Morgunblaðið - 13.08.1997, Blaðsíða 40
i£ reei tsuda .si HuoAauxivam
40 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1997
Matur og matgerð
Blómkál Og
kóngulær
Skyldi Kristín Gestsdóttir borða
kóngulær með blómkálinu spyr kannski
einhver sem les fyrirsögnina.
ÞAÐ VIRÐIST mikið um kóngu-
lær þessa dagana. Þegar maður
gengur um skóginn hér í kring
þarf maður að bera hönd fyrir
sig til að fá ekki vefinn framan
í sig. Á hveijum morgni þegar
gengið er fyrir húshornið er þar
nýr vefur og bíllinn er vafinn í
kóngulóarvef á morgnana,
Kóngulær eru iðnar. í gær þegar
ég opnaði fataskápinn sem er við
hliðina á opnum glugga fékk ég
kóngulóarvefsflækju framan í
mig, sú hefur komist inn í skjóli
myrkurs og unnið verk sitt með-
an við sváfum. En í morgun þeg-
ar ég vaknaði kastaði fyrst tólf-
unum. Það var kónguló búin að
spinna vef beint yfir mér. Ég var
fljót fram úr þann morguninn.
Þegar ég var búin að jafna mig
fékk ég mér göngu niður í mat-
jurtagarðinn og sá mér til mikill-
ar ánægju að blómkálið var orðið
stórt og myndarlegt. Nú verður
blómkál í allar máltíðir næstu
daga. Sprotakál (brokkoli) erum
Farsið
250 g saltkjötshakk
200 g ferskt lambahakk
1 dl kartöflumjöl
'Adl hveiti
'Atsk. pipar
2 dl nýmjólk
Setjið allt nema mjólkina í hræri-
vél og hrærið saman, hrærið mjólk-
ina smám saman út í og hrærið vel
á milli.
Blómkál með
kjötfarsi utan um
1 meðalstór blómkálshaus
500 g kjötfars
hreint stykki t.d. diskaþurrka
1. Skerið örlítið neðan af stilknum
á blómkálinu, setjið í heilu lagi í
pott sem rétt rúmar hann, stilkur
snúi niður, hellið 2 ’A dl af vatni í
pottinn og sjóðið þetta í 5 mínútur.
Takið þá upp úr en geymið soðið.
2. Breiðið stykkið á borðið og
smyijið farsinu á það. Leggið
blómkálið ofan á farsið, stilkur
snúi upp. Bindið stykkið utan
um. Setjið í pottinn með
við fyrir löngu farin að borða og
það vex grimmt. Til þess að það
vaxi ekki úr sér er best að taka
það jafnóðum, sjóða upp á því
og frysta. Leggirnir tréna fljótt
og þarf þá að afhýða þá. Blóm-
kál hefur nú lækkað mikið í verði
og það hentar vel til frystingar.
Vítamín varðveitist vel í kálinu
í frysti svo fremi að soðið sé
aðeins upp á því. Með því gerum
við efnakljúfa óvirka, en þeir
halda áfram að virka og eyði-
leggja vítamín jafnvei í frosti.
Þannig varðveitast vítamín mun
lengur en í fersku káli sem búið
er að geyma um tíma, sem hlýt-
ur að gilda um hið innflutta sem
verið er að selja að vetrinum.
Margir þekkja blómkálsgratin og
biómkálssúpu, en hvernig væri
að prófa eitthvað nýtt t.d. blóm-
kál með kjötfarsi utan um. Það
er einstaklega fallegur og góður
réttur. Svo getum við líka nýtt
ýsuafganga í góðan blómkáls-
rétt.
Ég bjó til mitt kjötfars út salt-
kjötshakki og fersku hakki. Oft
er saltkjötshakkið of salt og því
gott að bæta fersku hakki saman
við. En auðvitað má nota tilbúið
fars.
blómkálssoðinu, legg-
ið lok á og sjóðið í 15
mínútur. Takið stykkið af
og skerið hausinn í tvennt og
berið fram.
Meðlæti: Smjör og ristað brauð,
einnig má búa til sósu úr soðinu.
Blómkál með
ýsuafgangi
3egg
1 meðalstór blómkálshaus
smábiti soðin ýsa
3 msk. matarolía
25 g smjör
2 - 3 tsk. karrí
1 'A dl rasp
1. Harðsjóðið eggin. Takið af
þeim skurnina. Skerið í báta.
2. Takið kálið í hríslur og sjóðið
í litlu saltvatni í 5 mínútur. Hellið
soðinu af.
3. Setjið matarolíu og smjör á
pönnu. Hrærið karri út í og brúnið
örlítið, en þetta má alls ekki brenna.
Minnkið hitann.
4. Setjið rasp og mulinn fisk út
í og veltið við smástund.
5. Setjið blómkálið á fat og hell-
ið karrífiskinum yfir.
6. Raðið eggjum ofan á.
Meðlæti: Soðin hrísgrjón eða
kartöflur.
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Klassík fm
MIG LANGAR til að hrópa
húrra fyrir tveimur grein-
um sem birst hafa í Morg-
unblaðinu nú fyrir
skemmstu frá Oliver Kent-
ish og Valdemar Pálssyni
um útvarpsstöðina Klassík
fm. Ég vil taka undir með
þeim og hvetja ráðamenn
til að styðja við þessa góðu
stöð svo halda megi út-
sendingum áfram. Ég held
ef hugur fylgdi máli hjá
menningarpostulum okkar,
sem þurfa sumir hveijir að
ganga gegnum það kval-
ræði að sækja tónleika
o.þ.h., ætti þá ekki að
muna mikið um að styðja
aðeins við bakið á svona
stöð. Þetta getur varla ver-
ið spurning um meira en
eitt stöðugildi á ári.
Aðalmálið er hins vegar
það að Ríkisútvarpið ætti
auðvitað að sjá sóma sinn
í því að halda úti einni
svona stöð vegna þess að
mér er vel kunnugt um að
þeir eiga aðgang að
aragrúa af klassaefni víðs-
vegar að. í öllum menning-
arlöndum er haldið úti
a.m.k. einni, ef ekki fleir-
um, svona stöðvum. Á
meðan þetta kostar svona
lítið væri skömm ef þessi
ágæta stöð þyrfti að leggja
upp laupana.
Gylfi Baldursson
Tapað/fundið
Göngustafur
tapaðist
ELÍSABET Vilhjálmsson,
sem er fötluð og gengur
með tvo göngustafi, tapaði
öðrum þeirra, er hún lagði
hann upp á þak bifreiðar
sinnar, og ók burt frá Bón-
us, Reykjavíkurvegi 72,
Hafnarfirði sl. föstudag.
Um þykkan ljósbrúnan
bambusstaf er að ræða
með gráum gúmmítappa
undir. Skilvís finnandi er
vinsamlega beðinn að hafa
samband í síma 552-1076.
Farsími
tapaðist
FARSÍMI af gerðinni
Philips Fuzz tapaðist frá
bílastæðinu við Ésju upp í
miðjar hlíðar sl. laugardag.
Finnandi er vinsamlega
beðinn að hringjaí síma
555-3348.
Giftingarhringur
fannst
KARLMANNS giftingar-
hringur með áletrun innan
í fannst í Hlíðunum í
Reykjavík fyrir u.þ.b. 10
dögum. Upplýsingar um
hringinn eru veittar í síma
551-5017.
Hjólkoppur
tapaðist
15 TOMMA teinahjólkopp-
ur af amerískum bíl tapað-
ist á leiðinni frá Ferstiklu,
yfir Dragháls að Skorra-
dalsvatni 31. júlí sl.
Finnandi er vinsamlega
beðinn að hafa samband í
síma 557-3558. Kristín.
Veiðikassi
tapaðist
ABU-Garcia, grár, frekar
stór veiðikassi, tapaðist við
afleggjarann Vatnskot við
Þingvallavatn um verslun-
armannahelgina. Skilvís
finnandi er vinsamlega
beðinn að hafa samband í
síma 553-0639.
Giftingarhringur
tapaðist
GIFTINGARHRINGUR
með áletruninni „Þinn
Hörður“ tapaðist um sið-
ustu helgi, en ekki er vitað
nákvæmlega hvar. Eigand-
inn gerði sér ferð í Laugar-
dalslaugina, í verslunina
Virku, Mörkinni 3, og á
skrifstofu lamaðra og fatl-
aðra, Háaleitisbraut 60.
Skilvís finnandi er vinsam-
lega beðinn að hafa sam-
band í síma 588-1553.
Gæludýr
Páfagaukur
tapaðist
DÖKKBLÁR, hvítur og
grár páfagaukur flaug út
um glugga á heimili sínu
í suðurbæ Hafnarfjarðar
um sjöleytið sl. laugar-
dagskvöld. Páfagaukurinn
er gæfur og er hans sárt
saknað. Þeir sem geta gef-
ið upplýsingar eru beðnir
að hringja í síma
565-2325.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pctursson
STAÐAN kom upp á alþjóð-
legu skákmóti sem nú
stendur yfir í Stokkhólmi.
Partrick Lyrberg (2.430)
hafði hvítt og átti leik gegn
Johan Hultin (2.355)
27. Hxe5! — fxe5 28. Dg5+
og svartur gafst upp. Eftir
28. —Ke8 29. Dxe5 hótar
hvítur báðum svörtu
hrókunum og 29. — Ke7
30. Rf5+ bjargar engu.
Helgi Ólafsson keppir á
mótinu. Hann var efstur
ásamt tveimur öðrum þegar
mótið va rúmlega hálfnað:
L—3. Helgi Ólafsson, Ryt-
sjagov, Lettlandi og See-
man, Eistlandi 4'A v. af 6
mögulegum, 4. Lars Karls-
son 4 v., 5.-6. Ralf Ákes-
son og Agrest, Rússlandi
3'A v., 7.-8. Sjöberg og
Lyrberg 3 v., 9. Laveryd
2‘A v., 10. Wallace, Ástralíu
l'A v., 11. Hultin 1 v. og
12. Engquist ,/t v
HVÍTUR leikur
og vinnur
Morgunblaðið Ingibjörg Jóhannesdóttir
ÞESSIR duglegu krakkar á Kópaskeri héldu tombólu
fyrir stuttu og gáfu þau Rauða krossi Islands ágóðann
sem var 3.050 krónur. Þau heita Hlynur Orri, Ómar
Smári, Enis, Elvar, Haraldur og Kristrún.
ÞESSAR duglegu stelpur héldu tombólu til styrktar
Hjálparstofnun kirkjunnar og varð ágóðinn 1.510 krón-
ur. Þær heita Hildur, Auður, Elín og Hafdís.
Víkveiji skrifar...
AÐ vakti athygli kunningja
Víkveija á ferð um Borgarnes
nýlega að þar er verið að reisa
nýja bensínstöð við brúna yfir
Borgarfjörð. Hinum megin götunn-
ar er þjónustumiðstöðin Hyrnan,
sem selur ferðamönnum Esso-
bensin og allan beina. Hyrnan var
sem kunnugt er reist í túnfætinum
hjá bensínstöð Shell, sem var fyrst
til þess að veita ferðamönnum
þjónustu á þessum bletti. Þegar
nýja bensínstöðin sem_ reist er í
nafni fyrirtækisins ÓB, Ódýrt
bensín, tekur til starfa er ekki
annað að sjá en ferðamenn eigi völ
á að skipta við þijár bensínstöðvar
á um það bil 50 fermetra bletti í
Borgarnesi.
xxx
KUNNINGI Víkveija sagðist
orðinn langþreyttur á kynn-
um af „matarmenningu íslendinga"
eins og hún blasir við þeim sem
ferðast um þjóðvegi landsins. Flest-
um veitingastöðum við ferða-
mannastaði er ekki með sanngirni
hægt að velja annað heiti en
grillsjoppur; „sósa og salat“ er í
öndvegi. Ef veitingastaður á lands-
byggðinni selur t.d. soðinn fisk eða
steikarsneið er næsta víst að verð-
lagningin stenst samanburð við
dýrustu veitingahús í Reykjavík
þótt gæði veitinganna geri það
sjaldnast. Það er fleira íslenskur
matur en feitt kjöt og súrmeti. Er
hvergi til veitingastaður við þjóð-
vegi íslands sem selur íslenskum
og erlendum ferðamönnum þjóðleg-
ar og ódýrar kræsingar á borð við
kjötsúpu á eðlilegu verði? spurði
kunninginn.
xxx
FLEIRA lá kunningja Víkveija
á hjarta eftir ferðalög um vegi
landsins. Næst kvartaði hann yfir
farsímafíklum. Hafði mætt þremur
slíkum einn morguninn á vegum
úti. Allir voru að aka og tala í sím-
ann samtímis! Kunninginn kvaðst
daglega mæta nokkrum í höfuð-
borgarumferðinni en kvaðst hafa
orðið hissa á að landsbyggðaröku-
menn virtust engir eftirbátar borg-
arbúa í þessum ósið.
Kunninginn sagðist hafa kennt í
bijósti um þessa menn sem voru
svo stressaðir að þeir gátu ekki
tekið sér tíma til að gefa sig óskipta
að einu verki og annaðhvort stöðvað
bílinn meðan þeir luku símtali eða
þá slökkt á símanum meðan þeir
voru (úti!) að aka. Hann sagðist
ekki í vafa um að þessir farsíma-
fíklar væru mikil ógnun við öryggi
fólks í umferðinni og fagnaði því
að fréttir hefðu borist af því að
Danir væru farnir að taka upp harð-
ar refsingar við þessu. „Hver er
munurinn á því að aka meðan mað-
ur talar í símann og hinu að aka
undir áhrifum áfengis?" spurði
kunninginn og þá varð fátt um svör
hjá Víkveija.