Morgunblaðið - 06.05.1997, Side 50

Morgunblaðið - 06.05.1997, Side 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Séra Jóhann Hlíðar fæddist á Akureyri 25. ágúst 1918. Hann lést í Landspitalanum að- faranótt 1. maí síð- astliðinn á sjötug- asta og níunda ald- ursári. Foreldrar hans voru Sigurður Einarsson dýra- læknir og alþingis- maður og Louisa Guðbrandsdóttir húsfreyja. Séra Jó- hann var ókvæntur. Jóhann varð stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri 1941, cand. theol. frá Háskóla íslands 1946 og stundaði framhalds- nám I kennimannlegri guðfræði og samstæðilegri guðfræði við Menighedsfakultetet í Ósló 1946-47. Hann var vígður prestvíslu 1948. Jóhann var ráðinn til predik- unarstarfa hjá Sambandi ís- lenskra kristniboðsfélaga 1947-53, settur sóknarprestur í Hvanneyrarprestakalli í * Elsku Jóhann minn. Minn besti vinur alla tíð. Ég sest niður og reyni að koma skipulagi á allar þær hugs- anir, minningar, sem fara gegnum huga minn á þessari stundu þegar þú, minn elskulegi frændi, fóstri, lærifaðir í skóia lífsins, hefur kvatt og farið til fundar við vin þinn, Drottin. Trú þín var sterk og hugur þinn viss um heimkomu til hans. Ég veit að ferð þín nú er sú sem þú taiaðir um; um grænar grundir, þar sem þú munt næðis njóta og . hlið himins opnast, fyrir gæsku hans. Ég á þér svo margt að þakka. Mín unglingsár markast af því að hafa verið þeirrar gæfu aðnjótandi að eyða þeim undir þinni leiðsögn. Ekkert var í raun nógu gott fyrir okkur systur, sem nuturry þinnar elsku þegar mikið lá við. Ég gæti talið upp ótal margt sem minnast má og okkar vinir frá unglingsárum, svo sem fjöldi unglinga safnast sam- an á „prestssetrinu" og presturinn sér um veitingar meðan unglingam- ir hlusta á tónlist með Elvis Pres- ley, Fats Domino og fleira í þeim dúr. Listakokkur varstu og þú kenndir mér að matbúa og ekki síst að útbúa veisluborð fyrir gesti. Þú leiddir mig upp að altarinu >sem hinn besti faðir og varst alla tíð sem besti „tengdafaðir" í huga Harðar. Ef ég ætti að rifja það allt upp tæki það margar blaðsíður. „Jó- hann afi“ ert þú og verður i huga sona minna. Ég sakna nú þegar samverustunda, símtala og þess að geta ekki aðeins rabbað, spurt ráða eða bara hlegið með þér yfir ein- hverri vitleysu, sem okkur datt í hug. Já, margs er að sakna. Elsku Jóhann minn. Ég bið þér góðrar „heimkomu“ og þakka þér af öllu hjarta fyrir allt sem þú gafst mér og ég bý að um ókomin ár. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, * hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) í hjarta mínu lifir minningin um þig- Brynja Hlíðar. Kæri Jóhann. Það er komið að för þinni úr þessum heimi og til annars heims sem við förum öll til að lokum. Þegar staldrað er við - minningar fljúga þær um í huganum og er þar af ýmsu að taka. Fyrstu minningamar um þig eru úr KFUM þegar ég var þar ungur drengur og sungið var af öllu afli „Áfram kristmenn krossmenn" svo heyrðist um næsta nágrenni. Þá varð ungur drengur bergnuminn af t þessum manni sem geislaði af með- al ungra drengja. Við munum báðir Siglufirði um tveggja mánaða skeið 1951, settur aðstoðarprestur í Vestmannaeyja- prestakalli 1954-56 og skipaður sóknar- prestur þar árið 1956 og gegndi því starfi til 1972. Hann var sóknarprestur í Nesprestakalli í Reykjavík 1972-75, þegar hann var ráð- inn prestur Islend- inga í Kaupmanna- höfn og starfaði þar til 1983. Auk prest- starfa sinnti hann stunda- kennslu við Menntaskólann á Akureyri 1949-52, Gagn- fræðaskóla Vestmanneyja 1954-72 og Stýrimannaskól- ann þar 1967-69. Eftir að hann lét af störfum bjó hann um skeið á Spáni. Hann var út- nefndur riddari Dannebrogs- orðunnar. Útför séra Jóhanns fer fram frá Fossvogkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. þegar mikill vinur allra drengja í KFUM, Friðrik Friðriksson, vitnaði í orðin: „Og þér munið með fögnuði vatn ausa úr lindum hjálpræðisins." Jes. 12.3. Það var því eins og end- urnýjun þegar leið okkar lá aftur saman á lífsleiðinni. Þá var gott að eiga þig að um margt sem á dagana hafði drifið eins og gengur og gerist. Þær minningar mínar um þig eru mér kærar þegar við gátum rabbað saman um lífið og tilveruna án þess að þú værir endilega að viðra þín trúarlegu viðhorf. Það varþví orðinn fastur punktur í tilverunni þegar ég og konan mín Guðrún Ingibjörg Hlíðar komum í orlofsíbúð okkar á Spáni að hafa strax samband við þig símleiðis. Alltaf sagðir þú: „Hve- nær komið þið? Við förum út að borða saman kl. 20. Gott væri ef þið gætuð komið aðeins fyrr og við rabbað saman örlítið áður.“ Það var líka sérstök tilfinning þegar þú lagði það á þig að búa til matinn sjálfur eins og þú gerðir þegar ég átti afmæli og við hjónin vorum í einni af orlofsferðum okkar sumarið 1995. Þú varst nefnilega afbragðs kokkur þegar þannig stóð á. Að lokum þetta, kæri Jóhann: Það að hafa verið ásamt fjórum af dætrum Gunnars bróður þíns og notið návistar þinnar sl. sumar, ekki vitandi það að það væri síðasta sum- arið okkar saman í þessum heimi, var Guðs gjöf. Það vantar því mikið þegar þín nýtur ekki lengur við og ekki verður það sama tilhlökkunin að fara til Spánar og áður. Börnin okkar Ingu sakna Jóhanns frænda. Guð blessi þig. Jean Jensen. Ef Guð lofar ber ég beinin á ís- landi, sagði hann eitt sinn og í dag er hann jarðsettur við hlið foreldra sinna í Fossvogskirkjugarði. Ég kveð nú kæran vin sem ég hef þekkt alla mína ævi. Jóhann Hlíðar og bróðir hans Guðbrandur voru „kostgangarar" heima hjá mér í æsku. Reyndar voru systkinin Brynja og Skjöldur þar líka um tíma og hundurinn Lubbi át stundum af eigin diski undir borði. Ég, barnið, tók slíku ástfóstri við þessa elskulegu bræður, sem voru þá á fertugsaldri, að oft og tíðum hlýt ég að hafa verið þeim óþægileg- ur skuggi þó aldrei yrði ég þess vör. Á afmælisdögum þeirra var mér og vinkonu minni boðið í afmæli klukkan þijú. Við mættum með slaufur í hári og í okkar fínasta pússi og settumst að veisluborði. Á eftir var farið í skollablindu og felu- leiki í þessu ævintýralega húsi á Helgamagrastræti 17, með turnher- bergi og fleiru sem gerði daginn að alvöru ævintýri. Við höfum oft brosað að því að allt sem þessir vinir mínir sögðu var tekið mjög bókstaflega. Ég er fædd 15. maí, um leið og litlu lömbin sögðu þeir, þá vissi ég að lömbin fæddust 15. maí, hvorki fyrr né síð- ar. Þegar ég fór í skóla var kenn- arinn með ónákvæmar skýringar á þessu, en ég vissi betur. Næstum hálfri öld síðar hringdi síminn á umræddum degi og þegar svarað var heyrðist langt og flott jarm á línunni, það var presturinn að hringja frá Spáni til að óska okkur lömbunum til hamingju með daginn. Árin liðu, við hittumst sjaldan, kveðjur bárust við og við. Síðar hitt- um við hjónin Jóhann í Kaupmanna- höfn þar sem hann var sendiráðs- prestur. Þar hringdi síminn látlaust, frá íslandi og öðrum löndum, og alltaf leysti þessi elskulegi maður úr málum eftir bestu getu. Aftur hittum við hann á Spáni, glaðan og hressan og oft kom hann í heimsókn til íslands. Mér til mikillar gleði endurnýjaði Jóhann kynni okkar Guðbrands og margar góðar stundir höfum við hjónin, Guðbrandur, Herder og Jóhann átt saman. Ef Jóhann var erlendis var hann með okkur í anda og hringdi þá gjarnan til að vera með í spjallinu. Árið 1949 var ég fjögurra ára, þá varð atvik á heimilinu til þess að bamið varð mjög upptekið af dauðanum í fyrsta sinn. Ræddum við Jóhann þá mikið saman og urðu niðurstöður þær að við vorum ekki hrædd við að deyja, því að þá færum við til Guðs og þar er alltaf hlýtt og bjart og alltaf jólin. Nú ertu far- inn kæri vinur, vertu sæll og hafðu þökk fyrir allt. Elsku Guðbrandur, Herder og bræðradæturnar fimm. Við Heiðar sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur. Jóninna. Presley-tímabilið var í hámarki og kappsfullir unglingar fóru geyst í lífsfjöri og tilþrifum, en þó var allt á sínum stað, Heimaklettur, Jökull- inn, kirkjan og bátarnir voru stöð- ugt að koma og fara. Við þessir ærsaflullu unglingar í Vestmanna- eyjum þessa tíma vorum svo lánsöm að eiga samleið með séra Jóhanni Hlíðar. Séra Jóhann var sérstök blanda af kristniboða og lista- manni, vandvirkur og nærgætinn, en mikill húmoristi og leikari af Guðs náð. Við óvænt fráfall bróður hans fluttust tvær bróðurdætur á heimili séra Jóhanns, Brynja og Hildigunn- ur rétt fermdar. Þessar glæsilegu og iífsglöðu stelpur pössuðu vel inn í hópinn á heimaslóðinni og ósjaldan fengum við húsaskjól fyrir spjall og sprell á prestsetrinu hjá séra Jó- hanni. Þar var ekkert verið að kvarta undan hávaða og lifið fékk að leika sér, en alltaf var það jafn óvænt og skemmtilegt þegar séra Jóhann brá sér inn í stofu úr eldhús- inu mekð Presley-hárkollu og tók eitthvert Presley-laganna með sömu tilþrifum og sjálfur rokkkóngurinn. Það var eins og dagur og nótt að sjá séra Jóhann í hempunni ann- ars vegar og Presley-töktunum hins vegar, en hann átti svo einkar hægt með hvort tveggja vegna þess að hann var svo sérstaklega vel gerð- ur, fordómalaus þótt hann væri kröfuharður, heimsborgari og mað- ur víddanna. Séra Jóhann Hlíðar var mjög vel liðinn prestur. Lengst af var hann í Vestmannaeyjum, en m.a. var hann lengi prestur í Kaup- mannahöfn og hjálpaði þá mörgum sem voru hjálparþurfi án þess að hátt færi. Hann leit á sig sem þjón Guðs og sem slíkum bæri að rækta lítillæti, hjálpsemi og þakklæti. Það innrætti hann okkur krökkunum þótt hann hvetti okkur jafnframt til þess að hika ekki við að sýna fram- tak og fijálslyndi, taka áhættu og gera gott úr hlutunum þótt eitthvað kynni að fara úrskeiðis í ungæðis- hættinum. Það voru mikil hlunnindi að fá að eiga samleið með séra Jó- hanni Hlíðar, eiga vináttu hans og góðvild. Það var sama hvað hann gerði þessi mikli heimsmaður, hvort hann hlúði að þeim sem áttu um sárt að binda, eða málaði fagrar myndir með olíulitunum sínum, allt einkenndist af kurteisi og mannkær- leika. Þó var hann óvenjulega opin- skár húmoristi og ég minnist til dæmis þegar ég heimsótti hann eitt sinn í Jónshúsi í Kaupmannahöfn. Ég beið eftir honum í stofunni, því við ætluðum út að borða. Þá vatt hann sér inn með tvær hárkollur á lofti og sagði glottandi: Þessi er hin opinbera, en þessi er prívat. Sú opin- bera var með styttra hári. Megi góður Guð fagna þjóni sín- um í hásölum himnanna og vernda þá sem eftir lifa. _ Árni Johnsen. Um miðjan 6. áratug þessarar aldar voru tveir sóknarprestar í Vestmannaeyjum, þeir sr. Halldór Kolbeins og sr. Jóhann Hlíðar. Þess- ir tveir menn voru ólíkir og settu hvor með sínum hætti svip á bæinn. Halldór var sérstæður prédíkari, barði í stólinn til þess að leggja áherslu á orð sín og þekkti hvert mannsbarn því að hann húsvitjaði víða. Var hann hvarvetna aufúsu- gestur. Séra Jóhann var 25 árum yngri, alinn upp með öðrum hætti og hlaut því að mótast á annan hátt. Stundum er sagt að tveir menn bæti hvor annan upp. En óhætt er að fullyrða að Eyjaménnn þurftu ekki á neinni uppbót að halda á þessum árum: þessir tveir menn voru öðlingar sem öllum vildu vel, gerðu vel og skyldu því virðir vel. Mig rekur ekki minni til þess hvenær ég kynntist sr. Jóhanni. Hann kom nokkrum sinnum á heim- ili foreldra minna og í minningunni finnst mér hann alltaf hafa verið til. Þegar ég sótti kirkju sem barn og unglingur hreifst ég af hinni fögru söngrödd hans og engan hef ég heyrt tóna jafn fallega og hann gerði. Þá birtist raddfegurð hans og einlæg trú sem hreif söfnuðinn með sér. Kynni okkar sr. Jóhanns Hlíðar urðu allnáin um tíma. Árið 1959 urðu Vestmannaeyingar sem aðrir landsmenn, fæddir árið 1952, skóla- skyldir. Foreldrar okkar tvíburanna vissu að torvelt yrði að korna okkur í venjulegan barnaskóla vegna sjón- depru og leituðu ráða hjá sr. Jó- hanni. Eg hef jafnan dáðst að því hvernig hann fór að: Hann sýndi okkur upphleypta stafí úr tré og teiknaði þá síðan á blað. Man ég að ég sá fyrst móta fyrir stafnum 0 þegar hann náði yfir fjórðung blaðsíðunnar. Sagði þá Jóhann að sjón okkar væri svo lítil að okkur nýttist ekki venjulegt letur. Varð því úr að við vorum sendir suður til náms í Blindraskólanum árið eft- ir, en það er önnur saga. Jóhann tók okkur hins vegar í tíma nokkrum sinnum í viku þennan vetur, las fyr- ir okkur, kenndi okkur sálma og kvæði og fræddi okkur um trúmál, sögu og ótal margt sem barnssálir hafa gaman af. Held ég að þessir tímar hjá Jóhanni hafi skipt mig meira máli en ég gerði mér grein fyrir. Auðvitað hitti ég Jóhann á sumr- um þegar ég dvaldist í Vestmanna- eyjum. Samskipti okkar urðu síðar meiri þegar ég settist í Gagnfræða- skóla Vestmannaeyja þar sem Jó- hann kenndi m.a. landafræði. Hon- um var einkar lagið að setja náms- efnið fram á lifandi hátt svo að landshættir og byggðasagan stóð mér ljóslifandi fyrir sjónum. Stund- um hafði hann þvílíka gamansemi í frammi við okkur nemendurna að okkur fannst það vart presti sæm- andi. Það var einn veturinn að föður mínum áskotnuðust heilmörg daga- töl frá Japan sem prýdd voru ýmsum myndum af stúlkum mislítið klædd- um. Sendi pabbi okkur bræðurna með þessi dagatöl vítt og breitt um bæinn og gáfum við þau m.a. ýms- um kennurum. Eitt sinn gerist það í landafræðitíma að Jóhann Hlíðar segir: „Bræður. Ég hef heyrt að þið séuð að dreifa almanökum með myndum af misjafnlega léttklæddu kvenfólki." Mig setti dreyrrauðan. Prestur hélt áfram: „Getið þið út- vegað mér eitt?“ Við urðum forviða og spurðum hvað hann, presturinn, ætlaði að gera með slíkt. „Ég er stundum að reyna að JOHANN HLIÐAR mála mannamyndir og þessi dagatöl kæmu sér einkar vel.“ Auðvitað fékk sr. Jóhann sitt dagatal með fallegum stúlknamynd- um og hefur það vonandi nýst í list- sköpun hans. Sr. -Jóhann var oft opinskár um hagi sína. Hann var orðinn sköllótt- ur þegar við kynntumst og þótti sumum það dálítil fordild hjá honum þegar hann fékk sér hárkollu. Skömmu eftir það hittumst við og þá sagði sr. Jóhann: „Þú veist víst að nú er ég kominn með hár.“ Ég kvað svo vera og sagði að mér þætti hann sýna af sér mikið hugrekki því að vart væri um annað talað en hárið á sr. Jóhanni. „Já, Arnþór minn, eins og þú veist hef ég verið bersköllóttur lengi og mjög höfuðveikur. Þessi hárkolla er eitthvert besta höfuðveikimeðal sem ég hef fengið því að hún ver höfuðið kulda.“ Hins vegar varð ég ekki eins hrif- inn þegar ég hitti Jóhann og hann kveikti sér í vindlingi. Þegar ég hneykslaðist á þessu svaraði hann: „Það er nú þannig að þegar ég ferð- ast um landið sé ég hvað mikið þarf að gera til að græða það upp. Mér er sagt að Landgræðslusjóður fái hluta af því sem kemur inn fyr- ir tóbakið og þess vegna er þetta ákjósanleg leið til að styrkja skóg- rækt í landinu," við hiógum báðir og ekki hneykslaðist ég framar. Hin síðustu ár stijáluðust mjög samskipti okkar sr. Jóhanns. Hann bjó langdvölum á Spáni en ég hafði þó spurnir af honum annað veifið. Nú, þegar ég frétti andlát þessa aldna heiðursmanns, hvarflar hug- urinn aftur til löngu horfinna tíma sem eru þó býsna nærri, þegar að- staða fatlaðra barna og foreldra þeirra var fyrst og fremst háð vel- vilja almennings. Að vísu voru þeir, sem blindir voru, betur settir en margir aðrir því að þeim var tryggð grunnmenntun. En það skipti æði miklu máli hvert upphafið var. Sr. Jóhanni Hlíðar vil ég þakka gott upphaf og bið Guð að blessa minn- ingu hans. Arnþór Helgason. Söfnuður Landakirkju kveður í dag, ástsælan prest, sem þjónaði í Vestmannaeyjum í nærfellt tvo ára- tugi. Séra Jóhann S. Hlíðar kom fyrst til starfa í söfnuðinum 1954 í veik- indaforföllum séra Halldórs Kol- beins, sem lengi þjónaði okkur, hvers manns hugljúfi og mikill kennimaður. Er að því kom, að séra Halldór kæmi til starfa á ný, hafði séra Jóhann unnið sér þann sess í söfn- uðinum, að undirskriftasöfnun fór fram um að íjölga prestum til að tryggja áframhaldandi starfskrafta hans. Var séra Jóhann einn í kjöri og að sjálfsögðu skipaður prestur og þjónaði okkur með prýði til árs- ins 1972. Við vorum stundum að gantast með, að hann hefði fundið á sér hvað biði safnaðarins, er jarðeldar brutust út á Heimaey ári síðar. Þá var séra Jóhann orðinn prest- ur í Nessókn og minnumst við með þakklæti, er stofnað var barnaheim- ili fyrir Vestmannaeyjabörn í Safn- aðarheimili Neskirkju veturinn 1973. Árin sem séra Jóhann þjónaði okkur eru björt í minningunum. Hann hafði svo einstaklega ljúfa framkomu, utan kirkju og innan. Mikill söngmaður, tón hans fágað og þróttmikið. I prédikunum leyndi sér ekki, að einlægur trúmaður var að tjá sig. Á fyrstu árum sínum hér, reisti séra Jóhann myndarlegt íbúðarhús, sem um ókomin ár mun setja svip á bæinn. Okkur þótti ákaflega vænt um, er hann endaði farsælan feril sinn í starfinu með þjónustu í söfnuði Landakirkju á 70. ári sínu sumarið 1988. Að leiðarlokum eru einlægar þakkir í huga okkar og biðjum við séra Jóhanni blessunar á Guðsveg- um. Jóhann Friðfinnsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.