Morgunblaðið - 13.08.1997, Síða 6

Morgunblaðið - 13.08.1997, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forseti Islands kominn heim úr þriggja vikna ferð til Ameríku Arangursrík og gagnleg heimsókn til Ameríku Morgunblaðið/Ásdís FORSETAHJÓNIN komu til Iandsins í gærmorgun. Handhafar forsetavalds, Pétur Hafstein, forseti Hæstaréttar, og Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, tóku á móti þeim á flugvellinum. ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for- seti Islands, kom til landsins í gær úr þriggja vikna heimsókn til Bandaríkjanna og Kanada. Forsetinn sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta hefði ver- ið árangursrík heimsókn. í henni hefði m.a. komið fram eindreg- inn vilji til að gera samskipti Is- lendinga við frændur sína vest- anhafs kraftmikil á nýrri öld. „Ég tel að þessi ferð hafi skil- að verulegum árangri á mörgum sviðum. Hún var einnig fróðleg og veitti okkur Guðrúnu Katrínu mikilvæga lífsreynslu og viðbót- arþekkingu. Við höfum ferðast víða á síðustu 15-20 árum, en við höfum sjaldan farið ferð sem hefur veitt okkur í jafnríkum mæli nýjan fróðleik og mikil- væga reynslu. Ég veit líka að heimsóknir okkar á slóðir Islendinga vestan- hafs og viðræður við fjölda fólks og forystumenn í samfélögum íslendinga bæði í Bandaríkjunum og Kanada hafa skilað mjög auknum áhuga og eindregnum vilja til að efla tengslin við ísland og gera þau kraftmikil á nýrri öld. Ég held einnig að það hafi tekist í ferðinni að koma hug- myndum okkar íslendinga og stöðu á framfæri við áhrifamenn víða, bæði í bandarísku stjórn- kerfi og kanadísku og hjá ýmsum mikilvægum stofnunum. Það var mikilvægt að kynnast því hve hlutdeild Islands á ýmsum svið- um alþjóðamála, menningar og vísinda er mikils metin.“ Opinberum heimsóknum fækkar Ferð forsetans til Ameríku var ekki opinber heimsókn en var eigi að síður viðamikil og vakti mikla athygli. Ólafur Ragnar sagði að skilgreiningin á opin- berri heimsókn væri eingöngu bundin við það form sem á heim- sókninni væri gagnvart því ríki sem farið væri til en ekki inni- haldi heimsóknar. „í raun og veru verða opinber- ar heimsóknir þjóðhöfðingja til hinna stærri landa sífellt sjald- gæfari vegna þess að gamlar venjur fela í sér mikla viðhöfn, tímafrekar athafnir og mikinn kostnað fyrir gestgjafalandið og auk þess eru sljórnendur sumra mikilvægustu ríkja heims önnum kafnir við dagleg störf. Þess vegna eru það ekki mjög margir sem árlega fara í opinberar heimsóknir til slíkra ríkja. Smátt og smátt hafa samskipti þjóða verið að breytast á þann veg að það sem að forminu til er kallað einkaheimsóknir, en væri kannski nær að kalla óopinberar vinnuheimsóknir, verður algeng- ara enda eru slíkar heimsóknir að mörgu leyti gagnlegri. Það er sveigjanlegra við hverja er talað, meiri möguleiki á að sinna sérstökum áherslum okkar eigin lands, ræða við einstaklinga og hópa og heimsækja stofnanir og borgir, sem erfitt væri að koma við í formlegri opinberri heim- sókn.“ Ólafur Ragnar sagði að hann myndi á næstu vikum sinna margvíslegum verkefnum sem bíða hér heima, en síðar í mánuð- inum myndi hann fara í þriggja daga opinbera heimsókn til Finn- lands og í október til Svíþjóðar. Þar með hefur nýkjörinn forseti heimsótt öll Norðurlöndin. „Vilji minn stendur til þess að opinberar heimsóknir, sem kæmu í kjölfarið til annarra ríkja í Evrópu, verði næst til Eystra- saltsríkjanna. Mér finnst mikil- vægt að með slíkri ákvörðun væri verið að senda formleg skilaboð um þann mikilvæga sess sem Eystrasaltsríkin hafa og eiga að hafa í alþjóðlegu samfé- lagi, að koma næst fjölskyldu hinna norrænu ríkja í okkar huga,“ sagði Ólafur Ragnar. Sýn hækkar um þriðjung ÁSKRIFTARVERÐ Sýnar hækkar um u.þ.b. 600 kr. um næstu mánaðamót. Hreggvið- ur Jónsson, framkvæmda- stjóri fj'ármála- og rekstrar- sviðs, segir að aðalástæðan fyrir hækkuninni sé kostnað- ur vegna betri dagskrár og stærra dreifisvæðis. Fullt verð hækkar úr 1.999 kr. í 2.621 kr. á mánuði. Ef áskrifendur nýta sér boð- greiðslur hækkar áskriftin úr 1.899 kr. í 2.490 kr. Beinar útsendingar Hreggviður sagði að hing- að til hefði verið talað um að áskriftarverðið væri kynning- arverð. „Með hækkuninni er áskriftin orðin eins og við þurfum á að halda til að halda úti góðri dagskrá. Ég get nefnt að beinar útsendingar verða oft í hverri viku, allt upp í 5 á viku, og þar er fyrst og fremst um fótbolta að ræða. Við verðum með enska boltann, ítalska boltann og Evrópukeppni meistaraliða," sagði Hreggviður. Hann sagði að önnur ástæða fyrir hækkuninni væri að verið væri að stækka dreifisvæði Sýnar, t.d. yrði hægt að ná Sýn á Húsavík, Dalvík og Siglufirði. Stærra dreifisvæði kallaði á aukinn dreifingarkostnað í gegnum ljósleiðara. Bensínverð það sama hjá olíufélögnm með eða án hreinsiefnis Kostnaður við hreinsiefni 25-35 kr. á lítra ÞOTA af gerðinni Boeing 737-200 bætist í flota íslandsflugs í haust, en hún verður tekin á leigu einkum til að sinna fraktflugi. Hún getur þó einnig flutt farþega. íslandsflug leigir Boeing-þotu í fimm ár Fraktflug til Brussel í haust HREINSANDI bætiefni sem bætt hefur verið í bílabensín hjá sumum olíufélaganna hérlendis er talið draga bæði úr mengun bílvéla og eyðslu, þar sem það hreinsar útfell- ingar sem myndast smám saman í brunahólfi vélanna. Fulltrúar olíu- félaganna eru þó ekki á einu máli um þessa kosti. Kostnaður er á bil- inu 25 til 35 krónur á lítrann en ekki er munur á bensínverðinu eftir því hvort það er með hreinsiefni eða ekki. Bæði Skeljungur og Olís tóku að bæta bætiefni í bílabensín sumarið 1994, en slíkt efni er hvorki í bens- íni hjá Olíufélaginu né Orkunni. Kristinn Björnsson forstjóri Skelj- ungs segir að ákveðið hafi verið að gera það m.a. eftir beiðni frá sumum bílainnflytjendum sem töldu það hafa betri meðferð í för með sér. Talið er að slíkt bensín henti betur til dæmis í fjölventla vélar með beinni innsprautun sem séu við- kvæmari fyrir útfellingum. Tals- menn Skeljungs segja að þegar menn hefji notkun á bensíni með hreinsiefni hafi um 20% útfellinga í véiinni hreinsast eftir fjórar til sex tankfyllingar. Skeljungur hóf að bjóða þetta í júní 1994. Hjá Olís var byijað að selja svo- nefnt „hreint system 3“-bensín í júlí 1994 og var þáð áð kröfu Téxácö. Segir í bæklingi þeirra að kostir þess séu meiri kraftur, hreinni út- blástur og minni eyðsla. Olís selur um 50 milljónir lítra af bensíni ár- lega og er kostnaður fyrirtækisins vegna hreinsiefnisins um 12 milljón- ir króna á ári og kostnaður er svipað- ur hjá Skeljungi vegna hreinsiefnis- ins. Fremur markaðsátak en nauðsyn Geir Magnússon forstjóri Olíufé- lagsins segir að íblöndun hreinsiefna sé að sínu mati fremur markaðsátak en nauðsyn. Olíufélagið hafi í júní 1994 kynnt nýtt markaðsátak, safn- kortið, og fljótlega hafi hin félögin farið af stað með markaðsátak kringum það sem þau nefndu hreint bensín. Geir segir ákveðnar útfell- ingar líka fylgja hreinsiefnum og sérfræðingar Olíufélagsins hafi á þeim tíma ekki talið þörf á slíku efni en þvertók fyrir að það væri vegna kostnaðar, sagði að ef menn efndu til meiri tilkostnaðar vegna einhverra kosta hlyti að vera stefnt að því að ná honum inn með meiri sölu. Hann segir þó ljóst að sumar gerðir bíla gangi betur á bensíni með hreinsiefni en aðrar ekki. Ekki vill hann þvertaka fyrir að Olíufélag- ið fari út í slíka aðgerð einhvern tíma ert það sé ekki á döfinni á næstunni. ÍSLANDSFLUG hefur endurnýjað samning sinn við DHL hraðflutn- ingafyrirtækið í Brussel og hefur 1. október áætlunarflug milli Kefia- víkur og Brussel með viðkomu í Edinborg. Félagið hefur leigt Boeing 737-200 þotu til fiugsins. Gunnar Þorvaldsson, stjórnarfor- maður íslandsflugs, segir að farnar verði fimm ferðir í viku frá sunnu- dagskvöldi til fimmtudagskvölds. Vélin flýgur héðan um kvöldmatar- leytið, kemur við í Edinborg, heldur áfram til Brussei og síðan sömu Ieið tilbaka og er ráðgert að hún lendi í Keflavík um klukkan sjö að morgni. Þá eru á lokastigi samningar milli Islandsflugs og Flugflutninga, sem annast afgreiðslu fyrir Cargolux, um samvinnu og afgreiðstu fyrir flugið í Keflavík. Islandsflug hefur í rúm fjögur ár annast reglubundið frakt- flug milli Englands og Reykjavíkur, nú síðast með ATR flugvél sem ber 3,5 tonn af frakt. „Við sáum fyrir nokkru að flutn- ingsgetan var of lítil og fórum að skoða aðrar leiðir. Það er okkur dýrmætt að sinna þessu flugi út frá Reykjavík en við sáum ekki hent- ugri lausn og ákváðum að fara út í rekstur á þotu með tilkomu þessara auknu verkefna," sagði Gunnar Þor- valdsson í gær. „Þetta er auðvitað nokkuð stórt stökk, að fara úr 3,5 tonna flutningsgetu í 14 tonna en flutningarnir milii Edinborgar og Brussel gera það fýsilegt," en hann útilokar ekki að eitthvað verði hald- ið áfram fluginu milli íslands og Englands. Islandsflug hefur tekið á leigu þotu af gerðinni Boeing 737-200 QC sem hentar hvort sem er til frakt- eða farþegaflugs. Er hún leigð af írsku félagi en síðustu misserin hefur hún verið í Frakklandi. Frakt verður að mestu leyti höfð í gámum eða á vörupöllum og ber hún um það bil 14 tonn af frakt. í farþegaflugi ber hún 114 farþega. Gunnar segir ráð- gert að nota þotuna til farþegaflugs yfir daginn, en um klukkustund tekur að skipta aðbúnaði milli frakt- og farþegaflugs. Verður á næstunni leit- að verkefna fyrir farþegaflugið. Þtjár áhafnir þarf á vélina og sagði Gunn- ar að vegna þessara nýju verkefna þurfi nú ekki að segja upp flugmönn- um sem verið hafa í sumarstörfum hjá félaginu. Farþegum fjölgar Farþegar hjá íslandsflugi voru 10.451 í júlí sem er 174% aukning frá því í júlí í fyrra. Stafar aukning- in af þeim nýju flugleiðum sem tekn- ar voru upp 1. júlí sl. í kjölfar frelsis í innanlandsflugi. Farþegar milli Akureyrar og Reykjavíkur voru 3.030 og 737 milli Reykjavíkur og Sauðárkróks. ísa- fjarðarfarþegum fjölgaði úr 308 í júlí í fyrra í 1.515 í ár, sem er nærri 500% aukning. Til Siglufjarðar fjölg- aði farþegum úr 269 í 281. Mest aukning er á leiðinni milli Egilsstaða og Reykjavíkur eða úr 261 í 1.763, sem er 574%, Vestmannaeyjafarþeg- um ijölgaði úr 1.631 í 2.054 og far- þegum í Vesturbyggð úr 650 í 935.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.