Morgunblaðið - 30.07.1997, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 30.07.1997, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ1997 47 FÓLKí FRÉTTUM Upptekinn af tölunni 7 ► BIRGIR „Curver“ Thoroddsen hélt nýverið tónleika og kynnti þar nýútkomna plötu sem hann kallar 7. Eins og nafn plötunnar ber með sér var Birgir mjög upp- tekinn af tölunni 7 þegar hann hóf vinnu við hana; vaknaði kl. 7 hvern morgun eftir að hafa sofið í 7 tíma, gerði 7 armbeygjur og fór síðan í 7 mínútna sturtu. Eft- ir það hafði hann sautján tíma til að semja lag og taka upp grunn að því, en hann mátti ekki nota gamla hugmynd; nýtt lag varð að verða til á hverjum degi, en lögin á plötunni heita eftir nöfn- um daganna sem þau urðu til á, sunnudagur, mánudagur o.s.frv. Næstu viku á eftir notaði Birg- ir síðan timann frá 15 til 24, þ.e. 7 tíma, til að klára lagið og vann þannig upp tímana 7 sem hann hafði sofið vikuna á undan. Lög- in eru öll tekin upp á 8 rása tæki en aðeins notaðar 7 rásir. 011 eru lögin 7 mínútur að lengd, eða þá lengdin er bætt upp með mislangri þögn í lokin. Platan er breiðskífa og þijú og hálft lag á hvorri hlið. Birgir sagði svo frá á tónleikunum að hann hefði tek- ið 77 þúsund króna lán til að gefa plötuna út og greiði það á 7 mánuðum, en það sé líklega tapið á útgáfunni. Platan er gef- in út í 77 tölusettum eintökum og kostar 777 kr. stykkið. Kost- aði 77 kr. inn á útgáfutónleikana. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir BIRGIR „Curver" með sjö á heilanum. PPPönk hitaði upp fyrir Birgi. ÞAU skemmtu sér vel í húsbiinum á tjaldstæðinu, f.v. Elsý Emilsdóttir, Helga Jónsdóttir, Ásmund- ur Jónasson, Hildigunnur Lóa Högnadóttir og Halldóra Hermannsdóttir. Niðjar Halldóru og Ólafs í Krók hittast NÚ STENDUR tími niðjamótanna sem hæst en eitt slíkt var einmitt haldið um sl. helgi í Laugagerðis- skóla á Snæfellsnesi. Þar komu saman niðjar Ólafs skipstjóra Ól- afssonar og konu hans Halldóru Halldórsdóttur í Krók á Patreks- firði. Ólafur fæddist á Stökkum á Rauðasandi en Halldóra á Grund- um í Kollsvík, en ættin kennir sig einmitt við Kollsvík sem er vestast á Vestfjarðakjálkanum, norður af Breiðuvík og Látrabjargi. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir ARNAR Sigurðsson spilaði á nikkuna og hélt uppi fjörinu, en með honum er Grétar Ólafsson. HAUKUR Guðmundsson, Inga Guðmundsdóttir og Ólafur Dan Hansen rifjuðu upp gamla tíma. KARL Óli Kristmundsson, Kolbeinn Gunnarsson og Sjöfn Gunnarsdóttir. Nýr strand- vörður ► FYRIRSÆTAN Michael Berg- in er þekktastur fyrir leik í Cal- vin Klein-nærfataauglýsingum, en nú hefur verið tilkynnt að hann sé nýjasti liðsmaður leikarahóps Strandvarðaþáttanna vinsælu. Hér sést hann á Planet Holly- wood-veitingastaðnum í Holly- wood, en þar var hann staddur í tilefni þess að hann prýðir forsíðu septembertölublaðs tímaritsins Cosniopolitan. Reuter Sumarsmellurinn 1997 „Uppsetningin... er villt á agaðan hátt, kraftmikil og hröð og maður veit aldrei á hverju er von nasst“. DV „...bráðfyndin..." Mbl Föstud. 8.8 örfá sæti laus Laugard. 16. ágúst Sýningar hefjast kl. 20 Tryggið ykkur miða í tíma Leikrit eftir Mark Medoff I 1astíik“7 WM Baltasar Kormákur • Margrét VilhjálmsdóttirI Benedikt Erlingsson • Kjartan Guðjónsson 1 Leíkstjóri: Magnús Geir Þórðarson i* UDwmiiii i im iici I HÚSI ÍSLENSKU ÓPERUNNAR Fös. 8. ág. kl. 20. Lau. 9. ág. kl. 20. Fim. 14. ág. kl. 20. Miðasala mán,— lau. frá kl. 13—18. Veitingar: Sólon Islandus. Takm. Sýningarfjöldi. Aðeins sýnt í júlí & ágúst. Péi U‘iKliópiii imi | UPPLÝSINGAR OG MIÐAPANTANIR í SÍMA 551 1475 GLEÐILEIKUR EFTIR ARNA IBSEN Aukasýning fös. 8/8 Allra síðasta sýning MIDkSALA Í SÍMA 555 0553 Leikhúsmatseðill: A. HANSEN - ba?ði fyrir oq eftir - hafnarfjarðarleikhúsið (JsIhermqður OG HAÐVÖR UTSOLULOK Á MORGUN, FIMMTUDAG ALLAR ÚTSÖLUVÖRUR MEÐ 50% AFSLÆTTI 10% afsláttur af nýjum vörum bara í dag og á morgun. Laugavegi 62, sími 551 6444.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.