Morgunblaðið - 13.08.1997, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Steinhissa
á vel-
gengninni
►NOAH Wyle var orðinn félagi í sam-
tökum sjónvarps- og kvikmyndaleik-
ara í Bandaríkjunum áður en hann
fékk ökuleyfi. 24 ára var hann kom-
inn með hlutverk í einum vinsælasta
sjónvarpsþætti heims, Bráðavaktinni.
Núna, 25 ára, segist hann vera furðu
lostinn yfir eigin velgengni, en hann
hefur neitað fjölmörgum tilboðum um
að leika í stórmyndum.
Þess í stað ákvað hann að eyða
sumarfríinu í að leika í smámyndinni
„The Myth of Fingerprints“, leika á
sviði í Los Angeles og koma fram í
barnaþættinum „Sesame Street“.
„The Myth of Fingerprints" er íjöl-
skyldudrama og var frumsýnd á
Sundance kvikmyndahátíðinni fyrir
nokkru. Noah segist hafa valið að
heQa kvikmyndaferilinn með þessari
smámynd vegua dálætis á kvikmynd-
um sem Qalli um tilfinningar og
mannleg samskipti.
Ymis forréttindi fylgja því að vera
frægur leikari og Noah hefur notið
góðs af því. Nýlega lét hann draum-
inn rætast og fékk að fljúga með F-18
orrustuflugvél. Hann segist stoltur
hafa brotið hljóðmúrinn og ekki hafa
kastað upp. „Eg handfjatlaði ælupok-
ann, en þurfti sem betur fer ekki að
opna hann.“
Notfærir
sér frægð-
ina
ÞAÐ getur sannai-lega komið
sér vel að vera frægur og ríkur.
Þetta sannreyndi leikkonan
Sharon Stone og nýjasti kær-
asti hennar Phil Bronstein þeg-
ar þau gengu inn á Charles
Nob Hill-veitingahúsið í San
Francisco á dögunum og sögð-
ust eiga pantað borð. Sam-
kvæmt pöntunarbók veitinga-
hússins, sem þykir afar áreið-
anleg, átti parið ekki pantað en
var engu að síður vísað sam-
stundis til borðs á besta stað.
Annað par, sem átti pantað
borð með réttu, hafði verið að
bíða eftir þessu sama hornborði
í einhvern tíma og var að von-
um ekki ánægt með þessas
framvindu mála. En þar sem
þau sáu að engin önnur en
Sharon Stone var á ferð ákváðu
þau að gera ekki mál úr þessum
klíkuskap. Þau voru
verðlaunuð með
ókeypis drykkjum
á meðan þau biðu
eftir öðru borði.
Klókt bragð hjá
leikkonunni vin-
sælu!
Heimilislegur
Elton John
►SÖNGVARINN og skrautfugl-
inn Elton John lét sig ekki muna
að þurrka af á hótelherbergi
í Nice í Frakklandi. Hann
valdi ekki látlausan klæðnað í
húsverkin enda lítið um slíkan
fatnað í klæðaskáp stjörnunnar.
Hann var staddur í Nice til að
veita viðtöku lyklinum að borg-
inni, en hann er veittur í heiðurs-
skyni. Næsta plata Elton John
kemur út 23. september næst-
komandi og hefur hlotið nafnið
„The Big Picture".
Sek um fjárkúgun
AUTUMN Jackson, sem
hélt því fram að hún væri
laundóttir gamanleikar-
ans Bill Cosby, var fund-
in sek um fjárkúgun og á
yfir höfði sér allt að 12
ára vist í fangelsi. Hin 22
ára Jackson hótaði að
selja fjölmiðlum söguna
um faðerni sitt ef Cosby
reiddi ekki fram um 2,8 milljarða
króna. Bill Cosby hefur viðurkennt
að hafa átt „einnar nætur gaman“
með móður Jackson en
neitar því staðfastlega
að vera faðir hennar og
fór í blóðprufu því til
sönnunar. Hann segist
hafa hitt stúlkuna aðeins
einu sinni þegar hann
bauð Jackson og ömmu
hennar að heimsækja
tökur á „The Cosby
Show“ en myndin af þeim er tekin á
myndbandsupptökuvél við það tæki-
færi.
vpnr T2iir\A er jninArrrj’.TT'O'rTrM V'I\
MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1997 43*
Slappað af
DAVID Bowie kippti sér
ekki upp við töf á flugi sínu
frá eynni Sardiníu nú á dög-
unum. íslandsvinurinn Bowie
lét fara vel um sig á gólfi
flugstöðvarinnar við hlið
sköllóttrar fegurðardísar og
beið ásamt öðrum ferðalöng-
um. Það var því engin
stjörnumeðferð sem kappinn
heimtaði og sýndi þar með
hversu hógvær hann getur
verið.
Hin fimmtuga rokkstjarna
var ekki með eiginkonuna
Iman með sér en hún hefur
eflaust verið upptekin við að
kynna nýja snyrtivörulínu
sína fyrir blökkukonur.
[ ISlfNSKU Ú P E R U N NI
Fim. 14.8 kl. 20. Uppselt.
Fös. 15.8 kl. 20. Örfá sæti
Lau. 16.8 kl. 20. Örfá sæti
Fim. 21.8 kl. 20.
Miðasala opin mán, — lau. 13—18
Síðasti sýningarmánuður.
Fim. 14. ág. örfá sæti laus
Lau. 16. ág. laus sæti
Lau. 23. ág. uppselt
Sun. 24. ág. örfá sæti laus
„Snilldarlegir kómískir taktar
íeikaranna“...„Þau voru$^^
satt að segja morðfyndm^10
(SA.DV)
V sýningar hefjast kl. 20
Miöasala opin 13-18
ALLTAF FYRIR OG EFTIR LEIKHÚS
(MAT EÐA DRYKK
LIFANDITÓNLIST ÖLL KVðLD
KRINGLUKRÁIN
- á góðri stund
lÁMUfélagarfá 15% afslátt af sýningum 2.-10.
MiðasBlustmi
Baltasar Kormákur • Margrét Vilhjálmsdóttir
Benedikt Erlingsson • Kjartan Guðjónsson
Leikstjóri: Magnús Geir Þórðarson
„Sumarsmellurinn
„Uppsetningin... er villt á
agaðan hátt, kraftmikil og
hröð og maður veit aldrei
á hverju er von næst“. DV
..bráðfyndin..." Mbl
Fös. 15. ágúst aukasýning
Lau. 16. ágúst örfá sæti lai
Fös. 22. ágúst miðnæturs. (kl.,23)., ...
c- ■ u r .leikrit eftir
Synmgar hefjast kl. 20 MarkMedoff
CAUIAÍ ÞÉR
CARNIRNAR?