Morgunblaðið - 30.07.1997, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Hluthafar í Lesmáli stefna að því að
kaupa hlut Tilsjár í Helgarpóstinum
Stjórnin fellur
frá forkaupsrétti
MEIRIHLUTI stjórnar Lesmáls ehf.,
sem gefur út Helgarpóstinn, sam-
þykkti í gær tillögu Valþórs Hlöð-
verssonar stjórnarformanns um að
stjórnin félli frá forkaupsrétti að
hlutabréfum Tilsjár ehf. í Helgar-
póstinum. Páll Vilhjálmsson, ritstjóri
Helgarpóstsins, segir að aðrir hlut-
hafar muni ganga inn í kaupin.
„Þessi niðurstaða skapar okkur
ákveðna erfiðleika því ef okkar til-
laga hefði náð fram að ganga hefði
Lesmál keypt hlut Tilsjár og við síð-
an af félaginu. Núna er okkur stillt
upp við vegg. Einhver okkar þarf
að ganga fram fyrir skjöldu og
ganga inn í samninginn. Mjög senni-
lega verður það annaðhvort ég eða
Árni Björn Ómarsson, en við erum
stærstu hluthafarnir," sagði Páll.
Páll sagði að þeir myndu nota
þann frest sem þeir hefðu sam-
kvæmt samþykktum félagsins til að
nýta forkaupsréttinn. Fresturinn er
tveir mánuðir.
Gagnrýnir Alþýðubandalagið
Á stjórnarfundinum greiddi Ólaf-
ur Þórðarson, sem er skráður fyrir
5% hlutafjár í Lesmáli, atkvæði með
Valþóri Hlöðverssyni, en það nægði
til að tillagan var samþykkt. Jafn-
framt sagði Ólafur sig úr stjóminni,
en hann var áður starfsmaður blaðs-
ins.
Páll sagði að framkoma Alþýðu-
bandalagsins í þessu máli væri fyrir
neðan allar hellur. „Þeir sem bera
ábyrgð á Tilsjá eru að reyna að
sauma að okkur og hræra í okkar
félögum. Þeir hafa kallað menn afs-
íðis og ýmist verið með blíðmælgi
eða hótanir. Skýringin á þessu er
sú, að mínu mati, að þetta er hluti
af samningum og baksamningum
sem voru gerðir milli þriggja aðila,
Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og
Frjálsrar fjölmiðlunar. í þeim samn-
ingum er kveðið á um að annað-
hvort skuli núverandi forsvarsmönn-
um Helgarpóstsins bolað í burtu eða
blaðinu lokað. Kjölfestan í þessu, ég,
Árni Björn og fjölskyldur okkar, sem
eigum rúmlega 40%, látum engan
bilbug á okkur finna.“
Gert ráð fyrir
að ísafold prenti
Helgarpósturinn var prentaður í
prentsmiðjunni Isafold í síðustu viku
og sagðist Árni Bjöm Ómarsson,
framkvæmdastjóri útgáfunnar, gera
ráð fyrir að hann yrði prentaður þar
í þessari viku, en blaðið á að koma
út á morgun. Aðspurður hvort til
skoðunar væri að leita til annarra
prentsmiðja sagði hann svo ekki
vera þessa dagana. Þó einhverju
sinni hafi komið til tals að fá blaðið
prentað í prentsmiðju Morgunblaðs-
ins væri það ekki inni í myndinni í
dag. „Við erum enn í samningavið-
ræðum við Odda og ísafold um fram-
tíðarprentun," sagði Árni Björn.
Eyjólfur Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Fijálsrar íjölmiðlunar sem á
ísafoldarprentsmiðju, sagði að
prentsmiðjan myndi prenta Helg-
arpóstinn ef eigendur blaðsins ættu
fyrir prentkostnaði.
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
Álitsgerð lögmanns-
ins til skoðunar
„ÞETTA er löng og mikil álitsgerð
sem er í skoðun hjá okkur og með-
an svo er sé ég ekki ástæðu til að
segja neitt um hana,“ sagði Þor-
geir Pálsson flugmálastjóri að-
spurður hvort hann vildi tjá sig eitt-
hvað um greinargerð Ástráðs Har-
aldssonar hrl. um mál flugumferð-
arstjóra.
Fram hefur komið að flugmála-
stjóri teldi hugsanlegt að flugum-
ferðarstjóranum yrði veitt áminning
fyrir að neita flugvélum um flug-
heimild að morgni 12. júlí þegar 5
af 6 flugumferðarstjórum höfðu
boðað veikindi þann dag en flug-
umferðarstjórinn var þá að Ijúka
næturvakt sinni. Flugmálastjóri
sagði að ákvörðum um slíka áminn-
ingu yrði ekki tekin strax.
Talsvert magn stera fannst
LÖGREGLAN í Reykjavík gerði hús-
leit í líkamsræktarstöð í austurborg-
inni á mánudag og fann þar talsvert
magn stera. Einn eigenda likams-
ræktarstöðvarinnar var handtekinn
á heimili sínu I Kópavogi en sleppt
aftur eftir skýrslutöku í gær.
Húsleit var einnig gerð f húsi í
Kópavogi í fyrrakvöld og þar fund-
ust sterar. Húsráðandi var handtek-
inn og færður til skýrslutöku en
sleppt að henni lokinni. Hann teng-
ist ekki líkamsræktarstöðinni.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns eru
efnin í greiningu hjá tæknideild lög-
reglunnar. Málið verður sent ríkissak-
sóknara strax að rannsókn lokinni.
TVÖFÖLD ÁNÆGJA
MEÐ KREMI Á MILLI
ltröiU mest selda kex á íslandi
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
SKIPHERRANN, Sigurður Steinar Ketilsson, sýndi Þorsteini Pálssyni dómsmálaráðherra og Haf-
steini Hafsteinssyni, forstjóra Landhelgisgæslunnar, skipið við heimkomuna í gær.
Sigurður Steinar Ketilsson skipherra eftir breytingar á Tý
Miklu rólegra og
þægilegra í sjó
VARÐSKIPIÐ Týr kom tU
Reykjavíkurhafnar í gær eftir
endurbætur sem fram fóru á
skipinu í Póllandi síðustu vik-
urnar. Sigurður Steinar Ketils-
son skipherra segir að eftir
heimsiglinguna sé ljóst að skipið
fari mun betur í sjó en áður.
Endurbætumar á Tý fóra
fram hjá pólsku skipasmíðastöð-
inni Morska Stocznia Rem-
ontowa í borginni Swinopjscie
en í útboði á vegum Ríkiskaupa
kom hagstæðast tilboð þaðan.
Tók verkið rúman mánuð. Haf-
steinn Hafsteinsson, forsljóri
Landhelgisgæslunnar, tjáði
Morgunblaðinu að það hefði
kostað kringum 15 milljónir
króna.
Meðal framkvæmda á Tý var
eftirfarandi: Lokað var göngum
og afturþilfari undir þyrlupalli
en við það skapast meira öryggi
fyrir áhöfnina við störf á aftur-
þilfari. Tekur skipið nú engan
sjó inn á sig þar en áður var
talsverð hætta á því. Athafna-
svæðið þar verður stærra og
sömuleiðis stækkar þyrlupallur-
inn. Getur Sif nú lent á þyrlu-
pallinum og verða lendingar
auðveldari og öruggari. Þá var
útsýnisturninum á skipinu
breytt. Efst á hann var sett rad-
arkúla úr trefjaplasti en með
því eru bæði radar og ýmis loft-
net varin fyrir ísingu og hvas-
sviðri sem eykur öryggi skips
og áhafnar en nokkrum hita er
jafnan haldið í kúlunni. Einnig
var færð til ballest og settir
veltiuggar á skipið. Hafsteinn
Hafsteinsson sagði að með fram-
kvæmdunum væri fyrst og
fremst miðað að því að auka
öryggi áhafnar og skipsins.
„Skipið er miklu rólegra í
sjónum en áður og þó að það
eigi eftir að reyna mun meira á
það í slæmu veðri var nógu mik-
il suðvestan undiralda við
Suðurland til að sannfæra mig
um það,“ sagði Sigurður Steinar
Ketilsson skipherra við komuna
til hafnar í gær og sagði að skip-
ið væri þægilegt í sjó. Sagði
hann það hafa lagast og lengi
hefði þess verið beðið að fá fjár-
veitingar í þessar breytingar
sem skiptu máli, bæði fyrir ör-
yggi áhafnar og sjóhæfni skips-
ins. „Ég er geysilega ánægður
með breytingamar og er sann-
færður um að skipið á eftir að
reynast vel í slæmu sjólagi,“
segir skipherrann einnig.
Týr er því tilbúinn til starfa
á ný fyrir Landhelgisgæsluna
og heldur af stað eftir hafnarfrí
NÝR svipur er á Tý með til-
komu radarkúlunnar.
áhafnarinnar. Hún sigldi skip-
inu til Póllands og náði i það
aftur og tóku flestir frí á með-
an. Svipaðar breytingar fara
einnig fram á Ægi sem þegar
er lagður af stað til Póllands.
Týr er 22 ára gamalt skip og
Ægir 29 ára. Ingvar Kristjáns-
son, forstöðumaður skipatækni-
deildar, annaðist eftirlit með
framkvæmdunum fyrir hönd
Landhelgisgæslunnar og Magn-
ús Smith, starfsmaður Atlas,
sem er umboðsmaður skipa-
smíðastöðvarinnar, fylgdist
einnig með verkinu en á stund-
um voru allt að 100 manns við
störf í skipinu í einu.
Árni Sigfússon, oddviti Sjáifstæðisflokks
Slæm fjárhagsstaða
þrátt fyrir stór orð
„ÞRÁTT fyrir stór orð um sterka
fjármálastjóm sýnir sig að fjárhag-
ur borgarinnar er ekki með þeim
hætti," sagði Ámi Sigfússon, odd-
viti Sjálfstæðisflokks í borgar-
stjóm, en í yfirliti borgarhagfræð-
ings yfir fyrstu sex mánuði ársins
kemur fram að 630 milljóna króna
halli verði líklega á borgarsjóði á
þessu ári. Samkvæmt fjárhagsá-
ætlun borgarinnar fyrir árið 1997
var gert ráð fyrir 13.915 miHjóna
króna tekjum á árinu en borgarhag-
fræðingur telur líklegt að tekjumar
verði 14.600 milljónir eða 685 millj-
ónir umfram fjárhagsáætlun.
Ámi benti á að í áætlun borgar-
hagfræðings væri gert ráð fyrir
sölu eða tilflutningi á 230 leigu-
íbúðum í eigu borgarinnar, að verð-
mæti 800 millj. yfir til Félagsbú-
staða hf. „í raun er því ekki ein-
ungis verið að tala um 630 milljóna
króna halla heldur einnig 800 millj-
óna króna tilflutning sem kemur
til frádráttar á fjárfestingarkostn-
aði og þrátt fyrir tæplega 700
milljóna tekjuauka vegna góðæris
erum við að horfa á þennan halla,“
sagði hann. „Það er allt annað en
stóru orðin hafa fjallað um.“
í yfirliti borgarhagfræðings er
tekið fram að ekki sé gert ráð
fyrir breytingum á tekjum af sölu
eigna, sem yrðu við yfirfærslu 768
almennra leiguíbúða til Félagsbú-
staða hf., í stað þeirra 230 íbúða
sem þegar hefur verið ákveðið að
selja fyrirtækinu. Sagði Ámi að
ef til þess kæmi að íbúðirnar 768
yrðu fluttar hefði það í för með
sér breytingar í fjárfestingum sem
gæfu rúmlega 3ja milljarða króna
betri fjárhagsstöðu hjá borgar-
sjóði. „Þau virðast því ætla að
leika þennan leik áfram og bæta
stöðuna á pappírunum," sagði
hann.
I
\
I
|
I
:
I
i
i
i
i
fi
i