Morgunblaðið - 28.08.1997, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 28.08.1997, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 33 AÐSENDAR GREINAR ÞAÐ er óhætt að segja að aðgengi fyrir óvélvædda umferð í Reykjavík hafi batnað ótrúlega mikið undanf- arin misseri. Byggðar hafa verið brýr yfir miklar umferðaræðar, gangstéttafiáar lækk- aðir og sumar leiðir strætisvagna taka nú við reiðhjólum. Það er því óhætt að fagna því að með þessu hefur verið tekið fyrsta skrefíð í annars langri göngu til að veita öll- um jafnt aðgengi í samfélaginu. Þessar endurbætur fækka slysum, auka möguleika fatlaðra á að fara um Reykjavík án aðstoðar og gefur öllum tækifæri til þess að ferðast um með öðrum hætti en í einkabíl- um. Það er ánægjulegt að sjá að framsæknum borgarbúum, sem þeysast um borgina á reiðhjólum í ýmsum erindagjörðum, fjölgar. Með þeim hætti getur hinn almenni borgarbúi gefið sjálfum sér bestu kjarabót sem völ er á um ieið og hann minnkar helstu aðfinnsluefni borgarbúa sem eru; hættuleg bíla- umferð og mengun sem henni fylg- ir. Þó að pólitískur vilji virðist vera innan borgarinnar til að bæta að- gengi allra og margt hafi breyst til batnaðar nýtast endurbæturnar lítið þeim sem tekið hafa reiðhjólið fram yfir einkabílinn. Ekki hefur enn sést nein raunveruleg hjólabraut í Reykjavík sem nýtist sem sam- gönguæð. í öllum framkvæmdum er litið á reiðhjól sem afþreyingartæki sem athugasemdalaust á að taka sveig og beygjur framhjá bíl amannvirkj um sem sífellt stækka í hrópandi mótsögn við vistvænt umhverfi. Má þar t.d. nefna að Graf- arvogsbúar þurfa nú að taka á sig stóran og torfæran krók til að komast framhjá því risavaxna umferða- mannvirki sem reist hefur verið á mótum Sæbrautar og Miklubraut- ar. Þar var rokið í framkvæmdir án tillits til annarrar umferðar en bílaumferðar. Þar má að hluta til leita skýringa í áhugaleysi þing- manna. Þeir hafa ekki komið hjóla- stígum inn í vegalög sem leiðir svo til þess að sveitarfélög halda að sér höndum og/eða fúska ýmsar framkvæmdir þar sem ekki virðist vera til nein heildaryfirsýn eða þekking á fyrirkomulagi hjóla- stíga. Enn vantar allar merkingar sem afmarka hjólaumferð frá bí- laumferð annars vegar og gang- andi vegfarendum hins vegar. Einnig er ansi hart að ekki hafa enn sést neinir stígar sem tengja Reykjavík við nágrannasveitarfé- lögin þó að í allar áttir liggi stór- hættulegar akbrautir. Því leynast víða margar slysagildrur. Réttur gangandi vegfarenda og hjólreiða- fólks er yfirleitt óljós eða villandi og oftast bílnum í hag. Þótt stígar beggja vegna Miklubrautar séu mikið notaðir, bæði af gangandi vegfarendum og hjólreiðamönnum, hefur aldrei þótt ástæða til að lag- færa slitlag þeirra. Þá hefur heldur ekki þótt ástæða til að aðgreina hjólabrautir og gangstíga. Ekki hefur heídur þótt ástæða til að merkja gangbrautir, t.d. á ak- reinum að og frá Kringlunni né heldur vara bílstjóra við hjól- reiðamönnum eða gangandi vegfarendum með skiltum. Bið- skyldulínur eru oft öfugum megin við gangbrautir í hægri- beygjum við gatnamót svo að þegar bíll stöðvast á réttum stað stendur hann á miðri gangbraut. Þó að pólitískur vilji virðist vera innan borg- arinnar til að bæta að- gengi allra, segir Magn- ús Bergsson, nýtast endurbæturnar lítið þeim sem tekið hafa reiðhjólið fram yfir einkabílinn. Það hefur yfirleitt þótt nægja að benda gangandi vegfarendum á að víkja fyrir bifreiðum og hjól- reiðafólki á að víkja fyrir allri umferð. Ef litið er á forgangsröð- ina í umferðinni í nágranna- löndunum ganga gangandi veg- farendur fyrir. Á eftir þeim kemur hjólreiðafólk og vélknúin ökutæki reka lestina. Á íslandi er for- gangsröðin óljós og hafa gárung- arnir sagt að hér á landi sé fólk í einkabílum í fyrsta og öðru sæti, gangandi vegfarendur í því þriðja og hjólreiðafólk í því fjórða, þ.e.a.s. ef það hefur góðan lög- fræðing. Eins og sjá má eru verkefnin mörg og margvísleg og þurfa bæði ríki og sveitarfélög að taka sér tak í samgöngumálum og fara að sam- ræma aðgengi allra. Það er því virkilegt fagnaðarefni þegar stórt sveitarfélag eins og Reykjavíkur- borg hefur tekið fyrsta skrefið í rétta átt. Hver veit nema þingmenn verði nógu framsæknir og komi málefnum hjólreiðamanna í vega- lög fyrir 21. öldina. Með því áfram- haldi mun borgin geta tryggt gott aðgengi fyrir alla eftir aðeins 1 nokkur kjörtímabil. í tilefni þessa ágæta byijunar- skrefs Reykjavíkurborgar ætla Blindrafélagið, íslenski fjallahjóla- klúbburinn, íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík og Sjálfsbjörg á höfuð- borgarsvæðinu að afhenda Reykja- víkurborg viðurkenningu föstu- daginn 28. ágúst við nýju göngu- brúna yfir Miklubraut. Álmenning- ur er hvattur til að sýna hug sinn til þess sem vel hefur verið gert og fjölmenna á staðinn. Höfundur er formaður íslenska fjallahjólakúbbsins. StyrHir tál bifreiðaHaupa Tryggingastofnun ríkisins veitir viðtöku umsóknum vegna styrkja sem veittir eru hreyfihömluðum til bifreiðakaupa. Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal vera ótvíræð. Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1998 fást hjá afgreiðsludeild og lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi I 14, og hjá umboðsmönnum hennar um land allt. Umsóknarfrestur er til I. október. Tryggingastofnun ríkisins. Bætt aðgengi fyrir alla Magnús Bergsson TREK 800 SPORT Breið gróf- mynsfruðdekk 'rómólý/sfálsfel/ me ðsvilangr/ óbyrgð Áfaks- bremsur Vandaður búnaðurm eins árs ábyrgð Tilboöiö stendur aðeins í nokkro daga á örfáum hjólum af árgerð 7 997 35% AFSLATTUR! Sértilboð á FREESTYLE hjólum TREKSubvert l.Oá 19.812 (áður 30.410) FISHER Pure Bender Spin á 18.934 (áður 29.129) Dæmi: TREK 800, (21 gíra Shimano Altus, E-Z Fire Shimano skiptir, krómólí stell í mörgum stærðum, 26" álgjarðir og átaksbremsur) á kr. 23.620 (áður kr. 31.494) TREK 820, (21 gíra Shimano Alivio, GripShift skiptir, krómólí stell í mörgum stærðum, 26" álgjarðir og átaksbremsur) á kr. 27.564 (áður kr. 36.752) ULTRA WHEELS USA, LÍNUSKAUTAR, hlífar og fylgihlutir með 25% afslætti. Mikið úrval. Línuskautar frá kr. 4.432 (áður kr. 5.909) Ath.: Nokkrar gerðir barnahjálma á sértilboði á kr. 990. ALLVEG EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST KJORGRIP A TOMBOLUVERÐI SERTILBOD A BELL HJÁLMUM Reiðh/ólavers/uninp ORNINNF* RAÐGREIÐSLUR OPIÐ LAUGARDAGA KL. 10-16 SKEIFUNNI T T VERSLUN SÍMI 588-9890 VERKSTÆÐI SÍMI 588-9891 Kr. 19.609, (aður kr. 26.145,-) Tilboðið á hjólunum gildir einnig í Sportveri, Akureyri og Hjólabæ, Selfossi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.