.
„Eg held að ég sæki bráðum
um veðurfarslegt hæli,“ sagði
Eivind Mobakken, yfirverkfræð-
ingur í Tromso, sem hefur feng-
BILL Richardson, sendiherra Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum,
sem er nú í sendiför í Zaire til þess
að freista þess að miðla málum milli
stríðandi fylkinga í borgarastríðinu í
landinu, greindi frá því í gær að
Laurent Kabila, leiðtogi uppreisnar-
manna, og Mobutu Sese Seko, for-
seti Zaire, hefðu í fyrsta sinn fallizt
á að hittast að máli augliti til auglitis.
Richardson hitti Mobutu í Kins-
hasa í gær, og flaug að því ioknu á
fund Kabilas í Lubumbashi, annarrar
stærstu borgar landsins sem er á
valdi uppreisnarmanna. Auk þess að
hvetja uppreisnarleiðtogann til að
semja við Mobutu ræddi Richardson
við hann um kosningar og fleiri að-
gerðir sem grípa þurfi til að loknu
stríðinu. Kabila sagði að kosningar
gætu ekki farið fram fyrr en Mobutu
hefði sagt af sér eða verið vikið frá.
ið meira en nóg af snjómokstri
í vetur. Fjölmargir bæjarbúa
flýja suður á bóginn.
Hefur snjóað
tæpa níu metra
Það sem af er ári hefur snjóað
um 8,70 metra. Snjóþyngsti vet-
ur sem sögur fara af, var vetur-
inn 1916-1917 en þávarhálfur
annar metri af snjó 1. júní.
Fimmtán dögum síðar sást enn
ekki í auða jörð. Bendir margt
til þess að snjóametið verði sleg-
ið og þeir svartsýnustu búast
ekki við því að sumarið gangi í
garð fyrr en eftir Jónsmessu.
Þá verði skrúðgöngur á þjóðhá-
tíðardaginn 17. maí farnar á
gönguskíðum.
Nelson Mandela, forseti Suður-
Afríku, hefur lagt til að leiðtogarnir
tveir hittust um borð í suður-afrísku
herskipi, en í gærkvöldi fregnaðist
að Mobutu gæti ekki samþykkt þann
JOHN Major, forsætisráðherra og
leiðtogi íhaldsflokksins, sagði í gær
að „orrustan um Bretland" stæði
nú yfir og breskir kjósendur hefðu
nauman tíma til að gera upp hug
sinn áður en þeir gengju að kjör-
borðinu. Tony Blair, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, sagði að hann
ætti sér draum, sem hann kallaði
„breska drauminn" og snerist um
það að hver kynslóð hefði það betra
en sú á undan.
Verkamannaflokkurinn gerði í
fundarstað. Hvar fjandmennirnir
tveir hittast er því enn óljóst.
Kabila sagði frá því að skæruliðar
hans stefndu nú áleiðis til Kinshasa,
eftir að bærinn Kikwit féll í hendur
Blair boðar
„breska
drauminn“
gær sérstakt átak í 80 kjördæmum
þar sem mjótt er á munum og Blair
ítrekaði að hann hygðist „vinna
fyrir hverju atkvæði, fyrir hveiju
broti af stuðningi".
John Major skoraði á stuðnings-
menn sína að vinna fram á síðustu
sekúndu síðustu mínútunnar fyrir
kosningarnar og sagði að sigur
Verkamannaflokksins mundi jafn-
gilda rússneskri rúllettu þar sem sex
skot væru í byssunni.
Bilið enn breitt
Samkvæmt skoðanakönnun Gall-
ups, sem dagblaðið The Daily Tele-
graph birtir í dag, hefur íhalds-
flokknum nú tekist að komast yfir
30% fylgi, en forekot Verkamanna-
flokksins er enn rúmlega 20 pró-
sentustig. Könnun Gallups fyrir ITN
Channel 4 benti til þess að munurinn
væri 18 % og þar kom fram að nokk-
ur fjöldi væri óákveðinn.
Michael Heseltine, aðstoðarfor-
sætisráðherra, sagði í gær að kjós-
endur flytu sofandi að feigðarósi og
tími væri kominn til að þeir vökn-
uðu. Blair svaraði því til í kosninga-
ræðu að kjósendur væru vaknaðir
og skoðanakannanir bæru því vitni.
Hvorki íhalds- né Verkamanna-
flokkurinn voru þó reiðubúnir að
taka fullt mark á skoðanakönnun-
um. Blair hvatti stuðningsmenn sína
enn til halda vöku sinni, sigurinn
væri ekki unninn. Heseltine dró
áreiðanleika kannana í efa og spáði
íhaldsflokknum 60 sæta meirihluta
á þingi í kosningunum.
þeirra fyrr um daginn. íbúar bæjar-
ins, sem er um 400 km frá höfuðborg-
inni, fögnuðu skæruliðum, sem einnig
náðu þar flugvelli á sitt vald.
Flóttamenn á vergangi
Næsti áfangastaður Richardsons
er Kisangani í Austur-Zaire. Heim-
sókn hans þangað á fyrst og fremst
að þjóna þeim tilgangi að upplýsa
örlög tugþúsunda flóttamanna af
hútú-ættbálki, sem saknað er úr
flóttamannabúðum. Kabila hefur
gefið mannúðarstofnunum 60 daga
frest til að koma flóttamönnum til
síns heima, en þeir eru flestir frá
nágrannaríkinu Rúanda.
Starfsmenn hjálparstofnana halda
því fram að skæruliðar hafi framið
Qöldamorð á hútú-flóttamönnum,
bæði í Kisangani og nágrenni og
annars staðar í A-Zaire.
Bjartsýni Heseltines endurspegl-
aðist þó ekki í orðum Majors þegar
hann var spurður í viðtali við breska
sjónvarpið, BBC, í gærkvöldi hvort
hann væri reiðubúinn að fullyrða
að hann væri handviss um sigur líkt
og fyrir kosningarnar 1992 þegar
íhaldsflokkurinn sigraði þrátt fyrir
að skoðanakannanir bentu til hins
gagnstæða. „Það er hægt að ná sigri
í þessum kosningum,“ sagði forsæt-
isráðherrann.
Sprengjuhótanir leiddu til um-
ferðartafa á hraðbrautum umhverfis
London í gær og á flugvöllunum
Gatwick og Heathrow voru bygg-
ingar rýmdar án þess að flug riðlað-
ist. Þetta er í fjórða skiptið sem
umferðaröngþveiti myndast í kjölfar
sprengjuhótana og er talið að fjár-
hagslegt tjón vegna þeirra nemi 30
milljónum punda (um 3,5 milljörðum
króna).
■ Úr smiðju/30
-----» » »----
Tyrkland
Herinn
aðvarar
Erbakan
Ankara. Reuter.
HÁTTSETTUR hershöfðingi í tyrkn-
eska hernum sagði í gær, að barátt-
an gegn íslamskri heittrúarstefnu
skipti sköpum fyrir tilvist Tyrklands
sem veraldlegs lýðveldis. Er mikill
kurr í hernum vegna uppgangs heit-
trúarmanna en flokkur þeirra er nú
við stjórn í landinu. Necmettin Er-
bakan, forsætisráðherra Tyrklands,
sagði í gær, að stjórn sín væri eini
kosturinn þar sem stjórnarandstað-
an væri ófær um að mynda stjórn.
„Að uppræta bókstafstrúna er
spurning um líf eða dauða,“ sagði
Kenan Deniz hershöfðingi og einn
af æðstu mönnum tyrkneska hersins
á blaðamannafundi í gær. Síðustu
vikur hefur gætt vaxandi óánægju
innan hersins með Erbakan forsætis-
ráðherra og leiðtoga Velferðar-
flokksins, flokks múslima, en þótt
hann hafi látið undan kröfum hers-
ins að súmu leyti, neitar hann að
loka skólum bókstafstrúarmanna.
Valdataka gefin í skyn
Frá 1960 hefur tyrkneski herinn
steypt þremur ríkisstjórnum en að
þessu sinni hefur hann Iátið sitja við
að gefa hugsanlega valdatöku í
skyn. Vegna þessa ástands hafa leið-
togar ýmissa stjórnmálaflokka reynt
að velta upp nýjum möguleikum á
samsteypustjórn.
Erbakan sagði í gær, að flokkur
sinn væri tilbúinn í kosningar hve-
nær sem væri en í gær átti hann
fund með Ismail Hakki Karadayi,
yfirmanni heraflans. Ekki hafði ver-
ið skýrt frá því hvað þeim fór á milli.
Scanfoto/Tore Kristiansen
LEIF Arnesen reynir að koma póstinum til skila í Tromso en snjóruðningarnir gera honum
starfið ekki léttara. Snjóhæðin í Norður-Noregi er nú 2,40 metrar.
Sendimaður Bandaríkjastjórnar í Zaire ræðir við Mobutu og Kabila
Fallast á beinar viðræður
Lubumbashi. Reuter.
Reuter
MOBUTU Sese Seko, forseti Zaire, (t.h.) skekur valdasprota
sinn er hann fylgir Bill Richardson, sáttasemjara Bandaríkja-
stjórnar í Zaire, af fundi í forsetahöllinni í Kinshasa í gær.