Morgunblaðið - 13.08.1997, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.08.1997, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1997 2? PltrgmjiMalíií STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. EFTIRSOKN AR- VERÐIR MARKAÐIR HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra hélt í gær til Suður-Ameríku ásamt íslenskri viðskiptasendinefnd. Munu ráðherrann og fulltrúar íslenskra fyrirtækja eiga fundi með ráðamönnum og fulltrúum viðskiptalífs í Chile og Argent- ínu næstu daga. í Rómönsku-Ameríku hafa markaðir verið að vaxa hratt á undanförnum árum. Algjör umskipti hafa orðið í þessari heimsálfu, sem til skamms tíma var þekktust fyrir harðsvírað- ar herforingjastjórnir og óðaverðbólgu. Lýðræði hefur náð að skjóta traustum rótum í flestum ríkjum Suður-Ameríku og efnahagsástandið einkennist af stöðugleika og örum vexti. Því er stundum haldið fram að litlu minni breytingar hafi orðið þar en í Austur-Evrópu, en þær hafi ekki vakið jafnm- ikla athygli. Suður-Ameríka er ekki það markaðssvæði, sem íslensk fyrirtæki hafa helst beint sjónum sínum að, þótt nokkuð hafi verið um sameiginleg verkefni á sviði sjávarútvegsmála, aðallega í Chile. Sé rétt haldið á málum gætu hins vegar vel leynst athyglisverð sóknarfæri fyrir íslendinga í þessum ríkj- um. Sjávarútvegur er öflugur, jafnt í Chile sem Argentínu, og í hraðri þróun. Því er stöðugt vaxandi eftirspurn eftir sérþekk- ingu og þjónustu á sviði fiskveiða og -vinnslu auk markaðs- setningar sjávarafurða. Á þessum sviðum eru íslensk fyrir- tæki í fremstu röð. Markaðir og viðskiptasambönd fyrir ís- lendinga verða hins vegar ekki til af sjálfu sér. Eftir þeim þarf að sækjast og fyrir þeim að berjast. Ferð íslensku við- skiptasendinefndarinnar og utanríkisráðherra er mikilvægt skref til að komast inn á suður-ameríska markaði. DANIR OG AMSTER- DAM-SÁTTMÁLINN UMRÆÐUR um Evrópumál í Danmörku eru utanaðkom- andi stöðugt undrunarefni. Fyrir rúmum fjórum árum fengu Danir svo víðtækar undanþágur frá Maastricht-sátt- mála Evrópusambandsins, eftir að naumur meirihluti hafði fellt hann í þjóðaratkvæðagreiðslu, að margir telja að vafa- samt sé að skilgreina Danmörku sem fullgilt aðildarríki sam- bandsins. Með undanþágunum var þó hægt að bjarga ESB- aðild Danmerkur og önnur aðildarríki sýndu umtalsverðan sveigjanleika til þess að svo mætti verða. Nú virðist sem verulegar líkur séu á að danska þjóðin felli Amsterdam-sáttmálann þegar hann verður borinn undir hana á næsta ári og þessa dagana logar allt í deilum í Danmörku um samninginn. Sá samningur er hins vegar allt annars eðl- is en Maastricht-sáttmálinn. Maastricht var stórt stökk fram á við í samrunaþróuninni; kvað á um efnahags- og myntbanda- lag, sameiginlega utanríkis- og öryggismálastefnu, stóraukið dómsmálasamstarf og sameiginlegan borgararétt svo eitthvað sé talið. Amsterdam-sáttmálinn er hins vegar innihaldsrýr og felur ekki í sér neinar meiriháttar breytingar á starfsemi eða eðli ESB. Af því litla, sem samþykkt var í Amsterdam, er flest ýmist mjög í anda áherzlna Dana og annarra Norðurlandaþjóða, til dæmis ákvæðin um atvinnumál, vernd réttinda launþega og umhverfismál, eða þá að Danmörk hefur fengið undan- þágu, til að mynda frá ákvæðunum um innflytjendamál, vega- bréfsáritanir og veitingu hælis. Frá ákvæðum um Schengen- vegabréfasamstarfið fengu Danir víðtækar undanþágur. Og tillögur, sem voru Dönum ekki að skapi, til dæmis um að sameina Vestur-Evrópusambandið ESB og að minnka vægi fámennari aðildarríkja í ráðherraráðinu og við val í fram- kvæmdastjórnina, náðu ekki fram að ganga. Svo virðist því sem stór hluti dönsku þjóðarinnar sé á móti Amsterdam-sáttmálanum einfaldlega af því að hann er á móti öllu, sem kemur frá ESB, burtséð frá innihaldinu. Við slíkar kringumstæður hlýtur að vera afar erfitt fyrir dönsk stjórnvöld að taka fullan þátt í starfsemi sambands- ins. Segi Danir nei við samningnum er einkar ósennilegt að önnur ríki ESB fallist á að setjast enn að samningaborðinu, annaðhvort til að gera nýjan sáttmála eða veita Danmörku nýjar undanþágur. Þjóðaratkvæðagreiðslan um Amsterdam-samninginn getur því í raun orðið uppgjör um það, hvort Danir ætla að axla þær skuldbindingar, sem felast í aðild að ESB, eða hvort þeir vilja snúa aftur í faðm EFTA og byggja samstarf sitt við önnur Evrópuríki á EES-samningnum eins og ísland og Noregur. Stjórnskipulagsbreytingar á Ríkisútvarpinu standa nú yfir AÐ SÖGN Markúsar Arnar Antonssonar, fram- kvæmdastjóra hljóðvarps Ríkisútvarpsins (RÚV), má að einhveiju leyti rekja breyting- arnar til stjómsýsluendurskoðunar Ríkisendurskoðunar á Ríkisútvarp- inu sem birt var í lok ársins 1995. En í inngangi skýrslu Ríkisendur- skoðunar segir að þar megi finna fjölmargar ábendingar og tillögur um breytt skipulag og vinnulag hjá Ríkisútvarpinu, sem Ríkisendurskoð- un telur biýnt að stjórnvöld og stjórnendur RÚV taki til athugunar. Pétur Guðfinnsson, útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins, tekur undir orð Markúsar og segir að sjálfsagt hafi úttekt Ríkisendurskoðunar haft sín áhrif á það að ráðist var í endur- skipulagningu á starfsemi stofnun- arinnar, en bendir jafnframt á að ráðamenn Ríkisútvarpsins hafi verið sammála um það að þetta væri hið þarfasta framtak. Markús Örn segir að í framhaldi af úttekt Ríkisendurskoðunar hafi stjórnendur RÚV fengið fyrirtækið VSÓ Ráðgjöf til að vinna að því markmiði að gera reksturinn skil- virkari og hagkvæmari undir heitinu Betri rekstur og hófst sú vinna í april 1996. Ráðgjafafyrirtækið hafði því yfirumsjón með verkefninu en að sögn Markúsar Arnar var lögð megináhersla á að virkja starfsmenn í hinum ýmsu deildum RÚV til að benda á nýjar leiðir með fyrrgreint markmið í huga. Sjö starfshópar innan RÚV unnu að þessu viðfangsefni og komu þar nærri ijörutíu manns við sögu. Verk- stjórnin var á hendi svokallaðrar stýrinefndar og í henni sátu útvarps- stjóri, framkvæmdastjórar ásamt formanni útvarpsráðs og tveimur fulltrúum starfsmanna skipuðum af Starfsmannasamtökum Ríkisút- varpsins. Vinnuhóparnir lögðu fram tillögur sínar til stýrinefndar í lok febrúar á þessu ári og tók hún þær til umfjöll- unar í framhaldi af því. Að sögn Markúsar Arnar samþykkti stýri- nefndin langflestar tillögurnar í meginatriðum, einhveijum var hafn- að og sumum örlítið breytt. Reynt að hagræða án þess að það komi niður á dagskránni Pétur segir að með verkefninu Betri rekstri sé stefnt að því að reyna að fá meiri og betri innlenda dag- skrá fyrir sama eða minna fé. Því hafi verið reynt að finna út hvar væri hægt að hagræða eða spara í rekstri án þess að það kæmi niður á dagskránni. En um leið væri verið að reyna að auka skilvirkni innan stofnunarinnar. Aðspurður segir Pétur að ekki liggi enn fyrir hvað þessar skipulags- breytingar komi til með að spara mikla peninga, en hann reiknar með því að það verði vel á annað hundrað milljónir króna á ársrekstri. Það sé um 10% af heildartekjum Rikisút- varpsins í ár. í þessu sambandi legg- ur Pétur áherslu á að það fé sem verði sparað verði ekki lagt til hliðar heldur m.a. notað til að auka umsvif innlendrar dagskrár. „Hins vegar kemur tvennt til sem þýðir að þetta fer ekki beint í aukna dag- skrá,“ segir hann. „Ann- ars vegar það að afnota- gjöldin hafa ekki hækkað í fjögur ár þrátt fyrir einhveija verð- bólgu. Þessu þurfum við að mæta. Og hins vegar það, að nú er komið að því að Ríkisútvarpið, eins og önn- ur ríkisfyrirtæki, greiði niður skulda- hala Lífeyrissjóðs opinberra starfs- manna. í þessu skyni hefur Ríkisút- varpið verið skattlagt upp á 110 milljónir króna í ár. Ekki verður því hægt að setja allan sparnað í dag- skrána, en hann mun þó afstýra því að við þurfum að skera hana niður vegna nýrra útgjalda sem á okkur eru lögð,“ segir Pétur. Aðspurður hvort komi til greina að hækka af- notagjöldin segir Pétur að það sé ekki á dagskrá í bili. Pétur segir ennfremur að erfitt sé að meta hvað breytingarnar sjálf- ar kosti en nefnir að kostnaður vegna ráðgjafar fyrirtækisins VSÓ Ráð- UMFANGSMIKLAR stjórnskipulagsbreytingar standa nú yfir hjá Ríkisútvarpinu. Búist við hátt í 200 milljóna kr. spamaði í stjómunarkostnaði Breytingarnar taka gildi 1. október nk. gjafar hlaupi á einhveijum milljónum króna. Lokaupphæð liggi enn ekki fyrir. Hann telur hins vegar að kostn- aður vegna breytinganna sé mjög lítill miðað við þá upphæð sem búist sé við að breytingarnar skili. Umfangsmiklar breytingar hjá hljóðvarpinu Niðurstaða undirbúningsvinnu verkefnisins Betri reksturs var sú að ráðast var í umfangsmeiri breyt- ingar á stjórnskipulagi Ríkisútvarps- ins en gert hefur verið um árabil, að sögn Markúsar Arnar. Breyting- arnar fela m.a. í sér _að skipta RÚV í tvær megindeildir; Útvarp og Sjón- varp, en áður voru aðaldeildirnar fjórar, þar sem auk fyrrnefndra tveggja deilda voru, tæknideild og fjármáladeild. Með nýju skipulagi verður tæknideild skipt í tvennt og flutt annars vegar undir Útvarpið og hins vegar undir Sjónvarpið, en fjármáladeiid verður með öðru sniði og breytt í fjármála- og rekstrarsvið og verður önnur tveggja svokallaðra stoðdeilda Ríkisútvarpsins. Hin stoðdeildin verður ný deild undir heitinu markaðs- og þjónustu- svið. Undir það svið falla ýmis sam- eiginleg málefni eins og vinna við textavarpið, innheimtu, margmiðlun og dagskrárkynningar Útvarps og Sjónvarps. Þá mun auglýsingasala sem áður var undir fjármáladeild vera færð undir markaðs- og þjón- ustusvið. Starf forstöðumanns deild- arinnar var auglýst laust til umsókn- ar í síðasta mánuði og var Bogi Ágústsson fréttastjóri Sjónvarps ný- lega ráðinn í þá stöðu. Stjómskipulagsbreyt- ingarnar hjá Sjónvarpinu eru minni háttar, en hjá Útvarpinu eru þær öllu umfangsmeiri. Hjá Sjón- varpinu verður leikmyndadeild sam- einuð tæknideild undir heitinu tækni- og leikmyndadeild. Þá hefur sameig- inlegri íþróttadeild fyrir Útvarp og Sjónvarp verið skipt í tvennt, og eru íþróttir og fréttir innan sömu deildar hjá Útvarpi annars vegar og í sömu deild hjá Sjónvarpi hins vegar. Hjá Útvarpinu munu Rás 1 og Rás 2 fá sameiginlega yfirstjóm dagskrármála og af þeim sökum verða lagðar niður stöður dagskrár- stjóra beggja rásanna. Komið verður á þremur nýjum framleiðsludeildum sem eiga að vinna fyrir báðar rásim- ar. Ein deildin mun sjá um menning- armál, önnur um samfélags- og dægurmál og sú þriðja um tónlistar- mál. Auk þeirra starfar fréttadeildin áfram með sama sniði og verið hef- ur. Störf deildarstjóra í þessuim Nú standa yfír umfangsmeiri breytingar á stjómskipulagi Ríkisútvarpsins en gert hefur verið um árabil. Búist er við því að breyting- amar spari hátt í tvö hundmð millj. kr. í stjómunarkostnað í ársrekstri sem m.a. verð- ur varið til dagskrárgerðar. Arna Schram fór ofan í saumana á þessum breytingum og ræddi við stjómendur og fulltrúa starfs- manna, en nokkurrar óánægju hefur gætt meðal þeirra um ýmis atriði breytinganna. verði boðin endurráðning. „Við vitum hins vegar ekki enn hvernig það skipast,“ segir hann, en býst við því að það skýrist eftir að búið verður að ráða í öll þau störf sem hafa ver- ið auglýst laus til umsóknar. Þá hafa nýlegar verið lagðar niður alls 38 stöður innan stofnunarinnar og að sögn Péturs eru þar með talin þau stöðugildi sem losnað hafa á síðustu árum, en ekki verið endur- ráðið í, auk þeirra sem munu losna á næstu mánuðum og ekki verða ráðið í. Sem dæmi um stöðugildi sem losnað hafa á undanförnum árum, nefnir Pétur stöður dagskrárgerðar- manna hjá Sjónvarpinu. Fyrir nokkr- um árum var hætt að fastráða dag- skrárgerðarmenn en í stað þess voru þeir ráðnir til einstakra verkefna til lengri eða skemmri tíma. „Ákveðið hefur verið að halda þeirri stefnu áfram,“ segir Pétur. Ekki hafa starfsmenn RÚV verið sáttir við breytingarnar. Ráðningar- samningur fyrrnefndra nítján starfs- manna fellur úr gildi þann 1. októ- ber næstkomandi, og kveðst Jón Ásgeir Sigurðsson formaður starfs- mannasamtaka Ríkisútvarpsins (SSR), ekki vita til þess að neinum af þeim hafi verið boðin ný störf. Hann segir að í uppsögnum þrettán starfsmanna af þeim nítján sem fengu bréf hafi sérstaklega verið tekið fram að þeir eigi að hætta starfi í byijun október, nema fyrir þann tíma semjist um önnur störf. Af hin- um sex sem ekki fengu slík skila- boð, hefur þremur verið boðið að gerast verktakar, að sögn Jóns Ás- geirs. „Þá var stjórnendum ------------------ rásanna tveggja bent á að Meiri og betri þeir gætu sótt um störf dagskrá fyrir er að leggja niður og fái ekki önnur störf. „En á hinn bóginn hefði ég haldið, sem leikmaður í lögvísindum, að þeim sem eru í störfum sem lögð eru niður en þiggja síðan önnur störf innan stofnunarinnar beri engin bið- laun,“ segir hann, en það sé ekki enn komið í ljós hveijir það verða. Pétur segir hins vegar að farið verði að lögum í þessu eins og öðru, þannig að allar kröfur starfsmanna um bið- laun verði skoðaðar vandlega og fái faglega umfjöllun. Aðsgurður hvort endurskipulagn- ing RÚV muni þýða breytingar á störfum fleiri starfsmanna stofnun- arinnar en áðurnefndra nítján, kveð- ur Pétur já við og segir að búið sé að gera samkomulag við allmarga starfsmenn um að starfsheiti þeirra breytist. Sem dæmi nefnir hann að heitið dagskrárgerðarmaður Rásar 2 þurfi að breyta í heitið dagskrárgerð- armaður Útvarps. Óvissa meðal starfsmanna Að sögn Jóns Ásgeirs gætir auk þess talsverðrar óánægju meðal starfsmanna Ríkisútvarpsins vegna þess hvernig staðið hefur verið að því að kynna skipulagsbreytingarn- ar fyrir starfsmönnum. En einnig vegna þeirrar óvissu með það hvað breytingarnar þýði í raun og veru. Óánægjan sé þó útbreiddari á meðal starfsmanna Útvarps en meðal starfsmanna Sjónvarps. Hann nefn- ir sem dæmi að í dreifibréfi útvarps- stjóra til allra starfsmanna stofnun- arinnar þann 9. júní sl., þar sem fyrirhugaðar skipulagsbreytingar voru kynntar, hafi verið endað á þeim orðum að á næstu dögum verði haft samband við þá starfsmenn sem gegni störfum er breytist veru- lega eða verði lögð niður. Þetta hafi valdið miklum taugatitringi meðal starfsmanna eða þangað til uppsagnarbréf bárust til 19 starfs- manna RÚV um viku síðar. Enn sé þó nokkur óvissa í gangi um það hvað breytingarnar muni í raun hafa í för með sér. Pétur svarar því til að auðvitað verði alltaf viss óvissa og óánægja þegar staðið sé í svona breytingum. Og það lendi alltaf einhveijir í því að högum þeirra sé raskað. „Og má kannski segja að það sé baga- legt að ekki skuli vera hægt að negla alla hluti niður strax,“ segir hann. „En þetta tekur allt sinn tíma. Það tekur sinn tíma að ráða í fram- leiðslustjórastörfin sem veldur nátt- úrlega óvissu hjá þeim sem eru í störfum sem næst þessum nýju stöð- standa. Það þótti hins vegar þremur nýju framleiðsludeildum hafa verið auglýst laus til umsóknar og verður gengið frá ráðningu í þau á næstu vikum. Hlutverk framkvæmdastjóra Út- varps mun með þessu nýja skipu- lagi, að sögn Péturs, verða það að taka efni frá öllum þessum deildum og raða þeim á rásimar og hafa þannig yfimmsjón með dagskrá þeirra. Þá mun framkvæmdastjóri sitja í dagskrárráði ásamt deildar- stjómm framleiðsludeildanna og fréttastjóra, en dagskrárráð skipu- leggur dagskrána á báðum rásum. Aðspurður segir Markús Örn að Rás 1 muni áfram flytja margvíslegt menningarefni en Rás 2 vera með meira af léttari tónlist og ýmiss kon- ar dægurmálaefni. Óánægja meðal starfsmanna Starfsmönnum Ríkisútvarpsins voru kynntar þessar skipulagsbreyt- ingar í dreifibréfi útvarpsstjóra þann 9. júní sl. og í kjölfarið fengu 19 starfsmenn Ríkisútvarpsins send uppsagnarbréf. Þó gerir útvarps- stjóri ráð fyrir að flestum þeirra forstöðumanna fram- leiðsludeildanna sem ný- lega vom auglýst laus til umsóknar, en að öðru leyti veit ég ekki til þess að þessum þrettán hafi verið boðin önnur störf innan RÚV.“ Jón Ásgeir kveðst ekki gera nein- ar athugasemdir við uppsagnirnar sem slíkar og segir að samkvæmt lögum hafí útvarpsstjóri heimild til að leggja niður störf feli það í sér endurskipulagningu starfseminnar. Hins vegar segist Jón Ásgeir hafa farið fram á það í nýlegu bréfi til útvarpsstjóra að öllum þeim nítján sem sagt hafi verið upp verði borguð biðlaun, jafnvel þó að viðkomandi aðilar fari í önnur störf hjá Ríkisút- varpinu. „Það er búið að leggja niður þeirra störf sem þýðir að þeir eiga rétt á biðlaunum," segir hann. Við þessu segir Pétur að reiknað sé með því að þeir aðilar fái greidd biðlaun sem eru í störfum sem verið sama fé um rétt að auglýsa þessi störf og gefa öllum kost á að sækja um þau.“ Pétur kveðst þó vona að þessi mál skýrist á næstu vikum og að þetta nýja fyrirkomulag virki að fullu frá 1. október nk. Starfsmenn RÚV hafa séð fleira athugavert við endurskipulagning- una, að sögn Jóns Ásgeirs, og nefn- ir hann sem dæmi að ekki séu allir sannfærðir um raunverulega hag- ræðingu fyrirhugaðra breytinga. Þetta hafi m.a. komið í ljós á alls- herjar starfsmannafundi Ríkisút- varpsins í lok júní sl., þar sem að sögn Jóns Ásgeirs hafi mætt hátt í 200 starfsmenn af um 370 starfsmönnum stofnunar- innar. Jón Ásgeir segir að talað hafi verið um sparnað upp á hundrað og einhveijar milljónir króna, en á móti hafi ekki verið rætt um það hvað kosti að gera þessar skipulagsbreytingar. „Ég held því fram að þær kosti tugi milljóna króna,“ segir hann og nefn- ir sem dæmi að biðlaun kosti ein- hveijar milljónir króna. „Þá kostar það örugglega peninga að skipu- leggja húsnæði Útvarpsins við Efstaleiti að nýju vegna sameigin- legra framleiðsludeilda Rásar 1 og Rásar 2. En nú eru þessar deildir hvor a sínum staðnum í húsinu.“ Jón Ásgeir telur að þetta dæmi hafi ekki verið gert upp. „Rver er því tilgangurinn með þessum breyt- ingum, annar en sá að spara hverf- andi lítið fjármagn?“ spyr hann að síðustu. Morgunblaðið/Kristinn HÖRÐUR Sigurgestsson forstjóri Eimskips, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra og Jónína Bjartmarz formaður Heimilis og skóla. Eimskip styrkir áætlunina ísland án eiturlyfja 2002 „Vona að okkar hlutdeild verði öðrum hvatning44 í haust verður haldin ráðstefna um hlutverk foreldra í vímuefnavörn- um. Eimskip leggnr mál- inu lið með myndarleg- um fjárstuðningi og von- ast aðstandendur ráð- stefnunnar til að það frumkvæði verði öðrum fyrirtækjum fordæmi til frekari stuðnings við for- varnastarfið. FRÁ foreldrum til foreldra er yfírskrift ráðstefnunnar sem haldin verður á Hótel Sögu 16. október nk. á veg- um verkefnisstjórnar áætlunarinnar ísland án eiturlyfja 2002 í samstarfí við foreldrasamtökin Heimili og skóla og Vímulausa æsku, með sérstökum stuðningi Eimskipafélags íslands, sem hefur ákveðið að styrkja áætlun- ina með einni og hálfri milljón króna á ári næstu þijú árin. Tilgangur ráðstefnunnar er að gefa foreldrum skýr skilaboð um að þeir leiki lykilhlutverk í vímuvarna- starfí og að efla þá og styrkja í því hlutverki. Þar er ætlunin að foreldr- ar tali við foreldra á jafningjagrund- velli um vímuefnavandann og for- varnir gegn honum, rétt eins og ungt fólk fræðir annað ungt fólk innan vébanda jafningjafræðslu framhaldsskólanna. Á ráðstefnunni verða m.a. kynntar niðurstöður nýrr- ar könnunar á viðhorfum foreldra til vímuefnaneyslu og tóbaksreyk- inga unglinga. Fyrirtæki gefi foreldrum frí til að sækja ráðstefnuna Sérstakur gestur ráðstefnunnar verður Sue Rusche frá Bandaríkjun- um, en hún er framkvæmdastjóri og annar tveggja stofnenda verkefnisins Fjölskyldur framkvæma (Families in Action). Þá verða starfandi nokkrar málstofur á ráðstefnunni, þar sem rætt verður um hlutverk foreldra í forvarnastarfí frá ýmsum sjónarhorn- um. Ráðstefnan er opin öllum foreldrum meðan húsrúm leyfir. Þeim tilmælum er beint til fyrirtækja og stofnana að foreldrar sem áhuga hafi á að sækja ráðstefnuna fái til þess frí frá vinnu. Að sögn Jónínu Bjartmarz, formanns Heimilis og skóla, er sérstaklega höfðað til þeirra sem eru virkir í for- eldrastarfi skólanna, svo sem bekkja- fulltrúa. Jákvæð viðbrögð fyrirtækja og almennings Á kynningarfundi í gær rakti Þor- steinn Pálsson dómsmálaráðherra til- drög og framgang áætlunarinnar ís- land án eiturlyíja 2002, en nú er rúmt hálft ár liðið frá því að dómsmáiaráfL- herra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, borgarstjórinn í Reykjavík og fram- kvæmdastjóri samtakanna Evrópu- borgir gegn eiturlyfjum undirrituðu samstarfssamning um áætlunina. Reykjavíkurborg átti frumkvæði að þessu samstarfi, sem jafnframt var liður í útfærslu á stefnu borgarinnar í vímuefnavörnum frá árinu 1995. Af hálfu ríkisstjórnarinnar var þátt- taka í áætluninni liður í framkvæmd stefnu ríkisstjórnarinnar í fíkniefna-, áfengis- og tóbaksvörnum sem sam- þykkt var í desember 1996. Þorsteinn sagði mjög ánægjulegt hvað fyrirtæki og almenningur hefðu nú þegar sýnt jákvæð viðbrögð við áætíuninni og þakkaði sérstaklega myndarlegt framlag frá Eimskipafé- lagi Islands, sem mun standa straum af verulegum hluta kostnaðar við for- eldraráðstefnuna. „Fyrirtækin eru fólk, þau eru byggð upp á einstaklingum og fjöl- skyldum. Mér finnst það skipta miklu máli að fyrirtækin taki þátt í þessu verkefni og vona að okkar hlutdeild eigi eftir að verða öðrum hvatning," sagði Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips. Ábyrgð og hlutverk foreldra í forvarnastarfi viðurkennt Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri sagði að árangur forvarna- starfsins væri þegar farinn að sjá=Jr í verki og vísaði þar til þess hverSti tiltölulega vel hefði tekist til með skemmtanahald almennt um versl- unarmannahelgina. „Þannig að við erum þegar farin að sjá árangur. Það hefur reyndar oft sýnt sig í íslensku samfélagi að þegar allir leggjast á eitt og við förum í samstillt átak þá getum við lyft grettistaki," sagði borgarstjóri. Jónína Bjartmarz, formaður Heim- ilis og skóla, kvaðst fagna þeirri stefnubreytingu sem orðið hefði í umræðunni um vímuvarnir á síðustu misserum. „Nú er litið á foreldra sej|;i ákveðinn markhóp forvamastarfs og ábyrgð þeirra og hlutverk í þessu starfi er viðurkennt. Við teljum að það megi ná geysilega miklum ár- angri í vímuvömum með því að efla samstöðu foreldra um ákveðin grunn- gildi í uppeldinu, eins og til dæmis það að kaupa ekki áfengi fyrir börnin og vera samtaka um vímuefnalausa'r grunnskóla," sagði Jónina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.