Morgunblaðið - 13.08.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.08.1997, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1997_____________________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Einar Ágústsson fannst þrekaður eftir þrjá daga í frumskógi í Guatemala Dauðínn er ekkí endalok svo ég óttaðist hann ekki Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson EINAR Ágústsson: Ég varð fljótt mjög máttfarinn. Nýr aðstoð- arprestur í Grafarvogi ANNA Sigilður Pálsdóttir guðfræð- ingur var ráðin aðstoðarprestur í Grafarvogskirkju á fundi sóknar- nefndar þar í gærkvöldi. Umsækjendur um stöðu aðstoðar- prests voru sex, guðfræðingarnir Bára Friðriksdóttir, Jón Ármann Gíslason, Sigurður Grétar Helgason og Sveinbjörg Pálsdóttir, auk Ónnu Sigríðar, og séra Þórey Guðmunds- dóttir sóknarprestur. Á sóknarnefnd- arfundinum hlaut Anna Sigríður 15 atkvæði og Sveinbjörg tvö. I Grafar- vogsprestakalli, sem er fjölmennasta prestakall landsins með 13 þúsund sóknarböm, verða frá og með haust- inu starfandi þrír prestar, sr. Vigfús Þór Árnason sóknarprestur og að- stoðarprestamir sr. Sigurður Arnar- son og Anna Sigríður Pálsdóttir. Svínakjöt á útsölu UM tuttugu tonn af nýju svínakjöti verða seld á útsölu í verslunum Nóatúns í dag og næstu daga. Afslátturínn verður á bilinu 20-30% og sem dæmi nefnir Júlíus Jónsson, kaupmaður í Nóatúni, að kílóið af svínakótelettum sem venju- lega kosti 998 krónur fari nú niður í 785 kr. Þá lækki kílóverðið á svína- hnakka úr 798 í 585 kr. og á snits- eli úr 1.390 í 885 kr. Utsalan verður í öllum verslunum Nóatúns, en þær eru nú níu víðsveg- ar á höfuðborgarsvæðinu. ------*—♦—«----- Festi hönd í bindivél BÓNDI á Skarðsströnd í Dölum slas- aðist á hendi þegar hann festi hönd sína í rúllubindivél í gær. Að sögn lögreglu í Búðardal hafði of mikið hey farið inn í vélina og var bóndinn að losa heyið þegar tein- ar sem spennst höfðu í sundur smullu saman á hönd mannsins. Björgunarlið beitti járnkarli til að spenna teinana af hendinni og síðan var maðurinn fluttur til röntgen- myndatöku á heilsugæslustöðina í Búðardal. Ekki var talið að meiðsl hans væru alvarlegs eðlis. ------» » ♦ Hvalreki við Hellissand HRÆ af 15 metra löngum búrhvals- tarfi hefur rekið á land vestan við Gufuskálavör nálægt Hellissandi á SnæfellsnesL Að sögn Ólafs Jens Sigurðssonar prests á Hellissandi virðist hvalurinn hafa legið eitthvað í sjó áður en hann rak á land, en hræið er samt heillegt. Það voru eiginkona og böm Ólafs sem fundu hvalinn í gær þeg- ar þau voru í gönguferð í fjörunni. MEÐ blaðinu í dag fylgir fjög- urra síðna auglýsingablað frá Hjartavernd. „FYRSTU nóttina var ég mjög var um mig, því ég óttaðist eiturslöng- ur, en þær létu aldrei sjá sig. Skor- dýrin voru hins vegar mjög að- gangshörð og ég var bitinn um hundrað sinnum. Á þriðjudags- morgun taldi ég líklegast að ég fyndist ekki á lífi og ég sætti mig við það, enda trúi ég á Guð og veit að dauðinn er ekki endalok. Þess vegna óttaðist ég hann ekki,“ sagði Einar Ágústsson, 24 ára stærð- fræðingur, í samtali við Morgun- blaðið. Einar kom til landsins á sunnudag, rúmri viku eftir að hann vilitist í frumskógum Guatemala. Þar fannst hann eftir þijá sólar- hringa, mjög þrekaður. Einar lagði stund á spænskunám við bandarískan skóla í Guatemala. Hann fór frá Guatemala-borg laug- ardagsmorguninn 2. ágúst og flaug að bæ skammt frá Tikal, Maya- rústum í vesturhluta landsins. Hann fékk leiðsögn að rústunum, en síð- degis ákvað hann að ganga aftur að þeim og njóta sólarlagsins þar. „Frá hótelinu að rústunum er að- eins 10-15 mínútna gangur. Ég gekk upp á hof, en þar sem mig þyrsti ákvað ég að ganga að vatns- bóli. Ég var með kort og fann stíg, sem ég ákvað að ganga.“ Eftir 15 mínútna gang var stíg- urinn ekki eins auðfundinn og áður og eftir aðrar 15 mínútur áttaði Einar sig á að hann hafði villst. „Ég varð mjög undrandi, enda hef ég ferðast víða og fer alltaf varlega. Ég eyddi 30 mínútum í að reyna að átta mig, en sá svo að best var að bíða þar sem ég var niður kom- inn. Ég kom mér fyrir við fallið tré sem ég svaf ofan á um nóttina, því ég kærði mig ekki um að sofa á jörðinni, þar sem dýr áttu greiðari leið að mér. Aðallega hafði ég áhyggjur af eiturslöngum. Það var svo dimmt um nóttina að ég sá ekki handa minna skil, en ég heyrði í öpum og fleiri dýrurn." Honum varð ekki svefns auðið fyrstu nóttina og raunar svaf hann aðeins í 3-4 klukkustundir þessa þijá sólarhringa, enda leið honum mjög illa vegna þorsta og hungurs. Á sunnudagsmorgun ákvað Ein- ÓVENJU mikið var um að skattur væri áætlaður á einstaklinga og fyrirtæki í ár. Gestur Steinþórsson, skattstjóri í Reykjavík, sagði ástæð- una þá að vélræn úrvinnsla hafi reynst þyngri í vöfum en reiknað var með. „Vegna þessa urðum við að hætta að taka við framtölum mun fyrr en ella. Þeir sem skiluðu inn framtali eftir að frestur til þess rann út fá því fremur áætlað á sig.“ Heildarálagning tekjuskatts á tekjur ársins 1996 nam 36 milljörð- um og innheimtust rúmjega 30 milljarðar í staðgreiðslu. Útistand- andi tekjuskattur nam því um 6 milljörðum, en frá þeirri fjárhæð drógust um 400 milljónir vegna skuldajöfnunar milli maka. Til inn- heimtu á síðustu fimm mánuðum þessa árs kemur því 5'h milljarður króna. Af þeirri upphæð er hins vegar tæpur helmingur, eða um 2'h ar að reyna að rata til baka, þótt hann reiknaði með að sín yrði sakn- að fljótlega. Hann var með bók með sér og reif úr henni síður og lagði á jörðina, svo hann gæti rakið sig aftur að tijábolnum. „Ég gekk I 15-20 mínútur, en þá sá ég blaðsíðu úr bókinni á jörðinni fyrir framan mig. Ég hafði gengið í hring. Þessi uppgötvun varð mér töluvert áfall, milljarður króna, vegna áætlana og reikna skattayfirvöld með að nær helmingur þeirrar fjárhæðar gangi til baka að lokinni kærumeðferð. Ber að áætla ríflega Skattstjórum ber að áætla tekjur og eignir svo ríflega að ekki sé hætt við að fjárhæðir séu áætlaðar lægri en þær í raun eru. Vinnu- brögðin miðast við mat í hveiju tilviki, enda ekki ætlast til að fram- teljendur geti sjálfir reiknað út hver áætlunin verði og sleppt því að telja fram ef þeir telja áætlun- ina sér í hag. Samkvæmt svari fjár- málaráðherra vegna fyrirspurnar á Alþingi fyrir nokkrum árum telja skattstjórar afar ósennilegt að gjaldendur hafi fjárhagslegan ávinning af því að skila ekki fram- tölum og miklu liklegra sé að skatt- stjóri hækki áætlanir sínar ef mörg enda vissi ég að ég var í mesta lagi klukkustundar gang frá rústunum." Einar ákvað að ganga áfram um skóginn og dreifa blaðsíðum úr bókinni, svo björgunarmenn gætu áttað sig á, á hvaða svæði hann væri að finna. „Ég fann svo annað fallið tré að sofa á, en það rigndi ekkert aðra nóttina eins og gert ár líða milli skila á framtali. Gest- ur Steinþórsson ítrekaði að mikill hluti áætlana yrði endurskoðaður eftir að kærur hefðu borist. Hins vegar kærðu ekki allir áætlaða álagningu innan tilskilins kæru- frests, sem rennur út 29. ágúst. „Það er alltaf töluvert um að fólk skili inn framtölum löngu eftir að kærufrestur er liðinn og fari fram á leiðréttingu. í þeim tilvikum er heimilt að beita viðurlögum, nema ástæður tafanna séu ekki taldar framteljanda að kenna.“ Gestur sagði að í áætlunum væru innifalin viðurlög, en ef fram- tal skilaði sér yrði skattur reiknað- ur á ný og eftir atvikum beitt viður- lögum einnig. Hann sagði að ekki léki vafi á að strax á næsta ári muni vélræn úrvinnsla framtala spara mikla vinnu og yrði jafn- framt til hagsbóta fyrir gjaldendur. hafði þá fyrstu og ég var alveg vatnslaus. Ég varð fljótt mjög máttfarinn, enda var kæfandi hiti á daginn og ég missti mikinn vökva.“ Einar átti von á að leitarmenn fyndu sig á mánudeginum, enda átti hann að fara af hótelinu á sunnudag. Hann gekk örskammt frá náttstaðnum, í 2-3 mínútur, en það var nóg til þess að hann fann ekki búnað sinn, t.d. kort og ljós- myndavél, aftur. Síðustu nóttina svaf hann á jörðinni. „Líkurnar á að ég fyndist á lífi urðu sífellt minni. Ég vissi samt að ég gat ekkert annað gert en hugsað um mína hlið og látið aðra hafa áhyggjur af leit- inni. Það var tómt mál að tala um að æða af stað, því ég var svo máttfarinn að ég komst varla tvo, þijá metra. Ég var líka þegar búinn að reyna og gekk þá bara í hring. Þess vegna hélt ég kyrru fyrir og ég var alltaf rólegur. Ég velti fyrir mér lífí mínu og hugsanlegum dauða og fann að ég var sáttur. Ég átti ekkert óuppgert og ég hefði ekki viljað gera neitt öðruvísi. Ég vonaði að lík mitt fyndist, svo fjöl- skylda mín þyrfti ekki að lifa í óvissu um afdrif mín. Trúin er hluti af lífssýn minni og hún styrkti mig.“ Á mánudeginum hafði hann heyrt flugvéladyn og á þriðjudegm- um var ljóst að hans var leitað. „Ég heyrði í flugvélum og loks heyrði ég kallað. Eg hrópaði á móti og þjóðgarðsvörður kom tiþ mín. Það kom í ljós að leitarflokkar höfðu fundið blöð úr bókinni á mánu'dag, svo þeir vissu á hvaða svæði þeir ættu að leita.“ Læknar tóku við Einari og mældist blóðþrýstingur hans hættulega hár og nýru og lif- ur störfuðu ekki eðlilega. Honum var gefinn vökvi og sprautur vegna fjölda skordýrabita, en hann hafði verið bólusettur gegn helstu kvillum áður en hann hélt til Guatemala. Læknar fýlgjast þó vel með heilsu- fari hans næstu vikumar, ef einhver kvilli skyldi láta á sér kræla. „Ég næ mér að fullu,“ segir hann. „Ég ætla að vera hér í mánuð og fara svo aftur út, kannski til Mexíkó, enda ætla ég að læra spænskuna." Millilent vegna æðiskasts AUSTURRÍSKRI farþegaþotu á leið frá Vínarborg í Austur- ríki til Miami í Bandaríkjunum var millilent á Keflavíkurfiug- velli í gær vegna þess að frönsk kona á þrítugsaldri hafði fengið æðiskast um borð í vélinni. Að sögn lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli var konan flutt á sjúkrahúsið í Keflavík til skoðunar og þaðan í fanga- geymslu þar sem hún fékk að gista í nótt. Konan verður að öllum líkindum send til baka til Vínarborgar. Er talið að konan hafí verið undir áhrifum áfengis oglyfja og það hafi verið ástæða æðis- kastsins. Að sögn lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli er það ekki nýlunda að taka þurfi farþega úr flugvélum vegna óspekta, en hins vegar sé það sjaldgæf- ara að það þurfi að millilenda flugvélum sérstaklega til að losna við farþega, eins og í gær. Meira er um áætlanir tekjuskatts en áður vegna vélrænnar úrvinnslu skattframtala Nær helmingur tekjuskatts til innheimtu er áætlaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.