Morgunblaðið - 06.05.1997, Page 72
MORGUNBLAÐ'f', XRINGLAN I, 103 REYKJAVIK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGJÚR 6. MAÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Málamiðlunartillögur í lífeyrismálinu lagðar fram í efnahags- og viðskiptanefnd
Almennu sjóðirnir fái
að opna séreignardeildir
ALLIR lífeyrissjóðir fá heimild til að opna sér-
eignardeildir að tilteknum skilyrðum uppfylltum
og núverandi séreignarsjóðir geta starfað áfram
og opnað samtryggingardeildir ef þeir óska, sam-
kvæmt breytingartillögum sem unnar hafa verið
við frumvarp fjármálaráðherra um skyldutrygg-
ingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Um er að ræða málamiðlunartillögur sem Vil-
hjálmur Egilsson, formaður efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis, lagði fram á fundi nefnd-
arinnar í gærkvöldi.
12.000 krónur að lágmarki
til samtryggingar
Samkvæmt breytingartillögunum er sett það
skilyrði að fjárhagslegur aðskilnaður á milli sér-
eignadeilda og samtryggingardeilda sé tryggður.
Að sögn Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra
er í öðru lagi sett það skilyrði að í samþykktum
þeirra lífeyrissjóða, sem ætla að hafa starfandi
séreignardeild, verði miðað við að einstaklingar
geti gert samning um sérstakan lífeyrissparnað
eftir að greiddar hafa verið að minnsta kosti
12.000 krónur á mánuði til samtryggingar. Ein-
stökum sjóðum verði hins vegar frjálst að ákveða
hvort þessi lágmarksgreiðsla til samtryggingar-
innar skuli vera hæixi en 12.000 kr.
í þriðja lagi er gert ráð fyrir að einstaklingar
sem ákveða að taka þátt í séreignarsparnaði geti
sjálfír ráðið til hvaða aðila slíkt framlag er greitt
að því tilskildu að sá aðili hafi rekstrarleyfi.
Bil brúað milli sjónarmiða
„Með þessum tillögum er reynt að samræma
sjónarmið sem hafa verið mest áberandi. Gerð er
tillaga um að séreignarsjóðunum verði gert kleift
að starfa áfram undir sínum merkjum en jafn:
framt er komið til móts við hugmyndir ASÍ og VSÍ
um að almennu lífeyrissjóðirnir, sem starfa á
grundvelli kjarasamninga, geti opnað séreignar-
deildir, eins og þeir hafa óskað eftir, að tilteknum
skilyrðum uppfylltum. Petta er vinna sem hefur
farið fram í framhaldi af framsöguræðu minni á
Alþingi og með tilliti til þeirra umræðna sem hafa
farið fram, enda var því lýst yfir af minni hálfu að
það þyrfti að leita eðlilegrar málamiðlunar. Eg tel
að þessar tillögur ættu að geta brúað það bil sem
er á milli sjónarmiða í þessu máli,“ sagði Friðrik.
Vilhjálmur Egilsson sagði að nú yrði látið reyna
á hvort þessar hugmyndir mundu leiða til sam-
komulags. Hann sagði að þær hefðu verið unnar
í ljósi þeirra umsagna og umræðna sem orðið
hefðu um þetta mál á undanfórnum dögum og vik-
um. „Ef menn ljúka ekki málinu, þá sjáum við ekki
neina löggjöf um lífeyrissjóði á næstu árum. Þá
mun fjármálaráðuneytið neyðast til að afgreiða
þær beiðnir um breytingar á reglugerðum sem
liggja fyrir og þá mun kerfið þróast í samræmi við
það, og það verður mjög erfitt að taka með rök-
rænum hætti á heildarlöggjöf um lífeyrissjóði eft-
ir að það hefur gerst. Nú er tækifæri til staðar en
það er að sjálfsögðu ekki sama hvernig niðurstað-
an verður,“ sagði hann.
Efnahags- og viðskiptanefnd mun halda áfram
umfjöllun sinni um breytingartillögurnar á fundi
sínum á morgun.
Sameining
Reykjavíkur og
Kjalarneshrepps
Kosið
21. júní
AKVEÐIÐ hefur verið að kos-
ið verði um sameiningu Kjalar-
neshrepps og Reykjavíkur 21.
júní næstkomandi.
Samstarfsnefnd um samein-
inguna skilar tillögum sínum
um næstu helgi, að sögn Pét-
urs Friðrikssonar, oddvita
Kjalarneshrepps. Að því loknu
verða þær ræddar í sveitar-
stjómunum.
Pétur sagði að ákveðið yrði
fljótlega hvenær tillögurnar
yrðu kynntar og yrði a.m.k.
einn mánuður notaður til kynn-
ingarinnar.
„Ég á von á því að samning-
urinn verði kynntur fyrir Kjal-
nesingum á borgarafundi og
honum dreift inn á heimili
manna. Hann liggur ekki alveg
fyrir ennþá en hann er að
skríða saman,“ sagði Pétur.
Sala a
nýjum bfl-
um eykst
um 58%
SALA á nýjum fólksbílum
jókst um 58,1% í apríl síðast-
liðnum miðað við sama tíma í
fyrra, samkvæmt bráðabirgða-
tölum um bifreiðainnflutning
frá Bílgreinasambandi Islands.
I fyrra voru seldir 669 nýir
fólksbílar í aprílmánuði en voru
1.058 talsins nú.
Aukning í bílasölu fyrstu
fjóra mánuði ársins er 21,2%.
Fyrstu fjóra mánuði ársins í
fyrra voru seldir 2.466 nýir
fólksbílar en 2.990 fyrstu fjóra
mánuði þessa árs.
Af einstökum bifreiðaumboð-
um hafði Hekla hf. stærstu
markaðshlutdeild, flutti inn 667
fólksbíla fyrstu fjóra mánuði
ársins, sem er 22,3% markaðs-
hlutdeild, Ingvar Helgason hf.
flutti inn 557 bíla (18,6%), P.
Samúelsson flutti inn 484 bíla
(16,2%) og B&L 425 bfla
(14,2%).
I aprfl voru fluttar inn 150
notaðar fólksbifreiðir.
Morgunblaðið/Oddur Einarsson
KARL Sigurjónsson og Sigmundur K. Ríkharðsson í veðurblíðunni við gosgjána á Vatnajökli sl. sunnudag.
Kennarar í Reykjavík héldu fund um stærðfræðiprófíð
Nægileg rök til að
dæma prófið ógilt
TÆPLEGA 50 stærðfræðikennarar
í 10. bekkjum á höfuðborgarsvæð-
inu leggja til að lokamat í stærð-
fræði vorið 1997 verði í höndum
skólanna sjálfra. Kennararnir hitt-
ust á fundi í Hagaskóla í gærkvöldi
og komust að þeirri niðurstöðu, að
samræmt prófi í stærðfræði hafi
verið of viðamikið. Auk þess hafi
ýmislegt athugavert verið við fram-
setningu verkefna á prófinu. Fund-
armenn töldu nægileg rök fyrir því
að prófið verði dæmt ógilt.
„Það væri hægt að bjarga
þessu með því að búa til sérstök
vorpróf í skólunum sjálfum sem
yrðu tekin núna í maí. Það yrði þó
ekki samræmt mat út úr þeim próf-
um og því ekki hægt að bera nem-
endur saman,“ segir Jóhann
Ingólfsson, stærðfræðikennari í
Hagaskóla.
Hann segir að í sumum skólum
séu haldin regluleg skyndipróf í
stærðfræði og hægt sé að meta
frammistöðu nemenda af þeim.
Nokkuð var rætt á fundinum
hver ástæðan væri fyrir svo viða-
miklu stærðfræðiprófi núna. Sömu
aðilar sömdu prófið nú og í fyrra en
þá hefði engin athugasemd verið
gerð við prófið frekar en undanfar-
Óku að gosgjánni
NOKKRIR félagar úr ferðaklúbbn-
um 4X4 fóru í árlega ferð sína
upp á Vatnajökul í lok síðustu
viku og óku þeir meðal annars að
gosgjáimi þar sem þeir fóru fót-
gangandi síðasta spölinn að
gjánni. Þetta mun vera í fyrsta
skipti sem farið er á jeppum að
gosstöðvunum eftir gosið síðastlið-
ið haust.
Að sögn Odds Einarssonar, eins
ferðalanganna, var ekið úr Kverk-
fjöllum norður fyrir gjána og inn
á Grímsfjall þar sem hópuriun
gisti og á sunnudaginn var ekið
upp á Háubungu og þaðan að vest-
urenda gosgjárinnar.
„Við ókum eins nálægt henni
eins og hægt var og þaðan geng-
um við um einn kílómetra og fór-
um niður við syðri hluta gjárinnar.
Það er komið íslag yfir sprung-
urnar og sums staðar er það
þykkt og heldur vel, en víða er
það örþunnt og stórhættulegt yfir-
ferðar. Við vorum allir í böndum
og með viðeigandi búnað, en þetta
er ekki ferð sem maður mælir
með fyrir hvern þann sem dettur í
hug að fara þarna því nauðsynlegt
er að gæta fyllstu varúðar og fara
að öllu með gát. Svæðið þama er
mjög stórfenglegt og tilkomumikið
að ganga þarna innan um ísbrotin.
Það virðist vera hægt að ganga
þarna alveg inn um suðurhluta
sprungunnar og eitthvað eftir
henni, en þetta er auðvitað glæfra-
för og menn þurfa að vera með
réttan útbúnað," sagði Oddur.