Morgunblaðið - 06.05.1997, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ1997 49
ÞÓRÐUR ARNAR
HÖSKULDSSON
+ Þórður Arnar
Höskuldsson,
fæddist í Reykjavík
14. nóvember 1950.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur
28. apríl síðastlið-
inn. Hinn 18.2.
1976 kvæntist
Þórður Unni Ragn-
hildi Leifsdóttur, f.
24.10.1958, d.21.2.
1988. Þau eignuð-
ust soninn Leif
Orra, f. 1974. For-
eldrar Þórðar eru
Sigrún Anna Guð-
jónsdóttir, f. 12.8. 1928, d.
14.1. 1970, og Höskuídur
Þórðarson, vélfræðingur, f.
27.7. 1926. Sambýliskona hans
er Hafdís Guðmundsdóttir, f.
27.1. 1944. Systkini Þórðar
eru: 1) Höskuldur lyfjafræð-
ingur, f. 16.5. 1956. Sambýlis-
kona Aðalheiður Ríkarðsdótt-
ir, tölvunarfræðingur, f. 5.6.
1959. Börn þeirra eru Jakob
Hrafn, Rakel Sara og Lea
Ösp. 2) Guðjón,
vélvirkjameistari,
f. 19.4. 1957. 3)
Kristjana, innan-
húss- og hús-
gagnaarkitekt, f.
20.5. 1960. Sam-
býlismaður Viðar
Karlsson, jarð-
fræðingur, f. 4.5.
1957. Börn þeirra
eru Arnar Narvi
og ívar Snær.
Þórður lauk
sveinsprófi í
rennismíði 1974,
4. stigi í Vélskóla
íslands 1979 og atvinnuflug-
mannsprófi 1979. Hann var
vélsfjóri hjá Eimskip
1979-82, vélstjóri þjá BÚR
1982-84, vann hjá Heklu hf.
1984-85 og hjá Húsasmiðj-
unni 1986-88. Hann var vél-
stjóri á Jóni Baldvinssyni frá
1988 til dauðadags.
Útför Þórðar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
í dag kveð ég með söknuði
góðan vin minn Þórð, eða Tóta
eins og ég kallaði hann. Ég kynnt-
ist Tóta fyrst árið 1974 er hann
kom á heimili föður míns á Hof-
teignum, í fylgd Unnar systur
minnar, sem síðar varð eiginkona
hans. Tóti og Unnur hófu sinn
búskap í kjallaranum á Hofteign-
um, þar sem þau bjuggu ásamt
einkasyni sínum Leifi Orra sem
er fæddur 1974.
Lífsbarátta þessarar litlu fjöl-
skyldu mótaðist fljótlega af þung-
bærum veikindum. Tóti var hald-
inn sjaldgæfum sjúkdómi sem
kostaði hann margar skurðaðgerð-
ir og nokkrar sjúkrahúslegur.
Unnur veiktist síðan árið 1984 af
arfgengri heilablæðingu, sem hef-
ur heltekið fjölskyldu okkar, og
lést Unnur 28 ára gömul árið
1987, eftir langa og erfiða sjúkra-
legu.
Tóti vann lengst af á sjó, sem
vélstjóri. Nú síðast á togaranum
Jóni Baldvinssyni. Oft á tíðum
fárveikur stundaði hann sína
vinnu, ákveðinn í því að gefast
ekki upp. En svo fór að lokum að
ekki varð við neitt ráðið. Tóti
kvaddi þennan heim og hélt til
GRÓA ÓLAFSDÓTTIR
THORLA CIUS
+ Gróa Ólafsdótt-
ir Thorlacius
fæddist í Reykjavík
1. ágúst 1908. Hún
lést á Hrafnistu í
Reykjavík 29. apríl
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Ólafur Thorlacius,
f. 26.4. 1868, d.
10.4. 1915, og Mar-
grét Oddsdóttir
Thorlacius, f. 12.4.
1877, d. 9.1. 1966.
Systkini Gróu eru:
Guðmundur, f.
18.8. 1904, Þorleif-
ur, f. 23.6. 1907, látinn, og
Steinunn, f. 26.7. 1911.
Hinn 6. júní 1929 giftist
Gróa Guðmundi Halldórssyni
stýrimanni og skipsljóra frá
Hnífsdal, f. 6.6. 1903, d. 23.5.
1980. Þau bjuggu allan sinn
búskap í Reykjavík, lengst af
á Grenimel 3. Börn þeirra
Elsku amma mín.
Þó það sé skrítið að hugsa til
þess að geta ekki farið aftur í
heimsókn til þín og gætt sér á
konfektmola eða karamellu sem
þú áttir alltaf til inni í skáp hjá
þér, verð ég víst að reyna að sætta
mig við það. Þú ert nú komin til
hans afa og ég veit að þér liður
vel þar, en undanfarna daga leið
þér ekki sem best. Þú varst alltaf
svo hress og hlátur þinn var svo
smitandi og þegar þú hlóst lang-
aði mann helst til að faðma þig.
Það var alltaf svo gott að koma
til þín og mér leið alltaf svo vel í
návist þinni.
Ég gleymi því heldur aldrei þeg-
eru. 1) Gunnar, f.
3.10. 1929, kvænt-
ur Gerðu Lúðvíks-
dóttur. Þau eign-
uðust tvo syni,
áður átti Gunnar
einn son. 2) Guð-
ríður, f. 16.10.
1930, gift Ragn-
valdi Larsen. Þau
eiga fjögur börn.
3) Ólafur, f. 5.11.
1935, kvæntur
Dóru Jóelsdóttur.
Þau eiga tvö börn,
en Ólafur á þijár
dætur frá fyrra
hjónabandi. 4) Þorgeir, f.
24.10. 1944, kvæntur Mar-
gréti Stefánsdóttur. Þau eiga
þijár dætur, en Þorgeir á
tvær dætur frá fyrra hjóna-
bandi.
Útför Gróu fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 15.
ar þú heimsóttir okkur til Ameríku
og hvað öllum þótti gaman að fá
þig þangað. Svo þegar við fluttum
heim til íslands fórum við svo oft
í heimsókn til þín og þeir voru
margir sunnudagarnir sem öll fjöl-
skyldan hittist hjá þér og við fórum
öll saman í sund.
Elsku amma mín, þó þú sért
nú dáin munt þú ætíð lifa í hjarta
mínu og í hvert skipti sem ég
hugsa til þín vakna upp margar
góðar minningar. Þar til ég hitti
þig á ný þegar ég kveð þennan
heim, munt þú alltaf eiga þér stað
i hjarta mínu.
Gróa Ólöf
Þorgeirsdóttir.
nýrra heimkynna, þar sem honum
hefur án efa verið vel tekið. Marg-
ar samverustundir áttum við hjón-
in með Tóta á heimili okkar í vet-
ur og verða þær okkur nú dýrmæt-
ar minningarperlur um góðan
dreng. Erfið eru spor einkasonar-
ins Leifs Örra á komandi árum,
en minningar hans um góða og
glæsilega foreldra fylgja honum
áfram.
Það er svo tæpt að trúa heimsins glaumi,
því táradöggvar faila stundum skjótt,
og vinir berast burt á tímans straumi,
og blómin fölna á einni hélunótt.
Því er oss best að forðast raup og reiði
og ijúfa hvorki tryggð né vinarkoss,
en ef við sjáum sólskinsbletti í heiði,
að setjast allir þar og gleðja oss.
(Jónas Hallgr.)
Dagný Hildur.
í dag er lagður til hinstu hvílu
vinur okkar og nágranni, Þórður
Arnar Höskuldsson sem látinn er
langt um aldur fram.
Fyrir 17 árum fluttu þau Þórð-
ur, Unnur og Leifur í sama stiga-
gang og við í Kambaselinu, þar
sem við höfum búið síðan í góðu
nágrenni. Á 17 árum er ekki hægt
að komast hjá að bindast vina-
böndum sérstaklega þegar um
börn er að ræða á sama aldri en
synir okkar voru í sama bekk í
gegnum grunnskólann. Konu sína
missti Þórður fyrir u.þ.b. 10 árum,
eftir erfíð veikindi og varð sam-
gangur milli heimila okkar meiri
eftir það.
Við þökkum Þórði ánægjulega
samfylgd í gegnum árin og send-
um Leifí og öðrum vandamönnum
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Andrés, Sólveig og börn.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir Iiðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem.)
í dag kveðjum við vin okkar
Þórð Arnar Höskuldsson. Kynni
okkar hófust í vélskólanum 1976.
Þórður var einn af þeim sem líka
var að hefja nám og hófst þar sú
vinátta sem ekki hefur borið
skugga á síðan. Hann bjó þá í
kjallaraíbúð á Hofteigi 14 ásamt
eiginkonu sinni Unni Leifsdóttur
og syninum Leifi Orra. Fjölskylda
Unnar átti heima á efri hæðinni.
En þau keyptu síðan íbúð í Kam-
baseli, þar sem þau gerðu sér fag-
urt heimili, en lífsbaráttan er hörð
og Þórður stundaði sjóinn af miklu
harðfylgi. Hann vildi koma sér og
fjölskyldunni sem best fyrir.
En margt fer öðruvísi en ætlað
er. Tíminn var naumur, Unnur
lést eftir erfíð veikindi 1988. Hún
varð okkur öllum mikill harm-
dauði. Það hafði verið mikill sam-
gangur á milli heimilanna og miss-
ir okkar var því mikill. Þórður
hélt áfram að koma að heimsækja
okkur þegar hann var í landi og
erum við hjónin þakklát fyrir allar
ljúfar stundir sem við áttum sam-
an.
Þórður hafði sjálfur átt við veik-
indi að stríða en hann tók því með
miklu æðruleysi og við trúðum því
að hann mundi hrista þetta af sér
nú eins og oft áður, en enginn
ræður sínum næturstað.
Við biðjum góðan Guð að blessa
og styrkja Leif Orra, einnig Hösk-
uld föður Þórðar, systkini og
tengdafjölskyldu sem sér á bak
góðum dreng.
Anton Valgarðsson,
Anna Karlsdóttir.
t
SVEINN M. BJÖRNSSON,
Köldukinn 12,
Hafnarfirði
sem lést mánudaginn 28. apríl síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Hall-
grímskirkju föstudaginn 9. maí kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélagið eða
Líknar- og hjálparsjóð Landsambands lögreglumanna.
Erlendur Sveinsson, Ásdís EgMsdóttir,
Sveinn M. Sveinsson, Guðrún Ágústa Kristjánsdóttir,
Þórður Heimir Sveinsson, Sólveig Lilja Einarsdóttir
Birgitta Engilberts,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir mín, amma okkar og lang-
amma,
LÁRA LÚÐVfKSDÓTTIR,
Dalbraut 27,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 3. maí.
Óskar Ágústsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg dóttir okkar,
JÓNA SJÖFN ÆGISDÓTTIR,
Hraunkambi 4,
Hafnarfirði,
lést af slysförum 4. maí.
Fyrir hönd vandamanna, vina og ástvina.
Anna Hauksdóttir,
Ægir Hafsteinsson,
Heimir Guðjónsson.
t
Bróðir minn og mágur,
HANNES GfSLASON,
Engihlíð 16,
áður Reykholti við Laufásveg,
lést á Landspítalanum 3. maí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ástdfs Gísladóttir, Kristmundur Jakobsson.
t
Ástkær eiginmaður minn,
SVERRIR SIGURÐSSON,
vélstjóri,
Huldulandi 11,
lést á Landspítalanum aðfaranótt 5. maí.
Jarðarförin auglýst siðar.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðmunda Lilja Sigvaldadóttir.
FALLEGIR OG LISTRÆNIR
LEGSTEINAR
UsfensÁIíönnun
l57o AESLATTUR
ÁGRANÍTSTEINUM
AFGREIÐSLAN OPIN KL. 13-18.
Nýbýlavcgi 30, Dalbrckkumegin
Kópavogi. Sími: 564 3555
ill-EG ,KAFFIHLAÐBOhB
ALLCGIR SÁLIR
OG’ MJÖG'GÓÐ þjqnústa
UPPLÝSÍNGAR í SÍMUM
7575 & 5050 925
'i . • 1 ’ . V L •
lOTEL L0FTLEJQIR
i C B L A M O
. H O T J CP»;