Morgunblaðið - 06.06.1997, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 43
SKÓLASLIT
Hiir
mm&e f
Morgunblaðið/Silli
NÝSTÚDENTAR ásamt skólameistara.
Morgunblaðið/Golli
ÞAU hlutu viðurkenningu fyrir góðan námsárangur: Guðný B. Guðjónsdóttir, Auður Jónsdóttir,
Stefán Einarsson, Hulda Stefánsdóttir, Virpi Jokinen, Gabríela Friðriksdóttir, Ólöf Björnsdóttir
og Gunnar S. Valdimarsson.
Húsvískir
stúdentar
FRAMHALDSSKÓLINN á
Húsavík brautskráði 28 nem-
endur nú í vor, þar af 13 stúd-
enta. Skólinn minnist 10 ára
afmælis síns um þessar mund-
ir og hefur hann frá upphafi
brautskráð 106 nemendur.
Að þessu sinni útskrifaði
skólinn 8 nemendur af verkn-
ámsbraut, 4 af verslunarbraut
og 3 af öðrum brautum. 174
nemendur voru við nám í skól-
anum í vetur og 80 nemendur
sóttu 12 námskeið á vegum
skólans.
Guðmundur Birkir Þorkels-
son skólameistari taldi að það
torveldaði aðsókn að skólan-
um, live heimavist hans væri
lítil. Úr því þyrfti að bæta sem
fyrst. Hann kvaddi nemendur
með þeirri ósk að þeir hefðu
á skólaárunum aflað sér góðr-
ar þekkingar, bæði fyrir frek-
ara nám og störf.
FRÍÐUR hópur útskriftarnema MHÍ fyrir utan Háskólabíó á útskriftardaginn.
Morgunblaðið/Golli
52 listamenn útskrifaðir
MYNDLISTA- og handíðaskóli íslands útskrif-
aði 52 nemendur síðastliðinn laugardag. Þar
af útskrifuðust 33 nemendur af myndlistadeild
og 19 af listiðna- og hönnunardeild. Alls voru
nemendur skólans í ár 220 talsins, þar af voru
10% erlendir gestanemar.
Erlend samskipti skólans voru mikil á árinu
og hefur skólinn samskipti við um 60 erlendar
menntastofnanir í nemenda- og kennaraskipt-
um og margvíslegum verkefnum tengdum list-
námi. Skólinn hefur einnig verið virkur í margs
konar menningarstarfsemi í vetur og stóð m.a.
að alþjóðlegri ráðstefnu um listagagnrýni ásamt
Norræna húsinu og listasöfnunum síðastliðið
haust.
Útskriftin fór fram í Háskólabíói og veitti
skólinn einum nemenda úr hverri skor sem
skarað hefur sérstaklega fram úr í námi árit-
aða bókargjöf. Einnig söng Syrpukórinn, kór
nemenda, við athöfnina undir stjórn myndlista-
mannsins Kristjáns Steingríms Jónssonar.
Um kvöldið fjölmenntu svo útskriftanemar í
grillpartí í nemendagalleríinu „Nema hvað“ á
Þingholtsstræti. í galleríinu hefur verið örsýn-
ing á verkum útskriftarnema en síðasti sýning-
ardagur sýningarinnar var einmitt á útskriftar-
daginn.
FYRSTU hársnyrtinemarnir sem ljúka prófi í greininni.
ÚTSKRIFTARHÓPUR Iðnskólans í Hafnarfirði.
Brautskráning úr Iðnskólanum í Hafnarfirði
Fyrstu hársnyrti-
nemarnir
fyrstu sveinsprófin sem haldin eru
í þessari iðngrein.
Hæstu einkunn á burtfararprófi
iðnnema hlaut Sigtryggur Ólafs-
son stálskipasmiður en hæstu ein-
kunn hársnyrtinema hlaut Kristín
Pétursdóttir. Á lokaprófi af hönn-
unarbraut hlaut Selma Björk Pet-
ersen hæstu einkunn.
Við skólaslit voru einnig veitt verð-
laun í hönnunarsamkeppni skólans
en sýning nemenda á hönnunar-
braut stendur nú yfir í Hafnar-
borg. Dómnefndin var skipuð
hönnuðunum Eyjólfi Pálssyni, El-
ísabetu Ingvarsdóttur og Þórdísi
Zoéga og ákváðu þau að verðlaun-
in skyldu skiptast jafn á milli 5
nemenda. Þau sem fengu verðlaun
voru: Bragi Valgeirsson fyrir úr
úr ryðfríu stáli, Matthildur Jó-
hannsdóttir fyrir göngustaf sem
sáir fræjum, Ævar Gunnarsson
fyrir kolla sem hægt er að stafla,
Hrafnhildur Svansdóttir fyrir skáp
úr járni og Ingigerður Baldursdótt-
ir fyrir geisladiskastand úr plasti.
Áfmælisárgangur skólans
mættu við skólaslitin og fluttu 50
og 40 ára nemendur skólanum
kveðju sína. Þá sungu félagar úr
kór eldri Þrasta nokkur lög og í
þeim hópi var einn úr fyrsta út-
skriftarhópi skólans, Kristinn Guð-
jónsson, en hann lauk prófi árið
1928.
IÐNSKÓLINN í Hafnarfirði braut-
skráði 45 nemendur föstudaginn
30. maí sl. Af þeim voru 27 iðn-
nemar, 17 af hönnunarbraut og
einn iðnmeistari.
I hópi iðnnemanna voru 9 hár-
snyrtinemar og eru það fyrstu
nemendurnir sem ljúka burtfarar-
prófi í þeirri iðngrein en hún varð
til árið 1993 með sameiningu á
hárgreiðslu og hárskurði. Átta
þeirra munu þreyta sveinspróf í
næstu viku og eru það einnig
Morgunblaðið/Jón Svavarsson