Morgunblaðið - 30.04.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.04.1997, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUÐAGUR 30. APRÍL 1997 .......................... MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Þjóðverjar lýsa ábyrgð á árásinni á Guernica Malaga. Morgunblaðið. ÞÝSK stjómvöld lýstu á sunnudag yfir því að Þjóðverjar bæru ábyrgð á því að spænska bænum Guernica var nánast gjöreytt í borgarastríð- inu á Spáni fyrir 60 árum. í yfirlýs- ingu Romans Herzog, forseta Þýskalands, biðjast Þjóðveijar jafn- framt fyrirgefningar á þessu grimmdarverki. Sextíu ár eru liðin frá loftárásinni. Enn er ekki vitað með vissu hversu margir týndu lífi í loftárás- inni á Guemica en talið er að ekki færri en 2.000 manns hafí verið drepin. Árásina gerðu þýskir nas- istar að beiðni Francisco Franco til að aðstoða þjóðemissveitir hans í borgarastyijöldinni á Spáni. Gu- emica var höfuðvígi baskneskra þjóðemissinna. Loftárásin á Guemica er einnig söguleg fyrir þær sakir að hún var hin fyrsta sem gerð var á stað sem hafði enga hemaðarlega þýðingu. Þykir líklegt að ráðamenn flughers þýskra nasista hafí talið þetta kjör- ið tækifæri til að æfa slíka árás. Alltjent bendir flest til þess að árás- in hafí verið framkvæmd með þeim hætti að sem flestir týndu lífi. Skot- ið var á þá íbúa sem komust lífs af úr sjálfri loftárásinni. Tíu ára barátta Það var þingmaður þýska Græningjaflokksins, Petra Kelly, sem hóf baráttu fyrir því að Þjóð- veijar viðurkenndu ábyrgð sína í þessu efni fyrir rúmum tíu ámm. Kristilegir demókratar og sam- starfsflokkar þeirra, lögðust gegn öllum tilraunum Kelly til að þoka málinu áfram. Fréttir frá Þýska- landi í liðinni viku hermdu að enn væri deilt um orðalag yfírlýsing- arinnar og virðist svo sem Roman Herzog forseti hafi loks ákveðið að höggva á hnútinn. Reuter Stíðsföng- um sleppt MOHAMED Abdelaziz, leiðtogi sjálfstæðishreyfingar Vestur- Sahara (Polisario), sagðist í gær binda miklar vonir við að sendi- för James Bakers, fv. utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, til Norður-Afríku yrði til þess að fullnaðarlausn á deilunni um Vestur-Sahara fyndist. Baker ræddi við Abdelaziz, svo og Liamine Zeroual forseta Als- ír, Maaouya Sid Ahmed Taya, leiðtoga Máritaníu, og Hassan Marokkókonung. í tilefni komu Bakers leysti Polisario 85 marokkóska stríðs- fanga lausa, en hreyfingin hefur haldið um 2.000 Marokkó-mönn- um sem stríðsföngum, sumum þeirra í allt að 20 ár. Á mynd- inni er einn þeirra að störfum i fangabúðum í Saharawi. Sprengjuárás eykur spennu milli Rússa og Tsjetsjena Reuter. ANATOLÍ Kúlíkov, innanríkisráð- herra Rússlands, sagði í gær að lög- reglan hefði handtekið tvær tsjetsj- enskar konur, sem væru grunaðar um að hafa skipulagt sprengjutil- ræði í lestastöð í suðurhluta landsins á mánudag. Tveir menn biðu bana í sprengingunni og 20 særðust og fímm dögum áður hafði sprenging í annarri lestastöð kostað tvo menn lífíð. Kúlíkov kvaðst óttast að tsjetsj- enskir aðskilnaðarsinnar, sem hann lýsti sem glæpamönnum, væru að færa sig upp á skaftið og spennan í samskiptum Rússa og Tsjetsjena hefur ekki verið jafn mikil frá þeir sömdu um vopnahlé í ágúst. Kúlíkov skýrði ennfremur frá því að lögreglumenn hefðu barist við 20 tsjetsjenska byssumenn í fyrri- nótt, eftir að þeir hefðu reynt að laumast frá Tsjetsjníju til nágranna- héraðsins Dagestan. Óstaðfestar fregnir hermdu að mannfall hefði orðið í bardaganum. Innanríkisráðherrann sagði að tvær konur hefðu verið handteknar vegna tilræðisins og þær hefðu báð- ar tekið þátt í árás tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna á Búdennovsk árið 1995 sem kostaði rúmlega 100 manns lífið. „Þetta eru ekki upp- reisnarmenn," sagði Kúlíkov. „Þetta er ekki pólitísk barátta, þetta er stigamennska. Við munum klófesta þessa glæpamenn og tortíma þeim.“ Movladi Udugov, aðstoðarforsæt- isráðherra Tsjetsjníju, sagði ekkert hæft í þessum ásökunum. Leiðtogar aðskilnaðarsinna sökuðu ótilgreind- ar sérsveitir í Rússlandi um að hafa staðið fyrir sprengjutilræðinu til að grafa undan friðarumleitunum. Maskhadov að missa tökin? Kúlíkov kvaðst óttast að Aslan Maskhadov, sem var kjörinn forseti Tsjetsjníju i janúar, gæti ekki lengur haft hemil á herskáum aðskilnaðar- sinnum í héraðinu. „Ljóst er að það er engin eining meðal forystumanna Tsjetsjena og Maskhadov kann að hafa misst tökin á stjórninni." Innanríkisráðherrann bætti við að íbúar Kákasus-héraðanna hefðu krafíst harðra aðgerða gegn tsjetsj- enskum „glæpamönnum" og sagði að hætta væri á skipulögðum of- sóknum á hendur Tsjetsjenum í Rússtandi vegna tsjetsjenskra hermdarverkamanna. Talsmaður Borís Jeltsíns sagði að forsetinn hefði miklar áhyggjur af þróuninni og vildi að lögreglan gripi til harðra aðgerða til að koma í veg fyrir frekari hermdarverk. Vopnahléssamningurinn sem und- irritaður var í ágúst batt enda á átök- in í Tsjetsjníju en Rússar og Tsjetsj- enar eiga enn eftir að útkljá deiluna um hvort Tsjetsjníja eigi að vera hluti af Rússlandi eða sjálfstætt ríki. Að undanfömu hafa staðið yfír erfíðar samningaviðræður en Vakha Ars- anov, varaforseti Tsjetsjníju, sagði að Tsjetsjenar gætu ekki haldið við- ræðunum áfram nema Kúlíkov bæð- ist afsökunar á ásökunum sínum eða legði fram sannanir fyrir þeim. Skýrsla um endurskoðun varnarmálastefnu Bandaríkjanna Hermönnum fækkað og ný hátæknivopn ENDURSKOÐUN á stefnu Bandaríkjastjórnar í varnarmál- um getur leitt til þess, að fækkað verði um tugi þúsunda hermanna, einkum í landhemum, og fjár- framlög til kaupa á nýjum orr- ustuþotum fyrir flugherinn og sjó- herinn verði lækkuð. Kom þetta fram í bandaríska dagblaðinu The New York Times í gær. Kemur þetta fram í skýrslu, sem bandaríska hermálaráðuneyt- ið lætur vinna fjórða hvert ár, en hún verður gerð opinber í næsta mánuði. Segir þar, að niðurskurð- urinn eða það fé, sem sparist, verði notað til að greiða fyrir nýja kynslóð hátæknivopna. Fækkunin mest í landhemum Hugsanlegt er talið, að endur- skoðunin leiði til breytinga á vam- armálastefnunni en nú er gert ráð fyrir, að Bandaríkjaher geti átt í svæðisbundnum átökum á tveim- ur stöðum í einu. Er þá átt við átök, sem ekki eru minni en Persaflóastríðið. Er það haft eftir embættismönnum í Pentagon, að lítill hemaðarstyrkur hugsanlegra fjandmanna gæti réttlætt slíka breytingu. Bandaríkjastjóm hefur hálfri annarri milljón hermanna á að skipa en í landhemum era 495.000 menn. Sagt er, að þar verði fækkað um allt að 50.000 hermenn en talsmenn landhersins segja, að það yrði mikið slys. Þá yrðu fjárframlög til flugvélakaupa minnkuð. Spamaðinn af niðurskurðinum á að nota til greiða fyrir ný há- tæknivopn, til dæmis tölvustýrð stórskotavopna og tæki, sem greina og vara við lífefnavopnum. Síðasta endurnýjunin í vopnabún- aði Bandaríkjahers átti sér stað á Reagan-árunum en mörg þeirra vopna era nú talin úrelt. Búist er við nokkrum niður- skurði á fjárlögum flughersins til kaupa á nýrri kynslóð F-22-orr- ustuþotna en þau era nú 5.000 milljarðar ísl. kr. og sömu sögu er að segja um 6.000 milljarða ísl. kr. fjárlög sjóhersins til kaupa á F/A-18E/F-árásarþotna. Leitað svara Skýrslan verður birt í næsta mánuði og þá mun óháð sérfræð- inganefnd fjalla um hana og skila sinni skýrslu. Verða þær báðar teknar fyrir af þinginu, sem á síð- asta orðið í þessu máli. Bandarískir þingmenn segja, að tilgangurinn með skýrslunni sé að fá svör við ýmsum spuming- um, sem vaknað hafa eftir lok kalda stríðsins: Munu hátækni- vopnin draga úr þörf fyrir fjöl- mennan landher? Er líklegt, að Kína verði hættulegur andstæð- ingur Bandaríkjanna á næstu ára- tugum? Á að leggja minni áherslu á hefðbundna bardagaþjálfun en meiri á friðargæslu eins og í Bosn- íu og Haiti? Fjárframlög til hermála hafa lækkað um þriðjung í Bandaríkj- unum á einum áratug og líkur á enn meiri niðurskurði hafa vakið gremju meðal ýmissa þingmanna, ekki síst repúblikana. Þá hefur öryggismálanefnd fulltrúadeildar- innar einnig varað við honum. Yfirburðir á öllum sviðum William Cohen, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði í síð- asta mánuði, að það krefðist mik- illar endurnýjunar að búa herinn undir þá óvissu tíma, sem fram- undan væra. „Við viljum ekki standa jafnt að vígi í stríði. Við viljum hafa yfirburði á öllum svið- um og sigra á okkar forsendum,“ sagði Cohen. Reuter Gert við Mír RÚSSNESKI geimfarinn Vasílíj Tsíblíev (til hægri) og banda- rískur starfsbróðir hans, Jerry Linenger, vinna utan Mír-geim- stöðvarinnar rússnesku í gær. Tók geimganga þeirra fimm stundir og notuðu þeir tímann til að dytta að stöðinni sem er orðin nokkuð lúin eftir ellefu ára notkun. Þjóðverji hnepptur í varðhald í Kina Peking. Reuter. BLAÐAMAÐUR þýska vikuritsins Der Spiegel hefur verið hnepptur í varðhald í borginni Chaohu í mið- hluta Kína. Er hann sakaður um að hafa stundað fréttaöflun í heim- ildarleysi. Blaðamaðurinn, Jiirgen Kremb, var tekinn fastur í gær ásamt Wei Xiáotao, bróður andófsmannsins Weis Jingshengs, frumkvöðuls um- bótasamtaka kínverskra lýðræðis- sinna, er þeir sátu að snæðingi með nokkrum bændum á heimaslóðum Weis, í borginni Bazhen. Neitaði Kremb að undirrita lög- regluskjal á þeirri forsendu að hann hefði ekki brotið neitt af sér. Var vegabréf hans gert upptækt, svo og kínverskt dvalarleyfí hans og flugfarseðill.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.