Morgunblaðið - 23.04.1997, Side 1
64 SIÐUR B/C/D
164. TBL. 85. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Kohl heitir
aðstoð
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, lagði lykkju á leið sína í
gær þar sem hann var á ferð í
austurhluta landsins og fullviss-
aði fórnarlömb þeirra miklu
flóða, sem nú heija á Mið-Evr-
ópu, um að stjórnvöld myndu
veita alla nauðsynlega aðstoð
veg^na hamfaranna. Hér stígur
kanslarinn yfir vatnselginn í
borginni Frankfurt an der Oder,
á landamærum Þýskalands og
Póllands, en talið er að um einni
milljón sandpoka hafi verið hlað-
ið i varnargarða á þessu svæði.
Flóð í ánni Oder, sem markar
að hluta landamæri ríkjanna,
hefur valdið miklu tjóni í báðum
löndum og kostað mannslíf í
Póllandi og einnig í Tékklandi.
Þjóðveijar hafa hingað til slopp-
ið við manntjón en rafmagn hef-
ur farið af á stórum svæðum og
holræsi yfirfyllst.
Forsætisráðherra Póllands,
Wlodzimierz Cimoszewics, baðst
í gær afsökunar á þeim orðum
sínum að fórnarlömb flóðanna
hefðu betur keypt sér trygging-
ar. í yfirlýsingu frá honum, sem
birtist í pólskum blöðum í gær,
sagði hann orð sín hafa verið
óviðeigandi og fullkomlega skilj-
anlegt að þau hefðu vakið andúð
fólks, í ljósi þeirra hamfara sem
nú gengju yfir.
Príebke hlýtur 15
Róm. Reuter.
ÍTALSKUR herdómstóll úrskurð-
aði í gær Erich Priebke, fyrrver-
andi höfuðsmann í SS-sveitum nas-
ista í heimsstyijöldinni síðari, til
fimmtán ára fangelsisvistar fyrir
þátttöku hans í fjöldamorðum í
Ardeatine-hellum á Ítalíu árið
1943. Sami dómstóll stytti jafn-
framt afplánun Priebkes niður í
fímm ár. Ýmis atriði þóttu milda
dóminn yfír Priebke, sem er orðinn
83 ára.
Þá var dómur yfir Karl Hass,
majór í SS-sveitunum, vegna sama
atburðar, styttur niður í átta mán-
uði og er hann frjáls maður, þar
sem hann hefur setið í stofufang-
elsi lengur en dóminum nemur.
ára dóm
Alls voru 335 karlar og drengir
teknir af lífí í heilunum. Priebke
og Hass voru dæmdir sekir um
fjöldamorðin á síðasta ári en án
þess að hljóta fangelsisvist. Vakti
sá dómur geysilega reiði og var
málið tekið upp aftur fyrir herdóm-
stól. Búist er við að Priebke losni
úr fangelsi eftir hálft annað ár.
Arafat og Levy segja fund sinn í
Brussel marka þáttaskil
„Mikilvæg
og'jákvæð
skref stigin“
Brussel. Reuter.
YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, og David Levy, utanríkisráð-
herra Israels kváðust í gær hafa átt
árangursríkan fund um að koma
friðarumleitunum í Mið-Austurlönd-
um af stað á ný. Féllust þeir á að
hittast að nýju en vildu þó ekki segja
hvenær af því yrði.
Arafat og Levy hittust í Brussel
og hafði Evrópusambandið frum-
kvæði að fundi þeirra. „Ég er mjög
ánægður með viðræður okkar,“ sagði
Levy eftir fundinn. Arafat tók í sama
streng: „Mikilvæg og jákvæð skref
hafa verið stigin.“
Fundurinn stóð í tæpa klukku-
stund og var þetta í fyrsta sinn frá
því í apríl að svo háttsettir fulltrúar
þessara aðila funda, en þá hittust
þessir sömu menn í tengslum við
Evrópusambandsfund á Möltu. Segja
fréttaskýrendur þetta mikilvægt
skref fýrir sambandið sem hefur lengi
leitast við að auka diplómatískt vægi
sitt í friðarumleitunum fyrir botni
Miðjarðarhafs. Hvorki Arafat né
Levy vildi fjölyrða, á fréttamanna-
fundi síðdegis í gær, um það hvað
þeir hefðu orðið ásáttir um til þess
að greiða fyrir friðarumleitunum, en
báðir lögðu áherslu á að fundurinn
hefði markað þáttaskil.
Sagðist Levy viss um að takast
myndi að efla traust manna í millum
nægjanlega til þess að halda viðræð-
um áfram. Arafat sagði að nauðsyn-
legt væri að halda fundum áfram,
því lítið hefði þokað í friðarviðræðun-
um undanfarið.
„Kerfið allt er ekki lengur stíflað,"
sagði Jacques Poos, utanríkisráð-
herra Lúxemborgar, sem var gest-
gjafí á fundinum fyrir hönd Lúxem-
borgar, sem fer með forsæti Evrópu-
sambandsins. „Andrúmsloftið var
sérstaklega gott... Við ræddum
hvemig aðilamir gætu hafíð viðræður
á ný.“
Reuter
YASSER Arafat, Jacques Poos og David Levy á fréttamanna-
fundi, sem ESB hafði frumkvæði að, í Brussel í gær.
Reuter
Franskur
áfangasigur
FRAKKINN Christophe Mengin
fagnar sigri í 16. áfanga Frakk-
landskeppninnar í hjólreiðum, en
dagleiðin var 181 km og lá um
Alpana. Þjóðveijinn Jan UUrich
heldur hins vegar forystunni, er
með bestan samanlagðan tíma en
sigurvegara síðasta árs, Dananum
Bjarne Riis, gekk illa í gær og
er hann nú í 7. sæti.
Paisley harðorður í garð Breta vegna undanlátssemi við írska lýðveldisherinn
Segir Sinn Fein hafa „sprengt
sér leið að sa.mninga.horðinn “
London. Reuter.
IAN Paisley, leiðtogi Demókrataflokks sam-
bandssinna á Norður-írlandi (DUP), sagði í gær
að flokkur sinn myndi hætta þátttöku í viðræðum
um frið í héraðinu eftir að atkvæðagreiðsla um
áætlun um afvopnun skæruliðahreyfingar írska
lýðveldishersins (IRA) fer fram í dag.
Paisley sagði við fréttamenn í gær, eftir að
hann fundaði með Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, að það að leyfa Sinn Fein, stjórnmála-
armi IRA, að taka þátt í viðræðunum væri „svik-
samlegt" og því hlyti DUP að draga sig út úr
viðræðunum.
IRA boðaði á laugardag til vopnahlés til þess
að Sinn Fein gæti tekið sæti í friðarviðræðunum,
sem eiga að hefjast fyrir alvöru 15. september.
„Staðreyndin er sú,“ sagði Paisley, „að IRA/Sinn
Fein hefur sprengt sér leið að samningaborðinu,
og ekkert, nema auðir stólar sambandssinna við
það sama borð, getur sýnt hvernig þessari svik-
semi er hafnað." Flokkur Paisleys er
næststærsti flokkur mótmælenda, sem
eru hlynntir áframhaldi breskra yfirráða
á Norður-írlandi, en minni flokkur þeirra,
Breskir sambandssinnar, drógu sig út
úr viðræðunum á mánudag. Stærsti
flokkur sambandssinna, Sambandssinnar
Ulster (UUI), íhugar nú stöðu sína í við-
ræðunum.
Martin McGuinnes, einn leiðtoga Sinn
Fein, lýsti því yfír í gær að hann teldi
að sambandssinnar myndu ganga að
samningaborðinu í september, hvað sem liði
mótmælum þeirra núna, vegna kröfu almennings
á Norður-Irlandi um frið.
Trimble og Blair halda tengslum
Mo Mowlam, Norður-írlandsmálaráðherra
bresku stjómarinnar, sagði eftir fund forsætis-
ráðherrans og Paisleys að Blair og David
Trimble, leiðtogi UUP, héldu tengslum
sín í milli ef það mætti verða til þess
að minnka efasemdir sambandssinna um
vopnahléið sem boðað var á laugardag.
Sambandssinnar eru í meirihluta á Norð-
ur-írlandi og flokkar þeirra hóta nú að
greiða atkvæði gegn áætlun Breta og
Ira um að „vopn verði lögð niður“ á
Norður-írlandi. Segja þeir að stjórnvöld
í London og Dublin hafi gert breytingar
á áætluninni til að koma til móts við
Sinn Fein og því yrði friðarsáttmáli, byggður á
þessari áætlun, ætíð vafasamur.
Mowlam sagði það bót í máli að Trimble hefði
lýst því yfir á mánudag, að þrátt fyrir efasemd-
ir myndi hann ekki hætta þátttöku í viðræðun-
um, þótt hann kynni að greiða atkvæði gegn
samkomulaginu.
IAN Paisley