Morgunblaðið - 06.05.1997, Page 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
NOKKRIR hestar komu fram tii kynningar og þ.á m. FAXI frá Hóli reynir nú að feta í fótspor stóra bróð- GAUTI frá Gautavík náði góðum einkunnum, 7,88, 8,41
var Logi frá Skarði sem Sigurbjörn Bárðarson sýndi. ur, Þyts frá Hóli. Knapi er Þórður Þorgeirsson. og 8,14 samanlagt. Knapi er Jón Gíslason.
Misjafn sauð-
ur í niörgn fé
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
GUSTUR frá Grund heldur sínu eftir sýninguna í Gunnarsholti,
flugrúmur fjörgammur með brokki eins og best gerist. Knapi sem
fyrr var Sigurður V. Matthíasson og var honum vandi á höndum
að sýna þennan mikla viljahest en komst frá því með sóma.
GLAÐUR frá Hólabaki er nýtt nafn í stóðhestaheiminum, líklega
eitt hæst dæmda afkvæmi Garðs frá Litla-Garði en fæddur í
Húnavatnssýslu. Það er gleðiefni fyrir Húnvetninga að komast á
blað með góðan stóðhest sem Sigurður Matthíasson sýndi.
HESTAR
Stóðhcstastöðin
í Gunnarsholli
KYNBÓTADÓMAR
STÓÐHESTA
FIMMTÍU og einn stóðhestur hlaut
fullnaðardóm á sýningu stóðhesta-
stövarinnar í Gunnarsholti í síðustu
viku og sex hestar hlutu dóm fyrir
sköpulag. Eins og gengur voru þar
misjafnir sauðimir í hjörðinni en það
sem mest er um vert er að þar komu
fram margir vel frambærilegir kyn-
bótahestar og nokkrir þeirra af-
bragðsgóðir. Eins og oft hefur gerst
var smáúlfúð og óánægja með störf
dómnefndar sem að þessu sinni var
skipuð tveimur mönnum samkvæmt
nýju fyrirkomulagi, þeim Kristni
Hugasyni landsráðunauti hrossa-
ræktar og Ágústi Sigurðssyni kyn-
bótafræðingi. Meðal þess sem ergði
menn voru lágar einkunnir sem sum
hrossanna fengu. Ein ástæða fyrir
þessum kurr gæti verið sú, að mati
dómaranna, að einkunnir voru að
þessu sinni birtar svo til strax eftir
að dómi á hveiju hrossi lauk og
menn ekki vanir að fá tölurnar strax.
Þetta hafi ekki virkað vel á sýnend-
ur lakari hrossanna og menn farið
í baklás við tíðindin. Það er heldur
ekki óþekkt að menn fái smáfloga-
kast út af dómum á vorin en svo
jafnar þetta sig þegar heildarmyndin
fer að skýrast.
Nýtt nafn á toppnum
Átján hestar, sex vetra og eldri,
komu til fullnaðardóms og hlutu níu
þeirra yfir 8 í aðaleinkunn. Tveir til
viðbótar náðu gömlu ættbókarmörk-
unum. Stóðhesturinn Mjölnir frá
Sandhólafetju sem þekktastur er
fyrir að hafa fengið tíu fyrir tölt fór
í byggingardóm væntanlega í þeim
tilgangi að fá hækkun en fór þar
bónleiður til búðar því hann var
lækkaður úr 7,83 í 7,65, lækkaði
um hálfan fyrir höfuð og hófa.
Lítt kunnur hestur, Glaður frá
Hólabaki, stóð efstur í þessum flokki
en hann er undan Garði frá Litla-
Garði og Lýsu frá Hólabaki sem er
undan lítið þekktum hrossum. Hann
hlaut í aðaleinkunn 8,41, 8,28 fyrir
sköpulag og hvorki meira né minna
en 8,54 fyrir reiðhestskostina. Það
sem skyggir kannski helst á prýði-
lega útkomu Glaðs er að hesturinn
var heldur lakari á yfirlitssýningu
og aðalsýningu laugardagsins og í
reiðhöllinni á laugardagskvöldið var
sá jarpi greinilega búinn að fá nóg
og hafði þar lítið erindi. Kann að
vera að mörgum sem ekki sáu hann
í dómi þyki hann ekki standa undir
þeim háu einkunnum sem hann fékk
en þeir hinir sömu geta þá skoðað
myndband sem gefið hefur verið út
og inniheldur myndskot af hestunum
í dómi. Glaður fær þijár níur fyrir
stökk, vilja og hófa. Spennandi verð-
ur að sjá hvort þessi hestur sem er
bæði vel skapaður og góður reiðhest-
ur fær brautargengi í samræmi við
þá vegtyllu sem hann hefur nú náð.
Næstur, með 8,31, var Ásaþór frá
Feti sem kom fram á fjórðungsmót-
inu í fyrra, hækkar úr 8,15. Myndar-
hestur Ásaþór og fasmikill í fram-
göngu en hann er undan Kraflari
frá Miðsitju og Ásdísi frá Neðra-Ási
sem er, eins og móðir Glaðs, frekar
ættlítil. í þriðja sæti varð svo reið-
hallarstjaman Gustur frá Grund sem
hefur án efa verið einn umtalaðasti
og vinsælasti stóðhestur landsins
síðastliðið ár. Kom hann nú loks
fyrir dómnefnd en síðast var hann
í dómi 1993 á fjórðungsmóti fyrir
norðan. Biðu margir spenntir eftir
sýningu Gusts og búist var við háum
tölum. í aðaleinkunn fékk hann 8,28,
hækkar um fjórar kommur frá ’93.
Ekki verður annað sagt en dómar-
arnir hafi verið nokkuð galsafengnir
þegar kom að hæfileikunum. Gáfu
þeir honum 9,5 fyrir tölt sem mörg-
um þótti full vel í látið því ekki er
því að neita að töltið var nokkuð
skeiðborið hjá þessum ágæta hesti.
Einkunn níu fyrir tölt hefði verið
betur við hæfi. Þá gáfu þeir honum
10 fyrir brokk og þykir sú einkunn
einnig orka tvímælis. Ef farið er út
í samanburð má vel réttlæta þessa
einkunn fyrir brokk en hinsvegar er
alltaf gott þegar menn leiðrétta vit-
leysurnar og þarna var kjörið tæki-
færi til að gera slíkt og gefa rétta
einkunn. Ekki er neinum blöðum um
það að fletta að Gustur er mesti og
besti brokkarinn sem fram hefur
komið til þessa en eigi að síður var
brokkið ekki fullkomið og því ekki
ástæða til að fara í hæstu hæðir.
Háls- og höfuðstilling Gusts var of
há á brokkinu og lýtti það annars
frábært brokk. Ekki er hægt að fall-
ast á þau rök að í þessu tilviki dugi
að refsa með lægri einkunn fyrir
fegurð í reið því ef Gustur hefði
fellt hálsinn hefði brokkið orðið enn
betra að svifi og framtaki og þá
fyrst verðskuldað að fá toppeinkunn-
ina sem því miður hefur í nokkrum
tilvikum verið ofnotuð. Hins vegar
lækka þeir skeiðeinkunn verulega.
Var hér áður með 8,5 en fær nú 6,0
og kann að vera að einhveijum hafi
þótt niðurskurðarhnífnum beitt full-
harkalega í þeim efnum. Þar geldur
klárinn einnig hárrar háls- og höfuð-
stillingar. Fyrir vilja hækkar hann
úr 8,5 í 9,5 sem er vel við hæfi,
hesturinn er sjóðviljugur og fengi
vafalaust 10 ef hann væri þjálli.
Þótt framganga Gusts nú hafi ekki
verið eins áferðarfögur og best hefur
verið má ætla að vinsældir hans
verði óbreyttar. Hér er á ferðinni
einstakur hestur sem umfram annað
ætti að geta lagt hrossaræktar-
mönnum gott lið við að bæta brokk
og vilja. Af öðrum hestum í þessum
aldurshópi mætti nefna til sögunnar
Hrók frá Glúmsstöðum sem er undan
Orra frá Þúfu og Birtu frá Mýnesi
og Gauta frá Gautavík sem er „ætt-
laus“ að heita má, þ.e. undan
óþekktum foreldrum. Faxi frá Hóli,
albróðir Þyts frá sama bæ, komst
einnig prýðilega frá sínu. Andvari
frá Skáney var einnig þokkalegur
en Askur frá Keldudal var frekar
mistækur að skeiðinu undanskildu
þar sem hann fékk 9,5 og stóð vel
undir þeim tölum. Það hefur reyndar
lengi verið ljóst hvert menn eigi að
leita vilji þeir rækta flugvekringa.
Hlér frá Þóroddsstöðum er að því
er virðist þokkalegur reiðhestur en
þegar saman fara einkunnir 6,5 fyrir
höfuð og 7,5 fyrir háls og herðar er
spurning hvort ástæða sé til að vera
með hesta graða. Staða hrossarækt-
arinnar er það góð í dag að óþarft
er að vera með hesta í ræktun sem
ekki ná 8 fyrir háls og herðar.
Eiður með yfirburði
Af fimm vetra hestum stóð efstur
Eiður frá Oddhóli en 24 hestar í
þessum flokki hlutu fullnaðardóm.
Eiður sem er undan Gáska frá Hofs-
stöðum og Eiðu frá Skáney er afar
athyglisverður hestur. Allar hans
byggingaeinkunnir standa í 8 fyrir
utan fótgerð sem er 9 og það gefur
8,15 fyrir sköpulag. Þá fær hann 9
fyrir tölt, vilja og fegurð í reið sem
allt eru mjög mikilvægir þættir í
ræktun söluhrossa. En talandi um
tölt, þá hefði Eiður verið betur að
því kominn en Gustur að fá 9,5 fyrir
tölt svo hreint og rúmt sem það er
hjá honum. Fyrir hæfileika hlýtur
Eiður 8,53 og 8,34 í aðaleinkunn sem
er góður árangur hjá fimm vetra
hesti sem fær aðeins 7,0 fyrir skeið.
Hæst dæmdi hestur síðasta árs í
flögurra vetra flokki, Hamur frá
Þóroddsstöðum, kemur næstur með
8,14, lækkar úr 8,23. Hann fær tvær
níur, fyrir fótgerð og hófa en í hæfi-
leikum munar mest um lækkun úr
8,5 í 8 fyrir tölt. Hamur er myndar-
hestur í framgöngu með sterkar
undirstöður eins og Laugarvatns-
hrossum hæfir. Vafalaust á hann
eftir að leiðrétta þessar lækkanir í
hæfileikum fyrr en seinna og þá er
það spuming hversu hátt hann fer.
Skorri frá Blönduósi sem varð þriðji
vakti verðskuldaða athygli, fasmikill
og prúður á fax og tagl. Hann er
undan Orra frá Þúfu og Skikkju frá
Sauðanesi. Hann er með 8,23 fyrir
sköpulag, þar af níu fyrir háls og
herðar. Fýrir hæfileika fær hann 8,06
og 8,14 í aðaleinkunn. Af öðrum
hestum mætti nefna Roða frá Múla
sem hækkar sig verulega eða um 29
kommur fyrir sköpulag, færtil dæmis
9 fyrir bak og lend. Fyrir hæfileika
lækkar hann um sömu tölu og heldur
sinni aðaleinkunn frá því í fyrra, 8,07.
Margir hafa sjálfsagt búist við meiri
afrekum af hálfu Roða á sýningunni
en skýringin er sú að hann hefur
verið haltur í tvígang í vetur og vor
og hafði ekki verið riðið í tæpan
mánuð fyrir sýningu.
Hilmir frá Sauðárkróki stóð ekki
undir þeim miklu væntingum sem
búið var að mynda í kringum hann.
Að því er best varð séð, svona úr
brekkunni, virðist það helst vilja-
deyfð sem hamlar en þess ber að
geta að hér er um fimm vetra hest
að ræða sem á vel að geta lifnað
við og þá má búast við góðum tölum.
Allt það umtal og væntingar sem
voru í kringum þennan hest síðustu
vikur og mánuði voru líklega einum
of mikið af því góða og því virðist
„fallið" sem er í rauninni ekki neitt
þar sem hestur hlýtur nú í fyrsta
sinn fullnaðardóm, vera meira en
ella hefði orðið. Þetta er ungur og
fallegur hestur sem þarf meiri tíma,
hvað verður er ómögulegt að segja
en tíminn einn mun leiða það í ljós.
Svartur kveður sér hljóðs
í flokki fjögurra vetra hesta skáru
tveir hestar sig afgerandi úr og sér
í lagi annar þeirra, Númi frá Þór-
oddsstöðum, sem er undan Svarti frá
Unalæk og Glímu frá Laugarvatni.
Má mikið vera ef hér er ekki komið
fram á sjónarsviðið sterkasta stóð-
hestsefnið sem komið hefur úr Laug-
arvatnsræktuninni frá upphafi. Afar
athyglisverður unghestur sem er
með aðeins eina einkunn undir 8.
Fyrir sköpulag 8,13 og fyrir hæfi-
leika 8,21, aðaleinkunn 8,17. Það
er einkum tvennt sem athygli vakti
hjá þessum fola en það var skeiðget-
an (8,5) og svo hitt að hann lyftir
fótum prýðilega á tölti þótt hann sé
undan Svarti frá Unalæk sem lyfti
ágætlega þegar hann var fjögurra
og fimm vetra ef menn skyidu ekki
muna það. Númi er hestur sem
spennandi verður að fylgjast með á
næstu árum.
Hinn hesturinn er Tývar frá Kjart-
ansstöðum sem er undan Þokka frá
Garði og þeirri kunnu stóðhestamóð-
ur Ternu frá Kirkjubæ. Hér virðist
komið fram álitlegasta stóðhestsefn-
ið sem komið hefur fram undan
Þokka frá Garði en illa hefur gengið
að fá undan honum góða stóðhesta.
Tývar hlýtur 8 fyrir sköpulag, þar
af 9 fyrir háls og herðar. Hann er
með 7,70 fyrir hæfileika en hann
er skeiðlaus. I aðaleinkunn hlaut
hann 7,85. Sjálfsagt þykir mörgum
skyggja á að ekki kæmu fleiri álit-
legir fjögurra vetra hestar fram
þarna án þess að hér sé verið að
afskrifa alla hina sem ekki eru hér
nefndir. Að minnsta kosti þrír þeirra
eru með þokkalega einkunn fyrir
sköpulag og virðast eiga möguleika
á að ná sér á strik síðar.
Margir góðir kostir
Ljóst má vera að hryssueigendur
munu hafa úr miklu að moða þegar
valdir verða stóðhestar á hryssumar
í vor og sumar. Fleiri eiga eftir að
koma fram síðar á árinu og er það
alltaf tilhlökkunarefni að eiga von á
nýjum og góðum stóðhestum til að
betja augum. Áhuginn fyrir stóð-
hestunum fer ekki minnkandi ef
marka má aðsóknina að sýningunni
í Gunnarsholti. Mikill fjöldi, einhver
þúsund, heimsóttu stöðina að þessu
sinni og voru menn komnir víða að.
Vel hefur til tekist með rekstur
stöðvarinnar fyrsta árið sem hann er
í höndum Hrossaræktarsamtaka
Suðurlands en fljótlega verður byijað
að sæða hryssur á stöðinni. Má því
segja að allt standi þama í miklum
blóma.
Valdimar Kristinsson