Morgunblaðið - 06.05.1997, Síða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Hávaði og mengnn
í íbúðarhverfum
í höfuðborginni skortir ekki breiðari götur,
heldur að ökumenn fari eftir umferðarreglum,
segir Margrét Þorvaldsdóttir. Hún sér ein-
faldar, ódýrar lausnir til að draga úr umferð
og mengun við Miklubraut.
Morgunblaðið/Kristinn
HÖFUÐBORGIN er ekki stór og
það skortir ekki breiðari götur,
ökumenn eru miklu fremur vanda-
málið þ.e. að þeir fari eftir umferð-
arreglum og ætli sér tíma til að
komast á milli staða. Ef reglum
væri fylgt væri umferð mun greið-
ari og hættuminni en hún er nú.
Reglur þyrftu þó að vera skýrari
við gatnamót. Því ber að fagna
þeirri ákvörðun ráðamenna borgar-
innar að setja beygjuljós á gatna-
mót Miklubrautar og Kringlumýr-
arbrautar fyrir þá sem ætla að aka
inn á Miklubraut. Þessi gatnamót
hafa lengi verið ökumönnum vara-
söm og skortur á beygjuljósum
hefur valdið því að þeim sem ætla
að beygja inn á Miklubraut er ekki
ætlaður tími til þess á ljósum og
verða því að fara yfír á rauðu ljósi
þegar umferð er mikil um Kringlu-
mýrarbraut
í höfuðborginni eru
vegalengdir stuttar
Þessi stilling umferðarljósa hef-
ur tafið mjög eðlilega umferð um
Miklubraut og um leið sljógvað
virðingu ökumanna fyrir umferð-
arljósum víðar á höfuðborgar-
svæðinu. Alltof margir ökumenn
virðast telja sér óhætt að aka yfir
gatnamót á rauðu ljósi hvar sem
er, oft með skelfilegum afleiðing-
um. Væntanlega verður beygju-
Ijósunum komið fyrir sem fyrst til
að Jiðka fyrir umferð.
Á höfuðborgarsvæðinu tekur
ekki langan tíma að komast á
milli staða. Umferðatoppar eru í
um 10-15 mín. fyrir kl. átta og
níu á morgnana, það myndi lagast
ef færri væru á síðustu stundu til
vinnu. Einstaka menn hafa kvart-
að yfír að því komast ekki nógu
fljótt á milli staða innan höfuð-
borgarinnar. Enginn setur þó fyrir
sig, hvorki tíma né fjariægðir, ef
sækja þarf vinnu um langan veg
eins og til Suðurnesja eða í önnur
bæjarfélög.
Hraðahindranir til að stjórna
hraða á Miklubraut
Umferðarumræðan hefur snúist
um Miklubraut og tilvist íbúðar-
byggðar þar. Þær raddir hafa jafn-
vel heyrst að ryðja þurfi þar um
húsum svo að hægt sé að fara
hindrunarlítið í gegnum hverfið.
Umræða um umhverfisvernd sem
nú fer fram í heiminum í dag snýst
ekki síst um umhverfisvernd í þétt-
býli og hvernig hægt sé að draga
úr umferð um íbúðarhverfi, vegna
skaðlegra áhrifa megnunar á
heilsufar íbúanna - hjartasjúkl-
inga, astmasjúklinga og á andleg-
an þroska barna. í vistvænum
borgum er fólkið í fyrirrúmi. Víða
hefur verið lagt í mikinn kostnað
til að beina gegnumakstri frá íbúð-
arhverfum út fyrir borgirnar. Mis-
tökin sem gerð voru í mörgum
stórborgum Bandaríkjanna um
miðja öldina, og greinahöfundur
þekkir af eigin raun, hafa orðið
ákveðin viðvörum. Þá voru lögð
marghæða mislæg gatnamót yfir
stór íbúðarsvæði í miðjum borgum,
verkfræðileg afrek en sem leiddu
til einangrunar og síðan hnignunar
stórra borgarhverfa, eðlileg end-
urnýjun íbúa varð mjög lítil og
afleiðingin ömurleg.
Hraðahindranir draga
úr umferðarhraða
Ef hlustað er á íbúa við Miklu-
braut þá snúast kvartanir þeirra
um hraðaksturs, hávaða, ískur og
mengun þegar bílstjórar snögg-
hemla eða stíga bensíngjöf í botn
til að auka hraða bifreiðanna og
vegna hávaða af mótorhjólum sem
ekið eru Miklubraut um nætur,
eins og um hraðbraut væri að
ræða. Undirgöng, hin nýja fram-
tíðarlausn, kæmu aðeins hluta
íbúa á vestasta svæði við Miklu-
braut til góða. Framtíðarlausnin
þarf að vera víðtækari, hún þarf
að ná frá Stakkahlíð að Snorra-
braut. Ef dregið yrði úr umferðar-
hraða um Miklubraut, eins og íbú-
arnir hafa lagt til, myndi hávaði
og hluti af mengunarvandamálinu
leysast af sjálfu sér.
Umferðarhraðanum má stjórna
með því að setja hraðahindranir á
Miklubraut þar sem byggð er þétt-
ust eða frá Stakkahlíð að Snorra-
braut. Það er gert er annars stað-
ar á höfuðborgarsvæðinu með góð-
um árangri. Hraðahindranirnar
geta verið breiðar og aflíðandi eins
og hindrunin sem er fyrir framan
ísaksskólann við Stakkahlíð og
þær myndu leysa mörg vandamál
íbúa svæðisins.
Hlíðahverfið eitt faliegasta
íbúðarhverfið
Forseti borgarstjórnar hefur
sagt í fjölmiðlum að besta lausnin
á umferðinni væri fækkun bíla.
Einfalt væri að byrja á því að taka
þá bíla úr umferð sem valda mik-
illi mengun og draga úr umferðar-
hraða. Það hlýtur að vera metnað-
ur borgaryfirvalda að viðhalda
eðlilegri íbúðarbyggð í hverfum
eins og við Miklubraut.' Hlíða-
hverfið hefur einn fallegasta heild-
arsvip íbúðarhverfa á öllu höfuð-
borgarsvæðinu, byggingar eru vel
hannaðar, reisulegar og virðulegar
og þar eru fallegustu sambýlishús-
in á öllu höfuðborgarsvæðinu. Nú
eru smá saman að verða kynslóða-
skipti í hverfinu og vonandi verður
þar ekki breyting á. Ungt fólk
sækir eftir að búa þar, hverfið
þykir aðlaðandi, það er miðsvæðis,
hefur góðar almenningssamgöng-
ur og þar er hægt að búa án þess
að eiga bíl. Þetta viðhorf ætti að
setja óskir íbúa við Miklubraut
efst á forgangslista fyrir betri
borg hjá stjórnendum borgar-
skipulags
Stjórnendur borgarinnar hafa
sýnt í verki áhuga fyrir bættu
umhverfi fyrir borgarbúa. Brúin
yfir Kringlumýrarbraut í Fossvogs-
dal og lagning göngustíga um
Fossvogsdal, Öskjuhlíð að Seltjam-
arnesi er þakkarvert átak og ein-
stakt framlag til forvarna. Þessi
vinsæla gönguleið hefur gert fjölda
fólks á öllum aldri, barnafólki með
barnavagna, fötluðum í hjólastólum
og fólki úr nágrannabyggðum
mögulegt að fara í endurnærandi
gönguferðir eftir endilangri höfuð-
borginni án þess að hafa áhyggjur
af bílaumferð og bílamengun.
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Ábending til
forystu eldri
borgara
BIRTIÐ umfjöllunarefni
og niðurstöður funda ykk-
ar. Við erum ekki í neinu
leynifélagi! Nægilegt flæði
upplýsinga eykur áhuga
og þátttöku aldraðra í
starfinu. Og að lokum:
Sýnið klærnar! Brýnið
vopn okkar: atkvæðið!
Skúli Einarsson,
Tunguseli 4.
Þjónusta
Flugleiða við
eldri borgara
VIÐ hjónin brugðum okkur
með Flugleiðum til Or-
lando um páskana. Við
erum svokallaðir eldri
borgarar, og var okkur
sagt hjá Flugleiðum að við
fengjum afslátt sem eldri
borgarar fá. Afslátturinn
er minnstur fyrir 67 ára
en meiri eftir því sem fólk
er eldra, en að okkar mati
er afslátturinn enginn því
niðurstaðan var sú að við
borguðum sama og al-
mennt fargjald er, vegna
þess að afslátturinn reikn-
ast af Saga-Class far-
gjaldi.
Síðan fórum við til
Flórída og vorum þar í 2
vikur. Venjan er að tékka
sig í flug nokkrum dögum
áður en farið er heim, en
þá komumst við að því að
búið var að strika okkur
út af farþegalista.
Skýringin á því var sú
að farþegi með sama eftir-
nafn og við hafði afpantað
farið sitt, en þá voru allir
sem voru með sama eftir-
nafn, 6 manns, strikaðir
út af farþegalista. Þetta
kostaði okkur mörg símtöl,
bæði í Bandaríkjunum og
eins heim til íslands.
Ég er ekki ánægð með
þessa þjónustu hjá Flug-
leiðum og okkur er brugðið
við tilhugsunina um að ef
við hefðum ekki tékkað á
farinu tímanlega hefðum
við getað orðið stranda-
glópar í Orlando.
Vil ég benda eldri borg-
urum á að athuga vel sinn
gang áður en þeir taka
svona tilboði hjá Flugleið-
um, það er ekki ailt sem
sýnist í þeim efnum.
Áslaug
Magnúsdóttir.
Tapað/fundið
Hringur tapaðist
GULLHRINGUR, mjór
með rauðum steini, tapað-
ist í Hafnarfirði eða
Reykjavík 12. apríl sl. Um
ættargrip er að ræða og
missirinn því sár. Skilvís
finnandi er vinsamlega
beðinn að hringja í síma
555-4274 og er fundar-
launum heitið.
Dýrahald
Stórir gullfiskar
TONY hafði samband við
Velvakanda og var hann
að velta því fyrir sér hvort
einhver gæti séð af slæðu-
sporðum eða stórum gull-
fiskum handa honum.
Tony er í síma 557-1897.
SKÁK
Umsjón Margcir
Pctursson
SVARTUR leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp á Skák-
þingi Kópavogs 1997, sem
fram fór í vor. Páll Agnar
Þórarinsson (2.100) var
með hvítt, en Kristján Eð-
varðsson (2.200) hafði
svart og átti leik.
Hvítur átti vænlega
stöðu, en lék síðast afar
ógætilegum leik, 26. h2-
h4??, sem manaði svart til
að leika vinningsleiknum:
24. - Rh3+! 25. gxh3 -
Dxh4 26. Rd2? (Tapar
strax. Mun betra var 26.
Rg3, en einnig þá á svartur
glæsilega vinningsleið: 26.
- Bxg3 27. Dfl
- He4!! 28. Ha2
- Hg4! 29. fxg3
- Hxg3+ 30.
Kh2 - He8 31.
d6 - Hxe3 32.
d7 - f2 og svart-
ur vinnur) 26. -
Dxh3 27. Rxf3 -
He4 28. Re5 -
Bxe5 29. f3 -
Dg3+ 30. Kfl -
Dxf3+ 31. Kel
- Dxe3+ og
hvítur gafst upp.
Þeir Kristján
Eðvarðsson og Jóhann Ing-
varsson urðu jafnir og efst-
ir á mótinu með sex vinn-
inga af sjö mögulegum, en
Kristján vann innbyrðis
skák þeirra og var úrskurð-
aður sigurvegari á stigum.
Einar Hjalti Jensson og
Páll Agnar Þórarinsson
komu næstir með ijóra og
hálfan vinning. Einar Hjalti
náði bestum árangri Kópa-
vogsbúa og er því skák-
meistari bæjarins 1997.
Med morgunkaffinu
Ast er. . .
þegarhann breytir
ferðaáætlun sinni til
að hitta þig aftur.
TM Reg U.S. Pal. Off — all righw resorved
(c) 1997 Los Angetes Times Syndicate
Gott þefskyn sámur
Víkveiji skrifar...
LANDLÆKNIR gerði að um-
talsefni á þingi BSRB fyrir
rúmri viku, að þjónustugjöld í heil-
brigðiskerfinu væru orðin há, og
að Iáglaunafólk leitaði ekki læknis
eða sleppti að kaupa nauðsynleg lyf
af þeim sökum. Víkverji hefur orðið
þess var, að ekki eru allir sammála
landlækni um það, að slíka ályktun
megi draga af niðurstöðum þeirrar
könnunar, sem hann vísaði til. En
hvað um það.
Vegna þessara umræðna hafði
Víkverji fregnir af kostnaði fjögurra
manna fjölskyldu, sem varð fyrir
því um eina helgi að fá sérstaka
tegund af hálsbólgu, fyrst foreldr-
arnir og síðan börnin. Fjölskyldan
þurfti af þessum sökum að leita til
læknis tvisvar sinnum um helgina
og kostaði það 3.000 krónur. Hún
þurfti jafnframt að kaupa lyf (pens-
ilín) en það kostaði 7.700 krónur.
Samtals leiddi þessi sjúkdómur til
útgjalda fyrir þessa fjölskyldu, sem
nam 10.700 krónum.
Það eru töluverðir peningar. Hins
vegar er þak á útgjöldum vegna
læknisþjónustu eða lyfjakostnaðar,
sem er tekjutengt (eins og Morgun-
blaðið hefur hvatt til). Ef þarna
væri um að ræða fjölskyldu, sem
væri í lægri tekjuflokkum gæti þessi
kostnaður leitt til þess, að fjölskyld-
an þyrfti ekki að borga meira fyrir
læknis- og lyijakostnað á þessu
ári, svo nokkru nemi. Ef fjölskyldan
er hins vegar með yfir 3 milljónir
króna í árstekjur eða sem svarar
250 þúsund krónum á mánuði þarf
hún að borga þennan kostnað að
fullu, ef rétt er skilið hjá Víkverja.
Og þar er sennilega komið að
því, sem Morgunblaðið hefur haft
á orði, að stjórnvöld hafi farið of
langt niður tekjustigann í tekju-
tengingu. Þegar tillit er tekið til
annars framfærslukostnaðar þyrfti
þetta tekjumark bersýnilega að
vera töluvert hærra.
xxx
YNGRI kynslóð leikara gerir
margt vel. Þættir Spaugstof-
unnar í Ríkissjónvarpinu eru yfir-
leitt frábærlega vel gerðir og sýna,
að þeir sem að þeim standa kunna
sitt fag vel, svo að ekki sé meira
sagt.
Þótt Fornbókabúðin á Stöð 2 sé
af öðrum toga verður ekki annað
sagt en þar sé einnig vel að verki
staðið. Þeir þættir eru mjög íslenzk-
ir og ánægjuleg tilbreyting hjá sjón-
varpsstöð, sem að öðru leyti sendir
út að yfirgnæfandi meirihluta til
amerískt efni.
XXX
A
ASTÆÐA er til að fagna því
framtaki ríkissjónvarpsins að
senda út tónlistarþætti í samvinnu
við Sinfóníuhljómsveit íslands, sem
hafa það að markmiði að kynna
sígilda tónlist og gera hana að-
gengilega fyrir fólk. í fyrrakvöld
var sendur út fyrsti þátturinn af
sex og kynnti Jónas Ingimundarson
verkin um leið og þau voru flutt.
Þessi flutningur og kynning tókst
vel. Jónas Ingimundarson er að
verða mesti athafnamaður þeirra,
sem tekið hafa að sér að koma
kiassískri tónlist og tónlistarmönn-
um á framfæri við almenning. Eftir
að hann tók við starfi tónlistarráðu-
nautar Kópavogsbæjar er tónlistar-
starf að verða svo mikið og blóm-
legt í því bæjarfélagi, að ekki fer
hjá því að athygli veki. Og vel til
fundið að þar verður senn hafizt
handa um byggingu fyrsta sérhann-
aða tónlistarsalarins á íslandi.