Morgunblaðið - 28.08.1997, Síða 1
72 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
193. TBL. 85. ÁRG. FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Norður-Kórea krefst framsals landflótta embættismanna
Aflýsa viðræðum
um eldflaugavopn
New York, Washington. Reuter.
Hæsta
hús
í heimi
ALEXANDER Haig, fyrrum ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
og Zhao Qizheng, borgarstjóri í
Sjanghæ, voru meðal þeirra er í
gær tóku fyrstu skóflustungurn-
ar að háhýsi er rísa á þar í borg,
og mun verða hæsta hús í heimi,
94 hæðir og 460 metrar. Þar
með verður það átta metrum
hærra en Petrona-turnarnir í
Kúala Lúmpúr, sem nú eru
hæstu hús heims. Það er jap-
anskur fyrirtækjahópur er
stendur að byggingu hússins, en
áætlaður kostnaður við það er
sem svarar rúmlega 44 milljörð-
um íslenskra króna. Japanskir
forstjórar, erlent fyrirfólk og
embættismenn Sjanghæ tóku
þátt í skóflustunguathöfninni í
gær. Hönnuðir hússins eru Kohn
Reuter
Pederson Fox, arkitektar í Nev;
York. Ytra byrði hússins verður
að mestu úr gleri og málmi, og
nálægt toppnum verður hring-
Iaga gat á því, sem er nauðsyn-
legt vegna mikils vindþrýstings,
að sögn arkitektsins Williams
Pedersons.
NORÐUR-kóresk stjórnvöld ákváðu
í gær að aflýsa áætluðum tvíhliða
viðræðum við stjórnvöld í Bandaríkj-
unum um dreifingu stýriflauga
vegna þess að tveimur landflótta
embættismönnum norður-kóresku
utanríkisþjónustunnar hefur ásamt
fjölskyldum sínum verið veitt hæli í
Bandaríkjunum. Norður-Kóreu-
stjórn fór fram á framsal flótta-
mannanna, sem hún sagði vera
„glæpamenn“. Að þeim skyldi hafa
verið veitt hæli sagði talsmaður
kommúnistastjórnarinnai- í hinu
hungurþjáða landi vera „grófa móðg-
un“ af hendi Bandaríkjastjómar.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins sagði framsal ekki
koma til greina. Auk þess sagðist
hann í gær ekki telja ástæðu til að
ætla, að fulltrúar Norður-Kóreu
mæti ekki til viðræðna sem miða að
því að bæta samskipti ríkjanna
tveggja á Kóreuskaganum, en þær
eiga að hefjast um miðjan næsta
mánuð.
Til hafði staðið að þriðja lota við-
ræðna bandarískra og norður-
kóreskra embættismanna um dreif-
ingu eldflaugavopna hæfist í gær-
morgun, daginn eftir að sendiherra
Norður-Kóreu í Egyptalandi, Jang
Seung-il og bróður hans, Jang
Seung-ho, sem þjónað hafði sem við-
skiptasendifulltrúi í París, var veitt
hæli sem pólitískum flóttamönnum
í Bandaríkjunum. Talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, James
Rubin, sagðist í gær samt sem áður
vongóður um að viðræður sem miða
að því að koma á varanlegu friðar-
samkomulagi milli kóresku ríkjanna
tveggja muni hefjast 15. september
næstkomandi, eins og að hafi verið
stefnt. Fulltrúar Kínverja og
Bandaríkjamanna eiga þátt í þeim
auk Kóreumanna.
„Það eru nokkrar vikur í það og
við gerum okkur vonir um að allt
fari fram samkvæmt áætlun," sagði
Rubin fréttamönnum, og bætti við
að hann teldi enga ástæðu til að ætla
að fulltrúar Norður-Kóreu héldu sig
fjarri þeim viðræðum.
Svíþjóð
Rannsókn á
ófrjósemis-
aðgerðum
UPPLJÓSTRANIR um að fólk hafi
verið sett nauðugt í ófrjósemisað-
gerðh- í Svíþjóð hafa vakið mikla
hneykslan víða um heim, en nú er að
koma í ljós að Svíar hafa ekki verið
einir á báti. Mannréttindasamtök í
Austun-íki sögðu í gær að andlega
vanheilt fólk væri enn vanað gegn
vilja sínum þar í landi og svissneskur
sagnfræðingur, Hans Ulrich Jost,
sagði að svissneskir læknai’ hefðu
gert ófrjósemisaðgerðir á geðsjúkum
samkvæmt lögum frá 1928.
Svíar lýstu því yfir í gær að þeir
hygðust setja á fót opinbera nefnd til
að rannsaka hvers vegna 60 þúsund
konur voru gerðar ófrjóar á árunum
milli 1936 og 1976. Margo Wall-
strom, félagsmálaráðherra Svíþjóð-
ar, sagði að íhugað yrði hvort fórnar-
lömbin ættu að fá bætur eða opin-
bera afsökunarbeiðni. Talið er að
milli 20 og 25 þúsund konur, sem
gerðar voru ófrjóar fyrir þær sakir
að þær voru taldar „óæðri“, séu á lífi.
Wallstrom sagði að fréttaflutningur
af þessum aðgerðum skaðaði ímynd
Sviþjóðar erlendis.
Carl Bildt, leiðtogi sænsku stjórn-
arandstöðunnar, sagði í gær að rann-
saka þyrfti málið vegna þess að ann-
ars væri hætt við að sænskt þjóðfé-
lag skaðaðist varanlega.
Uppljóstranir í Austurríki og Sviss
Theresia Haidlmayr, talsmaður
austurríska Græningjaflokksins,
sagði í gær að um 70 af hundraði
andlega fatlaðra manna í Austurríki
gengjust enn undir ófrjósemisað-
gerðir gegn vilja sínum. Mál þetta
teldist bannhelgt í Austurríki, en
engin lög bönnuðu ófrjósemisaðgerð-
ir án samþykkis.
Lögin í Sviss voru sett í kantón-
unni Vaud þar sem níu af hverjum
tíu, sem voru gerðir ófrjóir, voru
konur. Jost sagði að Adolf Hitler,
kanslari Þýskalands, hefði beðið um
að fá eintak af lögunum árið 1934 til
að undirbúa lagalegan gi-unn kyn-
þáttahreinsana nasista.
íranir vilja
bætt tengsl
við ESB
Tehran, Berlín, París. Reuter.
KAMAL Khairazi, utanríkisráð-
herra Irans, lýsti því yfir í gær að
vilji væri fyrir því af hálfu íranskra
stjórnvalda að bæta samskiptin við
Evrópusambandið (ESB), þrátt fyrir
„stöku uppákomur“. Hafa þýsk og
frönsk stjómvöld fagnað því sem þau
segja stefnubreytingu Iransstjómar
en bæði líkin hafa leitast við að bæta
samskipti sín við Iran að undanfórnu.
Öll ESB-ríki, nema Grikkland, rufu
stjórnmálatengsl við íran fyrr á ár-
inu eftir að þýskur dómstóll úrskurð-
aði að írönsk stjórnvöld hefðu staðið
að baki morðinu á fjórum kúrdískum
andófsmönnum í Berlín árið 1992.
Yfirlýsing Kharrazis er svar
íranskra stjómvalda við orðum sem
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, lét falla á þriðjudag en
hann sagði þýsk yfirvöld vilja bæta
samskipti sín við írana. Þjóðverjar
eru þó afar ósáttir við eitt skilyrða
Iransstjórnar sem er að Þjóðverjar
verði síðastir í röð þeirra ríkja sem
rætt verði við.
Blóðug
átök skó-
burstara
Hong Kong. Reuter.
TIL blóðugra átaka kom milli
tveggja skóburstara á götu í
Hong Kong í gær. Réðst annar
á hinn með öxi og kveikti síðan í
sjálfum sér.
Sá sem fyrir árásinni varð er
69 ára, og að sögn kínverska
ríkisútvarpsins er hann á
sjúkrahúsi, alvarlega sár. At-
burðurinn varð í fjármálahverfi
borgarinnar. Arásarmaðurinn
er einnig undir læknishendi
vegna brunasára og líðan hans
eftir atvikum. Að sögn lögreglu
var deila vegna peninga kveikj-
an að árásinni.
Gustar af Arafat
Reuter
PALESTINSKIR fyrirmenn leita skjóls er þyrla Yassers Arafats, forseta heimastjórnar Palestínumanna, fer í
loftið við bæinn Hebron á Vesturbakkanum í gær.
Israelar aflétta ferða-
banni til og frá Betlehem
Betlehem. Reuter.
ÍSRAELAR afléttu í gær ferða-
banni til og frá Betlehem, á heima-
stjórnarsvæði Palestínumanna á
Vesturbakkanum, sem staðið hefur í
tæpan mánuð. Utanríkisráðherra
Israels sagði að áframhaldandi refsi-
aðgerðir gegn Palestínumönnum
ykju ekki líkurnar á friði.
Israelar lokuðu heimastjórnar-
svæðum Palestínumanna á Vestur-
bakkanum og Gaza og settu bann við
ferðum fólks til og frá bæjum innan
svæðanna í kjölfar sprengjutilræðis
í Jerúsalem 30. júlí sl. þar sem 14
manns létust. Betlehem var eini
bærinn þar sem ferðabannið var enn
í gildi. Ekki var gefin nein skýring á
því hvers vegna banninu var aflétt
skömmu eftir hádegi í gær. ísraelar
hafa krafist þess að Yasser Arafat,
forseti heimastjórnarinnar, hefti að-
gerðir múslímskra hermdaverka-
samtaka, á borð við Hamas, gegn
ísraelskum borgurum. Fyrr fái tugir
þúsunda palestínskra verkamanna,
sem búsettir eru á Vesturbakkanum
og Gaza, ekki að fara til vinnu sinnar
í Israel.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hyggst halda í
sína fyrstu ferð til Mið-Austurlanda
í næsta mánuði. Talsmaður ráðu-
neytisins sagði á þriðjudag að lík-
urnar á að friðarumleitanir skiluðu
einhverjum árangri í þeirri ferð
ykjust til muna ef palestínsk yfir-
völd gætu gefið ítarlegri upplýsing-
ar um öryggismál. Þá yrði hægt að
leggja áherslu á að deiluaðilar ynnu
trúnað hvor annars.
David Levy, utanríkisráðheira
Israels, hvatti stjórn Palestínu-
manna til aukinnar samvinnu við
ísraela í öryggismálum, en sagði:
„Það ætti enginn að taka því sem
gefnu að áframhaldandi refisaðgerð-
ir verði friðarumleitunum til fram-
dráttar."
Hanna Nasser, bæjarstjóri Betle-
hem, sagði að farbannið hefði verið
„harkalegasta, lengsta og órétt-
látasta lokun“ frá því Israelar
hertóku Vesturbakkann í sexdaga
stríðinu 1967.