Morgunblaðið - 06.05.1997, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ1997 69
i
'&pp NYTT
á Islandi
K5aQDCL°Tr°CL®©DS*
Hágæöa lyklakerfi
EINN LYKILL
- endalausir möguleikar
Leigumorðinginn Alec Baldwin
^ ALEC Baldwin og Bruce Willis
<Etla að leika samaii í kvikmyndinni
..Simple Simon“. Myndin er byggð á
skáldsögu Ryne Douglas Pearson og
segir frá ungum einhverfum tölvu-
snillingi sem kemst inn í leyniskjöl
ríkisstjórnarinnar og verður skot-
mark leigumorðingja fyrir vikið.
Baldwin leikur vonda morðingjann
en Willis starfsmann FBI sem reynir
að vernda líf tölvusnillingsins unga.
Harold Becker leikstýrir myndinni
en tökur eiga að hefjast í lok maí.
Becker leikstýrði Baldwin síðast í
spennumyndinni „Malice" árið 1993.
Baldwin hefur verið í fjölmiðlum
vestanhafs undanfarið vegna skoð-
anaskipta við stjórnmálamanninn
Newt Gingrich. Baldwin og aðrar
fijálslyndar Hollywood-stjörnur hafa
gagnrýnt niðurskurð til The National
Endowment of the Arts. Gingrich
svaraði gagnrýninni og sagði að ef
ríka og fræga fólkið í Hollywood
gæfi eitt prósent af tekjum sínum til
að styrkja liststarfsemi þá væri hægt
að Ieggja NEA niður. Baldwin var
snöggur að svara og benti Gingrich
á að aldrei bæði hann innlenda
vopnaframleiðendur um að gefa
hluta tekna sinna til ríkisrekinna
landvarna.
ALEC Baldwin er
mikill listunnandi.
M YN DBÖN D/KVIKM YN Dl R/ÚTV ARP-S JÓN V ARP
Leikin ljóð
Kvikmyndafélagíð Nýja Bíó hefur tekið upp
fímmtíu ljóð eftir íslenska höfunda og nefnt
Brotabrot. Þau eru flutt af íslenskum leikur-
um á nýstárlegan hátt og vöktu athygli í
menningarþætti í sænska sjónvarpinu.
„ALLT byijaði þetta á því að ég
var með einþáttung í Norræna hús-
inu, en þurfti að bæta við dag-
skrána. Mér datt í hug að hafa
Ijóðalestur, og fann þá upp á þessu
formi; að fara með ljóðið inn á heim-
ilið og taka myndir af fólki í hvers-
dagslegum athöfnum sem ljóðin
verða oft til við“, segir Þórey Sig-
þórsdóttir, aðalleikkona og leik-
stjóri ljóðanna ásamt Kristínu
Bogadóttur ljósmyndara.
I Brotabrotum skapar leikari per-
sónu sem segir áhorfendum frá
persónulegri reynslu með því að
flytja ljóð.
„Viðbrögðin í Norræna húsinu
voru mjög góð, og við ákváðum þá
að útfæra hugmyndina og kvik-
mynda helst 50-100 ljóð. Við feng-
um styrk úr Menningarsjóði út-
varpsstöðva og seldum svo Náms-
gagnastofnun og Sjónvarpinu sýn-
ingarrétt og verða ljóðin sýnd með
haustinu. Nokkur ljóðanna voru
sýnd við góðar undirtektir í mjög
Morgunblaðið/Ásdís
ÞAU VINNA að Brotabrotum: Guðmundur Kristjánsson, Þórey
Sigþórsdóttir, Kristín Bogadóttir og Hreiðar Þór Björnsson.
bætir því við að þau völdu „líka ljóð-
in eftir því hvort þau kveiktu
skemmtilegar hugmyndir fyrir
þetta form.“
Hugmyndin er sú að ljóðin birtist
sem brotabrot; 1-3 ljóð á dag, og
svo verði samantekt á ljóðunum um
helgar.
„Við höfum áhuga á að vekja
athygli unglinga á ljóðinu. Mynd-
böndin voru leið tónlistarinnar inn
í sjónvarpið og þetta gæti orðið leið
ljóðsins þangað inn, en við teljum
að þessi sterkasti fjölmiðill sam-
tímans geti reynst ljóðinu öflugur
liðsmaður," segir Guðmundur.
Gert hefur verið ráð fyrir áfram-
haldi á ljóðatúlkun þessari.
„Það er mikill áhugi fyrir ljóðum
núna. í vetur voru gefnar út áber-
andi margar ljóðabækur, og það var
fullt út úr dyrum á öllum ljóðaupp-
lestrum. Það er eins og mikil vakn-
ing eigi sér stað um þessar mund-
ir, og það verður vonandi til þess
að Brotabrot fái góðar undirtektir
í haust þegar að sýningu þeirra
kemur,“ segir Kristín Bogadóttir
að lokum.
Öryggiskerfi sem uppfyllir allar kröfur
um öryggi í kerfislæsingum.
■■■y'spvi
|Á9L£
Vinnið gegn fíla-
penslum og bólum
tmm
ICOnJ
SÁGÚNÁ
silicol skin
siiicol sk\n
virtum menningarþætti í sænska
sjónvarpinu," segir Guðmundur
Kristjánsson tökumaður og fram-
leiðandi Brotabrota.
Almennt þykir hugmyndin frekar
skrýtin og fólk getur ekki séð fyrir
sér við hvað er átt.
„Fólk sér fyrir sér ljóð með mynd-
skreytingu eða að það sé leikið frá
orði til orðs, en það er alls ekki
þannig," segir Kristín.
„Þegar ég fór með sýninguna til
Svíþjóðar, fékk ég þau viðbrögð að
það væri alveg nýtt fyrir fólk að
horfa á ljóð í þessu formi, og að
það virkaði mjög sterkt á fólk,“
segir Þórey.
Brotabrot verða notuð við
kennslu í grunnskólum landsins, og
verður það ný og lífleg aðferð fyrir
nemendur að nálgast þennan hluta
menningararfsins.
„Við miðuðum valið á ljóðunum
við námsbækur, en í þeim er marg-
ar helstu perlur Ijóðlistarinnar að
finna,“ segir Guðmundur. Þórey
Endurteknar rannsóknir hafa staðfest árangur Silicol skin
í baráttunni gegn fílapenslum, bólum og feitri húð.
íslenskar leiðbeiningar fylgja. Fæst í flestum apótekum.