Morgunblaðið - 06.05.1997, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 25
LISTIR
PÓLÝFÓNKÓRINN á tónleikum í Langholtskirkju árið 1985.
Pólýfónkór-
inn 40 ára
Á ÞESSU áru eru liðin 40 ár frá
því að Pólýfónkórinn hóf starfsemi
undir forystu Ingólfs Guðbrandsson-
ar. Sunnudaginn 22. desember 1957
efndi nafnlaus hópur undir hans
stjórn til jólatónleika í Laugarnes-
kirkju, en æfingar höfðu hafist þá
fyrr um haustið.
Það var svo 8. apríl 1958, sem
kórinn hélt sína fyrstu tónleika und-
ir nafninu Pólýfónkórinn í Gamla
bíói. Bæði nafn kórsins og verk-
efnaval vöktu þá þegar nokkra at-
hygli. En það var þó ekki síst flutn-
ingur kórsins á sjálfri efnisskránni
sem varð listunnendum tilefni til
umræðna.
í kynningu segir: „Stíli og söng-
máti kórsins stungu nokkuð í stúf
við það sem almenningur átti að
venjast fram að þessu og sýndist
sitt hveijum í þeim efnum. Ohætt
er að segja að kórinn hafi strax á
þessum fyrstu tónleikum markað sér
bás í íslenskri tónlistarmenningu og
verið trúr þeim grunntóni sem þá
var sleginn. Verkefnavalið þróaðist
síðar yfir í stærri verkefni, sem eins
og öllum er ljóst, eru samsett úr
smærri perlum en mynda saman eina
listræna og órjúfanlega heild í túlkun
og flutningi."
Saga kórsins fyrstu þijátíu árin
er til í bókarformi undir nafninu í
ljósi líðandi stundar og kórinn gaf
út hljómplötur og geislaplötur, og
enn mun til nokkurt upplag af flest-
um plötum í vörslu kórsins.
Kórinn hefur ekki starfað í ára-
tug, en í tilefni af þessum tímamót-
um ætla félagar Pólýfónkórsins að
beita sér fyrir samkomu föstudaginn
30. maí í Gullhömrum í Húsi iðnaðar-
ins, Hallveigarstíg 1.
Einsöngvara-
próf í Nor-
ræna húsinu
TÓNLEIKAR verða haldnir á vegum
Tónlistarskólans í Reykjavík í Nor-
ræna húsinu
þriðjudaginn 6.
maí kl. 20.30. Tón-
leikarnir eru síðari
hluti einsöngvara-
prófs Xu Wen,
sópran, frá skólan-
um. Píanóleikari er
Anna Guðný Guð-
mundsdóttir.
Á efnisskrá eru
lög eftir Sigvalda
Kaldalóns, Pál Isólfsson, Sigfús Ein-
arsson, Hugo Wolf og Richard
Strauss. Tveir ljóðaflokkar, annar
eftir Joaquin Rodrigo og hinn í út-
setningu Maurice Ravel. Einnig mun
Xu Wen syngja kínversk þjóðlög í
útsetningu Shen Wu Jun, Xie Gong
Chen og Tan Qi Jin.
Xu Wen sópran-
söngkona
Verðlaun í Smá-
sagnakeppni
VERÐLAUNAAFHENDING í smá-
sagnasamkeppni Torfhildar, félags
bókmenntafræðinema og Stúdenta-
ráðs Háskóla íslands fór fram 10.
apríl sl. á efri hæð Sólon Ísiandus
Alls bárust í keppnina 53 sögur
eftir 31 höfund. Dómnefnd skipuðu
dr. Guðni Elíassorp Bragi Ólafsson
og Stefán Baldur Árnason.
Fyrir þijú efstu sætin voru veitt
bókaverðlaun frá Máli og menningu.
Sögurnar sem skipuðu þijú efstu
sætin voru allar eftir sama höfund-
inn, Huldar Breiðfjörð. Verðlauna-
sögurnar heita: Þegar rafmagnið fór
af, Helena og Undir hnattkúluhatti.
Þær munu birtast í næsta tölublaði
Tímarits Máls og menningar.
Margmiðlunardiskur um
norræna kvikmyndagerð
UPPLÝSINGADISKURINN
Nordick Film Finder CD-ROM er
kominn út. Á þessum nýja margmiðl-
unardiski er að finna alhliða upplýs-
ingar um kvikmyndagerð á Norður-
löndum, t.d. um kvikmyndagerðar-
menn, leikstjóra, leikara, stofnanir
og fyrirtæki, ásamt ítarlegum upp-
lýsingum um 82 nýjar kvikmyndir
frá löndunum fimm. Þar af eru átta
íslenskar kvikmyndir; Agnes, Á
köldum klaka, Benjamín dúfa,
Blossi/810551, Djöflaeyjan,
Draumadísir, Nei er ekkert svar og
Tár úr steini. Hægt er að skoða lif-
andi myndskeið og ljósmyndir úr
öllum kvikmyndunum 82.
Markmið með útgáfunni er að
efla dreifingu á norrænum kvik-
myndum, þ.m.t. íslenskum kvik-
myndum, og auðvelda fréttamönn-
um að vinna úr upplýsingum, en
handhafar disksins geta sótt efni á
disknum og notað í sjónvarpi, blöð-
um og öðrum fjölmiðlum. Stefnt er
að því að dreifa disknum til fagfólks
í kvikmyndaheiminum, s.s. til blaða-
manna, sjónvarpsrása og dreifingar-
aðila, og auk þess til áhugamanna
um kvikmyndagerð víða um heim.
Diskurinn verður kynntur á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í Frakk-
landi í næstu viku og síðan aftur á
fleiri kvikmyndahátíðum og -mörk-
uðum síðar á árinu.
Að útgáfu geisladisksins standa
Norræni kvikmynda- og sjónvarps-
sjóðurinn og kvikmyndastofnanir
Norðurlanda, en hugbúnaðarvinna
hefur alfarið farið fram hér á landi
og _er í höndum Nova Media ehf.
Á kvikmyndafundi var einnig und-
irritaður samstarfssamningur á milli
Kvikmyndasjóðs íslands og Nov-
aMedia um útgáfu á geisladisk um
íslenska kvikmyndagerð eingöngu,
þar sem kynntar verða um 80 ís-
lenskar kvikmyndir og saga kvik-
myndagerðar á íslandi verður rakin.
Gert er ráð fyrir að diskurinn komi
út í tilefni af 20 ára afmæli Kvik-
myndasafns Islands á næsta ári.
Morgunblaðið/Golli
ÞORFINNUR Ómarsson og Yilhjálmur Egilsson kynna margmiðl-
unardiskinn.
Elsti karlakórinn
TÖNLIST
Víðistaðakirkju
SÖNGTÓNLEIKAR
Karlakórinn Þrestir flutti innlend og
erlend söngverk undir stjóm Sól-
veigar S. Einarsdóttur. Einsöngvarar
voru Trausti Gunnarsson, Jóhannes
Baldursson, Helgi Þórðarson og Om
Amason. Undirleikari var Daniel
Þorsteinsson. Fimmtudagurinn 1.
mai 1997.
FRIÐRIK Bjarnason, tónskáld,
stofnaði Karlakórinn Þresti 19. febr-
úar 1912 og telst kórinn því vera
elsti karlakór landsins, hefur lagt
að baki 85 starfsár. Við lestur efnis-
skrár má sjá að hinn félagslegi þátt-
ur kórstarfsins er mikilvægur ásamt
því að syngja vel og gleðjast með
söngelskum félögum sínum.
Efnisskráin ber því með sér
tvennt; að syngja skemmtileg lög
en einnig að sýna sig í stærri tón-
verkum eins og þeim sem skipað var
síðast á efnisskránni. Tónleikarnir
hófust á Sveinar kátir syngið, hressi-
legu lagi sem var vel sungið, enda
birtir textinn markmið kórstarfsins
og sama má segja um tvö næstu lög
Vel er mætt til vina fundar og lag
Bjarna J. Gíslasonar Sönggyðjan þar
sem sönggleðinni er sungið lof. Lag-
ið Nótt, við fallega næturstemmningu
Þorsteins Erlingssonar, var sérlega
vel sungið og sama má segja um
Vögguvísuna frægu eftir Brahms,
þó aðeins mætti heyra að tenórinn
væri á köflum lágur í tóninum, sem
virtist helst áberandi þegar sungið
var veikt, þá vantaði stuðning við
tóninn. Til minningar um misheppn-
aðan tónsnilling, var á köflum helst
til hægt sungið. Fjallið Skjaldbreiður
var hressilega sungið en lagið, sem
er ágætt, hefur allt aðrar áherslur
en ljóðið og er dæmigert fyrir þá
iðju okkar íslendinga fyrrum, að velja
lög sem hljóðfallslega eiga ekki við
textann, eins og t.d. Hvað er svo
glatt og mörg fleiri vinsæl lög.
Sefur sól hjá ægi eftir Sigfús Ein-
arsson var sérlega vel sungið og einn
af barítón söngvurum kórsins,
Trausti Gunnarsson, söng einsöng í
lagi Jóns Laxdal Ég veit að metorð
og völdin há og Mánaskini Eyþórs
Stefánssonar og gerði það ágætlega
og síðar á tónleikunum söng félagi
úr tenórnum, Jóhannes Baldursson,
einsöng í laginu Vor eftir Pétur Sig-
urðsson og Áfram eftir Árna Thor-
steinsson. Báðir eru félagarnir góðir
raddmenn, en sérstaklega þó Jó-
hannes, sem hefur mikla og mjög
góða tenórrödd. Næstu lög voru
ýmist ættjarðar- eða skemmtilög og
síðast þeirra var Hreðavatnsvalsinn,
eftir Reyni Geirs, sem sló í gegn á
sínum tíma. Gömul klaustursaga
eftir Jaroff er ekki merkileg tón-
smíð, en einsöng í laginu söng Helgi
Þórðarson af þokka. Örn Arnason
leikari var hápunktur skemmtunar-
innar, er eftir nokkra trúleysisbrand-
ara söng með kórnum Hraustir menn.
Það er löngu vitað að Örn og reynd-
ar fleiri í Spaugstofunni, eins og t.
d. Pálmi Gestsson, eru miklir söng-
menn og hefðu sem best getað lært
til að verða alvörusöngvarar.
Það sem eftir lifði tónleikanna,
voru flutt söngverk eins og Úr útsæ
rísa íslandsijöll, eftir Pál ísólfsson,
er var nokkuð vel sungið, Ræningja-
kórinn eftir Verdi, sem á köflum vildi
riðlast en það bætti kórinn upp með
hollensku þakkarbæninni og síðast
með því snjalla tónverki, Brennið þið
vitar, eftir Pál ísólfsson, sem var
mjög vel flutt. Karlakórinn Þrestir
undir stjórn Sólveigar S. Einarsdóttur
er vaxandi kór og þó val hennar á
verkefnum sé ef til vill einum of og
einhliða nærri skemmtuninni á hún
einnig til að leika með fíngerð blæ-
brigði, sem mátti heyra í lögum eins
og Nótt, Sefur sól hjá ægi og í hol-
lensku þakkarbæninni. Undirleikari
var Daniel Þorsteinsson, er lék ágæt-
lega en var þó helst til baka, eins
og t.d. í söngverkum Páls, sem leika
má hressilega og af krafti.
Jón Ásgeirsson
sjötíu og fimm ára
afmælisárs
Bræðranna Ormsson
Þýskt yörumerki
þýskt hugvit
þýsk framleiðsla
ÞRIGGJA ÁRA
Abyrgð A öllum
AEG
ÞVOTTAVÉLUM
...bjoðum við
Lavamat 530
þvottavel
á serstöku afmælisverði
5Z0HL
Eitt verð kr:
Umboösmenn:
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúö.Búöardal.
Vestfiröir: Geirseyrarbúðin.Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvík.Straumur.ísafiröi.Norðurland: Kf.Steingrímsfjaröar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga.
Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúö.Sauöórkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvík. KEA, Siglufiröi. KEA, Ólafsfirði. Kf. Þingeyinga,
Húsavík.Urð, Raufarhöfn.Lóniö, Þórshöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi.Versiunin Vík, Neskaupstað.
Kf. Fóskrúðsfiröinga, Fáskrúðsfirði. KASK.Djúpavogi. KASK, Höfn. Suöurland: Mosfell, Hellu.Rafmagnsverkstæöi KR, Hvolsvelli. Árvirkinn, Selfossi. Rás,
Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
• „Öko-System" sparar allt aS 20% sápu
• Taumagn: 5 kg
• Vindingarhra&i: 800 snúningar á mín,
meS hægum byrjunarhraSa.
• Hitastillir: Sér rofi, kalt -95'
• Þvottakerfi: Öll hugsanleg
ásamt sparnaSarkerfi
• Ullarkerfi: Venjulegt mikiS vatnsmagn,
hægur snúningur á tromlu
• 1 /2 hnappur: Minnkar vatnsnotkun
þegar lítiS er jjvegiS
• Vatnsnotkun: 98 lítrar
• Orkunotkun: 2,2 kwst