Morgunblaðið - 23.04.1997, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Loðnuverksmiðja SR-mjöls
Ekki veitt
starfsleyfi nema
til eins árs
Morgunblaðið. SigluQörður.
BÆJARSTJÓRN Siglufjarðar hefur
lagt það til við Hollustuvernd ríkis-
ins að loðnuverksmiðrju SR-mjöls á
Siglufirði verði ekki veitt starfsleyfi
nema til eins árs verði ekki gerðar
úrbætur á mengun þeirri sem kemur
frá verksmiðjunni, þ.e. bæði sjón-
og lyktarmengun, og fullkomnum
mengunarvamarbúnaði komið upp
við verksmiðjuna.
Kristján Möller, forseti bæjar-
stjómar Sigluflarðar, segir það
óásættanlegt að forsvarsmenn SR-
mjöls ætli sér þrjú ár í úrbætumar,
þær verði að koma fyrr. Hins vegar
telur Kristján vera vilja innan bæj-
arstjómarinnar til að veita starfs-
leyfi áfram ef framkvæmdir við
mengunarvamarbúnað verði vel á
veg komnar næsta vor. „Að sama
skapi ef ekkert verður farið að gera
að ári liðnu tel ég að erfitt verði
fyrir verksmiðjuna að fá vinnsluleyfi
yfír hásumarið.‘‘
Þórður Jónsson, framkvæmda-
stjóri SR-mjöls, segir stefnt að því
að taka nýja þurrkara í gagnið vor-
ið 1999. Vonast er til að þeir muni
bæta úr lyktar- og sjónmengun.
Reiknað er með að þeir verði af
sömu gerð og þurrkarar sem settir
hafa verið upp í öðmm verksmiðjum
þar sem sambærileg vandamál hafa
verið til staðar.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
SALKA með folöldunum sínum tveimur sem dafna vel.
Morugunblaðið/Sigríður
REYK frá Loðnuverksmiðju SR-mjöls leggur yfir bæinn og veldur lyktar- og sjónmengun.
Salka kast-
aði tveimur
folöldum
EyiaQarðarsveit. Morgunblaðið.
SA fágæti atburður gerðist á
bænum Bringu í Eyjafjarðar-
sveit að hryssan Salka frá Kvía-
bekk, ættb. nr. 9649 kastaði
tveimur folöldum sem bæði lifa
og eru spræk. Folöldin sem eru
hryssur eru undan Víkingi frá
Voðmúlastöðum í Austur-Lan-
deyjum.
Hjónin á bænum, Jóna Sig-
urðardóttir og Sverrir Reynis-
son óku með hryssuna alla leið
suður i Rangárvallasýslu í fyrra
og nú er árangur þeirrar ferðar
kominn í ljós og verður að telj-
ast mjög góður.
Salka hlaut 7,88 í aðalein-
kunn þegar hún var sýnd og er
þar af leiðandi nánast við það
að ná fyrstu verðlaunum. Geta
þau hjón á Bringu því átt von
á að eignast í framtíðinni miklar
gæðingshryssur.
Vatnsverð
til Kópavogs
Fyrra
mat
lækkað
DÓMKVADDIR yfirmatsmenn hafa
ákveðið að Kópavogsbær skuli
greiða 11,69 kr. til Vatnsveitu
Reykjavíkur fyrir hvern rúmmetra
af köldu vatni. Verðið gildi frá 1.
janúar 1996 til fimm ára og taki
árlega breytingum, sem verða á vísi-
tölu byggingarkostnaðar. Er þetta
um 80% hækkun af fyrra mati en
Vatnsveita Reykjavíkur hafði farið
fram á 30% hækkun í viðræðum við
Kópavog segir í bókun borgarráðs.
Bæjarráð Kópavogs hafnaði þeirri
hækkun.
Bæjaryfirvöld í Kópavogi kærðu
niðurstöðu undirmatsgerðar frá því
í desember árið 1996 en samkvæmt
henni var Kópavogsbæ gert að
greiða 12,70 kr. til Vatnsveitu
Reykjavíkur fyrir hvern rúmmetra
af vatni.
I bókun borgarráðs er því fagnað
að loks sé komin niðurstaða í
ákvörðun um vatnsverð til Kópavogs
og telur borgarráð að yfirmatið sé
vel viðunandi fyrir Vatnsveitu
Reykjavíkur. Tekið er fram að borg-
arráð sé ekki sammála þeirri túlkun
yfirmatsmanna að með jafngreiðsl-
um taki Kópavogur eðlilegan þátt í
kostnaði af fjárfestingum sem verði
á hverju verðtímabiii. Samkvæmt
skilningi borgaryfirvalda taki Kópa-
vogsbær engan þátt í afskriftum og
vöxtum af þeirri fjárfestingu sem
verður á milli verðákvarðana af
þeim hluta sem þá varðar.
-----»44----
Eldur í íbúð
í Safamýri
MIKLAR skemmdir urðu á íbúð í
Safamýri 42 þegar eldur braust út
í henni í gærkvöldi. Slökkviliðinu í
Reykjavík var tilkynnt uppúr níu
að reyk legði út úr íbúðinni. Það tók
um eina klukkustund að ráða niður-
lögum eldsins. Enginn var í íbúðinni
og eru eldsupptök ókunn.
Ný tilboð um byggingu yfir skautasvellið
IBR mælir með
tillögu Istaks
Kröfhiboranir
á undan áætlun
þrátt fyrir töf
BORGARRÁÐ vísaði á fundi sín-
um í gær erindi frá íþróttabanda-
lagi Reykjavíkur, ÍBR, um bygg-
ingu yfir skautasvellið í Laugardal
til umhverfis- og skipulagsnefnd-
ar. Alútboð fór fram um þetta
verkefni og skiluðu þrír verktakar
inn tilboðum sem öll reyndust vera
of há. ÍBR tók síðan upp viðræður
við verktakana um hvort einhveij-
ir ódýrari kostir væru fyrir hendi.
Nú hefur stjórn ÍBR ákveðið að
f;anga til samningaviðræðna við
stak um byggingu skautahallar í
Laugardal fáist til þess öll nauð-
synleg leyfi.
Ármannsfell afhenti nýtt tilboð
sem féll nær þeim fjárhagsramma
sem unnið hefur verið eftir og ís-
tak lagði fram tilboð sem fyrirtæk-
ið sendi ekki inn í upphaflegum
tilboðsfresti vegna mistaka. Bygg-
ingamefnd skautasvellsins fór yfir
tilboðin og voru niðurstöðurnar
þær að heildarkostnaðarverð
bygginganna væri svipað, eða
185-190 milljónir króna. Bygging
ístaks var talin vera vandaðri og
skipulag innanhúss betra. Var til-
laga fyrirtækisins talin falla betur
að þeim hugmyndum sem eru um
rekstur hússins.
Borgin
eignast húsið
Yfírbyggingin á að vera um
3.300 fermetrar að stærð og á að
geta hýst margvíslegar kynningar
og sýningar auk þess sem skauta-
íþróttamenn eiga þ&r skjól. Sam-
kvæmt samningi IBR við Reykja-
víkurborg skal fjallað um málið
fyrir borgarráði. ÍBR fjármagnar
framkvæmdina en samkvæmt
samningnum eignast Reykjavíkur-
borg húsið á 15-20 árum og legg-
ur fram 15 milljóna króna framlag
til framkvæmdarinnar á ári.
Erindið fer nú fyrir fund um-
hverfis- og skipulagsnefndar og
standa vonir til að það verði síðan
endanlega afgreitt frá borgarráði
næstkomandi þriðjudag. Reynir
Ragnarsson, formaður IBR, telur
að framkvæmdir geti hafist upp
úr mánaðamótum fáist öll nauð-
synleg leyfi og þeim verði lokið í
febrúar á næsta ári.
Forsetinn til
Finnlands
Með Fokk-
er-flugvél
Gæslunnar
ALLAR líkur eru á því að for-
seti íslands og fylgdarlið hans
fari með Fokker-vél Land-
helgisgæslunnar í opinbera
heimsókn forsetans til Finn-
lands í lok ágúst nk., að sögn
Kornelíusar Sigmundssonar,
forsetaritara. „Ef það verður
ákveðið verður það alfarið
gert af hagkvæmniástæðum,"
segir hann.
„Landhelgisgæslan gerði
okkur tilboð í flugið og með
tilliti til farangurs og farþega
sýnist mér að það sé ódýrara
að fara þannig en með venju-
legu áætlunarflugi Flugleiða,
SAS og Finnair," segir Korn-
elíus. Þá segir hann að auk
þess sem margir farþegar
muni verða með í för verði
tekinn með allur matur á þær
samkomur sem forsetinn mun
halda í heimsókninni.
Aðspurður telur Kornelíus
að ekki verði endanlega geng-
ið frá þessu máli fyrr en um
miðjan ágúst næstkomandi.
VERIÐ er að ljúka borun á annarri
af þremur nýjum holum við Kröflu
sem boraðar verða í sumar en auk
þeirra á að gera við tvær aðrar hol-
ur. Er ætlunin með þessu að fá
meira gufuafl fyrir virkjunina. Verk-
ið tafðist um nokkra daga þar sem
borinn sat fastur en I gær tókst að
losa hann.
Ásgeir Margeirsson, tæknistjóri
Jarðborana hf. sem annast borunina
fyrir Landsvirkjun, segir borinn hafa
fest á um tvö þúsund metra dýpi
en öllu lengra verður ekki borað.
Beita hafi þurft ýmsum brögðum til
að losa borinn. Holan er svokölluð
skáhola, þ.e. borað er fyrst lóðrétt
niður 300-1.000 metra eftir aðstæð-
um, síðan á ská og segir hann hægt
að beygja í allar áttir og bora upp
eða niður. Segir Ásgeir að meðal
annars sé beitt nýrri tækni við bor-
unina og fengnir hafí verið tækni-
menn frá Noregi, olíubormenn, sem
vanir eru að bora skáholur, en einn-
ig þarf ýmsan flóknari búnað og
dýrari en notaður var við fyrri ská-
holur fyrir einum 15 árum. Er þetta
nýjung hér að sögn Ásgeirs og hef-
ur borunin gengið vel, verkið er í
heild á undan áætlun þrátt fyrir
töfina nú. Um árangur af gufuöflun
verður ekki hægt að segja neitt
ákveðið fyrr en búið er að ganga
frá holunni og prófa.
13 ára
kærði
nauðgun
ÞRETTÁN ára stúlka kærði
tvo menn fyrir nauðgun á
tjaldstæði á Bíldudal um helg-
ina.
Þórólfur Halldórsson,
sýslumaður á Patreksfirði,
sagði síðdegis í gær að málið
væri í rannsókn. Hann sagði
að enginn væri í haldi lög-
reglu vegna málsins, en varð-
ist að öðru leyti fregna.