Morgunblaðið - 06.05.1997, Side 15

Morgunblaðið - 06.05.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 15 VIÐSKIPTI Norðmenn yfirtaka AVISá Islandi NORSKA fyrirtækið LIVA Bil sem starfrækir AVIS-bílaleig- una í Noregi og Svíþjóð hefur yfirtekið öll hlutabréf í Stjörnubílum hf., rekstraraðila AVIS á íslandi, að því er segir í fréttatilkynningu. Stjörnubílar hf. hafa verið umboðsaðilar AVIS-bílaleig- unnar hér á landi frá árinu 1989 og starfað á fimm stöð- um um landið. Heildarfjöldi bifreiða yfir háannatímann hefur verið að nálgast 200 bíla. Starfsmannafjöldi er 8 og heildartekjur félagsins árið 1996 námu um 100 milljónum króna. Um ástæður kaupanna seg- ir m.a. að rekstur bílaleigu sé fjárfrekur vegna mikilla fjár- festinga í bifreiðum og örrar tækniþróunar. Til þess að stuðla að frekari framþróun á íslenskum bílaleigumarkaði sé nauðsynlegt að hafa aðgang að íjármagni. LIVA Bil sé fjár- hagslega sterkt fyrirtæki sem rekið hafi AVIS með góðum árangri, bæði í Noregi og Sví- þjóð. Pálmar Sigurðsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Stjörnubíla, mun veita bílaleig- unni forstöðu, en Hafsteinn Reykjalín fyrrum eigandi og forstjóri snýr til annarra starfa. SR-mjöl hefur unnið úr um 1 milljón tonna frá einkavæðingu félagsins Engin teikn á loftí um samdrátt TÆPLEGA 1 milljón tonna af hrá- efni hefur verið unnin í verksmiðj- um SR-mjöls hf. frá því að ríkis- sjóður seldi félagið árið 1993. Á þessu tímabiii hafa mikilvæg met verið slegin bæði hvað varðar heildarafla ársins, svo og fram- leiðslu í einstökum mánuðum. Vinnsla júlímánaðar verður lengi höfð í minnum, en þá unnu verk- smiðjur SR-mjöls úr yfir 100 þús- und tonnum af loðnu, að því er fram kom í máli Benedikts Sveins- sonar, stjórnarformanns SR-mjöls á aðalfundi félagsins í gær. Félagið rekur 5 verksmiðjur Benedikt benti hins vegar á að erfitt væri að spá fyrir um veiðar og ætti það sérstaklega við um loðnu og síld. „En þrátt fyrir mik- inn afla í meira en 4 ár, þá eru engin teikn ennþá komin fram sem benda til samdráttar, þó ber að minnast þess að loðna er skamm- lífur fiskur og erfitt er að leggja mat á framtíðarafla nema til eins eða tveggja ára í senn.“ Á árinu 1996 var unnið úr 393 þúsund tonnum. Þetta er um 45 þúsund tonnum meira en unnið var 1993, en þá var eldra met slegið. Heildarframleiðsla mjöls nam 69 þúsund tonnum og heildarfram- leiðsla lýsis 44 þúsund tonnum. Verksmiðjur félagsins eru nú 5 talsins með heildarafkastagetu um 4.300 tonn á sólarhring. „Sé miðað við meðalnýtingu hráefnis og nú- verandi heimsmarkaðsverð jafn- gildir þessi afkastageta söluverð- mæti afurða að ijárhæð 50 milljón- ir króna á sólarhring," sagði Bene- dikt ennfremur. Varar við uppgangi umhverfisverndarhópa Ný verksmiðja SR-mjöls í Helgu- vík tók til starfa þann 25. febrúar, en reiknað er með að hún muni kosta um 900 milljónir króna. Benedikt Sveinsson gerði að umtalsefni áhrif umhverfisvernd- arhópa á eftirspurn eftir mjöii og lýsi og sagði ástæðu til að vara við uppgangi þeirra. Einkum ætti Morgunblaðið/RAX BENEDIKT Sveinsson, stjórnarformaður SR-mjöls, flutti skýrslu stjórnar á aðalfundinum. það við þá fyrirætlun þeirra að mynda eins konar ráð sem ætlaði sér að selja gæðamerki til þeirra sem uppfylltu reglur þær sem þeir sjálfir semdu. „Hér er um að ræða tekjustofn umhverfisvernd- arsamtaka sem gæti skilað þeim tugmilljarða tekjum á ári. Þetta yrði hrein skattheimta á íslenskan útflutning, eins konar umhverfis- tollur. Það er því mikilvægt að þær þjóðir og þær iðngreinar, þar með talinn allur fiskiðnaður á ís- landi, taki höndum saman og setji upp slík ráð og úthluti gæðast- implum til þeirra sem það eiga skilið og verði ekki háð duttlung- um alþjóðlegra umhverfissamtaka sem líkjast æ meir alþjóðlegum fyrirtækjum sem þurfa á tekjum að halda til að viðhalda sjálfum sér.“ Benedikt minnti hluthafa í lok ræðu sinnar á að rekstur fiski- mjölsverksmiðja væri áhætturekst- ur og miklar sveiflur væru tíðar í þessum atvinnuvegi. „Einkavinir“ 825 talsins Hluthafar SR-mjöls hf. eða „einkavinir“ eins og Jónas Aðal- steinsson fundarstjóri nefndi þá eru nú 825 talsins, en voru í upp- hafi 172. Samþykkt var að greiða 10% arð til hluthafa og heimila stjórn að gefa út jöfnunarhlutabréf fyrir allt að 180 milljónir. Óvissa ríkir um útgáfu jöfnunarhlutabréfa, þar sem ekki liggur fyrir ótvíræð niður- staða hjá skattyfirvöldum um það hveijar heimildir félagsins eru til slíkrar útgáfu. I stjórn voru kjörnir þeir Bene- dikt Sveinsson, Gísli Marteinsson, Leifur Ársælsson, Þorsteinn Hún- bogason og Örn Eriingsson. /cLar Tennis- skyrtur Gallabuxur Aih Sendum i pósikröfu, Grænt númer $00-5730. Simi 562-9730. Fax 562-9731 LAUGAVEGI 18 B - REYKJAVIK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.