Morgunblaðið - 06.06.1997, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi.
ÓLAFUR KRISTINN BJÖRNSSON,
Arnarheiði 8,
Hveragerði,
sem lést á heimili sínu þriðjudaginn 27. maí,
verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju
laugardaginn 7. júní kl.14.00.
Guðríður Jóna Indriðadóttir,
Bjarni Halldór Kristinsson, Þrúður Brynja Janusdóttir,
Indriði Kristinsson, Margrét Guðrún Karlsdóttir,
Grétar Jón Kristinsson, Ástrós Gyða Kristinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför
JÚLÍUSAR GÍSLASONAR,
Þingholtsstræti 23,
Reykjavík.
Inga S. Þorsteinsdóttir,
Sigríður Hólm Samúelsdóttir,
Sara Hólm
og aðrir vandamenn.
+
Móðir okkar,
VILBORG HELGADÓTTIR,
Eystra Súlunesi,
verður jarðsungin frá Saurbæjarkirkju,
Hvalfjarðarströnd, þriðjudaginn 10. júní
kl. 14.00. Jarðsett verður að Leirá.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á
Sjúkrahús Akraness.
Guðlaug Bergþórsdóttir,
Helgi Bergþórsson,
Unnur Bergþórsdóttir.
+
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát
og útför bróður okkar,
PÉTURS ÓLAFS MAGNÚSSONAR
frá Siglufirði,
Baðsvöllum 16,
Grindavík.
Vigdís Magnúsdóttir,
Hólmfríður Magnúsdóttir,
Bragi Magnússon.
GRÍMEY
JÓNA TANSDÓTTIR
+ Grímey Jónat-
ansdóttir fædd-
ist á Smáhömrum í
Steingrímsfirði 21.
ágúst 1908. Hún
Iést á Garðvangi í
Garði 1. júní síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Jónat-
an Arnason og Þur-
íður Guðmunds-
dóttir. Hún var
yngst sjö systkina.
Grímey giftist
Aðalsteini Agústi
Aðalsteinssyni, f. 3.
júní 1895, d. 29.
nóv. 1951. Þau bjuggu á Hey-
dalsá frá 1926 til 1949 og fluttu
þá til Hólmavíkur. Börn þeirra
eru Aðalheiður Hanna, f. 28.
Nú þegar amma mín blessunin
er dáin, leita á mig minningar um
hana og allar kalla þær fram bros
og hlýjar tilfinningar. Dettur mér
meðal annars í hug, að fyrir nokkr-
um árum keyrði ég fyrir fyrirtæki
sem flytur inn pappír og sá ég
meðal annars um að senda pappír
til Keflavíkur, sem síðan var
notaður í Suðurnesjatíðindi. Þegar
ég kom að heimsækja ömmu var
hún alltaf tilbúin með bunka af
blaðinu sem hún ætlaði mér og
stundum sendi hún nokkur blöð
til mín með mömmu og Hallgrími,
svo strákurinn hefði eitthvað að
lesa. Henni þótti varið í að ég kom
nálægt þessu blaði, þó í litlum
mæli væri.
sept. 1928, d. 16.
sept. 1945; Jónatan
Arni, f. 7. júní
1931, kvæntur
Onnu Margréti Há-
konardóttur og
eiga þau þrjú börn;
Ásthildur, f. 21.
mars 1934, gift
Hallgrími Krist-
geirssyni sem lést
26. sept. 1996. Ást-
hildur á einn son.
Grímey fluttist til
Keflavíkur 1970.
Hún átti fjögur
barnabörn og átta
barnabarnabörn.
Útför Grímeyjar fer fram
frá Fossvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Önnur minning er frá bernskuár-
unum. Þá bjó amma á Hólmavík.
Alli frændi minn og vinur dvaldist
hjá henni á sumrin, en ég var í
sveit í Hlíð í Kollafirði hjá systur-
börnum og systur ömmu. Fékk ég
stundum að dveljast hjá ömmu og
Alla í nokkra daga. Við frændumir
voru miklir grallarar og gerðum
ýmis sprell. Eitt sinn vorum við
frændur í bílaleik uppi á lofti hjá
ömmu og þótti gólfið eitthvað ekki
nægilega gott í leikinn. Tókum við
þá hveiti sem var í stórum sekk
og bjuggum til vegi og stóra skafla
til að hafa allt sem raunveruleg-
ast. Væntanlega hefur ekki verið
þrifalegt um að lítast þegar amma
kíkti upp á skörina, en hún tók því
RUT
HERMANNS
■4- Rut Hermanns
' fiðluleikari
fæddist í Hamborg
11. ágúst 1913. Hún
lést í Reykjavík 29.
maí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Friedel og
Hans Hermanns.
Systur hennar eru
Beatrice H. Sim-
mat, f. 1911, og
Esther H. Srevekr-
ug, f. 1916.
Eiginmaður Rut-
ar var Halldór
Hansen yfirlæknir
en hann lést árið 1975. Rut Hermanns var af tónlistar-
Útför Rutar fór fram frá fólki komin. Móðir hennar Friedel
Garðakirkju 2. júní. var píanóleikari, faðir hennar Hans
Það var mikil gæfa
Sinfóníuhljómsveitar
íslands, að strax við
stofnun hennar komu
til liðs ágætir tónlist-
armenn sem numið
höfðu og þroskast við
helstu höfuðból evr-
ópskrar tónmenning-
ar. Sumir þessara
góðu gesta festu hér
rætur og unnu hér alla
sína starfsævi við góð-
an orðstír og lögðu
ómetanlegan skerf til
íslenskrar tónmenn-
ingar.
+
Þökkum af alhug alla samúð, hlýhug og virðingu við andlát og útför mæðgnanna,
SIGRÍÐAR INGIMUNDARDÓTTUR,
Bústaðavegi 89,
Reykjavík.
ERLU ÓSKARSDÓTTUR,
Búð,
Þykkvabæ.
Jón Stefánsson,
Stefán Jónsson, Sigríður Sveinsdóttir,
Ingiríður Karen Jónsdóttir, Þröstur Eyjólfsson,
Bryndís Jónsdóttir, Ágúst Ingi Andrésson,
Steinunn Jónsdóttir, Hallur Ólafsson,
Daníel Hafliðason,
barnabörn og barnabarnaböm.
Daníel Hafliðason,
Sigurður Daníelsson, Soffía Bragadóttir,
Kolbrún Kristín Daníelsdóttir, Ellert Hreinsson,
Hafrún Inga Daníelsdóttir,
barnabörnin,
Jón Stefánsson og systkini.
Guð geymi ykkur öll.
öllu vel og ekki man ég eftir að
við fengjum nokkum tíma skamm-
ir. Hún var ákaflega stolt af okkur
barnabörnunum og þótti mjög vænt
um okkur öll. Það fann maður á
öllu hennar viðmóti, hlýjunni sem
streymdi frá henni og hvernig hún
talaði um okkur og til okkar. Þegar
síðan barnabarnabörnin fóru að
fæðast í heiminn, varð það sama
upp á teningnum, þau urðu einnig
augasteinarnir hennar og gætti
hún þess vel að til væri eitthvert
góðgæti í skápunum, þegar þau
komu í heimsókn.
Amma var alveg sérstök kona,
sjálfstæð í hugsun og verki og það
gustaði alla tíð af henni. Hún var,
eins og fólk af hennar kynslóð, vön
mikilli vinnu strax frá bernsku, ólöt
og vann fljótt og vel. Hún varð
ekkja aðeins 43 ára gömul og vann
fyrir sér ein allar götur upp frá
því. Á Hólmavík vann hún lengst
af í fiski og síðan við að skúra
skólann. Þegar hún flutti síðan til
Keflavíkur árið 1970 vann hún í
fiski hjá Jónatani syni sínum í Litlu
milljón. Hún hætti að vinna úti
þegar hún varð sjötug og lét sér
nægja ellilífeyrinn til framfærslu.
Amma var mikil hannyrðakona og
pijónaði á okkur barnabörnin vettl-
inga og sokka og síðar einnig á
langömmubörnin. Hún bakaði
heimsins bestu kleinur og oft fékk
maður kleinupoka með sér heim
eftir heimsóknir til hennar.
Elsku amma, ég er þess fullviss
að þín hafa beðið ástvinir handan
móðunnar miklu og tekið vel á
móti þér. Ég á yndislega minningu
um konu með hlýjan faðm og léttan
hlátur.
Guð geymi þig.
Þinn,
Hörður.
einnig píanóleikari og tónskáld.
Héldu þau hjónin iðulega tónleika
saman, bæði í Þýskalandi sem og
erlendis. Heimili fjölskyldunnar var
mikið menningarheimili og mjög
gestkvæmt. Þar komu saman
þekktustu listamenn Hamborgar á
þeim tíma þegar Rut var að alast
upp. Rut nam fiðluleik í fæðingar-
borg sinni. Á árunum eftir síðari
heimsstyijöldina þegar Þýskaland
var í sárum leituðu margir ungir
Þjóðveijar gæfunnar utan heima-
lands síns. Þar í hópi var Rut Her-
manns. Það var fyrir áeggjan vin-
konu hennar Hermínu S. Kristjáns-
son, píanóleikara, sem þá var nem-
andi föður hennar, að Rut hélt til
Islands árið 1948 til þess að stunda
tónlistarkennslu á Akureyri. Frá
stofnun Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands árið 1950 lék hún með hljóm-
sveitinni en varð fastráðinn starfs-
maður árið 1953. Frá því Rut flutti
suður til Reykjavíkur stundaði hún
þar einnig kennslu. Rut var góður
fiðluleikari og hélt tónleika hér á
landi, m.a. lék hún oftar en einu
sinni einleik með Sinfóníuhljóm-
sveitinni. Hún lét af störfum hjá
Sí árið 1978.
Rut var mjög smekkvís og mikil
kunnáttumanneskja í tónlist. Hún
sótti mikið tónleika bæði hér heima
og ekki síður erlendis. Hún vílaði
ekki fyrir sér að fara sérstakar
ferðir til útlanda alveg fram á síð-
asta ár til þess að hlýða á tónleika
sem henni þóttu eftirsóknarverðir.
Rut lést í Landakotsspítala þann
29. maí sl. eftir nokkurra mánapa
sjúkralegu. Sinfóníuhljómsveit Is-
lands kveður Rut Hermanns með
þökk og virðingu.
Helga Hauksdóttir,
tónleikastjóri SÍ.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa,
öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig
auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang
þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp-
lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það
eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari
ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu-
bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.