Morgunblaðið - 06.05.1997, Page 64

Morgunblaðið - 06.05.1997, Page 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ a HASKOLABIO SlMI 552 2140 Háskólabíó TREYSTH) MER! Jim Carrey leikur Fletcher Reede, lögfræðing og forfallinn lygalaup sem verður að segja sannleikann í einn dag. Þarf að segja meira? Ja, því má kannski bæta við að þetta er auðvitað langvinsælasta myndin í Bandaríkjunum í dag, sú allra fyndnasta með JimCarrey og hún er... Sýnd kl. 5, 7, 9.10 og 11.10 w ■ mei_ , H •* : y •.y; W, .ik m •£ • t: mi -a STRIKES BACK Sýnd kl. 4.30. Sérstakar sýningar næstu daga fyrir heyrnarskerta með ísl. texta. Sýnd kl 7. HAÐUNG Tilnefnd til Óskarsverðlauna 1997. Besta erlenda myndin STJORNUSTRIÐ GANNES HLM FESTIVAL ENGUM ER HLIFT!! icule Til að komast til metorða við hirðina þurfa menn að kunna þa list að hafa aðra að athlægi. Hárbeitt orð og fimar stungur ráða því hver er sigurvegari og hver setur andlit í rykið. Sjáðu Háðung og æfðu þig í að skjóta á náungann, það gæti komið sér vel! Svnd kl. 7, 9 oq 11. Ó. H. T. Rás 2 ★ þ. ■ ý Ó. Bylgjan ★★★1/2 h. k. dv $ar ÓSKARSVERÐLAUN: BESTA ERLENDA MYNDIN I r3.| -k ★ ★★ 1/2 Á. Þ. Dagsljós ★ ★★l/2 A. S. Mbl Levndcir Þessi mynd er galdur sem dáleiðir þig, nær þér gjörsamlega a sitt band og þú óskar þess að hún megi aldrei hætta." Ásgrímur Sverrisson (Land og synir, rit kvikmyndagerðarmanna) Seci ets i les Sýnd kl. 5, 9.05 og 11.10. Sýnd kl. 9 og 11.05 Sýnd kl. 6. Síðustu sýningar KÓR eldri deildar söng, frá vinstri Perla Sigurðardóttir, Eyþór Stef- ánsson, Elínborg Pálsdóttir, Agnar Benediktsson, Birkir Óli Kjartans- son, Hafrún Brynja Einarsdóttir og Elsa Guðný Björgvinsdóttir. Árshátíð Skjöldólfs- staðaskóla NEMENDUR Skjöldólfsstaðaskóla héldu árshátíð sína nýlega. Þar var margt til skemmtunar leikur og söngur ásamt gamanmálum. Krakkarnir léku nokkur atriði úr verkum Halldórs Laxness í tilefni afmælis nóbelsskáldsins. HAFRÚN Brynja Einarsdótt- ir og Elsa Guðný Björgvins- dóttir fiuttu annál ársins. EYÞÓR Stefánsson „söng“ Hamraborgina við „undirleik" Agnars Benediktssonar. Konunglegt brúðkaup undirbúið á Spáni Prinsessan og hand- boltahetjan í eina sæng Malaga. Morgunblaðið. ALMENN gleði virðist ríkja á Spáni eftir að skýrt var frá því á miðvikudag, að Kristín prins- essa, yngri dóttir Jóhanns Karls konungs og Soffíu drottningar, hygðist ganga í heilagt hjóna- band þegar hausta tekur. Sá stál- heppni heitir Inyaki Undangarin og er maður þjóðþekktur á Spáni, handboltahetja og landsliðsmað- ur. Nokkuð er um liðið frá því að vangaveltur tóku að kvikna um samband prinsessunnar og Und- angarins, sem er 29 ára, tveimur árum yngri en eiginkonan tilvon- andi. A síðustu vikum hafa fjöl- miðlar spænskir birt reglulega fréttir af því að boðið yrði til brúðkaups innan tíðar og konung- hollir Spánverjar hafa drukkið í sig hvert orð. Síðdegis á miðvikudag staðfesti spænska hirðin síðan fréttir þess- ar og boðaði að brúðkaupið færi fram í haust i Barcelona þar sem þau Kristín og Undangarin búa og starfa. Talsmaður hirðarinnar kvað konungshjónin himinlifandi en bætti við að líkt og aðrir feður í þessum sömu sporum væri Jó- hann Karl hugsi þessa dagana nú þegar dóttir hans hefði ákveðið að stíga þetta mikilvæga skref. A laugardag voru þau trúlofuð og daginn eftir lék Undangarin með landsliði Spánar og þótti standa sig vel þegar það bar sig- urorð af Þjóðveijum á Spáni. Kristín prinsessa er önnur í röð þriggja barna konungs og drottn- ingar, yngri en Helena systir hennar en eldri en Filipus ríkis- arfi. Kristín þykir kona alþýðleg og í ágætu jarðsambandi. Þykir mörgum með ólíkindum hversu vel henni hefur tekist að lifa eðli- legu lífi þrátt fyrir stöðu sína. Hún umgengst vini sína með eðli- legum hætti þótt staða hennar krefjist þess að hún teljist jafn- framt opinber persóna og það eina sem gefur til kynna að þar fari ekki venjuleg ung, vel mennt- uð kona í góðu starfi eru lífverð- irnir þrír sem jafnan fylgja henni þótt þeir hafi jafnframt skýr fyr- irmæli um að trufla líf hennar og framgöngu alla sem minnst. Kristín prinsessa hefur lísens- íats-gráðu í stjórnmálafræðum en starfar nú við menningar- og fjölmiðladeild La Caixa-bankans í Barcelona. Mánaðarlaun hennar munu vera um 100.000 krónur á mánuði. Starfsfólk bankans segir að hún komi jafnan fram sem hver annar starfsmaður og sé kona lip- ur og ljúf í einu og öllu. Helsta áhugamál hennar er siglingar og mun hún jafnan vera í essinu sínu um borð í seglbáti sínum. Til fyrirmyndar Brúðguminn tilvonandi er fyr- irmyndar Spánverji, hávaxin og stælt íþróttahetja sem varið hefur heiður lands síns í fjölmörgum Reuter KRISTÍN prinsessa á götu á Spáni. viðureignum við útlendinga. Iny- aki Undangarin er af góðum Baskaættum og hefur um margra ára skeið leikið handknattleik með hinu sigursæla liði Barcel- ona. íþróttirnar eru líf hans og yndi og líkt og svo margir landar hans hefur hann djúpstæða og viðvarandi ást á mótorhjólum. Þess er því að vænta að hann og konunginn muni tæpast skorta umræðuefni því Jóhann Karl er einnig annálaður mótorhjóla- kappi og hefur hann nokkrum sinnum slasað sig þegar honum hefur brostið fimin á vélfáki sín- um. Sérfróðir telja ólíklegt að brúð- guminn muni leggja skóna á hill- una eftir að hafa runnið saman við konungsfjölskylduna. Er því hugsanlegt að starfsbræður Und- angarins, spænskir sem erlendir, fái tækifæri til að berja á rétt- nefndum spænskum hertoga á næstu árum í Laugardalshöllum Evrópu og trúlega víðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.