Morgunblaðið - 28.08.1997, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 28.08.1997, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 53 I I I I f I ( ( I ( ( i ( ( I ( I ( ( I ( ( I I ( EDDolbý DIGITAL# L\ ★ STAFRÆNT HLJOÐKERFI í ÖLLUM SÖLUM! ★ ALVÖRU BÍÓ! ★ Sprenghlægileg mynd með þeim Jeff Daniels (úr Dumb and Dumber) og Michael Richards (Kramer úr Seinfeld). Mynd um tvo tjónaða vini sem koma sér í ótrúlega klemmu eftir ævintýralegt steggjapartý. Skelltu þér á eina bestu grínmynd sumarsins. Jeff Daniels Michael Richards í Tómu TJÓIUI (Trial and Error) Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. WWW.SKIFAN COM s/m/ SS1 9000 LOST HIGHWAY i M \ 11{ i >//•)• ★ ★★1/2 „ mWíCA AHQiiiEmríEl D V 1» \ \ II) 11\< II - /;// / /’/ / / \i v> ER RAUNVERULEIKINN DRAUMUR EÐA ER DRAUMURINN KANNSKI VERULEIKI Hinn einstaki leikstjóri David Lynch (Blue Velvet, Wild at Heart) hefur hér sent frá sér einstaka mynd sem slær allt annað út sem hann hefur áður gert. Þú munt gleðjast um leið og þú grætur. Þú munt hlæja um leið og þú fyllist óhugnaði. Þú munt rata um leið og þú týnist. Þig mun dreyma í vöku. Ellefu ára leikari Bean EFTIR I DA6 heimsækið heimasíðuna www.mrbean.co.uk Islendingur á norskum fjölum UNGUR íslenskur leikari, Villi Þorri Vilhjálmsson, lék í hálft ár fyrir fullu húsi í leikritinu „Garman & Worse“ sem var sýnt í Stavangri í Noregi fram á sumar. Leikritið var sett upp í tilefni af 50 ára af- mæli Rogaland leikhússins í Stavangri en höfund- ur þess er Alexander Kielland. Villi Þorri er íslenskur í báðar ættir en hefur bú- ið í Noregi með móður sinni, Ásu Lilju Norðíjörð, og fósturfoður sínum, Jan Kove Jacobsen, um nokkurt skeið. Villi er 11 ára gamall og þurfti því stundum að fá frí í skólanum til að æfa fyrir leik- ritið. „Honum gengur svo vel í skóla að hann missti ekkert úr þrátt fyrir nokkra frídaga," sagði Ása Lilja, móðir Villa. „Við höfðum áhyggjur af því að það yrði of erfitt fyrir hann að leika í kvöld- sýningu því Villi fer venjulega að sofa klukkan átta, en leiksýningarnar stóðu fram að miðnætti. Þetta var þó ekkert mál fyrir hann og gekk mjög vel,“ sagði Ása Lilja. Villi segist ekki hafa fengið sviðsskrekk fyrir framan fullan salinn en foreldrar hans voru með tárin í augunum á frumsýn- ingunni enda stór stund fyrir þau 8U. Villa fannst mjög skemmtilegt að leika en ekki er komið í ljós hvort hann tekur þátt í starfi leikhússins í vetur. Hann segist hafa mikinn áhuga á að spreyta sig enn frekar í leiklistinni þótt stundum hafi honum fundist erfitt að leika. Villi Þorri lék nokkur hlutverk í leikritinu og þurfti að fara með texta í sumum þeirra. Leikritið Qallar um þrjár ólíkar stéttir, stétt fátækra, auðugra og strang- trúaðra. Það gerist á síðustu öld og hefur fengið mjög góðar við- tökur í Noregi. Leikritið var VILLI Þorri í hlutverki götustráks í leikritinu „Garman & Worse“. frumsýnt snemma árs og var uppselt á allar sýn- ingarnar en leikhúsið tekur um 400 manns í sæti. Að sögn Ásu Lilju var eftirspurn eftir miðum á leikritið svo mikil að auglýst var eftir þeim í út- varpi. Þar voru þeir sem hugðust ekki nýta miðana sína af einhveijum ástæðum hvattir til að láta vita og gefa öðrum kost á að sjá sýninguna. Villi Þorri heldur áfram í skólanum í haust og er aldrei að vita nema hér sé aðeins um upphaf að glæstum leikferli að ræða. í HÓPATRIÐUM þurfti Villi að syngja en á myndinni er hann þriðji frá hægri. Sýnd kl. 5, 7 og 9. i ■ MYNDBÖND Hemingway verður að manni Af stríði og ástum (In Love and War) Ástarsaga Framleiðandi: New Line Cinema. Leikstjóri: Richard Attenborough. Handritshöfundar: Allan Scott, Clancy Sigal og Anna Hamilton Phelan eftir samnefndri bók eftir Henry Villard og James Nagel. Kvikmyndataka: Roger Pratt. Tón- list: George Fenton. Aðalhlutverk: Sandra Bullock og Chris O’DonnelI. 95 mín. Bandaríkin. New Line Cinema/Myndform 1997. Myndin er bönnuð innan tólf ára. UNGUR Hemingway fer til Ítalíu sem sjálfboðaliði á vegum Rauða krossins í fyrri heimsstyrjöldinni. Þegar hann særist á fæti kynnist hann hjúkrunar- konu sem hann verður ástfanginn af. Hún hrífst einnig af Ernest, en getur ekld valið á milli hans og ítalsks læknis sem elskar þessa fögru konu líka. Ástarsaga þessa unga fólks er ansi skemmtileg, en ekki sérstak- lega áþreifanleg fyrr en kannski rétt í lokin. Eg fékk reyndar aldrei á til- finninguna að hér væri um Hem- ingway að ræða, þar sem maður hef- ur heyrt að hann hafi verið ansi ruddalegur náungi, og þá líklega „sterkari" persónuleiki en strákling- urinn Ernie er í þessari mynd. Hér er því þó haldið fram, og kannski einum of eindregið, að þessi fyrsta stóra ástarsaga hafi gert þennan dreng að manni, og Nóbelsskáldi. Persónulega held ég að eitthvað fleira þurfi að koma til. Myndin er ágæt skemmtun, og er það ákafi og kímni aðalpersónunnar sem gerir það að verkum, því að öðru leyti er hún heldur væmin. Attenborough notar dramatíska tón- list til að ýta undir æskilegt tilfinn- ingaflæði hjá áhorfendum, og er því oft að ýta undir eitthvað sem ekkert er. Sandra Bullock og Chris O’Donn- ell eru fínustu leikarar, en það er spuming hvort þau séu hér á réttum stað. Af stríði og ástum er ekki frumleg mynd á neinn hátt, en er þó forvitni- leg fyrir það eitt að vera um Ernest Hemingway. Hildur Loftsdóttir stærðfræði Mikið úrval reiknivéla Verð frá: 1699 kr staðgrent Umboösmenn umland allt. Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SlMI 69 16 OO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.