Morgunblaðið - 23.04.1997, Side 29

Morgunblaðið - 23.04.1997, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ1997 29 ODDNÝ HALLDÓRSDÓTTIR + Oddný Hall- dórsdóttir fæddist 2. janúar 1942. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 10. júlí síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Háteigskirkju 18. júlí. Elsku Oddný vin- kona mín. Mikið var ég lánsöm að eignast þig fyrir vinkonu fyrir 19 árum. Tilefnið var þegar við lágum báðar á sjúkrahúsi þar sem við gengumst undir samskonar aðgerð. Þú stendur svo ljóslifandi fyrir sjónum mér þar sem þú stóðst yfír mér, ég að rakna úr svæfíngunni. Þessi háa og glæsi- lega kona með brúnu augun og bjarta brosið sem geislaði af hjarta- hlýju, visku og glettni. Ég sit við hér við eldhúsborðið mitt með bláa dúknum, kertaljós og myndina af þér fyrir framan mig. Uppáhalds- tónlistin þín er í tækinu, það vantar bara þig. Mig langar að segja frá hvað ég hef misst mikið við fráfall þitt og ég er ekki ein um það. Ég ætla hins vegar að segja frá því hve mikið ég eignaðist við að kynnast þér og fjöl- skyldu þinni. Við áttum svo margar ánægju- stundir saman við eld- húsborðið mitt. „Hæ, er ekki te á katlinum?" Svo varstu komin í „frímínútur“, en þær voru bara ekki nógu margar. Ef þetta fræga borð mitt gæti talað hefði það frá mörgu að segja. Öm sonur minn var ekki svo sjaldan búinn að hella upp á te handa þér og Brynju dóttur þinni. Borðið svign- aði undan samræðum um allt milli himins og jarðar. Stóm spumingun- um velt upp, um lífið og tilvemna. Heimspekin, trúmálin, listimar, ástin og ódauðleikinn. Ekkert var okkur óviðkomandi undir sólinni. Við vomm sammála um að lífið væri skóli og oft á tíðum vomm við í sama bekk, eða að við vomm að glíma við svipuð vandamál. Stundum varstu í erfíðari bekk en ég og öfugt. Þá var gott að eiga hvor aðra að. Mér em mjög ofarlega í huga jólin MINNINGAR 1980. Þá stóð ég á erfiðum tímamót- um í lífi mínu, með djúpa sorg í hjarta. Þú af þinni visku, vaktir upp í mér jólabamið og settir upp verk- stæði í eldhúsinu þínu. Við áttum saman dýrðlegar stundir fullar af sköpunargleði og kærleika. Jólin voru alltaf okkar tími. Við þessi jólabörn lékum lausum haia við að „búa til jólin“. Heimsóknir á ótrúlegustu tímum hvor til annarr- ar, oft um miðjar nætur. Te, kerta- ljós, smakka á kökunum, tónlist, samræður, skipst á vinkonupökkum sem voru teknir upp samstundis. Ég minnist allra námskeiðanna sem við fómm á um andlegu málefnin, listasýningarnar og furðulegustu uppátæki okkar. Brynja þín og Örn minn vom líka svo áhugsöm að taka þátt í ýmsu með okkur. Þegar Brynja var að koma í frí frá Lond- on, þar sem hún stundaði sitt nám, var oftar en ekki að hún tæki þátt í næturröltinu og svo Áslaug þegar hún hafði aldur til. Ég minnist þess þegar Brynja tók „masterinn" frá Royal College of Art í London. Þú 9g Áslaug fórað á undan, en ég og Örn komum á eftir og sáum sýning- una. Ég man hve stolt þú varst af dóttur þinni þá, eins og þú varst reyndar af öllum þínum börnum, enda ástæða tii. Ég man hve þú studdir þau og hvattir í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Þau nutu þeirra hæfileika þinna í ríkum mæli, að hlúa að öllum og styðja þegar þess var þörf. Eng- inn sem kynntist þér komst hjá því að þiggja gjafir þíns örláta hjarta. Ég á heilan fjársjóð af slíkum gjöf- um. Þess vegna kveð ég þig af svo miklu þakklæti. Ég virti fyrir mér hendur þínar síðustu nóttina sem þú lifðir. Svo sterklegar og fallegar, sem skapað- ar til að búa til fegurð. Allt lék í höndum þér hvort sem það var ham- ar, málningarpensill, nálar eða pennar. Skrautskriftin þín var orð- lögð og blómin öðluðust nýtt líf í höndum þér. Ég sat oft hjá þér á kvöldvöktum í blómabúðunum og horfði á þig skapa hvert listaverkið á fætur öðm. Heimili þitt bar þess líka ríkuleg merki hversu listrænan og fágaðan smekk þú hafðir. Það var líka gaman að kynnast „blóma- vinkonum" þínum, henni Helgu, Gunni og Hönnu Dóra. Ég veit að þær munu sakna þín sárt. Svo fyrir rúmum þremur áram kom ástin inn í líf þitt til að vera. Ég varð reyndar vitni að þeim fyrstu kynnum. Hann Ámi, maðurinn þinn síðar, bauð þér hlýjan faðm og til- finningalegt öryggi sem þú þráðir svo mjög. Nú sem aldrei varð mikið að gera. Tilhugalífið tímafrekt og svo að kynnast nýrri fjölskyldu. Stundunum fækkaði sem við hitt- umst. Svo ætluðum við að taka upp samverana við bláa borðið þegar fram liðu stundir. Þá kom sjúkdóm- urinn í ljós sem engu eirir. Enn á ný sýndir þú óbilandi kjark, hug- rekki og visku til að taka erfíðleik- unum sem fram undan voru. Enn sem fyrr gafstu frá þér kærleika, fegurð og glettni, þegar vinir og vandamenn komu til þín í heimsókn. Þú kvaddir þetta líf af svo mikilli reisn. Þannig sé ég líka börnin ykk- ar Baldurs og móður þína og bræð- ur taka sorginni. En þau eiga nú um margfalt sárt að binda þar sem systir þín fór yfir í ljósheimana sama sólarhring og þú. Elsku Oddný mín. Þú skildir eftir svo frábæra afkomendur og tengda- böm. Það á eftir að verða þeim mik- ill styrkur hvað þau áttu góða móður og vinkonu að. Það sem mig tekur i sárast er að þú skyldir ekki fá að njóta kyrrlátari tíma með Áma, eins og þið vorað búin að áætla með fram- tíðina. Oft á tíðum koma Guðs áætl- anir okkur í opna skjöldu. Sorgin getur kennt okkur svo margt, m.a. að við eigum enga manneskju, við eigum bara hvort annað að, svo lengi sem Guð vill. Sorgin kennir okkur líka að sleppa. Guð styrki alla í sorg- inni, sem tengdust þér og þekktu þig. Það er svo gott að vita af þér í hvfldinni og ljósinu og hitta þig aftur þegar tíminn sá rennur upp. Svo kemur að því að sorgin sleppir taki sínu og við gleðjumst yfir fjár- sjóði minninganna. Hjartans þakkir fyrir vináttuna. Þín vinkona, Elva. m GUÐRUN HELGADÓTTIR + Guðrún Helga- dóttir var fædd 2. nóvember 1939. Hún lést á Akureyri 7. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Helgi Jóhann- esson, f. 12. nóvem- ber 1905, d. 9. júlí 1992, og Ingibjörg H. Tómasdóttir, f. 28. október 1911. Systkini hennar eru Þórunn Ósk, f. 9. janúar 1934, og Jó- hannes, f. 12. des- ember 1942. Eiginmaður Guðrúnar var Bergþór Njáll Guðmundsson, f. 19. júní 1941. Börn þeirra eru María, f. 4. september 1960, Helgi, f. 9. júní 1963, Kristín, f. 29. júli 1964, Ingibjörg Halldóra, f. 22. júlí 1966, Guðmundur Örvar, f. 20. janúar 1970, Rúnar Þór, f. 24. júlí 1971, og Al- bert Valur, f. 23. ágúst 1972. Guðrún starfaði síðustu ár þjá Útgerðarfélagi Akureyringa. Útför Guðrúnar fór fram frá Akureyrarkirkju 14. júií síðastliðinn. Elsku tengdamamma. Nú er kom- ið að kveðjustund. Eftir nokkra legu á sjúkrahúsi valdir þú þér dag til að kveðja þetta líf og takast á við annað líf. Minningar mínar um þig verða ætíð fallegastar allra minn- inga í mínu hjarta því þú varst svo einstök manneskja og vel af guði gerð. Ég kveð þig með sálminum sem segir svo mikið: Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvilast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns míns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býrð mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyrð höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Aðalheiður Gísladóttir. Elsku Guðrún. Nú ertu horfin frá mér. Ég sakna þess að geta ekki komið til þín og átt með þér góða stund. Þú varst ein sú besta kona sem ég hef kynnst um mína ævidaga. Alltaf svona æðrulaus, hvað sem mætti þér. Það má með sanni segja að þú hafir verið hetja hér í þessu lífi. Eg hef aldrei hjálpað neinum sem mér hefur fundist eins gaman að hjálpa og þér. Þú varst svo einlæg og góð. Þú varst kona sem vannst verk þín í hljóði, en Guð vissi allt um þig. Ég veit að þig langaði til að una lengur héma og fylgjast með börn- um þínum og bamabörnum. Ég veit líka að þú verður okkur nálæg, sem þú elskaðir. Ég hlakka til að hitta þig aftur, elsku Guðrún mín. Og ég veit að þeir draumar sem þig dreymdi hér munu rætast þarna fyrir handan. Ég kveð þig í bili og megi algóður Guð styrkja bömin þín og okkur öll sem þú elskaðir. Þú sem horfir á orð mín megi Guð blessa þig áfram til æðri verka. - Og opna þér dyr inn í ljóssins heima. (Ljósvíkingur.) Þín alltaf vinkona, Árvök. Ég var stödd í Grindavík hjá for- eldram mínum þann 7. þessa mán- aðar. Ég hringdi heim til mín, sem ég geri dag hvem er ég dvelst að heiman. Stjúpsonur minn svaraði í símann. Mamma, sagði hann, hún mamma dó í morgun. Þessi frétt átti ekki að koma mér á óvart, en þegar dauðinn knýr dyra veldur það manni alltaf vissu áfalli, en í þessu tilfelli líka létti. Rúnsi minn, sagði ég, við skulum þakka guði fyrir að þetta er afstaðið. Nú líður mömmu vel og hún er laus við allar þjáning- ar. Gunna greindist með ólæknan- legt krabbamein fyrir tæpum tveim- ur áram. Það var mikið áfall fyrir hana og ekki síst börnin hennar. Maður skilur ekki hvað lagt er mik- ið á sumt fólk, skilur ekki tilganginn með því. Hún barðist eins og hetja við veikindin, alltaf glöð og bjartsýn fram á síðasta dag. Sagði ætíð að sér liði vel hversu þjáð sem hún var til þess að valda börnum sínum ekki vanlíðan. Gunna var mjög heilsteypt, dug- leg og góð kona. Hún var mjög myndarleg í höndum og prjónaði mikið á börn og bamaböm. Heimili hennar var prýtt glæsilegum mynd- um sem hún hafði sjálf saumað út. Gunna giftist Bergþóri N. Guð- mundssyni og eignuðust þau sjö mannvænleg börn. Þau slitu sam- vistum. Ég kynntist Gunnu árið 1977, sama ár og ég varð stjúpmóð- ir barna hennar. Því vegna veikinda gat hún ekki haft þau. Þau fylgdu föður sínum. Mér er mjög minnisstæð fyrstu kynni okkar. Gunna var lögð inn á sjúkrahús í Reykjavík. Dætur hennar vildu fara og heimsækja hana strax fyrsta daginn, þá ellefu og tólf ára gamlar. En þær vildu ekki fara einar og báðu mig um að koma með sér. Ég gat ekki neitað þeim um þetta. Ég fór með hálfum huga og full kvíða, vissi ekki hvemig Gunna tæki á móti mér, því það hlýtur að vera sárt að sjá á bak bömum sínum til annarrar konu. En kvíði minn reynd- ist óþarfur, hún tók mér opnum örm- um og síðan hefur okkur verið vel til vina. Það sýnir best hvaða per- sónu Gunna hafði að geyma, því á hveijum jólum komu gjafir til sona minna frá henni jafnt og til hennar bama. Bömin hennar höfðu alltaf mjög náið samband við hana, dvöld- ust hjá henni til skiptist í jólafríum og öðram fríum og einnig kom hún til okkar í tvö skipti og dvaldi viku í senn og var einnig við fermingar bama sinna. Elsku krakkar mínir, það er að- dáunarvert hvað þið hugsuðuð vel um mömmu ykkar í veikindum hennar og í banalegu hennar. Það var alltaf eitthvert ykkar hjá henni allan tímann. Gunna mín, ég þakka þér fyrir að fá að deila með þér af þínum fjársjóði, þá á ég við börnin þín. Ég hefði fylgt þér síðasta spöl- inn en gat það ekki vegna veikinda foreldra minna. Ég veit að þér líður vel núna, vel hefur verið tekið á móti þér. Elsku krakkar mínir, Maja, Helgi, Kristín, Inga, Gummi, Rúnsi, bamaböm, tengdaböm og aðrir aðstandendur, ég bið góðan guð að styrkja ykkur í sorg ykkar. Eitt verður aldrei frá ykkur tekið, það er minningin um góða móður, ömmu, tengdamóður, dóttur og systur. RÖGNVALDUR FINNBOGASON + Rögnvaldur Finnbogason fæddist á ísafirði 25. október 1919. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 9. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá kapellu Foss- vogskirkju 18. júlí. Minningargrein- in hér á eftir er endurbirt vegna mistaka við birt- ingu hennar í Morg- unblaðinu í gær, þriðjudag, og eru hlutaðeigendur innilega beðnir afsökunar á mistökunum. Elskulegur bróðir er horfinn okkur sjónum um sinn. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu að Engjaseli 45. Með Didda, eins og Rögnvaldur var jafnan kallaður innan fjölskyld- unnar, er fallinn í valinn mætur maður sem helgaði allt líf sitt starfi sínu og fjölskyldu. Heiðarleika hans, trúmennsku og dugnað mátu þeir mest sem best þekktu til hans. Og fjölskylda hans gat ekki óskað sér betri stóra bróður og frænda. Hann reyndist ávallt hin öraggasta stoð og stytta ættmenna sinna frá því að hann óx úr grasi, ævinlega tilbú- inn að rétta sínum nánustu hjálpar- hönd. Reyndar tel ég að hjálpsemi hans hafi náð langt út fyrir fjölskyld- una. Mér hefur hann ávallt reynst sem besti faðir með ráðleggingar og umvandanir og nú síðustu árin við að létta mér störfin í fyrirtæki mínu. Ég mat ráð hans um- fram allra annarra. Síð- ar kom það eins og af sjálfu sér að hann varð „afí“ barnanna minna, ómetanleg stoð þeirra og stytta í uppvextin- um, en við urðum þeirr- ar ánægju aðnjótandi að búa í nágrenni við hann undanfama tvo áratugi. Þótt erfitt sé að sætta sig við að fá ekki tækifæri til að kveðja ástvin sinn áður en hann gengur á vit ljóss og kærleika í öðram heimi er hollt að hafa hugfast að manni em hefur nánast aldrei orðið misdægurt á langri ævi er ekki ljúft að enda ævina ósjálfbjarga í umönnun ann- arra, jafnvel þótt slík aðstoð sé fús- _ lega veitt. Ég hygg að miklir at- ' hafnamenn vilji gjaman kveðja þennan heim með þessum hætti, því að þeir vita að þótt tilfinningalegt áfall ættmenna sé e.t.v. mikið og snöggt, getur hinn kosturinn reynst öllum þungbærari, þ.e. að horfa upp á kæran ástvin veslast upp á löngum tíma. Ég þykist viss um að Diddi hefur dáið saddur lífdaga, sáttur við Guð og menn, lítillátur maður og ljúfur, sem bar aldrei tilfinningar sínar á torg, þakklátur fyrir allt sem fyrir hann var gert. Sorgin hvílir þungt á okkur nú, en síðan hverfur hún vonandi fyrir ljúfum minningum um góðan dreng r - sem endast okkur alla ævi. Bogi Arnar Finnbogason. Frágangur afmælis- og minningargreina Mikil áhersla er lögð á, að hand- rit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út- prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyr- ir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í sím- bréfi (5691115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII skráa sem í daglegu tali era nefndar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auð- veld úrvinnslu. Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfi- legri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðall- ínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þijú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Guðbjörg Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.