Morgunblaðið - 23.04.1997, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997 31
í gegnum árin hafa vináttubönd-
in styrkst og eru makarnir orðnir
æ virkari þátttakendur í þessum
samheldna hópi sem hittist reglu-
lega. Tilefnin hafa verið ótal mörg,
m.a. brúðkaup, utanlandsferðir,
stórafmæli, nýársfagnaðir, grill-
veislur, að ónefndum sveitaferðum
með börnin. Gísli „hennar Villu“,
eins og hann var alltaf kallaður,
féll strax vel inn í hópinn og kom
fljótt í ljós að hann var sterkur
persónuleiki með sín hnyttnu tilsvör
og kímnigáfu. Hann lét ekki sitt
eftir liggja að mæta, þó hann væri
orðinn veikur og oft sárþjáður.
Hann sýndi mikinn styrk og tók
veikindum sínum af miklu æðru-
leysi. Aldrei heyrðist hann kvarta
- hann stóð meðan stætt var. Árið
1994 eignuðust Gísli og Vildís dótt-
urina Kristínu Huldu og var hún
Gísla mikill gleðigjafí enda mikil
pabbastelpa.
Það er skrítin tilfinning að einn
úr okkar samheldna hópi, aðeins
fertugur að aldri, skuli þegar hafa
kvatt. En minningin um Gísla mun
ylja okkur um ókomin ár.
Elsku Villa okkar og Kristín
Hulda, megi Guð gefa ykkur styrk
í sorginni. Innilegar samúðarkveðj-
ur sendum við öllum aðstandendur.
Bergdís - Kristinn
Ragnheiður - Franz
Salóme - Pálmi
Sólveig - fvar
Vala - Gísli
Þórunn - Kristján
Sigurveig.
Við Gísli kynntumst fyrst á há-
skólaárum mínum þar sem hann
kenndi fjármál í viðskiptadeild
Háskóla Islands. Samband nem-
enda og kennara í fjölmennum
kúrsum við Háskólann verður
sjaldnast mjög mikið en á lokaári
mínu í viðskiptafræði varð ég
þeirrar gæfu aðnjótandi að geta
tekið valfag þar sem Gísli kenndi
fámennari hópi nemenda. Gísli var
góður kennari og kröfuharður
gagnvart nemendum sínum en
ekki síður gagnvart sjálfum sér
sem ég átti eftir að kynnast síðar.
Þekking hans á fjármálafræðum
og mikil reynsla úr atvinnulífinu
þar sem hann kom að fjölmörgum
ráðgjafarverkefnum gerðu það að
verkum að Gísli átti auðvelt með
að gera fræðigrein sína að mjög
áhugaverðu og lifandi námsefni
fyrir nemendur sína. Viðskipta-
deild Háskóla íslands hefur með
fráfalli Gísla misst einn af sínum
bestu kennurum.
Við lok háskólanáms er algeng-
ast að leiðir nemenda og kennara
skilji. Gísli var hins vegar mjög
eljusamur og afkastamikill og þrátt
fyrir að hann væri með fulla stöðu
við Háskóla íslands vann hann
einnig að verkefnum í atvinnulíf-
inu. Af þeirri ástæðu átti ég þess
kost að vinna að nokkrum verkefn-
um með Gísla eftir að háskólaárum
mínum lauk og náði að kynnast
betur hinum skarpa, vinnusama og
heiðarlega manni sem Gísli hafði
að geyma.
Gísli átti við áralöng alvarleg
veikindi að stríða sem duldust eng-
um sem kynntust honum. Þrátt
fyrir það kvartaði hann aldrei und-
an veikindum sínum og gerði ætíð
meiri kröfur til sín en þeirra sem
unnu með honum. Aldrei lét hann
bilbug á sér finna og gat hann
komið manni á óvart með dugnaði
sínum og hörku. Mér er sérstaklega
minnisstætt síðasta samtal okkar,
en þá voru veikindi hans komin á
mjög alvarlegt stig, þar sem hann
var að koma með tillögur að verk-
efnum sem við gætum unnið að í
sameiningu á næstu árum.
Kynni mín af Gísla eiga eftir að
verða mér drjúgt vegamesti. Leið-
sögn hans var alltaf fagleg en síð-
ast en ekki síst var hún heiðarleg.
Ég mun ætíð minnast með virðingu
æðruleysis hans til hinstu stundar.
Vildísi eiginkonu Gísla, Kristínu
Huldu dóttur hans og öðrum að-
standendum sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Hreiðar Már Sigurðsson.
JENS
GUÐMUNDSSON
+ Jens Guð-
mundsson,
bóndi á Kirkjubæ
við Skutulsfjörð,
fæddist á Lónseyri
við Kaldalón 9. nóv-
ember 1910. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á
Isafirði 15. júli síð-
astliðinn og fór út-
för hans fram frá
ísafjarðarkirkju
21. júlí.
Elsku afí, sú hugsun
að ég myndi ekki sjá
þig aftur kom ekki upp í huga mér
sumarið 1995, þegar ég heimsótti
ykkur síðast. Sumarið sem ég flutti
til Danmerkur. Mér fannst þú vera
hluti af sveitinni minni, og hún
hverfur bara ekki. Svo barnslegur
getur hugur manns verið.
Ég kom fyrst til þín og ömmu
tveggja ára gömul, og dvaldi hjá
ykkur öll sumur fram á unglingsár.
Ég á mínar bestu bernskuminning-
ar frá lífinu í sveitinni. Þú varst
mér svo góður. Þó að þú hafir ekki
verið minn raunverulegi afi, fann
ég ekki fýrir því, ég hefði ekki get-
að fengið betri afa. Ég man ekki
eftir að þú hafir nokkurn tímann
hastað á mjg, hvað þá sagt mér til
syndanna. Ég var alltaf litla stelpan
þín. Ég man sérstaklega eftir einu
atviki. Ég stal eggi í búrinu til þess
að nota í drulluköku. Ég fékk
skammarræðu (sem ég átti auðvitað
skilið) frá öðrum sem staddir voru
á heimilinu, en þú sagðir ekki orð.
Þú vildir aldrei að ég gerði of mikið
í bústörfunum eða gerði eitthvað
sem þú taldir of erfitt fyrir mig.
Þú vildir bara að ég léki mér, þú
vildir að ég fengi að vera barn og
leika mér.
Þegar ég hugsa um þig, kemur
upp í huga mér mynd af þér og
þú ert brosandi, þú
brostir svo fallega og
hlóst svo innilega.
Þegar þú varst sér-
staklega kátur, tókstu
mig í fangið og dans-
aðir með mig um eld-
húsgólfið. Við áttum
oft góðar stundir sam-
an. Það var líka oft
gott að fá að sofna á
milli ykkar ömmu, en
þar svaf ég iðulega
þegar mikið var um
gestagang, og aðrir
þurftu að fá mitt rúm.
Mér þótti svolítið
skrítið að heimsækja þig á
Kirkjubæ, ég hafði aldrei séð þig
í öðru umhverfi en á Hærri-Bæ í
ísafjarðardjúpi á Snæfjallaströnd.
Þegar ég dreg upp mynd af þér í
huga mér situr þú við eldhúsborðið
á Hærri-Bæ með pípuna í hend-
inni. ísafjarðardjúpið á líka mikið
í mér, mér finnst og hefur alltaf
fundist sá staður fallegastur á jarð-
ríki og kannski ekki tilviljun að
börnin mín tvö bera orðið Snæ í
nöfnum sínum, líkt og Snæfjalla-
ströndin. Slíkar tilfinningar myndi
ég ekki hafa, nema af því ég var
hjá svo góðu fólki.
Ég kveð þig, elsku afi minn, þú
munt ávallt vera með mér í hjarta
mínu.
Elsku amma, ég votta þér og fjöl-
skyldu þinni innilega samúð mína.
Megi Guð blessa minningu afa.
Aldrei, aldrei það gleymist,
sem í æsku var,
þó allt sé lífið breytt,
er minn hugur þar
sem litlu sporin lágu
um laut og mó,
og lóan bjó sér hreiður
í dalsins ró.
(Jenni Jóns.)
Berglind Brynjólfsdóttir.
+
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
RÖGNVALDUR FINNBOGASON,
varð bráðkvaddur á heimili sínu 9. júlí
síðastliðinn. Útför hans hefur farið fram.
Bogi Arnar Finnbogason,
Ellen Svava Finnbogadóttir,
Kristján Magnús Finnbogason,
Una Sigurðardóttir,
Anna Dagmar,
Ingunn Ragna,
Sigurður Ingi.
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
GUNNAR K. JÓNSSON,
fæddur á Merkigili i Eyjafirði,
til heimilis í Háukinn 7,
Hafnarfirði,
lést 12. júlí síðastliðinn á Landspítalanum.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Fyrir hönd ættingja,
Geirþrúður Júlíusdóttir,
Sigurður Gunnarsson og Auður Gunnarsdóttir.
írjíírjííjur
Glæsileg kaffihlaðborð
FALLEGIR SALIR
OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA
HOTEL LOFTLEIÐIR
ICELANOAIR HOTtLS
Upplýsingar í símum
562 7575 & 5050 925
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐNÝ GUÐLAUGSDÓTTIR
frá Tryggvaskála,
Safamýri 40,
Reykjavík,
lést á Sóivangi sunnudaginn 20. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Grensáskirkju
þriðjudaginn 29. júlí kl. 13.30.
Guðríður Karlsdóttir, Árni Rosenkjær,
Guðlaugur Tryggvi Karlsson, Vigdís Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
ÓSKAR MARGEIR BECK JÓNSSON,
Skálagerði 13,
Reykjavfk,
lést á heimili sínu sunnudaginn 20. júlí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ásta Sigrún Hannesdóttir,
Ingunn Jóna Óskarsdóttir, Jón Sigurðsson,
Anna Lísa Óskarsdóttir, Kristján Snorrason,
Júlíus Valdimar Óskarsson, Inga Hjálmarsdóttir,
Margrét Erna Blomsterberg, Grétar Benediktsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
REYNIR EYJÓLFSSON,
Sóivangsvegi 1,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 25. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á
Kiwanisklúbbinn Eldborgu eða Minningarsjóð
Guðmundar Gissurarsonar, Sólvangi.
Dóra S. Guðmundsdóttir,
Eyjólfur Reynisson, Sigrún Linda Hafsteinsdóttir,
Sigrún Reynisdóttir, Páll Pálsson,
Sóiveig Reynisdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Dóttir m(n, systir og mágkona,
ANNA S. JÓNSDÓTTIR,
Vfðilundi 18H,
Akureyrl,
sem lést 17. júlí, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 25. jú-
lí kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlega bent á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Elfn Magnúsdóttir,
Jón Laxdal Jónsson,
Ólöf Oddsdóttir.
f-
+
Hjartkær eiginmaður minn, faðir og tengda-
faðir,
GUNNAR MARKÚSSON
bókavörður og fyrrv. skólastjóri,
Þorlákshöfn,
lést á sjúkrahúsi Suðurlands á Þorláksmessu
á sumri, 20 júlf sl. Jarðsett verður frá Þorláks-
kirkju nk. laugardag 26. júlí kl. 14.00.
Þeir sem vildu minnast hins látna
láti Krabbameinsfélag íslands njóta þess.
Sigurlaug A. Stefánsdóttir,
Hildur Gunnarsdóttir, Jóhannes Jónsson,
Þór Jens Gunnarsson, Áslaug Þorsteinsdóttir,
Stefán Gunnarsson, Heiga Sigurbjörnsdóttir,
Ágústa Gunnarsdóttir, Leigh Woods,
barnabörn og barnabarnabörn.