Morgunblaðið - 23.04.1997, Page 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ(S)MBLIS, / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Kjarafulltrúi Prestafélagsins um nýjan úrskurð kjaranefndar
„Við erum æfir“
KJARANEFND hefur lokið við að
úrskurða um laun fyrir skólameist-
ara, sýslumenn, presta, skrifstofu-
stjóra í Stjórnarráðinu, sendiherra
og sendifulltrúa og forstöðumenn og
forstjóra hjá ríkinu, þ.m.t. ráðuneyt-
isstjóra. Mikil óánægja er meðal
presta vegna úrskurðar nefndarinn-
ar.
Úrskurðirnir voru kveðnir upp í
seinasta mánuði og var öllum hóp-
unum ákvörðuð 4,7% launahækkun
að undanskildum prestum en laun
þeirra hækka nokkuð meira, að sögn
Guðrúnar Zoéga, formanns kjara-
nefndar. Launabreytingarnar gilda
frá og með 1. júlí.
Að hennar sögn var um að ræða
allmikla grunnkaupshækkun hjá
prestum en yfirvinnugreiðslurnar
hins vegar minnka á móti. „Prestar
hafa verið tiltölulega lágt launaðir
og við höfum verið að bæta þeirra
Laun fjölmennra
hópa embættis-
manna hækkuð
um 4,7%
kjör frá því að þeir komu undir okk-
ar úrskurðarvald," segir Guðrún.
Meðalhækkun til presta 6-7%
Launahækkanir presta eru mjög
mismunandi en að jafnaði á bilinu
6-7%, að sögn séra Gunnars Sigur-
jonssonar, kjarafulltrúa Prestafélags
íslands. „Við erum, í einu orði sagt,
æfir,“ segir hann. Gunnar segir
presta ekki hafa fengið hækkanir í
líkingu við hækkanir sem aðrir hafi
fengið og vísar m.a. í því sambandi
til ákvörðunar Kjaradóms um 8,55%
hækkun til æðstu embættismanna í
seinustu viku. „Við getum ekki sagt
að við höfum einu sinni fengið þær
hækkanir sem samið hefur verið um
á vinnumarkaðinum,“ segir Gunnar.
Hann bendir á að prestar fái ekki
leiðréttingu aftur í tímann og hann
segir aðstoðarpresta koma einna
verst út en launahækkanir þeirra á
ársgrundvelli séu frá 3,6-4,8%.
Kjaranefnd á enn eftir að úr-
skurða um kjör prófessora og heilsu-
gæslulækna, sem komu undir úr-
skurðarvald nefndarinnar í fyrra.
Að sögn Guðrúnar var einnig gerð
sú formbreyting á fastri yfirvinnu að
í stað tímaviðmiðunar eru teknar upp
svokallaðar einingagreiðslur, þar sem
hver eining hefur ákveðið verðgildi.
Sagði hún þessa breytingu ekki hafa
í för með sér launabreytingar.
■ Markmiðum/25
Hátt verð
• amjoli
og lýsi
VERÐ á fiskilýsi er nú í hámarki
og mjölverð er einnig mjög hátt.
Verðmæti loðnu- og síldarafla í ár
er því meira en nokkru sinni, enda
samanlagður afli þessara tegunda
orðinn nálægt 1,2 milljónum tonna
frá áramótum. Aflaverðmæti er
því nálægt 6,6 milljörðum króna
og útflutningsverðmæti afurð-
anna, mjöls og lýsis, gæti verið
um 12 til 13 milljarðar króna.
Skilaverð á fiskimjöli er nú ná-
^lægt 40.000 krónum á tonnið og
fyrir fiskilýsið fást um 33.000
krónur á tonnið. Verð á loðnu og
síld upp úr sjó á þessu ári hefur
verið nálægt 5.500 krónum á tonn-
ið. Áætla má að nýting í lýsisfram-
leiðslu sé nú um 11% og mjölfram-
leiðslu um 15%.
Framleiðsla á fiskimjöli og lýsi
frá áramótum gæti verið orðin um
210.000 tonn af mjöli og 120.000
tonn af lýsi. Framleiðsla úr loðnu-
aflanum í júlímánuði einum gæti
verið um 37.000 tonn af mjöli og
27.000 tonn af lýsi.
Alls hafa um 250.000 tonn af
loðnu borizt hér á land í júlí og
er aflaverðmæti þess nálægt 1,2
milljörðum króna og skilaverð af-
urðanna um 2,4 milljarðar.
■ Verðmæti mjöls/Bl.
----» ♦ ♦----
Tage Abelsen
farinn til
Danmerkur
KOMIÐ er í ljós að Tage Abelsen
sem lýst var eftir í fjölmiðlum í gær
og fyrradag fór til Danmerkur 3.
júlí.
Greint var frá því í fjölmiðlum
að ekkert hefði sést til Tage Abel-
sen síðan 2. júlí. Við nánari eftir-
grennslan lögreglunnar kom í ljós
að hann yfirgaf landið 3. júlí og
hélt til Danmerkur.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Niðurrifí Víkartinds
lokið í næstu viku
NIÐURRIFI Víkartinds, sem
strandaði í Háfsfjöru í byrjun
marsmánaðar síðastliðins, lýkur í
næstu viku. David Parrot, for-
stjóri Titan björgunarfélagsins,
sem annast niðurrif skipsins, sagði
að nú þegar hefðu um 75% skips-
ins verið tekin í sundur og af-
gangurinn verði annaðhvort fjar-
lægður eða grafinn í fjöruna.
I gær var annar af tveimur
skipskrönum fjarlægður án þess
að nokkur önnur tæki væru notuð
til þess en logskurðartæki. Parrot
sagði að eðlislögmálum hefði verið
beitt við að fjarlægja kranann.
Sandur hefði verið grafinn undan
skipinu á ákveðnum stöðum og
logskorið á festingar kranans.
Kraninn, sem vegur um 40 tonn,
var síðan látinn falla beint á flutn-
ingavagn.
„Kranarnir hafa verið afar
skemmtilegt viðfangsefni allt frá
byijun. Við byijuðum á að beygja
þá og nota til að taka skipið í
sundur. Og núna fjarlægjum við
kranana án þess að nota nokkur
önnur tæki til þess,“ sagði Parrot.
Sömu aðferð verður beitt við
að fjarlægja seinni kranann um
næstu helgi. „Verkinu verður að
fullu lokið í næstu viku,“ sagði
Parrot.
Sluppu með
skrekkinn
Morgunblaðið. Seyðisfirði.
LITLU munaði
að illa færi fyr-
ir nokkrum
dögum er börn
á Seyðisfirði
brugðu á leik.
Þijú börn, tveir
drengir á fjórða
ári og telpa
tæplega
tveggja ára,
voru skilin eftir
í bíl fyrir utan
verslun KHB á
Seyðisfirði
meðan tveir
fullorðnir
skruppu
skamma stund
inn í búðina.
Þegar út var
komið voru
börnin á bak og
burt. Leit var
hafin þegar í stað. Ekki leið
á löngu þar til í ljós kom að
börnin höfðu brugðið sér í
gönguferð upp á einn olíut-
ankinn í bænum.
Drengirnir tveir höfðu orð-
ið hræddir og voru á leið nið-
ur en litla telpan stóð ein
uppi á brún tanksins þar sem
um níu metra fall blasti við.
Faðir hennar
kom henni til
bjargar og
varð engum
meint af.
Börnin áttu
greiðan að-
gang að tank-
inum. Tröppur
liggja upp að
honum af bak-
lóð verslunar
KHB og hlið
sem þar er var
ólæst. Stiginn
upp eftir tank-
inum er óvar-
inn og langt
upp í handrið
og stórt bil á
milli pósta.
Reyndarlá
girðingin
kringum tank-
inn einnig niðri á stórum
kafla, þannig að hver sem
vildi gat farið upp að tank-
inum og upp á hann.
Lögregla var látin vita um
þetta og brá hún skjótt og vel
við og sá til þess að svæðinu
var lokað til bráðabirgða þar
til endanlegar viðgerðir geta
farið fram.
Morgunblaðið/Pétur
Olíutankurinn sem
börnin fóru upp á.
Bretar staðfesta hafr éttar samninginn
Byggja fiskveiði-
lögsögn ekki
lengiir á Rockall
BREZK stjómvöld munu á næstu
dögum staðfesta hafréttarsamning
Sameinuðu þjóðanna og hafa lýst
yfir að þau muni í framhaldi af því
endurskoða mörk fískveiðilögsögu
Bretlands. Þau verða ekki lengur
miðuð við klettinn Rockall, heldur
eyna Sankti Kildu. Þetta hefur
meðal annars þá þýðingu að Bretar
hætta að gera tilkall til 3.900 fer-
kílómetra hafsvæðis syðst í íslenzku
fískveiðilögsögunni.
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, lýsti því yfír í neðri deild
brezka þingsins í fyrradag, að haf-
réttarsáttmálinn yrði staðfestur síð-
ar í mánuðinum. „Mörk fískveiði-
lögsögu Bretlands munu þarfnast
endurskoðunar og verða byggð á
St. Kildu, þar sem Rockall er ekki
lögmætur grunnlínupunktur fyrir
slík mörk samkvæmt grein 121(3)
í samningnum," sagði Cook í svari
við fyrirspurn þingmanns.
Greinin, sem ráðherrann vísar
til, kveður á um að klettar, sem
ekki geta borið mannabyggð eða
eigið efnahagslíf, skuli ekki hafa
nokkra sérefnahagslögsögu eða
landgrunn. Samkvæmt hafréttar-
samningnum geta Bretar aðeins
tekið sér 12 mílna landhelgi við
Rockall.
Hætti Bretar að miða við Rock-
all stækkar einnig óumdeilt alþjóð-
legt hafsvæði vestan klettsins, en
fyrir þremur árum tók brezka
strandgæzlan togara i eigu íslenzks
fyrirtækis vegna meintra ólöglegra
veiða 170 sjómílur vestur af Rock-
all.
Viðmælendur Morgunblaðsins
telja ákvörðun Breta geta liðkað
fyrir viðræðum í deilu íslands og
Bretlands um landgrunn á Hatton-
Rockall-svæðinu. Gerð sameigin-
legrar skýrslu ríkjanna um málið,
sem á að verða grundvöllur frekari
viðræðna, hefur legið niðri um
þriggja ára skeið, einkum af þeirri
ástæðu að Ísland hefur verið aðili
að hafréttarsamningnum en Bret-
land ekki og hafa ríkin því gefið
sér ólíkar forsendur.
■ Rockall-málið/6
Eins árs drengur
á gjörgæslu
EINS árs drengur var fluttur með lögreglunnar á Vopnafirði. Dreng-
sjúkraflugvél frá Vopnafírði til urinn var fluttur á slysadeild Sjúkra-
Reykjavíkur í gær. Hann lenti fyrir húss Reykjavíkur og þaðan á gjör-
bíl og er málið í rannsókn, að sögn gæslu. Líðan hans er sæmileg.