Morgunblaðið - 30.04.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1997 21
ERLEIMT
Stefnir í tvísýnar þingkosningar í Frakklandi
Hæg-rifl okkarnir
með naumt forskot
Reuter
ALAIN Juppe, forsætísráðherra Frakklands, og Francois Leot-
ard, formaður UDF, kynna stefnuskrá mið- og hægriflokkanna
fyrir þingkosningarnar 25. maí og 1. júní.
París. Reuter.
MIÐ- og hægriflokkarnir í Frakk-
landi hafa naumt forskot á vinstri-
flokkana, samkvæmt skoðana-
könnunum sem birtar voru í gær
vegna þingkosninganna sem fram
fara 25. maí og 1. júní. Ein þeirra
benti þó til þess að um þriðjungur
kjósenda hefði ekki enn gert upp
hug sinn.
I könnun, sem birt var í dagblað-
inu Le Monde, sögðust 35% að-
spurðra styðja mið- og hægriflokk-
ana, 32% vinstriflokkana en 31%
sagðist styðja hvorugt bandalag-
anna.
Samkvæmt könnun, sem birt var
í tímaritinu Valeurs Actuelles, er
fylgi mið- og hægriflokkanna 39%
og vinstriflokkanna 38,5%. 15,5%
sögðust ætla að kjósa Þjóðfylking-
una, sem er yst til hægri, og 7%
styðja Græningja.
Lionel Jospin, leiðtogi franskra
sósíalista, nýtur ívið meiri stuðn-
ings en Alain Juppe forsætisráð-
herra, samkvæmt könnun sem birt
var í tímaritinu VSD. 37% að-
spurðra sögðust vilja að Jospin yrði
forsætisráðherra eftir kosningarn-
ar og 34% nefndu Juppe.
í annarri könnun sögðust 40%
aðspurðra vilja að Philippe Seguin,
forseti þingsins, yrði forsætisráð-
herra í stað Juppe ef mið- og hægri-
flokkarnir bæru sigur úr býtum.
Stefnt að skattalækkunum
Mið- og hægriflokkarnir birtu í
gær stefnuskrá sína fyrir kosning-
arnar og lofuðu þar að auka ekki
ríkisútgjöldin, stefna að skatta-
lækkunum og beita sér fyrir við-
ræðum milli samtaka vinnuveit-
enda og launþega um styttri vinnu-
tíma.
Fréttaskýrendur segja að línurn-
ar virðist skýrar og kostir franskra
kjósenda afdráttarlausir, en þegar
stefnan sé borin saman við frammi-
stöðu vinstrimanna og stjórnar-
flokkanna komi í ljós að ekki sé
allt sem sýnist og ails óvíst við
hveiju megi búast eftir kosningarn-
ar.
Alain Juppe forsætisráðherra
segist ætla að lækka skatta, halda
áfram einkavæðingu, draga úr af-
skiptum ríkisins og lúta skilyrðun-
um fyrir aðild að Efnahags- og
myntbandalagi Evrópu (EMU).
Lionel Jospin, leiðtogi sósíalista,
leggur hins vegar áherslu á þörfina
á öflugu ríkisvaldi, lofar að skapa
700 þúsund störf, þar af helming-
inn í opinbera geiranum, útilokar
frekari einkavæðingu og hafnar
aðhaldsaðgerðum til að uppfylla
skilyrðin fyrir aðild að EMU vegna
atvinnuleysisins í Frakklandi.
Jospin kveðst einnig vilja koma
á nokkurs konar þjóðarsátt um
laun, atvinnu og að stytta vinnuvik-
una niður í 35 klukkustundir án
þess að skerða laun.
Búist við að
þokist nær miðju
Stjórnmálaskýrendur segja að
flokkarnir hafi með þessum yfirlýs-
ingum dregið línurnar, en hins veg-
ar megi búast við því að þeir fari
að þokast nær miðju þegar nær
dragi kosningum.
Juppe hefur verið hógvær og
varast að taka til greina afnám
hafta, sem sósíalistar halda fram
að stjórnarflokkarnir hafi í hyggju.
Hann hefur ítrekað mikilvægi
franska velferðarkerfisins og þjón-
ustu við almenning.
Stjórn Juppes hefur þyngt skatt-
byrðina á undanfömum árum og
því hefur verið haldið fram að hún
hafi aldrei verið meiri. Því hefur
verið borið við að „greiða hafi þurft
af skuldum sósíalista". Stjórnin
hefur einnig flækt atvinnuleysis-
bótakerfið, sem hún nú heitir að
einfalda.
Stjórnmálaskýrandinn Laurent
Mauduit skrifaði í Le Monde að
Juppe virtist vera að blása nýju lífi
í tvískinnunginn, sem Jacques
Chirac hefði sýnt í forsetakosning-
unum 1995 þegar hann hét því að
lækka skatta, hækka laun og auka
atvinnu. „Snýr sú aðferð að tala
tungum tveim aftur við upphaf
nýrrar kosningabaráttu?" spurði
Mauduit.
Gagnrýni vegna barnaníðingsmálanna í Belgíu
Brussel. Reuter.
DÓMARAR og saksóknarar í
Bmssel og suðurhluta Belgíu lögðu
niður vinnu í gær til að mótmæla
skýrslu þar sem framganga þeirra
í barnaníðingsmálunum, sem komu
upp í fyrra, er gagnrýnd harðlega.
Belgíska þingið samþykkti
skýrsluna fyrir hálfum mánuði og
dómararnir eru þar sakaðir um
seinlæti og vanhæfi vegna barna-
níðingsmálanna. Þar er því haldið
Dómarar
í verkfall
fram að hægt hefði verið að bjarga
að minnsta kosti tveimur af fimm
stúlkum, sem barnaníðingarnir
myrtu, ef dómararnir hefðu staðið
sig sem skyldi. Dómarnir urðu
ókvæða við skýrslunni og sögðu
gagnrýnina ósanngjama vegna
þess að þeir hefðu árum saman
kvartað yfir of miklu álagi og ósk-
að eftir því að íjölgað yrði í starfsl-
iði þeirra. Stjórnmálamennirnir,
þeirra á meðal Stefaan De Clerck
dómsmálaráðherra, hefðu hins
vegar virt þær óskir að vettugi.
:
REYKVIKINGAR
Quakekeppni á laugardag
3. maí verður allt hrjálafl í BT. Töhnim
BT mótið í Quake verður haldið milli 12 og 16.
Hver er meistari meistaranna í þessum geggjaða
spennutrylli ? Pað mun koma í ljós í BT. Töhmm á
laugardag. Keppt verður í 6 nettengdum véhim í einu
drungalegasta umhverfi sem hefur verið skapafl tyrir
tölvuleikjakeppni. Skráðu þig strax í sima 5B8590Q.
Sony Playsiation
Geggjuð leikjavél á hetra verðí i BT. Tölvum.
fiífalh vaxandi leikjaúrval og auðvitað allir
nýjustu leUdmir.
/SiS Einar
""" Farestveit & Co. Irf.
Borgartúni 28 ’S 562 2901 oe 562 2900
Hý k y 11 s I ó 1 hiiliíisaíri!
Nýju ELFA LEMMENS
vatnshitablásararnir hafa
yfirburði yfir eldri gerðir:
• Fallegir og fyrirferöarlitlir
• Betri varmanýting, öflugri dreifing lofts
• Hljóðeinangraðir, sérlega lágværir
• Skiptanlegar, hreinsanlegar síur
• Fást í stærðum frá 8-138 kW
• Hagstætt verð
ELFA LEMMENS henta allsstaðar og
vegna fallegrar hönnunar og mikilla
afkasta á mörgum stöðum, þar sem
hefðbundnir hitablásarar henta ekki.
Sony Playstation 15.990
179.990 kr
B.T. TÖIUIÍr
GransáBvegur 3 -108 Reykjavik
Sími: 588 5900 - Fax : 588 5905
Qpnunartími virka daga : 10:00 -19:00
Opnunartími laugardaga : 10:00 -16:00
Crash Bandicot 5890
Fifa Soccsr '97 5690
TotalNBA 4890
NBA Lívb '97 5790
Worms 5090
Tekken 2 5990
Resident Evil 5990
Cool Boarders 4890
Aukaminni 2790
Aukastyripinni 3490
Afmælistilboð
200 mhz Intel mmx □rgjarvi
Intel Tritnn II430VX kubbas.
GA-586VX móðurbarð / 512kb
2100 mb harður diskur
Saundhlastar 16 hljóðknrt
15" flatiTT hágæða htaskjár
32 mb mnra minni
2 mb Ati Mach skjáknrt
12 hraða geisladrif
240 watta hátalarar
Lyklabarð og mús
Windnws 35 fyigir mað
Pentium 200 mmx
Sjóðheit afmælistilboð
___________
í tilefni af tveggja ára afmæli BT verða ýmsar tölvuvörur á sérstöku afmælisverði út vikuna. Á laugardaginn nk.
nær afmælisgleðin hámarki þar sem afmæliskarnival varöur haldið i varslun okkar.
BORGARSTJÓRINN f
REYKJAVÍK
Minni mengun
Minni hávaöi
Minni gatnaskemmdir