Morgunblaðið - 30.04.1997, Síða 25

Morgunblaðið - 30.04.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1997 25 BÓKMENNTIR Ijórt NEI eftir Ara Jósefsson. Onnur útgáfa. Mál og menning. 1997 - 67 bls. ÁRIÐ 1960 kemst Jóhannes úr Kötlum svo að orði í greininni Flett tveim nýjum bókum sem hann birti í Tímariti Máls og menningar að íslensk ljóðlist standi nú í „ein- kennilegum blóma“, ekki síst vegna þess „hversu mörg barnung skáld sækja fram... af miklum þrótti og alvöru“. Greinin var að vísu umsögn um nýútkomnar bæk- ur Þorsteins frá Hamri og Dags Sigurðarsonar. En ljóst má vera af samhenginu að tilefnið er stærra. Um þetta ieyti voru spor- göngumenn atómskáldanna að kveðja sér hljóðs af miklum krafti. Frá því 1955 hafði hvert ungskáld- ið á fætur öðru vakið athygli með stórgóðum byijendabókum, Hann- es Pétursson gefur út Kvæðabók sína 1955, Jóhami, Hjálmarsson Aungul í tímann 1956; bækurnar Borgin hló eftir Matthías Johann- essen, I svörtum kufli eftir Þor- stein frá Hamri og Hlutabréf í sólarlaginu eftir Dag Sigurðarson koma út 1958. Á þessum tíma vissu menn líka vel af ljóðum Ara Jósefssonar þótt eina ljóðabók hans, Nei, kæmi ekki út fyrr en árið eftir. Hún sætti því tíðindum þegar hún kom út. Hér var komið fram á sjónar- sviðið ungt skáld sem orti skorin- Þrestir í Víðistaða- kirkju KARLAKÓRINN Þrestir, halda tónleika í Víðistaða- kirkju fimmtudaginn 1. maí og heijast þeir kl. 17. Stjórnandi kórsins er Sól- veig S. Einarsdóttir og undir- leikari Daníel Þorsteinsson. Tveir kórfélagar, Helgi Þórð- arson og Trausti Gunnarsson, syngja einsöng. Sérstakur gestur kórsins er Örn Árna- son leikari. Textílverk Sólrúnar í Þýskalandi NÚ STENDUR yfir sýning á textílverkum Sólrúnar Frið- riksdóttur í Kappeln-Ellen- berg í Þýskalandi. Sýningin er á vegum þýskra hjóna, Maren og Michael Siewert, en þau hafa á undanförnum árum staðið fyrir sýningum á norrænni myndlist á ýms- um stöðum í Norður-Þýska- landi. Á sýningunni eru 15 verk sem unnin eru á þessu og síð- asta ári. Sýningin í Kappeln-Ellen- berg var opnuð í byijun apríl og stendur yfir til 15. maí. Ingibjörg Rán á Veitinga- húsinu 22 INGIBJÖRG Rán Guðmunds- dóttir opnar sýningu á Veit- ingahúsinu 22 við Laugaveg, fimmtudaginn 1, maí kl. 13. Þetta er önnur einkasýning Ingibjargar Ránai1. Ingibjörg lauk námi frá Billedskolen, Jagtvej 113, Kaupmannahöfn, árið 1995 og hefur lagt stund á poitrett- málun. LISTIR Fólk er mikilsvert orð ljóð og var oftast nær ómyrkt í máli. Raunar má segja að sum ljóð Ara hafa fljótt unnið sér þann sess að teljast sígild. Einkum gildir þetta um kvæðin Leit, Stríð og Trúaijátningu. Öll eru þau skorinorð og markviss og styrkur þeirra liggur ekki síst í þeirri skáldagáfu Ara að geta sagt mik- il tíðindi í einföldum orðum: Undarlegir eru menn sem fara fyrir þjóðum Þeir beijast fyrir föðurland eða fyrir hugsjón og drepa okkur sem eigum ekkert föðurland nema jörðina einga hugsjón nema lífið Nei varð eina bók Ara. Hann lést áður en framhald yrði á ljóð- aútgáfu frá hans hendi. Það var mikill skaði. Lengi vel hefur verið erfitt að nálgast ljóðin úr ljóðabók Ara ef undan eru skilin ljóðin sem ég nefndi hér að framan. En nú hefur Mál og menning endurútgef- ið Nei og ber að þakka það fram- tak. Oftast nær tengja menn Ara og skáld- skap hans við róttæka heimssýn og skorinorð ljóð enda var Ari einn helsti hvatamaður slíks skáldskapar ásamt með Hannesi Sigfússyni. Þannig er kjarni Neisins sósíal- ískt andóf og bylting- arhugsjón. Ljóð Ara eru mörg hver ákall um betri heim, að fólk vakni til vitundar um yfirvofandi ógnir í samtímanum, rói lí- fróður frá þeim og hristi af sér hlekki hugarfars. Inntak húmanískrar mannssýnar Ara er einmitt fólgið í orðum hans í Orðsendíngu: „Fólk er mikilsvert / og verðskuldar betri heim.“ Málfar ljóðanna er stundum spá- mannslegt í biblíulegri merkingu þess orðs, jafnvel dómsdagstónn í undirspili. Þrátt fyrir boðun sósíal- isma og trúleysis er ekki laust við að ýmis ljóð Ára svo sem Jólahug- vekja, Andvaka, Orðsendíng, Morgunn og Trúaijátning sæki myndmál sitt og safa til vísana í Biblíuna: Til eru menn sem trúa á yfirburði hvíta kynstofnsins og mörgum þykir skriðdreki fegurri smíð en jarðýta Enn veifar lýðurinn pálmagreinum og sýng- ur fyrir kóngana Sál felldi sín þúsund en Davíð sín tíuþúsund I ágætum og persónulegum eftirmála endurútgefinna ljóða Ara bendir Silja Aðalsteinsdóttir á það hversu þroskaður skáld- skapur Ara hafi verið þrátt fyrir að hann hafi einungis verið um tvítugt þegar ljóð hans komu út. Hún bætir því við að Nei sé „þroskaðasta bytjendabók tíma- bilsins". Undir þetta er á vissan hátt hægt að taka þótt mér sé ósýnt um að ræða um þroska skáldsins í efsta stigi. Ekki síst vegna þess að í bókinni birtist þroski þess allur og samanburður við aðra höfunda því ósanngjarn. Um það leyti sem Nei Ara kemur út eru skáldbræður hans og jafn- aldrar á borð við Jóhann, Dag og Þorstein frá Hamri að senda frá sér sína aðra og jafnvel þriðju bók. En enginn skyldi þó skilja orð mín svo að ljóð Ara séu ekki mikilsverð. Þau eru það en þau eru eigi að síður æskuljóð sem einkennast af leiftrandi eldmóð. Viðfangsefni bókarinnar eru raunar sum hver á líkum nótum Ari Jósefsson og hjá öðrum samtímaskáldum. Friðarboðskapurinn var þannig ásækið yrkisefni um þetta leyti. Greina má einnig í kvæðum Ára átök uppflosnaðrar bændamenn- ingar og vaxandi borgarmenningar í köldu stríði samtimans (Gamalt hús, Leit) en það var algengt við- fangsefni á þessum árum. Raunar er mér til efs að mörg ljóð tímabils- ins túlki betur áraun kynslóðarinn- ar en Leit. í öðrum kvæðum birt- ast þjóðsagnaminni (Draugagil, Eftirreið) líkt og hjá Hannesi Pét- urssyni, Þorsteini frá Hamri og fleirum. Sömuleiðis á erótískt Ijóð, Ást, sem á skilið að njóta meiri athygli en hingað til, margt sam- merkt með þeirri dirfsku í kynferð- ismálum á þess tíma mælikvarða sem skáld á borð við Dag Sigurðar- son og Matthías Johannessen leyfa sér. Varir okkar hafa gróið saman utan um tvö lítil og skritin dýr sem iða af ást og njótast inní heitum og rauðum heimi sem varir okkar hafa lokast um Umfram allt er Nei í mínurn huga bók uppfull af loforðum um glæsilegt framhald sem því miður varð aldrei að veruleika. En ljóð Ara eru einnig það kröftugur skáldskapur að þau hafa lifað af árin þijátíu og sex frá því að þau komu út. Það eitt ætti að segja nóg um gildi þessarar bókar. Því er endurútgáfa hennar ljóðaunn- endum fagnaðarefni. Skafti Þ. Halldórsson Morguhblaðið/Þórdís EGILL Arnarsson búinn undir tökur. Spennandi loka- keppni í „Spurning fyrir meistara“ í GÆRKVÖLD voru samankomnir tíu þátttakendur sem unnið höfðu til sigurs í fyrri hluta keppninnar sem fram hefur farið undanfarna daga. Egill Arnarsson var hinn yfir- vegaðasti þar sem hann var undir- búinn af förðunarsérfræðingum og tæknimönnum. Fyrst kepptu til úr- slita Joseph frá Egyptalandi, Adja frá Burkina Faso, Madeleine frá Þýskalandi, Bruno frá Vanuatu og Egill, okkar maður. Eftir mikið umstang og myndatökur ljósmynd- ara og dans íturvaxinna meyja hófst keppnin. Hún skiptist í þijá liði, fyrst svöruðu þátttakendur spurningum tengdum almennri þekkingu og komst Egill áfram í næsta lið ásamt Egyptalandi og Burkina Faso. Julien Lepers tók Egil tali og tjáði sjónvarpsáhorfendum við mikla kátínu allra viðstaddra að nafn lians Egill þýddi „le terrible" eða hinn skelfilegi (ægilegi). Egill kynnti síð- an Island í grófum en góðum drátt- um og sagði síðan nokkur vel valin orð á íslensku að beiðni Julien Le- pers. Þá tók við næsti liður keppn- innar þar sem keppendur völdu sér viðfangsefni, og valdi Egill sér tungumál heimsins af þremur mögu- leikum. Spurningarnar voru mjög erfiðar viðfangs og datt Egill þar með úr keppni. Vorum við íslensku áhorfendurnir vonsviknari en Egill sjálfur sem tók ósigrinum með stóískri ró og glæsibrag hins sanna herramanns. Hann stóð sig með af- brigðum vel en úrslit í öðrum lið keppninnar eru að vissu leyti háð heppni, þar sem viðkomandi veit ekki hversu erfiðar spurningar í völdu þema reynast og er það helsti galli keppninnar hversu miserfiðar þær eru eftir viðfangsefni. Þannig fengu sumir keppendur léttar spurn- ingar en aðrir, eins og Egill, erfiðar. Vinningshafi kvöldsins var Luigi, fertugur Itali, og hlaut liann þijátíu þúsund franka og ferð frá Itaiíu fyrir tvo til Parísar og Provence héraðsins í Suður-Frakklandi, í öðru sæti var Joseph, fjörutíu og níu ára Egypti, og hlaut hann þrjátíu þúsund franka og ferð fyrir tvo frá sínu heimalandi til Parísar og Provence-héraðsins. Kvöldinu lauk með kampavíns- vökvun, dansi og almennri gleði þátttakenda sem virtust vera orðnir góðir vinir. Lokaveislan minnti á hve lítið þarf til að brjóta upp kortlögð landamæri eða hin sem ókortlögð eru, orðin til vegna ólíkrar menning- ar, húðlitar og siða, þálttakendur keppninnar „Spurning fyrir meist- ara“ lituðu höfuðborg Frakklands þessa nótt öllum regnbogans litum sem sameinuðust undir hljóðfalli al- þjóðlegrar danstónlistar. Síðustu sýningar hjá Hugleik SÍÐUSTU sýningar hjá Hugleik á Embættismannahvörfum verða í Tjarnarbíói í kvöld og föstudaginn 2. maí. Sýningar heíjast kl. 20.30 og er miðasalan opin sýningardag- ana frá kl. 19. „Leikritið sem hefur fengið góðar viðtökur gerist á Korpúlfsstöðum. Enibættismenn borgarinnar, sem eiga þangað erindi, hverfa sporlaust með dularfullum hætti. Ungur emb- ættismaður, Friðþjófur, er sendur til að leita þeirra. Hann verður margs vísari, því að margt er öðru- vísi á þessu fornfræga kúabúi- en hann átti von á, og örlög embættis- mannanna önnur en nokkurn hefði órað fyrir,“ segir í kynningu. ✓ Eg þakka þá sœmd sem mér var hvar- vetna sýnd á afmœli mínu. Halldór Laxness Faxafeni 5 MJv 108 Reykjavík Im Sími 533 2323 Rfln Fax 533 2329 IRlllli tolvukjor@itn.is Opið virka daga 12:00-18:30 fimmtudaga 12:00-22:00 og laugardaga 10:00-16:00 a Annat kr. 22.500 .Tolvukior Tolvu.- verslun heimilanna Einstakt tæKÍfæri! oM 11nimtudagskvolil Fræðsla \ & fjör íTölvukjör j Örgjörvig Minni :m Skjár: J| Disku pf Skjáklrt: Hljóö|or1 Geisl |iri Háta ara Lykk bón Hugbíná Pentium 100 Mhz 16 Mb ED0 17 Visual Sound litaskjár 2,5 Gb Quantum 2 Mb S3 Trio 64 VT :: SoundBlaster 16 í: 8 hraða Toshiba r: SoundWave 240 W wM 3: Windows 95 ður: 0Z Virtual Windows 95 Skemmtilegur Leikjapakki Bjóðum nú örfáar mjög öflugar margmiðlunartölvur með 17" skjá á hreint frábæru verði! Pentium 100 Mhz ) JVIargmiðlunartölva j f med 17" skjá ) Litaprentari J Canon BJC-240 J Hágæða litableksprautuprentari 720 dpi upplausn - 3 bls/mín Arkamatari f. 100 biöð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.