Morgunblaðið - 06.05.1997, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 59
BRÉFTIL BLAÐSINS
Hugleiðingar um Söngkeppni
framhaldsskólanna
Frá Frá Bjarka Má Magnússyni:
NYLEGA var í Sjónvarpinu sýnd
upptaka af hinni árlegu söngkeppni
er Félag framhaldskólanna stendur
fyrir. Þetta var í áttunda skipti að
keppnin er haldin og virðist vaxa í
umfangi með
hverju árinu sem
líður. Fram-
kvæmdanefnd
keppninnar í ár á
hrós skilið fyrir
sinn afrakstur og
er það reyndar
svo að oft hef ég
haft löngun til að
senda línu til
blaðsins og hrósa
framkvæmdaaðilinum keppninnar
fýrir glæsilega sýningu en ekki gert
fyrr en nú. í þessari keppni hafa
miklir og góðir söngvarar stigið sín
fyrstu skref á söngbrautinni og er
of langt mál að telja upp einstök
nöfn í því samhengi, svo margir eru
þeir.
Þegar ég kom að framkvæmd
keppninnar 1990 sem einn af þrem-
ur aðilum í framkvæmdanefnd var
keppnin ekki þekkt sem nú og erf-
itt að fjármagna slíka framkvæmd
sem er mjög kostnaðarsöm. Mark-
aðssvið Landsbanka íslands kom
að fjármögnun keppninnar þá og
hefur reyndar alla tíð síðan stutt
við bakið á framhaldskólanemum í
þessu verkefni. Stjórnarformaður-
inn og tónlistarunnandinn Ingi R.
Helgason kom einnig að fjáröflun
keppninnar fyrstu árin og eiga þess-
ir aðilar sjálfsagt ríkan þátt í að
keppnin skuli vera það sem hún er
í dag. Keppnin spilar í mörgum
framhaldskólum stóran þátt í fé-
lagsstarfi skólanna þar sem haldnar
eru undankeppnir í hveijum skóla
áður en að hin stóra keppni er hald-
in. Nemendur hafa í auknu mæli
tekið að sér að hanna og útfæra
glæsilegar sviðsmyndir, séð um
förðun og fleira sem fylgir slíkri
stórsýningu. Þegar framhaldskóla-
nemar taka sér svo viðamikið verk-
efni fyrir hendur sem þessi keppni
er þykir mér þó rétt að fram-
kvæmdanefndin leiti ráðgjafar hjá
hveijum þeim sem getur hana veitt,
svo sem gert hefur verið.
Upphaflegur tilgangur keppninn-
ar var að efla og styrkja einstakling-
inn (framhaidskólanemann) til að
takast á við krefjandi verkefni sem
þetta, auka félagsstarfið í skólunum
og stuðla að auknum samskiptum
milli skóla.
Þá er ég kominn að eina lesti síð-
ustu keppni en hann er sá að hljóð-
færaleikararnir voru alls ekki fram-
haldskólanemar. Og hver er þá til-
gangur keppninnar og hver er henn-
ar framtíð? Til hvers að halda keppni
sem er eingöngu orðin að sjónvarps-
sýningu þar sem upphafleg markmið
eru að engu höfð og atvinnumenn
fengnir til að sjá um tónlistaflutn-
ing? Ég vona að næsta fram-
kvæmdanefnd hafi þetta í huga við
krefjandi störf sín og stefnan verði
sú að sem flestir framhaldskólanem-
ar fái að koma að undirbúningi og
framkvæmd keppninnar svo sem
verið hefur.
Það er rétt að geta þess sem vel
er gert og ungt fólk á íslandi er að
gera skemmtilega hluti. Veitum hinu
jákvæða athygli og áhuga. Með ósk
um velgengni keppninnar iýk ég
skrifum mínum.
BJARKIMÁR MAGNÚSSON,
Austurbergi 8, Rvík.
Bjarki Már
Magnússon
Sumarúlpur
meö og án hettu
Fyrir langömmuna,
ömmuna,
mömmuna og
ungu stúlkuna.
1 Stuttar og síðar
kápur.
Tilboðsslá
Alltaf eitthvað nýtt,
allt á kr. 5.000
Op\ð \au3arda3a
k\. 10-16
WUSID
Mörkinni 6, sími 588 5518
Bílastæði v/búðarvegginn
Topptilboð
Viva dömusandalar
Verð: 1.495,-
Ath: sumarskór, sandalar ogstrigoskórfyrir alla jjölskylduna
Tegund:3335
Litur: Svartur
Stæröir: 35-40
T
(póstsendurrósarn dss g u rs
óppskórinn
v/lngólfstorg • v/Veltusund • S. 552 1212
p= ------------ Ii
Fullbúnar íbúðir
á frábæru verði
Eigum nú þegar til afhendingar nokkrar fullbúnar 2ja og
3ja berbergja íbúðir á besta stað í Hafnarfirði,
vtSuðurbcejarlaugina.
Sumar þessar fbúðir henta sérlega vel fyrir eldri borgara.
Hér er um að ræða mjög vandaðar íbúðir að öllu leyti.
Gott verð og greiðslukjör.
Allar frekari upplýsingar í síma 565 0644 og hjá eftirtöldum
fasteignasölum í Hafnarfirði:
Hóll, Hraunhamar og Valhús.
R--- F
- kjarni málsins!
Innifalið í verði:
Flug og gisting
með morgunverði
og þríréttuðum
kvöldverði.
Skoðunarferðir og
verslunarferðir.
Brottfarar- og komudagar:
26. |úní - 3. júií
17. júlí - 24. júlí
7. ágúst - 14. ágúst
21. ágúst - 28. ágúst
4. sept. -11. sept.
Fjölbreytt og skemmtileg ferð um
Skotland. Dvalið er í 7 nætur á
Inversnaid hótelinu sem stendur við
Loch Lomond, eitt ftægasta stöðuvatn
Skotlands.
Daglegar ferðir um skoskar sveitir
og borgir, farið í siglingar,
verslunarferðir o.fl. undir leiðsögn
Ólafar H. Guðmundsdóttur fararstjóra.
FERDASKRIFSTOBt
ÍSLANDS
ICELAND TOURIST
BUREAU
Sími 562 3300