Morgunblaðið - 30.04.1997, Síða 18

Morgunblaðið - 30.04.1997, Síða 18
 fiff tpo I líqq/ (tr q-|:iAO! PJ'tVOlVS 18 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Besta rekstrarár í 40 ára sögu Tryggingamiðstöðvarinnar Hagnaður237millj. króna eftir skatta HAGNAÐUR Tryggingamiðstöðv- arinnar var 237 milljónir króna á síðasta ári eftir tekju og eignar- skatt, 107 milljónum króna meiri en árið 1995 þegar hagnaðurinn var tæpar 130 milljónir króna. Hagnaður félagsins hefur aldrei áður í fjörutíu ára sögu félagsins verið jafn mikill. Ef eingöngu er litið til vátryggingarekstursins var hagnaður af honum 241 milljón króna samanborið við 155 milljónir króna árið áður. Þá var hagnaður af fjármálarekstri 178 milljónir króna, 120 milljónum króna hærri en árið áður þegar hagnaðurinn var 58 milljónir króna. Mestu munar að gert er upp með hlutdeildarað- ferð og er hagnaður félagsins 68 milljónum króna hærri fyrir bragð- ið. í ársreikningi Tryggingamið- stöðvarinnar segir að mjög góð af- koma hafí verið í eignatryggingum, sjó-, flug-, og farmtryggingum, sem og í slysatryggingu. Afkoman hafi hins vegar verið afar slæm í al- mennum ábyrgðartryggingum. Af- koman þar hafi versnað mjög und- anfarin ár og stafi það fyrst og fremst af hækkandi bótum til slas- aðra sjómanna. Þá hafí afkoma ökutækjatrygginga batnað veru- lega frá fyrra ári, en það stafi fyrst og fremst af færri slysatjónum í umferðinni. Fram kemur að iðgjöld alls í fyrra námu 2.544 milljónum króna sam- anborið við 2.322 milljónir króna árið áður og nemur aukningin 9,5%. Heildartjón námu 2.226 milljónum króna samanborið 1.919 milljónir króna árið áður og er aukningin 15,9%. Heildarvátryggingaskuld fé- lagsins í árslok var 5.759 milijónir króna og var hluti endurtryggjenda 932 milljónir króna. Eigin vátrygg- ingaskuld er því 4.827 milljónir króna og hefur hækkað um 448 milljónir króna frá árinu áður eða um 10,2%. Rekstrarkostnaður 270 milljónir Eigin iðgjöld félagsins á síðasta ári voru 1.810 milljónir, en tjón 1.720 milljónir króna. Rekstrar- kostnaður var tæpar 270 milljónir króna. Hagnaður fyrir skatt var 333 milijónir króna og hafa þá verið færðar til gjalda lífeyrisskuldbind- ingar að upphæð 48 milljónir króna, en þar er bæði um að ræða eftirla- unasamninga við fyrrverandi og núverandi forstjóra félagsins, auk 9 milljón króna eingreiðslu í sér- eignasjóð vegna skerðingar lífeyris- réttinda nokkurra starfsmanna fé- lagsins. Þá nemur tekju- og eignar- skattur 96 milljónum króna saman- borið við 60 milljónir króna árið áður. í stjórn Tryggingamiðstöðvar- innar voru kjörnir Sigurður Einars- son, sem er formaður, Jón Ingvars- son, Aðalbjörn Jóakimsson, Harald- ur Sturlaugsson og Svavar B. Magnússon. Fram hf. í Vestmannaeyjum er stærsti hluthafinn í félaginu með 24,39% eignarhlut, Ingvar Vil- hjálmsson sf. á 7,40%, ísfélag Vest- mannaeyja hf. 7,29%, Hraðfrysti- húsið hf. Hnífsdal 5,33%, Haf hf. Reykjavík 4,41%, Db. Ágústs Sig- urðssonar, Stykkishólmi 4,38% og Jöklar hf. Reykjavík 4,12%. Þessir hluthafar eiga yfir 4% eignarhlut en hluthafar voru alls 94 í árslok og fjölgaði um 7 á árinu. TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN Úr reikningum ársins 1996 | Rekstrarreikningur 'Sf 1996 1995 Breyting Tekiur ou oiöld af vátrvoainuarekstri: Eigin iðgjöld 1.810,0 1.525,0 +18,7% Fjárfestingartekjur af vátryggingarekstri 349,8 303,2 +15,4% Eigin tjón (1.719,6) (1.343,9) +27,9% Hreinn rekstrarkostnaður (269,5) (187,7) +43,6% Breyting á útjöfnunarskuld 70,6 (141,3) - Hagnaður af vátryggingarekstri 241,3 155,3 +55,4% Tekiur ou oiöld af fjármálarekstri: Fjárfestingartekjur 568,2 406,6 +39,7% Fjárfestingargjöld (39,6) (40,3) -1,7% Reikn. tekjur (gjöld) v. verðlagsbreytinga (0,5) (4,9) -89,6% Fjárfest.tekjur yfirf. á vátrygg.rekstur (349,8) (303,2) +15,4% Hagnaður af fjármálarekstri 178,3 58,3 +205,8% Aðrar tekjur (gjöld) af reglul. starfsemi (86,2) (23,1) +273,2% Hagnaður fyrir tekju- og eignarskatt 333,4 190,5 +75,0% Tekju- og eignarskattur (96,1) (60,5) +58,8% Hagnaður ársins 237,3 130,0 +82,5% Efnahagsreikningur 31. des. 1996 1995 Breyting ÉÍBílir: . Fjárfestingar 5.063,9 4.517,0 +12,1% Hluti endurtryggjenda í vátrygg.skuld 932,3 908,9 +2,6% Kröfur 691,6 493,2 +40,2% Aðrar eignir 516,0 512,2 +0,7% Eignir samtals: : 7.203,9 6.431,4 +12,0% Skuldir ou eigið fé: Eigið fé 1.093,1 848,1 +28,9% Vátryggingaskuld 5.758,9 5.287,1 +8,9% Aðrar skuldbindingar 75,4 66,1 +14,1% Geymslufé frá endurtryggjendum 42,9 42,2 +1,6% Viðskiptaskuldir 196,1 172,2 +13,9% Áfallinn kostn. og fyrirfr.innheimtar tekjur 37,6 15,6 +139,8% Skuldir og eígið fé samtals: 7.203,9 6.431,1 +12,0% Rúmlega 423 milljóna viðskipti á Verðbréfaþingi og Opna tilboðsmarkaðnum Tæplega 213 milljóna við- skipti með Fóðurblönduna Morgunverðarfundur Verzlunarráðs Valfrelsi eða skylduaðild? VERSLUNARRÁÐ efnir til morg- unverðarfundar um lífeyrismál í tilefni af fyrirliggjandi frumvarpi á Alþingi um skyldutryggingu líf- eyrisréttinda og starfsemi lífeyris- sjóða. Fundurinn verður haldinn í Sunnusal Hótels Sögu, frá klukk- an 8 til 9.30 í dag, miðvikudag. Stenst frumvarpið félagafrels- is- og eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar? Skerðir frum- varpið óhóflega valfrelsi einstakl- inga? Eru fleiri aðferðir möguleg- ar til að ná fram samtryggingu í lífeyrismálum en sameignarsjóða- kerfið? Framsögumenn: Árni M. Mathiesen, alþingismaður, Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Alþýðu- bankinn hf., Baldur Guðlaugsson, formaður Samtaka áhugafólks um lífeyrissparnað. STÆRSTU einstöku viðskipti með skráð hlutabréf á Verðbréfaþingi íslands voru í gær þegar seld voru hlutabréf í Fóðurblöndunni fyrir 57,5 milljónir króna að nafnverði á genginu 3,70 og nam söluandvirði bréfanna 212,750 milljónum króna. Að sögn Halldórs Friðriks Þor- steinssonar, verðbréfamiðlara hjá Kaupþingi hf. sem hafði umsjón með sölunni, voru kaupendurnir breiður hópur fagfjárfesta. Fyrra met með einstök viðskipti á VÞÍ var sett þann 25. janúar 1995 en þá námu viðskipti með bréf í Lyijaverslun íslands 201 milljón króna. Bræðurnir Gunnar og Garðar Jóhannssynir, aðaleigendur Fóður- blöndunnar, hafa með sölu bréf- anna selt tæp 50% í fyrirtækinu frá því að það var skráð á Verð- bréfaþingi Islands í mars sl. Að sögn Gunnars var nú um tæplega 22% hlut í Fóðurblöndunni að ræða. „Við gáfum út þá yfirlýsingu þegar við opnuðum félagið að við mynd- um skuldbinda okkur til að selja 51% hlutafjár í félaginu fyrir 1. mars 1998. Ég tel líkur á því að við munum selja hlutabréf þessu til viðbótar síðar á árinu. Annars fer það allt eftir því hveijir sækj- ast eftir því að koma inn í félagið. Við erum mjög sáttir við þann hóp sem kemur inn með þessum við- skiptum. Þeir eru væntanlega að fjárfesta til langs tíma og verða trúlega samstarfsaðilar áfram.“ Gunnar segist telja að kaupverðið sé mjög viðunandi fyrir alla aðila og eðlilegt miðað við afkomu fé- lagsins. Stærsti einstaki kaupandinn var Faxamjöl hf., dótturfyrirtæki Granda hf. Með kaupunum eignast fyrirtækið 5% hlut í Fóðurblönd- unni. Gunnlaugur Sævar Gunn- laugsson, framkvæmdastjóri Faxa- mjöls, segir að fyrirtækin tvö hafi átt mikil viðskipti um árabil og Fóðurblandan sé stærsti viðskipta- vinur Faxamjöls innanlands. „Við höfum mikla trú á fyrirtækinu og lítum á þetta sem mjög vænlegan fjárfestingarkost til framtíðar fyrir Faxamjöl." í gær var einnig metdagur í við- skiptum með hlutabréf á Verð- bréfaþingi íslands og Opna tilboðs- markaðnum en heildarviðskipti dagsins námu 423,5 milljónum króna en síðast var met slegið þann 11. apríl sl. þegar viðskipti dagsins námu tæpum 350 milljónum króna. Hlutabréf í SR-mjöli héldu áfram að hækka og voru heildarviðskipti dagsins 35,9 milljónir á genginu 9,75-10,30. 25 milljóna viðskipti voru í Loðnuvinnslunni í gær og viðskipti með bréf í Flugleiðum námu 21,9 milljónum á genginu 4,25-4,35. Þingvísitala hlutabréfa lækkaði um 0,09% í gær en hún hefur hækkað um 36,33% frá áramótum. í i i í i 4 li i Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Hlutafé í heild er 442,7 milljónir kr. 15 stæretú B p ?“n,r 0init. 23. april 1997 krdna hluti Festing hf. 44,0 9,94% Burðarás hf. 42,4 9,57% Helga Ingimundardóttir 37,4 8,45% Guðný Halldórsdóttir 24,8 5,59% H. Benediktsson hf. 23,9 5,39% Kristín H. Halldórsdóttir 22,5 5,08% Benedikt Sveinsson 18,6 4,20% EinarSveinsson 14,9 3,37% Björn Hallgrímsson 14,7 3,32% Hjalti Geir Kristjánsson 12,2 2,76% Skeljungur hf. 11,5 2,60% Ingimundur Sveinsson 8,5 1,93% Guðrún Sveinsdóttir 7,6 1,71% Db. Baldvins Einarssonar 6,0 1,35% Guðrún Kristjánsdóttir 4,8 1,09% Horfur á frekari lækkun ið- gjalda í bifreiðatryggingum Á AÐALFUNDI Sjóvá-Almennra var ákveðið að gefa út jöfnunarhlutabréf sem nema 16,78% af núverandi hlut- afé og verður hlutafé félagsins þá orðið rúmar 517 milljónir. Hagnaður félagsins á liðnu starfsári var 320 milljónir króna en Benedikt Sveins- son stjómarformaður sagði í ræðu á aðalfundinum að horfur væru á lak- ari afkomu á yfirstandandi ári. Benedikt Sveinsson sagði margt benda til að yfirstandandi ár yrði féiaginu þyngra, tjónum í ökutækja- tryggingum hefði fjölgað, iðgjöld í mörgum tryggingagreinum færu lækkandi og launakostnaður hækk- andi. Sagði hann vel hafa gengið í markaðssókn og að félagið væri fjár- hagslega sterkt. Þá gerði hann sókn erlendra tryggingafélaga á íslenskan markað að umtalsefni. „Fyrir nokkrum árum bauð erlent félag upp á ökutækjatryggingar hér á landi sem voru ódýrari en þá hafði þekkst frá innlendum félögum. Fimm árum síðar hafði félagið tapað um milljarði á starfsemi sinni hér á landi og dró sig út af markaðnum. Það var öllum ljóst að móðurfélagið greiddi mikið með starfseminni hér á landi. Sagan virðist ætla að endur- taka sig.“ Þá sagði stjórnarformaðurinn ljóst að iðgjöld í bílatryggingum yrðu lægri á þessu ári en því síðasta en meðallækkun í fyrra hefði verið um 16%. Þá sagði hann tjónakostnað vegna þeirra hækka, m.a. vegna breytinga á skaðabótalögum og oft hækkaði tjónatíðni þegar góðæri ríkti. Varaði hann við því að í þeirri endurskoðun á skaðabótalögum sem nú stæði yfir yrðu bætur meiri en það fjárhagstjón sem menn yrðu fyr- ir við slys. „Þetta gæti gerst ef litið er einhliða á það að hækka bætur úr vátryggingum án þess að taka tillit til bóta frá öðrum aðilum, t.d. lífeyrissjóðum og almannatrygging- um eins og gert var samkvæmt eldri reglum," sagði Benedikt Sveinsson. Hlutfall bókfærðra tjóna af iðgjöld- um bílatrygginga var 88% og til- kynntum tjónum fjölgaði um 5%. Á síðasta ári var gert upp stærsta ein- staka tjón í bílatryggingum sam- kvæmt skaðabótalögum frá 1993 og nam bótaupphæðin alls 26 milljónum króna. Sjóvá-Almennar keypti á liðnu ári Húsatryggingar Reykjavíkur og jók hlut sinn í Abyrgð og hefur nýlega keypt allt félagið. Sagði stjómar- formaðurinn að markaðshlutdeild Sjóvá-Almennra á frumtrygginga- markaði hefði með þessu aukist úr 29% í þriðjung. Á aðalfundinum var samþykkt að greiða hluthöfum 10% arð og félags- stjórn var heimilað að kaupa á næstu 18 mánuðum hlutabréf í félaginu að nafnvirði 25 milljónir króna, á allt að 10% hærra verði en meðalsölu- verð á Opna tilboðsmarkaðnum og veija til þess allt að 400 milljónum króna. i I i i 4 |4 4 4 (4 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.