Morgunblaðið - 30.04.1997, Síða 57
r
i
1
í
J
1
I
•1
(
4
(
I
i
(
(
(
I
(
i
(
MORGUNBLAÐIÐ_ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1997 57
MYNDBÖIMD/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓIMVARP
, Morgunblaðið/Ásdís
JON Steinar Ragnarsson handritshöfundur.
Ég hef nef
fyrir sögxi
Handritaskrif em mikið þolinmæðisverk. Mörg ár
geta liðið frá því að höfundur fær hugmynd, og
þar til hún verður að kvikmynd. Jón Steinar
Ragnarsson er nú að skrifa fjórðu drög að hand-
riti sínu Ikíngút. Hildur Loftsdóttir fékk
hann til að segja frá sér og verki sínu.
„IKÍNGÚT er inúítamál og þýðir
vinur, og þetta er saga um vináttu.
Grænlenskur drengur fær þetta nafn
því þetta er það fyrsta sem hann
segir þegar hann hittir aðalsöguhetj-
una sem hræðist hann,“ segir Jón
Steinar.
Myndin gerist á Ströndum
skömmu eftir galdrafárið. Afkoman
er hörð og fólk trúir á galdra, skrímsli
og forynjur. Lítinn Grænlending rek-
ur að landi á ísjaka. Bóas, sem er
tíu ára drengur, verður vitni að því
og álítur að þar sé kominn marbend-
ill. Fólk telur að þar sé komin ástæða
harðindanna, og vill ná þessu skrímsli
til að granda því. Þótt Bóas og Græn-
lendingurinn séu orðnir vinir, fram-
selur faðir Bóasar hann, til að halda
frið í byggð. Bóas tekur sig til og
bjargar honum úr prísund, og mikill
eltingarleikur hefst.
„Þótt myndin sé í raun hálfgerð
hasarmynd, hefur hún göfugan und-
irtón.“
Hjartað hrátt
Fólk spyr sig oft að því hvernig
í ósköpunum höfundar og aðrir lista-
menn fái hugmyndirnar að verkum
sín. Jón Steinar ólst upp á ísafirði
og Ikíngut ber keim af því.
„í uppeldinu heyrði maður margar
sögur um galdrabrennur og harð-
indi, og jafnvel að Grænlending hafi
rekið og fundist dauður á jaka. At-
burðurinn sem kveikti hugmyndina
að sögunni sjálfri er að þegar ég var
strákur kom ísbjörn á Strandirnar.
Þá var hverri fleytu sem flotið gat
róið þangað í offorsi, án þess að
spurt væri hvers vegna það væri
slík nauðsyn að drepa þennan ís-
björn. Ég man vel eftir því æði sem
greip fólk. Þeir náðu birninum, og
drápu hann eins og frægt er orðið,
og átu úr honum hjartað hrátt. Þeg-
ar þeir komu til byggða var viss
blygðun yfir þeim. Þeir áttuðu sig á
því að þeir höfðu tapað þessu mann-
eskjulega í sér og orðið að villimönn-
um í augnablik."
Tilvísun í nútímasamfélag
Islenska kvikmyndasamsteypan
er framleiðandi kvikmyndarinnar
Ikíngut, og Friðrik Þór verður leik-
stjóri myndarinnar.
„Við áætlum að fara í tökur haust-
ið 1998. Myndin verður tekin að
vetri til að mestu leyti. Hún krefst
mikils undirbúnings, og verður dýr
og þung í vöfum. I myndinni verður
mikið af tæknibrellum og tölvugraf-
ík. Tökurnar fara væntanlega fram
vítt og breitt, en eins nálægt Reykja-
vík og hægt er. Staðfæring verður
gerð fyrir norðan, í því hrikalands-
lagi, og þar verða öll skot tekin sem
sýna umhverfi.
Þetta er ekki sögulega kórrétt
handrit, heldur ævintýri með sögu-
legu ívafi. Það á nú kannski eftir
að koma við einhvern íslendinginn,
því þeir eru mjög meðvitaðir um
sögu sína.
I svona ævintýramynd er lögð
mikil áhersla á sjónræna þáttinn.
Náttúran er ein af persónunum, og
hefur hún áhrif á öll viðhorf og at-
hafnir fólksins, eins og skuggi sem
hvílir yfir öllu. Þetta er saga um
ótta sem vekur af sér fordóma og
illsku. Hún hefur tilvísun í ýmislegt
í nútímasamfélaginu, eins og hvern-
ig við myndum okkur skoðanir gegn
minnihlutahópum og innflytjendum.
Það er undirtónn sögunnar að
staldra við og fræðast, reyna að
skilja af hveiju við höfum þessar
skoðanir og hvaðan við fáum þessi
viðhorf."
Eina stríðshetja íslendinga
Hefur hugur ísfirðingsins alltaf
staðið til skrifta?
„Ég átti alltaf að verða sjómaður,
þar sem ég er sjómannssonur. Ég
þótti mikill sveimhugi þegar ég var
strákur. Pabbi kallaði það skáldagrill-
ur og listamannagrillur, og það þótti
ekki par fínt. Svo var það í miðju
þorskastríði að ég endaði á Varðskip-
inu Tý. Það var siglt í klessu af frei-
gátu sem heitir Falmouth. Ég var sá
eini sem siasaðist um borð, og er
eina stríðshetja íslendinga.
Einn daginn þegar ég var að
haltra um til að liðka mig eftir slys-
ið, kem ég að Myndlista- og handíða-
skóla íslands, og þar var auglýst að
inntökupróf stæðu yfir. Ég tók próf-
ið og náði því, ótrúlegt nokk. Þann-
ig gripu forlögin inn í það að ég
losnaði úr farvegi smáþorparans og
komst inn í þessa myndlistakreðsu,
og byrjaði að stunda það sem hugur-
inn stóð til.
Aður var ég í áhugaleikhúsi vestur
á fjörðum þar sem ég lék, smíðaði
leikmyndir og skrifaði leikrit. M.a.
leikrit sem hefur verið sýnt víða og
heitir Hjálparsveitin. Síðan hef ég
farið á handritanámskeið, og unnið
við kvikmyndir í meira en átta ár.
Gerjun innan frá
Nú segja Ameríkanar að allir geti
skrifað handrit eftir þeim handrita-
formúlum sem þeir hafa skapað,
hvað finnst þér um það?
„Það er að ganga af amerískri
frásögn dauðri. Það er lítið sem kem-
ur á óvart lengur. Þetta er bara
markaðsvara, og maður sér æ
sjaldnar myndir sem virkilega snerta
mann. Hugmyndin mín er almennt
talin sérstök, og ég held að úrvinnsl-
an á henni hafi tekist vel. Ég veit
að ég get gert góða hluti. Ég hef
nef fyrir sögu.
Sem myndlistamaður hef ég hef
unnið við hönnun og það er eilíf
málamiðlun. Það á einnig við um
handritaskrif. Eftir tvö fyrstu drögin
lætur höfundur einhvern málsmet-
andi lesa þau yfir. Þá fyrst byijar
hausverkurinn sem felst í fínvinnu;
rekja handritið allt saman upp, taka
vissar persónur fyrir, kannski styrkja
heimildasöfnunina. Ameríkanar kalla
það „development hell“. Sum handrit
eru skrifuð 15 sinnum áður en þau
fara í framleiðslu. Svo kemur að því
að leikstjórinn þarf að koma sínum
skoðunum að, þar sem hann er alltaf
höfundur myndarinnar."
Að skrifa af hjarta
Er ekki ætlunin að skrifa annað
handrit þegar þessu er lokið?
„Ég er að vinna að hugmynd sem
fjallar um það að losna úr átthaga-
fjötrum. Hún mun gerast þegar Nix-
on og Pompidou komu til landsins.
Ég er nú þessi þorpari, þannig að
hún byggir að vissu leyti á sjálfsævi-
sögulegri reynslu.
Ég held að allar sögur sem eru
skrifaðar af hjarta séu viss meðferð
fyrir höfundinn. Það er eins og að
leggjast á bekkinn hjá sálfræðingi
og losa út, og átta sig á atburðum
í lífinu. Þegar handrit er í fram-
leiðslu fær maður sig ekki til að
skrifa neitt annað. Ég er það sem
ég er að gera þangað til meðgangan
er búin. Eg skil ekki eftir neina lausa
enda,“ segir Jón Steinar Ragnarsson
að lokum.
BIOIIM I BORGIIMIMI
Sæbjöm Valdimarsson / Amaldur Indriðason / Anna
Sveinbjamardóttir
BÍÓBORGIIM
Tveir dagar í dalnum -k'h
Lummó úrvinnsla á prýðilegri hug-
mynd. Einstaka atriði heppnast þó
ágætlega.
Lesið í snjóinn k k'A
Kvikmynd Bille August fer vel af
stað, andrúmsoftið er ógnvekjandi
og útlitið drungalega fallegt. Því
miður dregur afleitur leikur flestra
leikaranna og heimskuleg þróun
sögunnar myndina niður.
101 Dalmatíuhundur kk'A
Glenn Close fer á kostum sem Di-
sneynornin Grimmhildur Grámann
í ágætlega gerðri lifandi útgáfu
af teiknimyndinni.
Málið gegn Larry
Flynt kkk'A
Milos Forman er aftur kominn á
fljúgandi skrið með hræsnina að
leiðarljósi og afbragðsleikhóp.
SAMBÍÓIIM, ÁLFABAKKA
Michael ★ ★
Travolta í essinu sínu sem Mikael
erkiengill hér á jörðu í rómantískri
gamanmynd.
„Metro“ * ★
Eddie Murphy á fornum slóðum
Beverly Hills Cop og bætir engu
nýju við.
Aftur til fortíðar ★ ★
Enn ein afbökun skáldsögunnar
hans Mark Twain um Jankann við
hirð Artúrs konungs. Þessi tíma-
skekkjuútgáfa bætir engu við það
sem áður er gert en telst þokkaleg-
asta skemmtun fyrir yngri áhorf-
endur.
Innrásinn frá Mars kk'A
Svört vísindaskáldleg gamanmynd,
feiknavel gerð, en að þessu sinni
er Burton bitlítill og grínið einhæft.
Space Jam k k
Snillingurinn Michael Jordan og
Kalli kanína bjarga leikinni teikni-
mynd frá umtalsverðum leiðindum.
Við hæfi ungbarna og forfallinna
NBA-aðdáenda.
Kostuleg kvikindi k k'A
Fjórmenningaklíkunni úr „Fiskin-
um Vöndu“ tekst að gera prýðilega
gamanmynd þótt hún sé hvergi
nærri jafn snjöll og „Fiskurinn“.
Lesið í snjóinn kk'A
Sjá Bíóborgina.
101 Dalmatíuhundur kkk
Sjá Bíóborgina.
Jerry Maguire k * k
Sjá Stjörnubíó.
HÁSKÓLABÍÓ
The Return of the Jedi ★ k'A
Sjötta hluta vantar bæði ferskleika
og spennu fyrri myndanna. Myndin
býður engu að síður upp á fína
afþreyingu.
The Empire Strikes Back
kkkk
Besta myndin í Stjörnustríðs-
bálkinum. Mátturinn var sannar-
lega með Lúkasi í þetta sinn.
Stjörnustríð ★ ★ k'A
Endurunnið stríð í orðsins fyllstu
merkingu. Lengi getur gott batn-
að. Þessi tvítuga vísindafantasía
stendur fyrir sínu og viðbótin er
fagmennskan uppmáluð.
Kolya kkk'A
Töfrandi og hlý mynd sem yljar
bíógestum um hjartaræturnar.
Undrið kkk'A
Atakanleg saga um píanósnilling
sem brestur á hátindi frægðar
sinnar. Frábærlega kvikmynduð í
alla staði.
Leyndarmál og lygar ★ ★ ★ ★
Meistaraverk frá Mike Leigh um
mannleg samskipti, gleði og sorg-
ir og óvæntar uppákomur í lífi
bresks almúgafólks.
KRIIMGLUBÍÓ
Veislan mikla ★ ★ ★
Að hætti ítalskrar matargerðar
er veislan mikla búin til úr fyrsta
flokks hráefni, metnaðarfull, list-
ræn og ástríðufull og síðast en
ekki síst er eftirbragðið einkar
ánægjulegt og skilur eftir góðar
minningar.
Michael ★★
Sjá Sambíóin, Álfabakka.
Jói og risaferskjan ★ ★ k'A
Framúrskarandi brúðumynd fyrir
alla fjölskylduna. Furðuveröld Jóa
litla er bæði falleg og ógnvekjandi.
Michael Collins ★ k'A
Neil Jordan fer mjúkum höndum
um umdeilda, írska frelsishetju.
Liam Neeson er góður í titilhlut-
verkinu en Julia Roberts afleit.
101 Dalmatíuhundur ★ k'A
Sjá Bíóborgina.
LAUGARÁSBÍÓ
Crash ★★★
Cronenberg fjallar að vanda um
hluti sem heilla og vekja ógeð.
Crash er á freudískum nótum og
tekur fyrir dauðaþrána og bæklað
kynlíf.
Evitak ★ 'A
Madonna og Antonio Banderas eru
glæsileg, en það dugar ekki til að
fanga athyglina í of langri mynd.
REGIMBOGIIMIM
The Return of the Jedi ★ k'A
Sjá Háskólabíó.
Veiðimennirnir ★ ★ ★
Dramatísk löggu/spennumynd frá
Svíum með amerísku ívafi. Frum-
leg og forvitnileg lengst af.
Englendingurinn ★ ★ ★ 'A
Epísk ástarsaga. Meistaralega
framsett og frábærlega leikin
mynd um sanna ást.
Rómeó og Júlía ★ ★ ★
Skrautlega skemmtileg nútímaút-
gáfa á sígildu verki Shakespeares.
Luhrman er leikstjóri sem vert er
að fylgjast með.
STJÖRIMUBÍÓ
Undir fölsku flaggi ★ ★ ★
Góður samleikur stjarnanna í
myndinni gerir hana óvart að
spennudrama frekar en spennu-
mynd. Ólíkleg en áhrifarík.
Michael Rapaport fer
með hlutverk í einu
bandarísku myndinni
sem sýnd er á „Directors
Fortnight", mynd Matt-
hews Harrison, „Kicked
in the Head“.
Margar
frumraunir
á Cannes
FRAMBOÐ kvikmynda á
Cannes kvikmyndahátíðinni
var gríðarlegt í ár. Nýlega var
tilkynnt hvaða myndir yrðu
sýndar í flokki sem kallast
„Director’s Fortnight“.
Pierre-Henri Deleau, sem
stjórnar valinu í þessum
flokki, horfði að sögn á 743
kvikmyndir en það er 150
myndum fleiri en í fyrra. Del-
eau sagði í viðtali við Daily
Variety að magnið hefði verið
ofboðslegt í ár, t.d. hefðu bor-
ist 240 bandarískar kvik-
myndir.
Aðeins ein
bandarísk mynd
Eingöngu ein bandarísk
mynd verður sýnd á „Direct-
or’s Fortnight". Það er
„Kicked in the Head“, leik-
stýrt af Matthew Harrison
með Lindu Fiorentino, James
Woods, Michael Rapaport,
Kevin Corrigan og Lili Tayl-
or. Harrison hefur áður stýrt
„Rythm Thief“ en annars er
stærstur hluti myndanna sem
sýndar verða á „Director’s
Fortnight" frumraun leik-
stjóra.
Meðal þeirra sem eiga sína
fyrstu kvikmynd á Cannes
er David Trueba, bróðir
Fernando Trueba sem gert
hefur m.a. „Belle Epoque“
og „Two Much“. Mynd
Davids heitir„The Good
Life“ og er þroskasaga ungs
manns. Mohamed Camara
er einnig með sína fyrstu
kvikmynd í fullri lengd,
„Dakan", en hann vakti at-
hygli stjórnenda Cannes fyr-
ir nokkrum árum með flokki
stuttmynda.
Af öðrum leikstjórum má
nefna Alain Berliner („Ma Vie
en Rose“), Gaston J.M. Ka-
bore (,,Rabi“), Jose Luis Guer-
in („Train of Shadows“),
Udayan Prasad („My Son the
Fanatic“), Lynne Stopkewich
(„Kissed"), Naomi Kawase
(„Suzaku"), Adama Drabo
(„Loin-Cloth Power“), Lin
Cheng-sheng („Murmur of
Youth“), Vyacheslav Krisht-
ofovich („A Friend of the
Deceased“), og Ferzan Ozpe-
tek (,,Hamam“).
jr^