Morgunblaðið - 13.08.1997, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.08.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLEPJT MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1997 19 Morgunblaðið/UG í BORGUNUM Kírovsk og Apatítí er stærstur hluti atvinnulífsins byggður í kringum apatít-námurn- ar í fjalli sem nefnist Sofandi fegurðardís. Hún hefur látið mikið á sjá, því um hálfur milljarður rúmmetra af jarðvegi hefur verið fjarlægður úr fjallinu til að vinna apatit, sem er notað í áburð. VERKSMIÐJUREYKURINN er hvergi langt undan. Frá mið- borg námaborgarinnar Kírovsk. Morgunblaðið/UG EFTIR að hafa ekið í nokkra klukkutíma í gegnum birki- og furuskóg, blasir borgin Montsjegorsk skyndilega við. I nokk- urra kílómetra radíus er ekki stingandi strá að sjá og reykháf- arnir spúa skelfilegu magni af eimyiju út í andrúmsloftið. hverfisvandinn væri mikill, svo mik- ill raunar að hann væri „alþjóðlegt vandamál". En þeim var jafnframt umhugað að sýna fram á að útlitið væri ekki eins svart og heyra mátti að sumum gestanna þótti og var Sasjínov afar ósáttur við þann áhuga sem þingmenn og blaðamenn sýndu þeim stöðum þar sem mengunin er verst. Benti hann á að stór hluti Kólaskagans væri skógi vaxinn og byði upp á mikla möguleika í ferða- þjónustu. En sýnileg mengun er geysileg, einkum í kringum sumar námavinnsluborgirnar og greinilegt að sumum var brugðið þegar þeir litu mestu mengunina. Gestunum norrænu kom vissulega á óvart að aka hundruð kílómetra um yndislegan birki- og furuskóg, en flestum var þó ofar í huga skelfi- leg mengunin við námaborgina Montsjegorsk þar sem reykháfar spúa dökkgrárri eimyiju út í and- rúmsloftið og ekkert kvikt er að sjá í nokkurra kílómetra radíus um- hverfis borgina. Igor Tsjernitsjenkó, varaforseti héraðsþingsins og forseti alþýðusambandsins í Múrmansk, dró upp dökka mynd af því sem fyrir augu bar, sagði hinum 60.000 íbúum borginnar allar bjargir bannaðar, þeir fórnuðu heilsunni til að fá pen- inga fyrir mat og nú væri svo kom- ið að laun væru ekki lengur greidd. Þeir þyrðu hins vegar ekki að flytja á brott þar sem enga vinnu væri annars staðar að fá. Þá var vissulega nöturlegt hvernig fjallinu „Sofandi fegurðardís" við borgina Kírovsk hefur bókstaflega verið mokað í burt til að vinna úr því apatít sem notað er í áburð. Á toppi þess sem eftir er, standa enda- lausar hrúgur af ónýtum vinnuvélum og niðurnídd verksmiðjuhús. Ekki vakti höfnin í Múrmansk mikla hrifningu, hlutar hennar minna einna helst á risavaxinn rusla- haug, þar sem ryðgaðir skipsskrokk- ar og jarðýtur varða hafnarbakkann og í miðri höfninni kúrir skipið Lotta við bryggju fullt af geislavirkum úrgangi. Höfnin er heldur ekki opin hverjum sem er. Þar liggja við bryggju togarar, flugmóðurskip og kjarnorkuknúnir ísbrjótar, auk geymsluskipanna Lepse og Lottu þar sem kjarnorkuúrgangur er geymdur. Það fer um marga úr þing- og blaðamannahópnum þegar farið er um borð í Lottu og síðan ísbrjótinn Arktika. Mennirnir tveir sem standa á þilfari Lottu og veiða í soðið eru greinilega annarrar skoð- unar en hætt er við að enginn gest- anna hefði viljað leggja sér fiskinn til munns. Alexander Baríkov skip- herra gengur með gestina um skip- ið og sýnir það markverðasta, m.a. kjarnakljúfana, sem blaðamenn eru hvattir til að mynda. Hins vegar má ekki festa skipið á filmu þar sem það liggur bundið við bryggju og eina skýringin sem við fáum á því er sú að svæðið sé að hálfu hernað- arlegt þrátt fyrir að Atomflot, eig- andi ísbijótsins, heyri ekki undir herinn. Þolinmæði mikilvægust Sjálfsagt er það rétt hjá Sasjinov að útlendingar, sem til Rússlands koma, hafi mikla tilhneigingu til að einblína á það sem miður fer. En það er ekki að undra, bæði vegna þess sem fyrir augu ber og þess sem heyra má í samtölum við almenning og þá sem gagnrýna stjórnkerfið. Stjórnmálamennirnir hafa flestir ríka tilhneigingu til að koma sér hjá því að svara óþægilegum spurning- um, þannig lauk sumum fundunum mjög skyndilega þegar þeim þótti spyrjendur helst til gagnrýnir í fyrir- spurnum sínum. Þá er á blaðamönn- um að heyra að ekki ríki enn algert tjáningarfrelsi og stjórnvöld reyni að stýra opinberri umræðu eins og kostur sé. Aimenningur virðist heid- ur ekki treysta því fyllilega að hann geti gagnrýnt stjórnvöld óhræddur, þótt ástandið sé vissulega miklum mun betra en það var á tímum Sovét- stjórnarinnar. En breytingarnar verða ekki á einni nóttu og þolinmæði er eitt lykil- orðanna í Rússlandi. Ein þeirra sem gera sér grein fyrir því er Natalja Vefenskaja, þingmaður fyrir flokk umbótasinna, Jabloko, á héraðsþing- inu í Múrmansk. Hún segir vanda- málin -sem við blasa óteljandi; erfitt sé að semja og setja ný lög, stjórnar- skrárréttur þegnanna sé víða brotinn og mannréttindabrot framin á þeim; fyrst og fremst þau að þeir fái ekki greidd laun jafnvel svo mánuðum skipti. Þær greiðslur sem fólk fær séu skammarlega lágar og því gert nær ómögulegt að flytja á milli svæða í landinu. „Það gerist ekkert á næstu árum, ekki á meðan núver- andi ríkisstjórn er við völd og kannski lengur. En ég er raunsæ, ég veit að umbæturnar taka langan tíma.“ Gösta Bohman, fyrrverandi leiðtogi sænska Hægriflokksins, látinn „Gamall maður sem bar með sér nýja tíma“ Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. MIÐAÐ við sterka stöðu sænska Hægriflokksins og veika stöðu Þjóðarflokksins nú kann að virðast undarlegt að fyrr á öldinni var þessu þveröfugt farið. Sá sem átti mestan þátt í að snúa dæminu við var Gösta Bohman, er lést í gær, 86 ára að aldri. Bohman lét af starfi flokksfor- manns 1981, en ræddi og skrifaði um stjórn- mál fram á það síðasta, en hann skrifaði einnig hrífandi og einlæga bók um lát konu sinnar, en hún dó úr Alzheimer. Hann kom því víða við og í minn- ingarorðum sínum í gær sagði Carl Bildt, formaður Hægri- flokksins og tengda- sonur Bohmans, hann hafa verið einn merk- asta sænska stjórn- málamann aldarinnar. „Hann var gamall maður, sem bar með sér nýja tíma.“ Gösta Bohman fæddist 1911 og var lögfræðingur. Hann settist á þing 1958 fyrir Hægriflokkinn og varð formaður hans 1970. Fram að þeim tíma hafði hinn frjálslyndi Þjóðarflokkur verið þungamiðja hægrivængsins, ekki síst fyrir áhrif hagfræðingsins Bertil Ohlins, föður Ann Wibble fjármálaráð- herra í hægristjórninni 1991-1994. Hægriflokkurinn hafði verið óskýr jaðarflokkur og fylgið var aðeins 11 prósent, þegar Bohman tók við. Þegar hann fór frá 1981 var fylgið um 20 prósent og flokkurinn þungamiðja hægrivængsins. Bohman skýrði og skerpti stefnuna og gerði uppreisn gegn gömlu og stöðnuðu flokkskerfi. Þó hann væri ekki uppreisnargjarn í pólitískum skilningi, þá bar sænskum stjórn- málaskýrendum saman um það í eftirmælum í gær að betra orð væri ekki til að lýsa þeim áhrifum, sem hann hafði á flokkinn og fram- gang hans. Pólitískur slagsmálahundur Þegar Thorbjörn Fálldin, leiðtoga Miðflokksins, tókst 1976 í fyrsta skiptið í 44 ár að mynda hægri- stjórn í Svíþjóð án þátttöku jafnað- armanna varð Bohman efnahags- ráðherra. Sú stjórn sprakk 1978, en ári seinna kom aftur sama stjórn til valda og í henni sat Bohman fram til 1981 að stjórnin sprakk aftur. Bohmans var í gær minnst sem leiðtoga, sem fremur sóttist eftir pólitískum slagsmálum en forðast þau. Um leið var það hugsanlega veikleiki hans. Hann mótaði það lögmál Hægriflokksins að flokkur- inn ætti aldrei að vera á sama máli og Jafnaðar- mannaflokkurinn: ef jafnaðarmenn sams- inntu Hægriflokknum, yrði hann að skipta um skoðun. Á hans tíma fóru konur að láta meira til sín taka í stjórnmálum, en þá þróun átti hann erfitt með að taka á og enn er það svo að Hægri- flokkurinn laðar síður að sér konur en aðrir flokkar. Ein sam- starfskona hans sagði að hann hefði hræðst konur og óútreiknan- lega hegðun þeirra. Óhræddur við tilfinningar En þessi pólitíski slagsmálahund- ur og óvægni stjórnmálamaður átti sér aðrar hliðar, sem skýrðust á efri árum hans. Eftir að hann dró sig í hlé 1981 skrifaði hann ekki aðeins um stjórnmál, heldur einnig um lífið og tilveruna og í gær urðu margir til að nefna hve skrif hans hefðu æ meir fengið á sig siðfræði- legan blæ, þar sem virðing fyrir einstaklingnum og náttúrunni voru ríkur þáttur. í bók sinni um sjúkdóm eiginkonu hans þótti hann einkar nærgöngull við sjálfan sig og hrein- skilinn á allar þær tilfinningar sem bærast með þeim, sem þarf að sjá um og horfa upp á dauðastríð sinn- ar heittelskuðu. í heillandi viðtali við Bohman í vetur, sem hann sagði sitt síðasta, lýsti hann nánd dauð- ans, en einnig gleðinni yfír samver- unni við konu, sem var ekkja eftir vin þeirra hjóna og sem veitti hon- um gleði og styrk síðustu árin. Bohman þótti ekki gæddur sam- einingargáfum forsætisráðherra og sú staða var heldur aldrei innan hans seilingar. Starf hans skilaði sér, þegar Carl Bildt myndaði stjórn 1991, þá fyrstu undir forsæti flokks- ins eftir stríð. Flokksfylgi sam- kvæmt skoðanakönnum nú er flokksmet, um 30 prósent. Hvort það endist til kosninga, sem væntanlega verða haustið 1998, er önnur saga. Gösta Bohman Kýpur-viðræður í Sviss Denktash segir vissan árangur hafa náðst Glion í Sviss. Reuter. RAUF Denktash, leiðtogi Kýpur- Tyrkja, sagðist í gær telja að viss árangur hefði náðst af viðræðum hans og leiðtoga Kýpur-Grikkja, Clafeos Clerides, forseta Kýpur, en þeir eiga nú viðræður á hóteli skamint frá Montreux í svissnesku Ölpunum um lausn á skiptingu eyj- arinnar. Viðræðurnar hófust á ný í fyrradag og er áætlað að þeim verði haldið áfram fram á föstudag. Denktash sagðist hins vegar á stuttum fundi með fréttamönnum að loknum öðrum degi viðræðnanna úti- loka að hann myndi undirrita sameig- inlega yfirlýsingu að viðræðuhrinunni lokinni. Að öðru leyti neitaði Denkt- ash að tjá sig um framgang viðræðn- anna, þar sem fréttabann er í gildi á meðan á þeim stendur. Meðal stjórnarerindreka, sem viðriðnir eru viðræðurnar, ríkir ekki mikil bjartsýni á árangur. Einn þeirra sagði í gær að sú staðreynd að Denktash og Clerides skyldu hafa haldið áfram viðræðum tvo daga í röð væri umtalsverður árangur út af fyrir sig. Annar mat andrúmsloft- ið sem ríkti á fundi leiðtoganna þannig, að rétt væri að lýsa honum sem „viðræðum hinna heyrnar- lausu“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.