Morgunblaðið - 28.08.1997, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Börnin á leikskólanum Arholti brugðu sér í berjamó á Þelamörk
Gönguferð
KRÖKKT var af berjum á hverri þúfu og komust margir að BÖRNUNUM á Árholti þótti heldur betur gaman í gær þegar
með henni Auði Evu sem týnir af kappi í fötuna sína. þau fór í berjamó að Þelamörk.
í Djúpadal
FERÐAFÉLAG Akureyrar efnir til
gönguferðar í Djúpadal næstkom-
andi laugardag, 30. ágúst.
Djúpidalur er vestur úr Eyjafjarð-
ardal, hann er þröngur og fjöllin
kringum hann svo há að sagt er að
ekki sjáist til sólar frá innsta bæn-
um, sem nú er í eyði, nær hálft árið
að því er fram kemur í frétt frá
ferðafélaginu. Fjöllin í Djúpadal eru
með miklum hamrabeltum og mörg
fagursköpuð, einkum er Mælifells-
hnjúkur fyrir miðjum dal mikilfeng-
legt fjall.
Upplýsingar og skráning er á
skrifstofu Ferðafélags Akureyrar
sem er opin milli kl. 16 og 19.
-----» ♦ ♦
A
MESSUR
LAUFÁSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta verður í Laufás-
kirkju næstkomandi sunnu-
dag, 31. ágúst kl. 14.
Morgunblaðið/Kristján
er alltaf á Akureyri á miðvikudögum og í gær hafði Dettifoss þar viðkomu.
SKIP frá Eimskip
EIMSKIP hefur tekið í notkun tvö
ný skip inn á strandleiðina frá
Reykjavík til Isafjarðar, Ak-
ureyrar, Eskifjarðar og áfram til
hafna á meginlandi Evrópu. Syst-
urskipin Dettifoss og Bakkafoss
hafa leyst af hólmi Skógarfoss og
leiguskipið St. Pauli.
Systurskipin Dettifoss og
Bakkafoss voru smíðuð í Sietas
skipasmíðastöðinni í Þýskalandi
árið 1983 og og er flutningsgeta
Ný og stærri
skip í strand-
siglingum
þeirra 413 gámaeiningar.
Garðar Jóhannsson, forstöðu-
maður Eimskips á Akureyri, segir
ávinninginn af þessari breytingu
einkum þríþættan. „Nýju skipin
eru með 30% meiri flutningsgetu
en hin og ná þar með að anna
betur þeim toppum sem myndast
á siglingaleiðinni. Þá er ganghraði
þeirra meiri sem tryggir aukið ör-
yggi gagnvart áætlun. Einnig eru
nýju skipin stærri og breiðari sem
gerir það að verkum að þau eru
stöðugri við bryggju og tryggir
skemmri Iestunar- og losunartima.'
Arsfundur
samtaka í
verslun
ÁRSFUNDUR samtaka í verslun á
Norðurlöndum stendur nú yfir á
Akureyri, hann hófst í gærmorgun
og honum lýkur síðdegis á morgun.
Um er að ræða þrenn samtök,
samtök stórkaupmanna, smávöru-
verslana og þá eru í öðrum löndum
en íslandi starfandi sérstök samtök
vinnuveitenda í verslun. Tilhneiging-
in hefur verið sú á síðari árum að
þessi samtök sameinist og það hefur
til að mynda gerst í Svíþjóð.
Helstu umræðuefni fundarins
verða samningamál, milliríkjaversl-
un og smásöluverslun en hann er
haldinn á Hótel KEA.
----» ♦ ♦
Bílasýning
BÍLABÚÐ Benna og Bílasala Akur-
eyrar hafa tekið upp formlegt sam-
starf um sölu og þjónustu á Ssang
Yong Musso og Ssang Yong Kor-
ando. Af því tilefni verður efnt til
bílasýningar hjá Bílasölu Akureyrar
um helgina, 30. og 31. ágúst þar sem
sýndir verða bílar af báðum gerðum
í mörgum útfærslum. Boðið verður
upp á reynsluakstur og kynntur stað-
albúnaður sem fylgir með í kaupum.
Sýningin stendur frá kl. 13 til 17 og
verður boðið upp á veitingar.
KORG RAFPÍANÓ
IUIMbúðin
Akureyri,
slmi 462 1415
Laugavegi 163,
sími 552 4515
Matthías Eiðsson um kaup hreppsnefndar Eyjafjarðarsveitar á Möðrufelli
Aðför að mér
persónulega
MATTHÍAS Eiðsson, hrossabóndi á
Brún við Akureyri, segir að kaup
hreppsnefndar Eyjafjarðarsveitar á
jörðinni Möðrufelli, sé hrein aðför
að sér perónulega. „Þetta snýst ekki
um hrossarækt og ég er hreinlega
ekki nógu góður til að koma í sveit-
ina,“ sagði Matthías, sem hyggst
kæra ákvörðun hreppsnefndar til
landbúnaðarráðuneytisins.
Meirihluti hreppsnefndar Eyja-
fjarðarsveitar samþykkti á lokuðum
fundi í fyrrakvöld að ganga til
samninga við Valdimar Jónsson,
bónda á Ytra-Felli í Eyjafjarðar-
sveit, um kaup á jörðinni Möðru-
felli. Valdimar hyggst halda þar
áfram mjólkurframleiðslu.
Fyrr í vikunni hafði meirihluti
hreppsnefndar samþykkt að nýta
sér forkaupsrétt á Möðrufelli og
ganga inn í kauptilboð milli eigenda
jarðarinnar og hjónanna Matthíasar
Eiðssonar og Hermínu Valgarðs-
dóttur frá Brún við Akureyri.
Matthías hugðist stunda þar
hrossabúskap og selja greiðslumark
jarðarinnar, um 125 þúsund lítra
af mjólk, og hafði gert kaupsamning
þar um við aðila innan sveitarinnar.
Hann er mjög ósáttur við ákvörðun
meirihluta hreppsnefndar.
Matthías hefur stundað hrossa-
rækt að Brún til fjölda ára og hann
segist hafa verið að gera það mjög
gott. Þau hjónin seldu Akureyrarbæ
jörð sína fyrir skömmu og áttu að
fara af henni um mánaðamótin.
Hefði aldrei selt Brún
„Ég hefði aldrei selt Brún hefði
það flögrað að mér að þessi staða
kæmi upp. Jakob Björnsson, bæjar-
stjóri á Ákureyri, hefur hins vegar
veitt okkur leyfi til að dvelja eitt-
hvað áfram á jörðinni.“
Matthías segir að afgreiðsla
landbúnaðarráðuneytisins taki ekki
lengri tíma en 6 vikur. Hann er
þess fullviss að úrskurður ráðu-
neytsins verði sér í vil, enda hafi
hreppsnefnd ekki haft nein rök til
að ganga inn í kauptilboð hans á
jörðinni.
„ÉG MISSTI fjögur ber,“ segir lítill snáði
sem klöngrast yfir of stóra þúfu og hallinn
á berjaboxinu er ískyggilega mikill. Gæti
átt eftir að missa fleiri. Börnin á leikskólan-
um Árholti áttu skemmtilegan dag er þau
fóru í beijamó við Þelamörk í gær, sólin
skein og krökkt af beijum á hverri þúfu.
Ekki spillti fyrir að nestið var tekið með
en sumir voru spenntari fyrir því en beijun-
um.
Bara bláber góð
„Mér finnst mjög gaman í beijamó,“ sagði
Auður Eva sem er fimm ára. „Það er
skemmtilegast að tína ber.“ Hún var komin
með þó nokkuð af fallegum blábeijum í
fötuna sína og ætlaði að fara með afrakst-
ur dagsins heim þar sem hella átti beijunum
yfir skyr. „Mér finnst það best,“ sagði hún
og bætti líka við að mamma og pabbi fengju
að smakka á beijunum en annars ætlaði
hún að silja ein að krásunum. „Ég ætla að
tína fulla fötu, ég veit ekki hvað ég verð
lengi að því en kannski svolítið lengi.“
Auður Eva sagðist stundum fara í beij-
amó með mömmu sinni, einhvers staðar út
í sveit, samt ekki á Þelamörk. „Mér finnst
bara bláber góð,“ sagði hún og hélt áfram
að reyna að ná markmiði sínu, að fylla föt-
una af blábeijum út á skyrið sitt.
Krækibeijasúpa
„Ég ætla að reyna að fylla þennan dall,“
sagði Ágúst Már, fjögurra ára, alldijúgur
með umbúðir utan af þykkmjólk. „Þegar
ég kem heim með berin ætla ég að búa til
krækibeijasúpu. Maður á fyrst að kremja
öll berin og svo á að sjóða þau, þá er súpan
tilbúin," sagði hann. Ágúst Már hefur aldr-
ei áður búið til krækibeijasúpu, en sagði
að mamma sín hefði útbúið slíka súpu. „Ég
held ég geti það líka alveg ef mamma hjálp-
ar mér.“
Ágúst Már sagðist stundum fara í beij-
amó, hvert vildi hann ekki upplýsa, sagði
bara að hann færi langt út í sveit. „En það
eru ekki alveg eins mörg ber í mínum beija-
mó og þessum," sagði hann.
Skemmtilegt
að tína ber
Morgunblaðið/Kristján
ÁGÚST Már ætlaði að búa til kræki-
beijasúpu úr beijunum.