Morgunblaðið - 06.06.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997 21
__________ERLEIMT_______
Stjórn Jospins
bíða erfið verkefni
Aðalfimdur
Hafnarfjarðardeildar RKI
verður haldinn í Bæjarhrauni 2
fimmtudaginn 12. júní kl. 17.15.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
París. Morgunblaðið.
FORSETI Frakklands, Jacques
Chirac, kvaðst í gær treysta því
að reisn, gagnkvæm virðing og
umhyggja fyrir hag landsmanna
myndi einkenna samstarf sitt og
ríkisstjórnar Lionels Jospins. Fyrsti
fundur ríkisstjórnarinnar var hald-
inn í gær og stóð í hálftíma. Chirac
heilsaði ráðherrunum en ræddi
ekki við þá sérstaklega. Hann held-
ur ræðu í Lille á morgun, en þar
var Martine Aubry, einn valda-
mesti ráðherrann í nýju stjórninni,
aðstoðarborgarstjóri þar til í vik-
unni. Hún er ráðherra atvinnumála
og önnur í valdaröð frá Jospin.
Atvinnumál og málefni útlend-
inga eru sérsvið Aubrys, sem er
vinsæll vinnuþjarkur, komin til
valda fyrir eigin verðleika fremur
en orðstír föður síns, Jacques Del-
ors, fyrrum forseta framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins.
Aubry var aðstoðarráðherra í
vinnumálaráðuneytinu 1981 og
ráðherra þar tíu árum síðar. Hún
hefur barist gegn kynþáttafordóm-
um og meðal annars stofnað sam-
tök_ í því skyni.
Árið 1995 hafnaði hún því að
verða varaformaður Sósíalista-
flokksins en fær nú valdamesta
ráðherraembættið að forsætis-
ráðuneytinu undanskildu. Mála-
flokkur hennar er talinn sá erfið-
asti sem nokkur ráðherra þarf að
fást við en Aubry nýtur mikils
trausts og er spáð glæstum frama
í stjórnmálum.
Fyrstu verkefni hennar tengjast
undirbúningi mikils vinnumála-
fundar í sumar og næstu mánuði
þarf hún að hefjast handa við að
efna loforð um að stytta vinnuvik-
una og skapa 350 þúsund ný störf
handa ungu fólki. Aubry hefur
starfað náið með Claude Allegre,
sem nú er menntamálaráðherra,
og Elisabeth Guigou, dómsmála-
ráðherra.
Fjármálaráðherrann Dominique
Strauss-Kahn er burðarstoð í
stjórninni ásamt Aubry. Þessi hag-
fræðiprófessor og höfundur stefnu
sósíalista í efnahagsmálum þykir
fær og öruggur stjórnmálamaður.
Hann var formaður fjárlaganefnd-
ar þingsins í þijú ár þar til hann
var iðnaðarráðherra 1991.
Strauss-Kahn bíða erfið verkefni.
Lofað hefur verið að lækka virðis-
aukaskatt á matvæli og ákveða
verður hvort framhald verður á
einkavæðingu ríkisfyrirtækja á
borð við France Telecom, Renault
og Thomson.
Konur þriðjungur ráðherra
Ráðherrahópurinn þykir um
margt nýstárlegur. Konur eru
þriðjungur ráðherra stjórnarinnar,
sem er sú fámennasta frá 1962.
Ráðherrar fyrri stjórnar voru 32
en eru nú 15. Þrír nýiiðar eru í
stjórninni og athygli vekur að Josp-
in valdi ekki gamlar stjörnur á
borð við Laurent Fabius, Jack Lang
og Michel Rocard.
Reynt fólk er í mikilvægum stöð-
um. Aubry, Guigou og Strauss-
Kahn auk Jean-Pierre Chevenem-
ent og Hubert Vedrine í ráðuneyt-
um innanríkis- og utanríkismála.
Chevenement var í forsetatíð Mitt-
errands m.a. varnarmálaráðherra.
Hann sagði sig úr Sósíalistaflokkn-
um eftir átök um aðgerðir Frakka
í Persaflóastríðinu og stofnaði eig-
in hreyfíngu.
Byggt á reynslu
Hann studdi Jospin fyrir forseta-
kosningarnar 1995 og hefur verið
í náðinni síðan. Hans bíður m.a.
að endurskoða innflytjendalöggjöf-
ina. Jospin hefur greinilega viljað
að hann einbeitti sér að frönskum
málefnum, þar sem að hann er
yfirlýstur andstæðingur Maastric-
ht-sáttmálans.
Öðru máli gegnir um Vedrine.
Hann er mikill Evrópusinni og van-
ur samstarfi forseta og ríkisstjórn-
ar úr andstæðum fylkingum. Vedr-
ine starfaði með Mitterrand frá
upphafi 1981 og þekkir Chirac frá
því hann var forsætisráðherra
1986-1988.
STEINAR WAAGE
1 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR 1
STEINAR WAAGE , SKÓVERSIUN SÍMI 551 8519 ^ \oppskórinn JL VELTUSUNDI ■ INGÓLFSTOGI SÍMI: 21212 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN SlMI 568 9212
Róa þarf
sjúklinga
London. Reuter
MIKILVÆGT er að sjúkraherbergi
og herbergi á slysadeildum séu fal-
lega innréttuð samkvæmt nýrri yf-
irlýsingu breskra heilbrigðisyfir-
vakla.
í kjölfar mikillar aukningar árása
á starfsfólk sjúkrastofnana hefur
heilbrigðisráðherra látið útbúa leið-
beiningar um það hvernig draga
megi úr streitu á sjúkrastofnunum
og um leið hættunni á því að sjúk-
lingar og aðstandendur ráðist á
starfsfólk.
í leiðbeiningunum er mælt með
því að hengdar séu upp róandi
vatnslita- og landslagsmyndir, mál-
að sé í samræmdum litum og stór-
um, þægilegum stólum, sjónvörpum
og áhugaverðu lesefni komið fyrir
á stofunum. Róandi litir sem mælt
er með eru grænn, blágrænn og
gulgrænn. Hins vegar er varað við
skærgulum og rauðum litum.
------------» »--------
Aftur í
loftið
Hong Kong. Reutcr.
TALSMENN tveggja flugfélaga í
Hong Kong, Cathay Pacific og
Dragonair, tilkynntu í gær að þess
væri vænst að allar Airbus 330-300
flugvélar félaganna yrðu komnar í
notkun á ný nú um helgina. Vélarn-
ar voru teknar úr umferð vegna
vélabilana í Rolls Royce-hreyflun-
um, sem á þeim eru, 24. maí sl.
Bilanirnar urðu í hreyfli á þrem
véla Cathay og einnar frá Dragona-
ir. Misstu hreyflarnir afl á flugi.
Airbus 330-300 er tveggja hreyfla.
Yfirverkfræðingur Cathay sagði á
fréttamannafundi í gær að búið
væri að komast fyrir orsakir bilan-
anna og að reynsluflug hefði leitt
í ljós að hreyflarnir væru í lagi.
Flugmálayfirvöld í Hong Kong,
Bretlandi og Frakklandi, hafa stað-
fest að viðgerðin á hreyflunum sé
viðunandi.
I