Morgunblaðið - 28.08.1997, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 33
AÐSENDAR GREINAR
ÞAÐ er óhætt að
segja að aðgengi fyrir
óvélvædda umferð í
Reykjavík hafi batnað
ótrúlega mikið undanf-
arin misseri. Byggðar
hafa verið brýr yfir
miklar umferðaræðar,
gangstéttafiáar lækk-
aðir og sumar leiðir
strætisvagna taka nú
við reiðhjólum. Það er
því óhætt að fagna því
að með þessu hefur
verið tekið fyrsta
skrefíð í annars langri
göngu til að veita öll-
um jafnt aðgengi í
samfélaginu. Þessar
endurbætur fækka slysum, auka
möguleika fatlaðra á að fara um
Reykjavík án aðstoðar og gefur
öllum tækifæri til þess að ferðast
um með öðrum hætti en í einkabíl-
um. Það er ánægjulegt að sjá að
framsæknum borgarbúum, sem
þeysast um borgina á reiðhjólum í
ýmsum erindagjörðum, fjölgar. Með
þeim hætti getur hinn almenni
borgarbúi gefið sjálfum sér bestu
kjarabót sem völ er á um ieið og
hann minnkar helstu aðfinnsluefni
borgarbúa sem eru; hættuleg bíla-
umferð og mengun sem henni fylg-
ir.
Þó að pólitískur vilji virðist vera
innan borgarinnar til að bæta að-
gengi allra og margt hafi breyst
til batnaðar nýtast endurbæturnar
lítið þeim sem tekið hafa reiðhjólið
fram yfir einkabílinn.
Ekki hefur enn sést
nein raunveruleg
hjólabraut í Reykjavík
sem nýtist sem sam-
gönguæð. í öllum
framkvæmdum er
litið á reiðhjól sem
afþreyingartæki sem
athugasemdalaust á
að taka sveig og
beygjur framhjá
bíl amannvirkj um
sem sífellt stækka í
hrópandi mótsögn við
vistvænt umhverfi. Má
þar t.d. nefna að Graf-
arvogsbúar þurfa nú
að taka á sig stóran
og torfæran krók til að komast
framhjá því risavaxna umferða-
mannvirki sem reist hefur verið á
mótum Sæbrautar og Miklubraut-
ar. Þar var rokið í framkvæmdir
án tillits til annarrar umferðar en
bílaumferðar. Þar má að hluta til
leita skýringa í áhugaleysi þing-
manna. Þeir hafa ekki komið hjóla-
stígum inn í vegalög sem leiðir svo
til þess að sveitarfélög halda að
sér höndum og/eða fúska ýmsar
framkvæmdir þar sem ekki virðist
vera til nein heildaryfirsýn eða
þekking á fyrirkomulagi hjóla-
stíga. Enn vantar allar merkingar
sem afmarka hjólaumferð frá bí-
laumferð annars vegar og gang-
andi vegfarendum hins vegar.
Einnig er ansi hart að ekki hafa
enn sést neinir stígar sem tengja
Reykjavík við nágrannasveitarfé-
lögin þó að í allar áttir liggi stór-
hættulegar akbrautir. Því leynast
víða margar slysagildrur. Réttur
gangandi vegfarenda og hjólreiða-
fólks er yfirleitt óljós eða villandi
og oftast bílnum í hag. Þótt stígar
beggja vegna Miklubrautar séu
mikið notaðir, bæði af gangandi
vegfarendum og hjólreiðamönnum,
hefur aldrei þótt ástæða til að lag-
færa slitlag þeirra. Þá hefur heldur
ekki þótt ástæða til að aðgreina
hjólabrautir og gangstíga. Ekki
hefur heídur þótt ástæða til að
merkja gangbrautir, t.d. á ak-
reinum að og frá Kringlunni né
heldur vara bílstjóra við hjól-
reiðamönnum eða gangandi
vegfarendum með skiltum. Bið-
skyldulínur eru oft öfugum
megin við gangbrautir í hægri-
beygjum við gatnamót svo að
þegar bíll stöðvast á réttum stað
stendur hann á miðri gangbraut.
Þó að pólitískur vilji
virðist vera innan borg-
arinnar til að bæta að-
gengi allra, segir Magn-
ús Bergsson, nýtast
endurbæturnar lítið
þeim sem tekið hafa
reiðhjólið fram yfir
einkabílinn.
Það hefur yfirleitt þótt nægja
að benda gangandi vegfarendum
á að víkja fyrir bifreiðum og hjól-
reiðafólki á að víkja fyrir allri
umferð. Ef litið er á forgangsröð-
ina í umferðinni í nágranna-
löndunum ganga gangandi veg-
farendur fyrir. Á eftir þeim kemur
hjólreiðafólk og vélknúin ökutæki
reka lestina. Á íslandi er for-
gangsröðin óljós og hafa gárung-
arnir sagt að hér á landi sé fólk
í einkabílum í fyrsta og öðru sæti,
gangandi vegfarendur í því þriðja
og hjólreiðafólk í því fjórða,
þ.e.a.s. ef það hefur góðan lög-
fræðing.
Eins og sjá má eru verkefnin
mörg og margvísleg og þurfa bæði
ríki og sveitarfélög að taka sér tak
í samgöngumálum og fara að sam-
ræma aðgengi allra. Það er því
virkilegt fagnaðarefni þegar stórt
sveitarfélag eins og Reykjavíkur-
borg hefur tekið fyrsta skrefið í
rétta átt. Hver veit nema þingmenn
verði nógu framsæknir og komi
málefnum hjólreiðamanna í vega-
lög fyrir 21. öldina. Með því áfram-
haldi mun borgin geta tryggt gott
aðgengi fyrir alla eftir aðeins 1
nokkur kjörtímabil.
í tilefni þessa ágæta byijunar-
skrefs Reykjavíkurborgar ætla
Blindrafélagið, íslenski fjallahjóla-
klúbburinn, íþróttafélag fatlaðra í
Reykjavík og Sjálfsbjörg á höfuð-
borgarsvæðinu að afhenda Reykja-
víkurborg viðurkenningu föstu-
daginn 28. ágúst við nýju göngu-
brúna yfir Miklubraut. Álmenning-
ur er hvattur til að sýna hug sinn
til þess sem vel hefur verið gert
og fjölmenna á staðinn.
Höfundur er formaður íslenska
fjallahjólakúbbsins.
StyrHir tál
bifreiðaHaupa
Tryggingastofnun ríkisins veitir viðtöku
umsóknum vegna styrkja sem veittir eru
hreyfihömluðum til bifreiðakaupa.
Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal
vera ótvíræð.
Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1998
fást hjá afgreiðsludeild og lífeyrisdeild
Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi I 14, og
hjá umboðsmönnum hennar um land allt.
Umsóknarfrestur er til I. október.
Tryggingastofnun ríkisins.
Bætt aðgengi
fyrir alla
Magnús
Bergsson
TREK 800 SPORT
Breið gróf-
mynsfruðdekk
'rómólý/sfálsfel/ me
ðsvilangr/ óbyrgð
Áfaks-
bremsur
Vandaður
búnaðurm
eins árs
ábyrgð
Tilboöiö stendur aðeins í nokkro daga á örfáum hjólum af árgerð 7 997
35% AFSLATTUR!
Sértilboð á
FREESTYLE hjólum
TREKSubvert l.Oá
19.812 (áður 30.410)
FISHER Pure Bender Spin á
18.934 (áður 29.129)
Dæmi:
TREK 800, (21 gíra Shimano Altus,
E-Z Fire Shimano skiptir, krómólí stell í
mörgum stærðum, 26" álgjarðir og
átaksbremsur)
á kr. 23.620 (áður kr. 31.494)
TREK 820, (21 gíra Shimano Alivio,
GripShift skiptir, krómólí stell í mörgum
stærðum, 26" álgjarðir og átaksbremsur)
á kr. 27.564 (áður kr. 36.752)
ULTRA WHEELS USA, LÍNUSKAUTAR,
hlífar og fylgihlutir með 25% afslætti.
Mikið úrval. Línuskautar
frá kr. 4.432 (áður kr. 5.909)
Ath.: Nokkrar gerðir barnahjálma
á sértilboði á kr. 990.
ALLVEG EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST KJORGRIP A TOMBOLUVERÐI
SERTILBOD A
BELL HJÁLMUM
Reiðh/ólavers/uninp
ORNINNF*
RAÐGREIÐSLUR
OPIÐ
LAUGARDAGA
KL. 10-16
SKEIFUNNI T T
VERSLUN SÍMI 588-9890 VERKSTÆÐI SÍMI 588-9891
Kr. 19.609,
(aður kr. 26.145,-)
Tilboðið á hjólunum gildir einnig í
Sportveri, Akureyri og Hjólabæ, Selfossi